Morgunblaðið - 04.11.1989, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.11.1989, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1989 11 Aldarafmæli: Steinunn Guðmunds- dóttir, ljósmóðir Steinunn Guðmundsdóttir fædd- ist að Dröngum í Ámeshreppi 4. nóvember 1889. Hún fyllir því eina öld þann 4. nóv. 1989. Ljósmóðir í Strandasýslu frá 1914—1918 í Ár- neshreppi, og í Bitm og Kollafirði frá 1927-1942 ogfrá 1946-1956. Kjörorð hennar „Ljósmóðurstarf- ið var í mínum augum líknarstarf, launin vom aukaatriði“. „Ámes- hreppur var erfiður yfirferðar, t.d. fimm firðir og fimm hálsar. Enginn sími eða læknir á dagleiðargöngu frá syðri enda hreppsins. Hestar vom lítið notaðir á vetrum." Eftir göngu að vetri yfír Dranga- skörð, var næturvaka í köldu hreysi við erfíða fæðingu. Enginn læknir. Unga stúlkan tók nýfætt bam með sér heim. Ég hef kosið að láta afmælis- bamið tala sjálft. Brot úr kveðju- ræðu hennar, þegar hjón yfírgáfu Strandasýslu orðin öldmð og fluttu til Reykjavíkur. Ljósmóðursaga Steinunnar á Enni bíður enn óbirt. Nokkuð af ávarpi frú Steinunnar í samsæti við leiðarlok ljósmóður- starfsins. Vitnisburður og þakklæti. „Mín lífstíð er á fleygiferð, ég flýti mér til grafar." „Enn er komið haust, sem minnir á ævihaust okkar hjóna, sem erum nú að kveðja Strandasýslú. Á þessum sjónarhóli ellinnar hlýtur maður að staldra við og líta yfír farinn veg. Við þá sýn lyftist hugurinn til hæða, hvaðan öll góð og fulikomin gjöf kemur, og ég tek undir með skáldinu, sem sagði: Dýrð ég flyt þér. Drottinn alda. dýrð, fyrir tímans runnið skeið, dýrð, fyrir sýn til dulunsijalda, dýrð, fyrir hveija und er sveið. Án erfiðleika hefði ég ekki sann- reynt fyrirheiti Guðs orðs: „Ákalla mig í neyðinni, ég mun frelsa þig, þú skalt vegsama mig.“ Frá öllum erfíðleikum hefur Drottinn frelsað mig, og því langar mig til að veg- sama hann með mínum fátæklegu orðum. Fyrst ber að þakka mína góða foreldra, sem kenndu okkur fyrst af öllu að elska Guð og biðja. Dýr- mætar voru kyrrlátu stundirnar við húslestra hvem helgan dag á öllum vetrarkvöldum. Ég sé í anda bemskuheimilið mitt, „einslegt, fjarri heimsins glaumi." „Ekki kunni ég þá að biðja Guð að nota mig til einhvers góðs verks, nei, ég ætlaði að gera það sjálf. Hann mundi hjálpa mér, eins og „Allra þjónum", sem ég las um í Kirkjublaðinu hans pabba míns. Ogleymanleg em mér áhrifín frá þeim lestri, þegar ég eitt sinn á dmngalegum skammdegissunnu- degi leitaði að einhveiju lestrarefni, sem ég gæti lesið fyrir hana ömmu, sem kenndi mér mörgu fallegu bænaversin í rökkinu. Ég kenndi sárt í bijósti um þá, sem áttu bágt og ekkert var indælla, en þegar mamma var að gleðja fátæka, sem stundum komu. Allar sögur um líknarstarf, sem ég náði í, höfðu djúptæk áhrif á sálarlíf mitt. Ékkert fannst mér þó jafnast á við heiðingjatrúboð. Því að hvað er líkamleg neyð við það, að eiga enga von við aðkomu dauðans. Fyrst lærði ég í kverinu mínu síðustu boðun Frelsarans: Farið og gjörið allar þjóðir að lærisveinum o.s.frv. Það snart mig sérstaklega þá.