Morgunblaðið - 09.08.1989, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.08.1989, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUpAGUR 9. ÁGÚST 1989 C 3 KORFUKNATTLEIKUR Þrír nýliðar í landsliðshópnum Fjórir leikmenn Tindastóls í næsta landsleik? ÞRÍR nýliðar eru í 20 manna landsliðshópi í körfuknattleik sem Laszlo Nemeth hefur valið til æfinga fyrir verkefni vetrarins. Tveir nýliðar koma frá Tindastóli, Eyjólfur Sverr- isson og Haraldur Leifsson og Jón Arnar Ingvarsson úr Haukum er einnig valinn í landsliðið í fyrsta sinn. Landsiiðið heldur til Laugar- vatns á föstudaginn og mun æfa þar um helgina. Næsta verk- efni er ferð til Bandaríkjanna í nóvember og líklegt er að liðið leiki gegn Dönum heima og heim- an. Eftirtaldir leikmenn skipa landsliðshópinn: Axel Nikulásson, Birgir Mikaelsson, Páll Kolbeins- son og Guðni Guðnason, KR. Frið- rik Ragnarsson og Teitur Örlygs- son, Njarðvík. Falur Harðarson, Guðjón Skúlason, Sigurður Ingi- mundarson og Magnús Guðfinns- son, ÍBK. Bjöm Steffensen, ÍR. Guðmundur Bragason og Jón Páll Haraldsson, Grindavík. Pálmar Sigurðsson, ívar Ásgrímsson og Jón Amar Ingvarsson, Haukum. Matthías Matthíasson, Val og Valur Ingimundarson, Eyjólfur Sverrisson og Haraldur Leifsson, Tindastóli. Pálnmr Sigurðsson og Páll Kol- beinsson koma inn í liðið að nýju eftir nokkurt hlé og líklegt er að Sturla Örlygsson, fjórði leikmaður Tindastóls, bætist í hópinn. ÍHémR FÓLX ■ DANSKI landsliðsmaðurinn Flemming Povlsen mun leika með hollensku meisturunum PSV Eind- hoven frá júlí á næsta ári. Povls- en, sem nú leikur með vestur þýska liðinu Cologne, hefur þegar skrifað undir þriggja ára samning hjá PSV Eindhoven, en kaupverðið er tæpar tvær milljónir dollara. ■ A TVINNULA USIR ítalskir atvinnuknattspyrnumenn byijuðu í gær í þriggja vikna æfingabúðum fyrir komandi tímabil, en raunar getur vel farið svo að þessir leik- menn spili ekki á því tímabili. ít- alska knattspyrnusambandið stend- ur fyrir þessum æfingabúðum fyrir knattspyrnumenn sem enn hafa ekki fundið sér lið fyrir veturinn. 45 leikmenn eru í hópnum og þar á meðal tveir fyrrum fyrstu deildar leikmenn sem báðir léku með As- coli. ■ BELGÍSKI landsliðsmaður- inn Enzo Scifo sem leikur með Bordeaux á Frakklandi hefur átt erfitt með að festa sig í sessi hjá liðinu. Þjálfarinn Raymond Goet- hals, tilkynnti um helgina að Scifo fengi líklega leyfi til þess að leika með franska liðinu Auxerre, en hingað til hafa ráðamenn Borde- aux verið á móti því að Scifo færi til annars fransks liðs. Scifo sem lék sinn fyrsta ieik með belgíska landsliðinu aðeins 17 ára hefur ekki verið valinn í landsliðshópinn und- anfarna mánuði. ■ LUXEMBORG kemur til með að leika heimaleik sinn við Portúg- al í undankeppni heimsmeistara- keppninnar í knattspyrnu í Vestur Þýskalandi. Leikurinn fer fram 11. október og áður var fyrirhugað að hann yrði spilaður í Metz í Frakkl- andi þar sem miklar viðgerðir fara nú fram á hinum rúmlega hálfar aldar gamla leikvelli í Luxemborg. Franska knattspyrnusambandið fór þess á leit við kollega sína í Luxem- borg að leikurinn yrði leikinn ann- ars staðar þar sem Frakkar eiga heimaleik við Skota á