Morgunblaðið - 17.08.1989, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 17.08.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1989 12 Tillögur Hafrannsóknastoftiunar um veiðiheimildir 1990: Hrikalegt áfall ef fera þarf eftir tillögunum - segir Jón Baldvin Hannibalsson - Þjóðarbúskapnum stefht í hallæri, segir Matthías Bjarnason JON BALDVIN Hannibalsson utanríkisráðherra segir tillögxir Haf- rannsóknastoíhunar um hámarksveiði þorsks og grálúðu á næsta ári koma sér á óvart og að það verði hrikalegt áfall fyrir þjóðarbúskap- inn ef nauðsynlegt reynist að fára eftir þeim. Morgunblaðið ræddi við hann í gær, þar sem hann var staddur á ísafírði. Enníremur var rætt við Matthías Bjarnason. Hann lýsti undrun á þeirri uppgjöf sem í tillögunum felst, á sama tíma og stærstu sjávardýrum fjölgar hvað mest eigi að binda skipin við bryggju. Ekki náðist í sjávarútvegsráð- herra. „Þær tölur sem þarna eru nefndar og stofnunin mælir með sem há- mörkum veiðiheimilda, þær koma mér á óvart,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra. „Ef nauðsynlegt er að fara eftir þeim, þá er hér um að ræða hrikalegt áfall, sem bætist þá við aðra erfið- leika sem við hefur verið að fást í sjávarútveginum að undanförnu. Það hefur ekki fyrst og fremst verið aflasamdráttur, heldur sú staðreynd að við höfum búið við of stóran og afkastamikinn fiskiflota miðað við það sem heimilt er að veiða og minna hráefni sem fer um sali fiskvinnsl- unnar hefur valdið þar erfiðleikum líka. Ég vil ekki slá því föstu á þessu stigi málsins, án nánari könnunar og viðræðna, hver raunveruleg nið- urstaða verður. Hins vegar er þetta ógnvekjandi." Jón Baldvin rifjaði upp, að í við- ræðum við sjávarútvegsráðherra Nýfundnalands, fyrir skömmu, lýsti hann reiðarslagi sem þeir höfðu orð- ið fyrir, fiskifræðingar þeirra hefðu ofmetið styrkleika helstu nytjastofna á þeirra fiskimiðum og hefðu nú boðað mikinn niðurskurð. „Þar voru tölurnar slíkar, að það átti að lækka hámarksveiðiheimildina að því er varðar þorsk, úr 296 þúsund tonnum í fyrra, niður í 135 þúsund tonn, sem þeir lýstu sem óbærilegu áfalli fyrir þeirra þjóðarbúskap. Ég held að menn þurfi að skoða vandlega þess- ar tölur Hafrannsóknastofnunar áð- ur en endanlegar ákvarðanir verða teknar og nota tímann vel til að meta hvernig þjóðarbúið bregst við, fari svo að þetta teljist óumflýjan- legt. Nóg að gert af völdum náttúrunnar Mér líst nú ekki alls kostar á það, að á meðan óðum fjölgar öllum stærstu dýrum sjávarins, þá eigi allt- af að 'draga úr veiðum, binda fleiri skip og hætta þessu basli að gera út,“ segir Matthías Bjarnason al- þingismaður og fyrrverandi sjávar- útvegsráðherra. „Ég held að það sé nóg að gert sem er af völdum náttú- runnar og þess sem við ráðum ekki við, þó að þessi ósköp öll bætist ekki við.“ Matthías kvaðst ekki geta metið líkurnar á að farið verði eftir tillög- um Hafrannsóknastofnunar, en verði það gert sé það..alveg sama og vera að stefna í algjört hallæri í þjóðarbúskapnum.“ Hann kveðst vera þeirrar skoðun- ar að stjórna þyrfti fiskveiðunum, én ekki með þessum hætti sem nú er gert. Hann var spurður hvort hann bæri sérstakan kvíðboga fyrir hlut Vestfirðinga í veiðunum. „Ég held að Vestfirðingar taki auðvitað á sig hlutfallslega sama samdrátt og aðrir landsmenn, en hins vegar hafa þeir verið settir í allt annan flokk á undanförnum tveimur árum og út yfir hefur tekið á þessu ári. Vestfirðingar hafa verið sterkir og athafnasamir til dæmis í rækjuveið- um. Hins vegar hafa Vestfirðingar enga hlutdeild í humar-, loðnu- eða síldveiðum. Það er þetta réttlæti sem Vestfirðingar mótmæla.