“ „Þegar ég var beðin að verða ljós- móðir fyrir Árneshrepp, tók ég það sem kall til mín frá Guði. Þá var það líknarstarf fyrst og fremst, en ekki til að fá sem mesta peninga. Námstíminn, allt of stuttur, er sá indælasti vetur, sem ég hef lifað, einkum vegna þess, að ég komst þá í KFUK, sem ég hafði kynnst tveim árum áður í Reykjavík. Þar naut ég, án alls tilkostnaðar, varanlegri og dýrmætari lífsgleði, en nokkrar áðrar samkomur hafa upp á að bjóða.“ „Ljósmóðurstarfíð veitti mér ósegjanlega ánægju, en dýrkeypta reynslu, til þess að orðin frá Guði, sem ég hafði lært í kverinu mínu, gætu komið á erfiðum stundum, eins og stafur til að styðjast við. Ég gerði það, í þessum erfíða, síma- lausa og vegalausa hreppi. Þá komu til mín orðin: „Leitið fyrst ríkis Guðs og hans réttlætis" o.s.frv. Þá fyrst voru Guði falin öll ráð. Og dásamleg hefur öll handleiðslan verið. Fyrst heimili um veturinn hjá frú Önnu sál. Thoroddsen, sem upp frá því reyndist mér sem önnur móðir. Ég var svo lánsöm að kynnast systur Ólafíu Jóhannsdóttur á heim- ili frú Önnu. Ómetanleg blessun varð sú kynning mér eins og svo mörgum öðrum. Svo gaf Drottinn mér allt það besta, heimili, ágætan eiginmann og vel gefín, elskuleg böm. Líka fékk ég aftur á nýjum stað mitt kæra starf. Ekki sótti ég um það, en sýslumaðurinn dreif mig í það, og marg þætta blessun veitti það mér, þótt stundum væri erfitt. Fyrst og fremst lærði ég bókstaflega að fela Guði vegu mína. Hann sá svo dásamlega fyrir öllu, að alltaf kom ég þakklát heim úr hverri ferð.“ Þegar séra Ingólfur Ástmarsson kom síðast í Strandasýslu, til prestsþjónustu, um tíma, þá beið þar eftir okkur fallegt og eftir því gestrisið heimili hjá Kristjáni Jóns- syni símstjóra og frú Önnu Jóns- dóttur konu hans, frá Skriðnes- enni. Og Afmælisbarn þá níutíu og þriggja ára þann dag, beið okkar einnig, til þess að fagna okkur, sem kvöddum þar fyrir 40 árum. En 4. nóvember var liðinn fyrir tæpri klst. þegar við komum og Steinunn sofn- uð fyrir hálftíma. Við fengum ógleymanlega yndislegar móttökur hjá húsbændum. Daginn eftir kom afmælisbamið brosandi að heilsa okkur snemma morguns. Steinunn var mjög fríð kona, dökkhærð með dökk augu, blítt og bjart bros, festulegan svip og afar grannvaxin „Mjúk á fæti og fögur öll“, hefði mátt yrkja um hana. Eiríkur bróðir hennar bjó síðar á Dröngum, bændahöfðingi. Þau systkini létu panta fyrir sig orgel og orgelkennara líka, þegar þau voru um tvítugt. Mörg hljóðfæri og mikill söngur var á Dröngum í tíð Eiríks, og fjölskyldu hans. Þar er nú hljótt og allt í eyði. Á Dröngum var rekaviði brennt og góður viður til smíða, mikil hlunnindi. Nú talið óbyggilegt land. Steinunn fór ung í húsmæðra- skóla á ísafírði. Síðar í Ljósmæðra- skóla í Reykjavík. Þá kynntist hún Ólafíu Jóhannsdóttur. Það varð henni mikil upplifun í trú. En það var kona með óþekktu nafni, vinnu- kona á Dröngum, sem