sama tíma. ■ ÁSGEIR Sigurvinsson og fé- lagar í Stuttgart léku tvo æfinga- leiki í Belgíu um helgina og töpuðu báðum. Fyrst 3:2 gegn Torpedo frá Moskvu i Sov- Frá étríkjunum og Einari síðan 2:0 gegn FC S!fíns,sy,ni ,. Brtígge. Liðið leik- i V-Þyskalandi ur g||n Köln á úti. velli í kvöld í vestur-þýsku deild- inni. ■ DANSKI leikmaðurinn Peter Rasmussen sleit krossbönd í leikn- um gegn Torpedo og verður frá í átta vikur. SKIÐI / HEIMSBIKAR KVENNA Reuter Svissnesku skíðadrottningarnar Maria Walliser til vinstri og Michela Figini urðu að láta í minni pokann í gær. Gerg sigraði í 1. brunkeppninni VESTUR-ÞÝSKA stúlkan Mic- haela Gerg, sem verður 24 ára í haust, gerði sér lítið fyrir og sigraði í fyrstu brunkeppni heimsbikars kvenna, en skíða- vertíðin hófst í Las Lenas i Argentínu ígær, 8. ágúst. Ekki ráð nema í tíma sé tekið! Gerg hefur aldrei verið í allra fremstu röð, en hún sigraði af öryggi, var fyrst af 44 keppend- um í rásröðinni, fór 2,162 km leið- ina á 1:30.48 mínútu og tryggði sér 25 stig. Heidi Zeller frá Sviss hafnaði í öðru sæti (1:31.23) og síðan kom austurríska stúlkan Veronika Wall- inger (1:31.47). Michela Figini frá Sviss, sem á titil að veija í bruninu og náði bestum tíma á æfingu í fyrradag, varð að láta sér fjórða sætið lynda (1:31.49) og Maria Walliser, Sviss, lenti í fimmta sæti. KNATTSPYRNA / ENGLAND Guðni í byrjunar liði Tottenham GUÐNI Bergsson lék allan leik- inn með Tottenham, er liðið vann norska liðið Viking 5:1 í Stavanger í gærkvöldi. Þetta var annar leikur Spurs af fimm í lokaundirbúningnum fyrir 1. deildina í Englandi, sem hefst laugardaginn 19. ágúst. Guðni átti að koma inn á fyrir Terry Fenwick í hálfleik á sunnudag, er Spurs tapaði 1:0 fyrir Glasgow Rangers í Glasgow. En eftir 20 mínútur meiddist Chris Houghton, miðvörður Spurs og tók Guðni stöðu hans. Hann lék vel og hélt stöðunni í gærkvöldi. Houghton var ekki eini leikmaður Spurs, sem meiddist gegn Rangers. Nayim fór úr axlarlið og viðbeins- brotnaði og verður frá í átta til 10 vikur. Félagarnir Gary Lineker og Paul Gascoigne rákust á og þurfti að sauma sex spor í höfuð hans. Tottenham leikur gegn Ólafi Þórðarssyni og félögum í Brann annaðkvöld, en síðan liggur leiðin til Madrid, þar sem liðið leikur gegn Dynamo Búkarest á föstudag og Atletico Madrid á laugardag. Guðni Bergsson Arsenal sigraði SigurðurJónsson með varaliðinu ENGLANDSMEISTARAR Arse- nal unnu argentísku meistar- ana Independiente 2:1 ífyrstu keppni meistara þjóðanna síðan 1982 á Miami í Banda- ríkjunum um helgina. Sigurður Jónsson var ekki með í ferð- inni, en lék með varaliðinu í gærkvöldi gegn utan deilda lið- inu Thanet United. David Rocastle gerði bæði mörk Arsenal, en Alfaro Moreno skoraði fyrir Independiente. Áhorf- AGANEFND endur voru aðeins rúmlega 10.000 o g þótti George Gra- Frá ham, stjóra Arsenal, Bob lítið til þeirra koma. Hennessy „Bandaríkjamenn lEnglandi . f » , , ~ hafa tæplega nmm ár til að fá áhuga á íþróttinni og verða að gera betur á HM 1994“ sagði hann. Áður en liðið hélt til Banda- ríkjanna var Graham spurður um Sigurð Jónsson. „Hann er tveimur vikum á eftir hinum hvað þrek varð- ar,“ var svarið. 