Morgunblaðið - 26.07.1989, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 26.07.1989, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ • MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1989 Guðrún Hans- dóttir — Minning Fædd 20. ágúst 1903 Dáin 14. júlí 1989 Það verður trúlega eriginn hér- aðsbrestur við lát Guðrúnar Hans- dóttur. Hún dó södd lífdaga og var ekki í hópi hinna þekktari þegna þessa þjóðfélags. En engu að síður, eins og séra Bragi Friðriksson komst svo vel að orði við kistulagn- ingu hennar, þá finnur maður fyrir lotningu frammi fyrir kistu hennar eins og svo margra annarra af þeirri kynslóð sem fæddist um síðustu aldamót, gekk í gegnum margvíslega erfiðleika, en sigraðist á þeim flestum og upplifði trúlega meiri breytingar en nokkur önnur kynslóð Islandssögunnar. Mér finnst það sérstaklega eiga við um Guðrúnu, sem fékk mikið að reyna í lífinu og skilaði góðu dagsverki. Hún fæddist að Þórkötlustöðum í Grindavík 20. ágúst 1903. Móðir hennar var Kristín Vilhjálmsdóttir, vinnukona í Grindavík, en um föður sinn fékk hún aldrei neitt að vita, var aldrei feðruð og einfaldlega kölluð Hansdóttir þar sem enginn hafði betri ráð. Guðrún missti móð- ur sína aðeins tíu ára gömul, og þarf engum getum að því að leiða hve mikill missir það var henni. „Ég grét oft sem bam og ekki síst yfir því að vita ekki hver pabbi minn var,“ sagði hún eitt sinn við mig. A gamals aldri var það henni ennþá mikið hjartans mál að fá staðfestan grun sinn í þeim efnum. Var sá grunur raunar mjög vel rökstuddur. Ekki er þó ástæða til að ýfa upp nein sár hér með því að bera á torg hvern hún taldi föður sinn vera. Eftir lát móður sinnar ólst Guð- rún upp hjá móðurafa sínum á Hvalsnesi. Nítján ára gömul réð hún sig í vist á Raufarhöfn, og átti þá að baki langa og erfiða sjúkrahús- legu. Fór það svo að á Raufarhöfn, þessum veðurbarðá stað á norðaust- urhluta landsins — þar sem menn hafa löngum haft lífsframfæri sitt nær eingöngu af fískveiðum — átti hún eftir að dvelja í íjörutíu og fimm ár. Þar kynntist hún Friðriki Guð- mundssyni verkamanni og stofnuðu þau heimili saman. Friðrik var all- miklu eldri en Guðrún, fæddur 24. sept. 1887 og lést hann 13. ágúst 1957. Er ekki hægt að segja annað en að samvistir þeirra hafí borið ríkulegan ávöxt. Þau eignuðust tólf börn og eru tíu þeirra enn á lífi. Afkomendur þeirra eru nú nærri hundrað talsins. Af mikilli þraut- seigju og dugnaði tókst þeim að koma sér upp ágætu húsi á tveimur hæðum þegar árið 1926 þama á Raufarhöfn og þrátt fyrir mjög erf- ið kjör lengst af og með svo stóran barnahóp þá er vitnisburður barria þeirra nú að þau hafí í raun aldrei liðið skort. Sú kynslóð sem nú er að vaxa úr grasi hefði þó kannski komið öðmm orðum að því þar sem oft mun það hafa verið svo að salt- fiskur var á borðum sex daga vik- unnar. Guðrún varð ekkja aðeins rúm- lega fimmtug, en lét ekki bugast við það. Árið 1967 flutti hún'frá Raufarhöfn suður á bóginn og var m.a. um skeið ráðskona í Keflavík. Síðustu árin bjó hún í Hafnarfirði í íbúðum fyrir aldraða að Sólvangi í Hafnarfírði, og hafði hún þá stund- um á orði að hún hefði aldrei haft það eins gott fjárhagslega og þá. Sýnir það vel nægjusemi hennar, að hún lagði fyrir nokkra upphæð á hveijum mánuði af ellilífeyri sínum, og sagðist a.m.k. ætla að sjá til þess að hún ætti