Morgunblaðið - 09.03.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.03.1989, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1989 Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson Unnið að siökkvistarfi í Eiðisvík í gær. Eiðisvík Fiskeldishús brann HÚS íslenska fiskeldisfélagsins í Eiðisvík við Gufunes skemmd- ist mikið I eldi um hádegisbil í gær. Um helmingur hússins, einnar hæðar timburhúss, brann til kaldra kola en afgangur- inn er skemmdur af hita og reyk. Eldsupptök eru ókunn en RLR vinnur að málinu. Eldur var í helmingi hússins þegar starfsmenn komu úr hádeg- ismat laust fýrir klukkan eitt. Þar sem eldurinn kom upp er tækja- geymsla fyrirtækisins, neta- vinnsla og fóðurblöndun. Talsvert var inni af netadræsum og öðrum eldmat, að sögn slökkviliðs. Slökkviliði tókst að hindra að eld- ur læstist í allt húsið en hinn helm- ingur þess, þar sem eru skrifstof- ur, skemmdist nokkuð af reyk og hita. Utanríkisráðherra um gagnrýni á leyfi tíl útflutnings á gámafíski: „Takmörkun á framboði á ábyrgð L.Í.Ú og útflytjenda“ „Hitar valda verðfallinu,“ segir umboðsmaður ytra JÓN Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra vísar gagnrýni Ara Halldórssonar, umboðsmanns í Þýskalandi alfarið á bug, en í blaðinu í gær gagnrýnir Ari utanríkisráðuneytíð harðlega og gerir það ábyrgt fyrir verðfalli því sem orðið hafí á gámafiski frá íslandi í Þýskalandi. „Ef ekki tekst að takmarka framboðið í næstu viku, þá verður það fyrst og fremst á ábyrgð L.Í.Ú. og útflytjenda sjálfra,“ sagði Jón Baldvin. „Fyrstu hitarnir eru komn- ir hér í Þýskalandi og þeir eru helsta ástæðan fyrir þessu verð- falli,“ sagði Samúel Grétar Hreinsson, umboðsmaður i Bremer- haven í Vestur-Þýskalandi, „Það eru tveir aðilar sem gefa viðskiptadeild utanríkisráðuneytis- ins með reglubundnum hætti upp- lýsingar um mat sitt á því hvað þýski markaðurinn þoli mikið fram- boð á helstu tegundum gámafiskjar í viku hverri. Ari Halldórsson er ekki einn af þeim,“ sagði utanríkis- ráðherra í samtali við Morgunblað- ið. Hann sagði að þama væri ann- ars vegar um að ræða forsvarsmann fiskmarkaðar í Bremerhaven og fulltrúa eins stærsta fyrirtækisins í Cuxhaven, sem héti Hein. VEÐUR VEÐURHORFUR í DAG, 9. MARS. YFIRLIT í 6ÆR: Um 300 km suö-suövestur af Vestmannaeyjum er 943ja mb. víöóttumikil lægð, sem þokast norð-norðaustur og fer heldur minnkandi, en 1014 mb. hæð yfir Norður-Grænlandi. Áfram veröur fremur hlýtt í veðri í bili, en veður fer hægt kólnandi og má búast við 1—3 stiga frosti um allt land á morgun. SPÁ:Horfur á morgun: Sunnan og suðaustanátt, víðast stinnings- kaldi. Él sunnan- og vestanlands en víða léttskýjað norðanlands. Hiti um frostmark. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Sunnan- og suðaustan- átt, kaldi eða stinningskaldi, víða ól sunnan- og vestanlands, en að mestu úrkomulaust í öðrum landshlutum. Frost 1—3 stig. Heiðskírt TÁKN: o á Léttskýjað ■á Hálfskýjað á Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r / r r Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * » V El = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —j. Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM U 12/00 i gmr að ísl. tima hltl vsður Akureyri 7 skýjsö Reykjavík 4 úrkoma Bergen 7 hólfskýjaö Helalnkl 2 ekýjaö Kaupmannah. 6 tóttskýjaö Naraaarssuaq +18 skýjað Nuuk +18 akafrenningur Oaló 6 rlgnlng Stokkhólmur 4 akýjeð Þórahöfn 8 alekýjaö Algarve 20 Mttakýjaö Amsterdam 9 léttskýjað Barcelona 10 súld Bertln 8 mlstur Chicago +7 skýjaö Feneyjar 9 þokumóða Frenkfurt 4 súld Glasgow 7 rignlng Hamborg 9 mlstur Lae Palmas 28 skýjað London 9 akýjaö Los Angelea 13 þokumóða Lúxemborg 2 alydda Madrfd 14 léttakýjaö Malaga 23 mlstur Mallorca 13 súld Montreal +19 skýjaö New York +8 alakýjaö Orlando 10 mfstur Parle 10 hálfskýjaö Róm 13 altkýjað San Dlego 12 þoka Vln 11 alskýjaö Washington +7 alskýjaö Wlnnipeg +2 þokumóöa í frétt frá utanríkisráðuneytinu segir að 3. mars hafi verið leyfður útflutningur á 385 tonnum úr 30 gámum og 600 tonnum úr fiskiskip- um. Selt hafi verið úr 38 gámum þar sem við hafi bæst afli úr b/v Barða, sem hætt hafi við siglingu. Jón Baldvin sagði staðreyndir máls- ins vera þær að trúnaðarmenn við- skiptadeildar hefðu síðustu tvær vikumar metið stöðuna svo, að í aðdraganda páskaviku væri óhætt að auka framboðið úr 10 til 12 gámum, í allt að 30 gáma. „Þessum upplýsingum hefur jafnaðarlega, samkvæmt reynslu mátt treysta. Það sem nú hefur gerst, er það, að það er aukið framboð eftir öllum leiðum inn á þýska markaði, og í annan stað er það mat þessara manna að hitabylgja sem gengur þar yfír nú, hafí dregið úr eftir- spum," sagði utanríkisráðherra. „Vegna þess að fulltrúar L.Í.Ú. hafa gerst harðorðir um þetta mál, er rétt að benda á eftirfarandi," sagði Jón Baldvin, „samkvæmt gamalli hefð þá stjómar L.f.Ú. sigl- ingum fískiskipa á þýska markaði. Jafnaðarlega hafa tveir til þrír tog- arar eða bátar landað á þýskan markað í viku hverri. Það sem mun skera úr um framhaldið er hvemig L.Í.Ú. takmarkar sitt framboð. Nú er upplýst að þeir hafi stefnt sex íslenskum skipum á þennan fisk- markað í þessari viku og líklega tvöfalda það magn sem venja er að flytja. Utanríkisráðuneytið hefur beint þeim tilmælum til L.Í.Ú. að það takmarki þetta, í ljósi upplýs- inga um of mikið framboð eftir ýmsum öðrum leiðum. Utanríkis- ráðuneytið mun takmarka framboð- ið samkvæmt mati sinna heimilda- manna í næstu viku, _en L.Í.Ú. þarf að gera það sérlega. Á það má einn- ig benda að það er ekki hag- kvæmasta leiðin til þess að koma ferskum fiski á markað, að láta dýr veiðiskip sigla og eyða þannig mörgum dögum í siglingu, löndun og veiðitap. Þetta er í rauninni úr- elt kerfi, eftir að ný tækni í flutning- um, gámatækni og aukið flug er komið til sögunnar," sagði utanrík- isráðherra. Samúel Grétar Hreinsson um- boðsmaður í Þýskalandi sagði að fiskneysla Þjóðveija hefði alltaf dottið niður í fyrstu hitunum á vor- in. „Þá draga margir þeirra fram útigrillið og grilla kjöt,“ sagði Samúel Grétar. Hann sagði að það væri ekki hægt að sjá það fyrir hvenær fyrstu hitamir kæmu. í fyrra hefðu þeir til dæmis komið í aprílbyijun. „í þessari viku verða seld hér 450 tonn úr gámum og 450 tonn úr skipum og það er ekki meira magn en reiknað