sagði barninu frá upprisu dýrð páskanna svo aldr- ei gleymdist. Steinunn litla var að tala um jólin, dýrlegust allra há- tíða. Þá voru jafn mörg kertaljós í baðstofunni, eins og fólki var margt. En konan sagði að það væri byijunin, en páskarnir væm sigurinn eftir allar þrautir. Þessi fátæka kona, var bömunum alltaf jafn góð. Hún var mikill raunamað- ur. í óprentaðri Ijósmóðursögu sinni, segir Steinunn frá handleiðslu Guðs, sem hún hefur stöðugt borið vitni frá æsku. Hún hafði ósljófgað minni fyrir sjö áram, og enn er það ótrújega skýrt. Hún nýtur hjúkrunar á hjúkr- unarheimili Hólmavíkur. Þar er dóttir hennar forstöðukona, Ólafía Jónsdóttir ljósmóðir. Steinunn ljósmóðir, giftist Jóni Lýðssyni bónda • á Skriðnesenni í Strandasýslu. Hún stundaði ljós- móðurstörf í áratugi. Hún var heiðruð af konum hreppsins, þegar störfum lauk. Þeg- ar þau hjón fluttu til Reykjavíkur frá Skriðnesenni, þá saknaði hún einskis. Hún gekk í KFUK og naut þess líka að fara í kirkju á hveijum degi. En fagnaðarefni var það samt, þegar Lilja dóttir hennar giftist Hákoni Ormssyni ungum manni, sem gerðist bóndi á Skriðnesenni. Þá fluttust eldri hjónin aftur heim. Það var að ég hygg Jóni bónda mikið fagnaðarefni. Hann var mað- ur greindur, fámæltur og stilltur og studdi konu sína vel í hveiju máli. Það var farsælt heimili. Við hjónin voram boðin til Stein- unnar og yngri hjónanna á Skrið- nesenni í heila viku, reyndar beðin að vera lengur. Á þeim dögum sem við dvöldum þar, sagði þessi fróða og minnuga kona mér margt frá fólki í Ámeshreppi og æsku sinni. Allar vora móttökumar á Skriðnes- enni og gestrisin með afbrigðum. Heimili Kristjáns Jónssonar símstjóra og frú Ónnu konu hans, hefur verið eitt mesta og besta gestaheimili í Hólmavík um áratugi. Tvær dætur Ennishjónanna, stunda hjúkrun, Ólafía Jónsdóttir, kirkjuorganisti í Hólmavík, og Anna Guðrún Jónsdóttir hjúkranarfr. í Reykjavík. Lýður Jónsson frá Skrið- nesenni og kona hans Mundheiður Gunnarsdóttir, búa í Reykjavík Margir efnilegir afkomendur, fagna nú aldarafmæli móður og formóður sinnar. Enn munu þau fá að heyra vitnisburð hennar, hundr- að ára gamallar konu, sem lagði torfæruland undir fót og treysti Guði í hverri ferð. Sjór, fjöll og óbrúaðar ár, vora á þeirri leið. Með vinarkveðju og blessunar- óskum, frá húsi mínu. Drottinn er ríkur af dögum og ríkur af náð. (GJ). Rósa B. Blöndals Sú kynslóð hlýtur að vera öðrum auðugri, sem lifað hefur öldina alla og jafnvel rúmum áratug bet- ur. Nú situr hún í sinni Hliðskjálf og sér of heima alla, eða a.m.k. yfir alla íslandssöguna. Manni finnst að sú kona, sem aldamóta- árið var 11 ára telpuhnokki á sauð- skinnsskóm við litla vík niður und- an háu fyalli á Ströndum, hafí ekki bara verið samtímamaður Hannes- ar Hafstein heldur einnig Jóns for- seta, Hallgríms Pé. og jafnvel Snorra. Við, sem erum núna rétt í þann mund að skríða inn á miðj- an aldur, megum telja það mikið lán að hafa náð í skottið á sög- unni og kynnst slíku fólki. Sjón- varpið er orðið jafn sjálfsagt og súrefnið og maður er að venjast tölvunni. Buxnastrengurinn er far- inn að minna á sig og lausu hárin verða fleiri og fleiri í greiðunni. Þá horfir maður í spegilinn og seg- ir: „Guð hjálpi þeim bömum, sem ekki fá að kynnast afa og ömmu á Enni.