12 leikmenn í bann Tveir leikmenn voru úrskurðaðir í tveggja leikja bann vegna ítrekaðrar brottvísunar á fundi aga- nefndar KSÍ í gær. Annar leikur með 2. flokki Víðis og hinn með Þrótti Neskaupstað, sem er í 3. deild. Alls voru 12 leikmenn úr- skurðaðir í bann, en 105 mál voru tekin fyrir á fundinum. Jón Þór Andrésson, Val, var eini leikmaður 1. deildar, sem fékk leiks bann — vegna brottvísunar. Fjórir leikmenn í 2. deild voru úrskurðað- ir í leiks bann; Jón Atli Gunnars- son, ÍBV, vegna brottvísunar, og Ingólfur Jónsson, Selfossi, Unnar Jónsson, Völsungi, og Sigurfinnur Sigurjónsson, ÍR, vegna fjögurra gulra spjalda. Einn leikmaður í 3. deild fékk tveggja leikja bann sem fyrr segir og leikmaður Njarðvíkur í 4. deild var úrskurðaður í leiks bann vegna fjögurra gulra spjalda. Önnur bönn voru vegna atvika í 2. flokki. Leik- maður Víðis fékk tveggja leikja bann vegna ítrekaðrar brottvísunar, annar var kominn með ijögur gul spjöld og tekur út bann í næsta leik fyrir vikið, og þjálfari liðsins var úrskurðaður í leiks bann vegna brottvísunar. Þá var leikmaður UBK úrskurðaður í leiks bann vegna brottvísunar og eins fór fyrir einum leikmanni 2. flokks Gróttu. KNATTSPYRNA / OPNA NM DRENGJA Fyrsti sigurinn gegn Englendingum ÍSLENSKA drengjalandsliðið í knattspyrnu vann enska liðið 3:21 annarri umferð opna Norðurlandamótsins, sem fer fram í Englandi þessa dag- ana. Liðið gerði 3:3 jafntefli við það finnska í fyrsta leik, en tapaði óvænt fyrir norska liðinuígær, 2:1. Að sögn Sveins Sveinssonar, fararstjóra, hefur liðið að mörgu leyti leikið vel. „Vörnin hefur hins vegar verið höfuðverk- ur á stundum, en það vissum við fyrir,“ sagði Sveinn við Morgun- blaðið í gær. „Leikurinn gegn Norðmönnum var afleitur og það hefði verið ósanngjarnt hefðum við náð stigi,“ sagði Sveinn. Þórður með tvö Þórður Guðjónsson KA (sonur Guðjóns Þórðarsonar, þjálfara KA) hefur sýnt afbragðs leik á miðjunni og auk þess gert góð mörk. Hann var hetja liðsins í fyrsta sigri íslensks landsliðs gegn ensku í knattspyrnu, er strákarnir unnu 3:2 eftir að hafa verið 2:0 undir. Þórður minnkaði muninn í 2:1 á 38. mínútu með skalla eftir horn frá Hákoni Sverrissyni og jafnaði beint úr aukaspyrnu á 75. mínútu. Skömmu síðar gerði Há- kon sigurmarkið. Sanngjarnt jafntefli íslenska liðið komst I 3:0 í fyrsta leik, en Finnar jöfnuðu á fjórum mínútum undir lokin og sagði Sveinn að jafnteflið hefði verið sanngjarnt. Finnar byijuðu á því að gera sjálfsmark um miðj- an fyrri hálfleik. Skömmu síðar átti Guðmundur Benediktsson gott skot, boltinn hrökk út, en Þórður Guðjónsson fylgdi vel á eftir og bætti öðru marki við. í byijun seinni hálfleiks gerði Guð- mundur þriðja markið eftir undir- búning Þórðar. Eftir þetta tóku Finnar öll völd og náðu að jafna. „Varamaður hleypti lífi í leik þeirra, en við vorum á hælunum," sagði Sveinn. Slakt gegn Norðmönnum Leikurinn gegn Noregi var slakasti leikur Islands og liðið var greinilega langt frá sínu besta. Islendingar komust þó yfir á 30. mínútu er Kristinn Lárusson skor- aði en Norðmenn tryggðu sér sig- urinn með tveimur mörkum í síðari hálfleik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.