hafði verið með," sagði Samúel Grétar. Hann sagði að vegna mikillar fiskneyslu kaþólikka á föstunni væru tvær næstu vikur með bestu söluvikunum í Vestur-Þýskalandi og þá yrðu seld þar 2.500 tonn af óunnum fiski. í sömu vikum í fyrra hefðu hins vegar verið seld þar 2.700 tonn af óunnum fiski. SAL Vaxtalækkun ekki í bíg'erð “ÞAÐ er ekki í bígerð að lækka vextina hjá okkur,“ sagði Hrafii Magnússon framkvæmdastjóri Sambands islenskra lífeyrissjóða. Fyrir skömmu lækkuðu vextir Lífeyrissjóðs verslunarmanna úr 8% í 7%, en Hrafii oagði lífeyris- sjóði innan SAL ekki hafa í hyggju að fylgja í kjölfarið. Hrafn sagði almennu regluna þá að vextir lífeyrissjóðanna innan SÁL fylgdu meðaltalsvöxtum samkvæmt vaxtalögum, en þeir eru nú 8.1%. Hann sagði ekki ástæðu til að skoða sérstaklega hvort lækka beri vexti lífeyrissjóðanna nú þegar. Sérstök ráðgjafanefnd hefði það mál tii um- ijöllunar og myndi hún skila áliti seinna í þessum mánuði. Guðmundur H. Garðarsson vara- formaður Lífeyrissjóðs verslunar- manna sagði við Morgunblaðið þegar vextir sjóðsins voru lækkaðir, að til- gangurinn væri að stuðla að breyt- ingum á vöxtum til lækkunar al- mennt og vonandi yrði þetta upphaf- ið að frekari lækkun raunvaxta. Karl Benediktsson hjá Lífeyris- sjóði Dagsbrúnar sagði sjóðina verða að ávaxta það fé sem þeir hefðu til umráða á sem hagkvæmastan hátt. „Staða margra sjóða er alls ekki góð og menn verða einfaldlega að gera allt sem f þeirra valdi stendur til að ávöxtunin sé sem best. Þetta er spuming um það hvort lífeyrissjóð- imir haldi velli," sagði Karl. Margeir í 1. sæti í Lugano: Vann Gheorghiu og gerði jafhtefli á móti Kortsnoj MARGEIR Pétursson er nú í 1. sætí með 5,5V2 vinninga af 6 mögu- legum, ásamt Kortsnoj, á opna skákmótinu í Lugano i Sviss sem stendur nú yfir. Karl Þorsteins er með 3,5V2 vinninga. í sjöttu umferð mótsins vann Margeir alþjóðlega meistarann Meijer frá Hollandi en Karl tapaði fyrir Nunn. Alls taka 196 skákmenn þátt í A-flokki mótsins, þar á meðal margir af sterkustu stórmeisturum heims. Margeir vann Júgóslavann Nicolic í annarri umferð, en sá er bróðir stórmeistarans Predrags Nicolics. í þriðju umferð vann hann Milosevic frá Júgóslavíu, en f fjórðu umferð vann hann rúmenska stórmeistarann Florin Gheorghiu. „Þetta var einn ánægjulegasti sigur minn á ferlin- um,“ sagði Margeir, en Gheorghiu bauð Margeiri jafntefli strax í upp- hafi skákarinnar. í 5. umferð tefldi Margeir við Vikt- or Kortsjnoj og hafði svart. Margeir fórnaði snemma peði, og Kortsjnoj eyddi miklum tíma við að finna vinn- ingsleið. Honum yfirsást flétta, og Margeir náði tveimur peðum í stað- inn, en þá var staðan orðið það ein- föld að ekki var hægt að vinna hana. Því var niðurstaðan jafntefli eftir 41 leik. Karl Þorsteins vann svissneskan skákmann í 2. umferð en tapaði fyr- ir Sovétmanninum Lemer í 3. um- ferð. í 4. umferð vann Karl júgóslav- neskan skákmann, Kliako að nafni. í fimmtu umferð tefldi Karl við Yass- er Seirawan og hafði hvítt. Karl átti undir högg að sækja alla skákina en tókst að veijast sóknum stórmeistar-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.