“ Steinunn Guðmundsdóttir, fyrr- um Ijósmóðir og húsfreyja á Skrið- insenni í Bitra, verður 100 ára 4. nóvember 1989. Hún fæddist og ólst upp á Dröngum í Strandasýslu einum afskekktasta bæ á landinu, meðan hann var í byggð. Síðla sumars 1913 var hún beðin að læra til ljósmóður fyrir heima- byggð sína og sinnti hún því kalli. Hún gegndi ljósmóðurstörfum norður þar til 1920 og síðar í Bitra og Kollafírði frá 1927 og með litl- um hléum í 30 ár. Oft var hún á ferð við erfíðustu skilyrði í ófærð og illviðram, læknishjálp fyarri og aðbúð ill, en bar lítt af sér. Hun sagði sjálf um eina slíka ferð: „Ein af sælustu stundum lífs míns var að geta hjálpað konunni. Það eitt var nægilegt gjald fyrir þetta erf- iða ferðalag." Steinunn leit á ljós- móðurstarfíð sem kall Guðs til sín og gegndi því sem slíku. Það var í hennar augum líknarverk og launin voru aukaatriði. 1923 giftist hún Jóni Lyðssyni, bónda á Skriðinsenni. Jón fæddist 13. maí 1887, einn 12 systkina, er öll lifðu og komust til manns. Þau bjuggu á óðali feðra hans, en sama ættir. hefur búið á Enni í meira en 2 aldir og er það mikill ættbogi. Jón naut ungur mikils álits sveitunga sinna og var valinn til forystu í sinni sveit, hrepp- stjóri, oddviti sveitarstjómar, for- maður skólanefndar, meðhjálpari prests og forsöngvari. Heimilið var mannmargt, 3 gamalmenni, vinnu- hjú og loks 5 börn, auk fósturdótt- ur. Böm þeirra Jóns og Steinunnar eru: Anna Jakobína, gift Kristjáni Jónssyni, póst- og símastjóra á Hólmavík, Lýður, bifreiðastjóri í Reykjavík, kvæntur Mundheiði Gunnarsdóttur, Ólafía, ljósmóðir á Hólmavík, Lilja, gift Hákoni Orms- syni, bónda á Skriðinsenni, Anna Guðrún, hjúkranarfræðingur á Akureyri. Hjá þeim ólst einnig upp Guðlaug Guðmundsdóttir, sem nú er látin. Oft var ljósmóðirin sótt einkum fyrstu árin og var stundum lengi að heiman. Jón bóndi kvartaði ekki þótt hann þyrfti að bæta á sig heimilisverkum þau skipti, sem hún var að heiman. Hann var þann- ig skapi farinn. Betri bakhjarl hef- ur ekki verið hægt að hugsa sér fyrir ljósmóður í sveit. Hann studdi einnig Steinunni dyggilega í öðrum hugðarefnum hennar. Slík afstaða var engan veginn sjálfgefin á fyrri hluta þessarar aldar (og raunar ekki enn) og lýsir það sér í orðum. Steinunnar um mann sinn látinn: „Ólýsanleg var umhyggja hans fyrir mér. — Aldrei datt honum í hug að taka af launum mínum til heimilisþarfa. Ég fékk að ráðstafa þeim eftir eigin vild. Þess vegna gat ég safnað til míns kærasta málefnis, — kristniboðsins.