fyrir út- förinni. Ég kynntist Guðrúnu er ég kvæntist dótturdóttur hennar og nöfnu fyrir ellefu ámm, og dvaldi hún oft á heimili okkar. Hún var svipsterk kona, hávaxin, þrekin, sterkbyggð og bar þess augljós t Útför bróður okkar, GUÐBRANDS HALLDÓRS GUÐMUNDSSONAR, sem lést 10. júlí á Vífilsstöðum, fór fram í kyrrþey 21. júli að ósk hins látna. Steingrímur Þ. Guðmundsson, Hörður S. Guðmundsson, Guðfinna H. Jónsdóttir. t Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, DÓRÓTHEA HALLDÓRSDÓTTIR, Hringbraut 116, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunnifimmtudaginn 27. júlíkl. 13.30. Brynja Tryggvadóttir, Egill Sveinsson, Björg Ágústsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og jarðarfarar eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, INGIMAGNS EIRÍKSSONAR, Meistaravöllum 7, Þuriður Jónsdóttir, Jón B. Ingimagnsson, Þórdís Karlsdóttir Guðrún E. Ingimagnsdóttir, Valdimar Stefánsson, Eirikur Ingimagnsson, Sigrfður Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. merki að hafa unnið mikið um ævina. Ekki þurfti lengi að ræða við Guðrúnu til að komast að raun um að hún var trúuð kona. Hún hafði mikinn áhuga á hinum dýpri sjón- armiðum tilverunnar, á dulrænum efnum, því sem að stundum er kall- að þjóðtrú íslendinga. En jafnframt kunni hún sitt Nýja testamenti. Það varð ég áþreifanlega var við er við horfðum saman á sjónvarpsmynd um ævi Jesú er sýnd var um það leyti sem ég hafði nýlokið embættis- prófi í guðfræði. Þá sýndi það sig að gamla konan þekkti söguþráðinn a.m.k. eins vel og nýútskrifaður guðfræðingur. Börn Guðrúnar eru: Klara f. 1. apríl 1925, búsett á Akureyri, gift Bimi Jónssyni; Guðmundur f. 12. ágúst 1926, búsettur á Raufarhöfn, kvæntur Helgu Lúðvíksdóttur; Kristín f. 14. júní 1928, búsett í Reykjavík, gift Þórði Jónssyni, d. 24. júlí 1977; Þorbjöm f. 11. júlí 1929, búsettur á Raufarhöfn, ókvæntur; Þorbjörg Sigríður f. 6. júlí 1930, d. 19. des. 1975, gift Brynleifi H. Steingrímssyni; Olöf f. 30. maí 1932, búsett á Seltjarnar- nesi,, gift Jóni Kristinssyni, d. 26. febr. 1974, sambýlismaður hennar er Guðni Björnsson; Hallsteinn f. 18. sept. 1933, d. 3 apríl 1955; Kári f. 29. des. 1934, búsettur á Akureyri, kvæntur Kolbrúnu Þor- steinsdóttur; Hrefna f. 12. apríl 1936, búsett á Raufarhöfn, gift Jóni Guðmundssyni; Guðrún f. 3. apríl 1938, búsett í Svíþjóð, gift Hans Landquisfy Bryndís f. 2. okt. 1941, búsett á Álftanesi, gift Ein- ari Sturlusyni; Friðrik f. 1. des. 1944, búsettur á'Selfossi, kvæntur Ragnheiði Ágústsdóttur. Dauðinn var Guðrúnu án efa ávinningur. Þegar henni fyrir skömmu vom færð þau sorgartíð- indi að tvær efnilegar dótturdætur hennar frá Raufarhöfn hefðu látið lífið í hörmulegu bílslysi, slysi sem segja má að hafi vakið þjóðarsam- úð, þá þótti henni sem endaskipti hefðu verið höfð á hlutunum og lét í ljósi þá von að hún mætti sjálf fara að kveðja enda orðin sjúk og minnið farið að gefa sig. í dag kem- ur því ætt hennar saman öðru sinni á skömmum tíma á Raufarhöfn í kveðjuskyni. Blessuð sé minning hennar. Gunnlaugur A. Jónsson tsjom Bjamason Jón Jónsson, tré- smiður — Minning Birting afmælis- ogminning argreina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldsiaust. Tekið er við greinum á rit- stjóm blaðsins á 2. hæð í Aðal- strætí 6, Reykjavík og á skrif- stofii blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort Ijóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta tilvitnariir í ljóð eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar get- ið. Sama gildir ef sálmur er birt- ur. Meginregla er sú, að minn- ingargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar aftnælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 60 ára eða eldra. SVAR MITT eftir Billy Graham Illar og góðar hugsanir Þú mundir líklega lýsa mér svo að ég væri illa innrætt- ur. Ég reyni að bægja ftá mér saurugiun hugsunum en tekst það ekki. Þær smjúga inn i hugann áður en ég veit af og ég er orðinn gagntekinn af þeim á augabragði. Hvers vegna er ég svona? Vera má að í umhverfí þínu og uppeldi sé að einhveiju leyti að fínna skýringuna á því hvers vegna slíkar hugsanir sælga sérstaklega á þig. En í raun og sannleika eiga allir í þessari glímu við og við, að hrekja á brott ljótar hugsanir. Biblían segir að nauðsynlegt sé að takast á við þennan vanda og af- saka sig ekki, því að við getum syndgað í hugsun alveg eins og í verki. Einnig er þess að gæta að við gerum það sem er rangt vegna þess að við hugsuðum fyrst um það. Jesús varaði okkur við: „Frá hjartanu koma illar hugsanir, manndráp, hórdómur, saurlifnaður, þjófnaður, ljúgvitni, last- mælgi. Þettaer það sem saurgar manninn." (Matt. 15,19—20.) Þú ert svona innrættur, segir Biblían, vegna þess að hjörtu okkar hafa snúið sér frá Guði og vilja hans varðandi líf okk- ar. Við erum eigingjöm. Við viljum snúast í kringum það sem við höldum að veiti okkur ánægju, jafnvel þó að einhver ann- ar hafí illt af því. __ Við þörfnumst þess að Guð snerti við huga okkar og taki í burtu þessar ljótu hugsanir, sem saurga okkur, og fylli okkur í staðinn hugsunum sem em réttar og siðlegar. Játaðu syndir þínar fyrir Guði, líka syndir huga og hjarta. Bið síðan Jesúm Krist að koma inn í líf þitt og hreinsa þig. Minnstu loforðs Biblíunnar: „Ef vér segjuln: „Vér höfum ekki synd,“ þá svíkjum vér sjálfa oss og sannleikurinn er ekki í oss. En ef vér játum synd- ir vorar, þá er hann trúr og réttlátur svo að hann fyrirgefur oss syndimar og hreinsar oss af okkur ranglæti." (1. Jóh. 1,8—9.) Þú hefur þegar komist að raun um að þú getur ekki af eigin kröftum losað huga þinn við þessar hugsanir. Þú þarfnast Krists og þegar þú helgar líf þitt honum tekur hann þær ekki aðeins í burtu heldur fyllir þig nýjum hugsunum þegar þú gengur með honum. Gef sjálfan þig Kristi á vald, og þá líka huga þinn. Síðan: „Hugsið um það sem er hið efra en ekki um það sem á jörð- inni er.“ (Kóloss. 3,2.) Þetta gerir þú einkum þegar þú lest orð Guðs, Biblíuna, hugleiðir sannindi hennar og lærir ritning- arorð utanbókar. Þú gerir það líka þegar þú snýrð þegar til Guðs í bæn, jafnvel þegar þú kannt að freistast til að snúa baki við Kristi. Kransar, krossar W ogkistuskreytingar. ‘ Sendum um allt land. GLÆSIBLÓMIÐ GLÆSIBÆ, ÁHhcimum 74. sími 84200 + Þökkum af alhug auðsýnda samúð, vináttu og ómælda hjálp við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar og tengda- föður, BJÖRNS M.L. KRISTJÓNSSONAR, Borgarholti 8, Ólafsvlk. Guð geymi ykkur öll. Jóhanna Elísabet Pálsdóttir, Páll Snæfeld Björnsson, Hrafnhildur Snæfeld Björnsdóttir, Birgir Snæfeld Björnsson, Elínborg Lárusdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.