“ Blindrafélagið: Haldið upp á hálfr- ar aldar aftnæli BLINDRAFÉLAGIÐ heldur upp á fimmtíu ára afmæli sitt næstkom- andi laugardag, 19. ágúst. Af því tilefni verður hátíðardagskrá í garðinum við hús félagsins að Hamrahlíð 17 í Reykjavík. Þar verða meðal annars haldin ávörp, Karlakór Reykjavíkur syngur og ljóð verða lesin, auk þess sem húsnæði félagsins verður sýnt al- menningi. Blindrafélagið var stofnað þann 19. ágúst 1939 og næsta laugardag verður haldið upp á hálfrar aldar afmæli þess. Efnt verður til sam- komu í garðinum við hús félagsins og hefst hún klukkan 13.00 með leik Lúðrasveitar verkalýðsins. Klukkan 13.30 heldur fulltrúi afmælisnefndar, Gísli Helgason, ávarp og verður síðan lýst kjöri þriggja heiðursfélaga. Þá mun borgarstjórinn í Reykjavík, Davíð Oddsson, ávarpa samkomuna, Torfi Jónsson lesa upp ljóð eftir Skúla Guðjónsson frá Ljótunnarstöðum og Jónas Tryggvason frá Blönduósi og Ragnar Magnússon, formaður fé- lagsins, flytja hátíðarræðu. Að því loknu syngur Karlakór Reykjavíkur nokkur lög. Klukkan 14.30 verður almenningi gefinn kostur á að skoða hús Blindra- félagsins og kynna sér þá starfsemi, sem þar fer fram. í Blindrabókasafn- inu fer fram sýning á nokkrum verk- um Siguijóns Ólafssonar, mynd- höggvara og á annarri hæð hússins sýning á ljósmyndum af blindu og sjónskertu fólki við nám og störf. fimmtu hæð hússins verður sýning á hjálpartækjum blindra og sjón- skertra, auk þess sem þar verður sýnd handavinna þeirra. 10.000. í júlí síðastliðnum náðist sá áfangi að farþegar Arnarflugs urðu í fyrsta skipti yfir tíu þúsund í einum mánuði. Þeir urðu samtals 10.372. Við erum að sækja í okkur veðrið. Lágmúla 2, sími 91-84477 Austurstræti 22, sími 91-623060 Flugstöð Leifs Eiríkssonar, ela og lýsa þeirri skoðun sinni að beinar viðræður fulltrúa ísraels- stjórnar og Frelsisamtaka Palestínu (PLO) geti orðið til þess að greiða fyrir lausn þessa ágreinings. Þá sé æskilegt að haldin verði alþjóðleg friðarráðstefna á vettvangi Samein- uðu þjóðanna með þátttöku allra fimm ríkja Öryggisráðsins og deilu- aðila þ. á m. PLO. Ráðherrarnir lýsa yfir áhyggjum sínum vegna fram- ferðis Israela á hernámssvæðunum og aukinna ofbeldisverka þar og kveðast hlynntir því að fram fari fijálsar og lýðræðislegar kosningar á hernámssvæðunum. Geti þær orðið til þess að greiða fyrir friðarviðræð- um svo framarlega sem gengið verði að skilyrðum Palestínumanna um fyrirkomulag þeirra. Um Líbanon segir að ástandið þar fari síversnandi og er mælst til þess að komið verði á banni við vopna- flutningum til hinna stríðandi fylk- inga hið fyrsta. Ráðherrarnir telja að lausn á vanda íbúa Líbanons þurfi að kveða á um brottflutning erlendra hermanna þaðan. Fundarmenn fagna því að vopna- hlé írana og íraka í Persaflóastríðinu hafi nú staðið í eitt ár og lýsa yfir ánægju sinni vegna alþjóðlegar ráð- stefnu um málefni Kambódíu sem fram fór í París í síðasta mánuði. Þá er lýst yfir stuðningi við sam- komulag forseta Mið-Ameríkuríkja um leiðir til að koma á friði í þessum heimshluta sem og þau áform fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna að senda eftirlitsnefnd til Nicaragua til að fylgjast með framkvæmd kosn- inga þar. Vikið er að samkomulagi um sjálf- stæði Namibíu og látin í Ijós von um að unnt verði að halda fijálsar kosn- ingar í landinu í nóvembermánuði á grundvelli samþykktar Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna númer 435. Ráðherranir kveðast á hinn bóginn harma að þróun mála í Suður-Afríku gefi ekki tilefni til sambærilegrar bjai-tsýni. Norðurlöndin muni áfram þrýsta á stjórnvöld í Suður-Afríku um að láta af kynþáttaaðskilnaðar- stefnunni og ítreka ráðherrarnir nauðsyn skipulegra refsiaðgerða í þessu skyni. Fram hafi komið að forystumenn Afríska þjóðarráðsins (ANC) séu reiðubúnir til viðræðna við suður-afríska ráðamenn og styðji utanríkisráðherra Norðurlanda þá friðarviðleitni. Umhverfismál Lokakafli ályktunarinnar fjallar um umhverfismál og segir þar að æskilegt sé að þeim málaflokki verði veitt aukin athygli á alþjóðavett- vangi. Styrkja þurfi starfsemi Sam- einuðu þjóðanna á þessu sviði auk þess sem miða beri að því að um- hverfisráðstefna Sþ árið 1992 skili raunverulegum árangri, helst í formi bindandi sáttmála. Þá fagna ráð- herrarnir þeirri tillögu finnsku ríkis- stjórnarinnar að fram fari alþjóðleg ráðstefna um umhverfisvernd á norð- urslóðum. í lokin segir að utanríkis- ráðherrar Norðurlanda muni næst koma saman í Ábo í Finnlandi 6-7 mars á næsta ári. Vinnupallar - Sölutilboð Gefum 15% afslátt á takmörkuðu magni af vinnupöllum á meðan birgðir endast. r r; ; i: £■& 1 1» rtfM j 1 t ! ! !Ím \! * • n i ‘ Él ! i > i!: l|(b S UnBj'tK f t':i": ! i f ; i | j.i.T j S Álhjólapallar Veggjapallar Innivinnupallar Pallarhf. Dalvegi 16, Fífuhvammi, Kópavogi, símar 641020 og 42322.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.