“ Á Skriðinsenni bjuggu þau hjón- in til 1958, er þau fluttu til Reykjavíkur um skeið. Þar festu þau lítt yndi og fluttu með Lilju, dóttur sinni, og Hákoni, tengda- syni, aftur að Enni og dvöldust þar í ellinni. Jón Lyðsson andaðist 17. ágúst 1969,82ja ára að aldri. Þrátt fyrir háan aldur var hann harm- dauði öllum er hann þekktu. Und- anfarin ár hefur Steinunn búið á elliheimilinu á Hólmavík og notið þar aðhlynningar dóttur sinnar Ólafíu, ljósmóður. 8 ára smápatti var ég sendur af mölinni í Reykjavík í sveit að Enni, síðasta búskaparvor Jóns og Steinunnar. Það tel ég vera ein- hveija mestu gæfu, sem hreppt hefur mig á lífsleiðinni að kynnast þessu fólki. Einhveijum kann að fínnast vanta á hlýju og mildi landsins við Bitrafjörð, svo sem eins og nafnið ber með sér. En því meiri er hlýja hjartanna og göfgi sálnanna. Þetta vor fékk ég pata af búskaparháttum og menningu liðins tíma. Þremur árum síðar jókst enn á lífsreynslu mína, er Lilja og Hákon hófu búskap ættar- innar að nýju á óðali feðranna. Þijú sumur fékk ég að fylgjast með, er jörðin var brotin til nýrra búskaparhátta, nýrrar aldar. Þar voru Jón og Steinunn fulltrúar hins liðna tíma, en fögnuðu þó nýjum landvinningum. Ég varð sem einn af ijölskyldunni og óhugsandi ann- að en að ég færi að kalla Jon og Steinunni afa og ömmu, eins og önnur börn á bænum. Túnið á Enni var ekki véltækt, nema að hluta, fyrstu sumrin. Jón varð því að kenna mér að slá með orfí og ljá, Steinunn að raka og rifja. Reynt var í þrjú sumur að kenna mér að mjólka kúna, en gekk illa. Hver steinn og þúfa hafði sína sögu og allir hlutir sína merkingu. Hér var líka gerður gleggri greinarmunur á réttu og röngu, en nú tíðkast. Spakur mað-' ur segir, að menning sé að gera hlutina vel. Á Enni kynntist ég íslenskri menningu. Steinunn er smávaxin kona, fíngerð og var kvik í hreyfingum. Einkum er hún mér minnisstæð, er hún gekk út á tún með hrífu og sagði „dríbbðu þig nú til pilt- anna góði“, ef ég var þungur á mér. Hun var kröfuhörð, en ég hvgg að hún hafi ekki gert meiri kröfur til annarra en sjálfrar sín. Hún sinnti okkur bömunum mikið og vel. Lifandi kristindómur og kristniboð var hennar mikla áhugamál. Ósvikin trú og kirkju- rækni setti þá og enn svipmót á heimilishaldið. Áram saman fylgd- ist Steinunn með og studdi kristni- boðið af eldlegum áhuga. Barn að aldri hreifst hún af frásögnum íslenska kristniboðslæknisins Steinunnar Hayes frá Kína. Hún kynntist starfi kristniboðsfélaga og KFUK, er hún dvaldist í Reykjavik veturinn 1911 til 1912 og síðar er hún var í ljósmæðra- náminu. Sótti hún þing kristniboð- "'svina og almenn mót í Vatnaskógi og mun hafa verið komin fram yfir nírætt, er hún kom þar síðast við. Tilteknar kindur þeirra hjón- anna voru kristniboðskindur og rannu allar afurðir til kristniboðs- ins. Hún kom fyrir söfnunarbauk í útsýnisvörðu á Bitrahálsi, þar sem útsýn er fegurst suður og austur yfir Húnaflóa og norður og vestur yfír Kollafjörð og inn Steingrímsfj örð. Enn á þetta mál- efni hug hennar allan. Á þessum tímamótum óska ég Steinunni til hamingju með langa ævi og farsæla. Ég samgleðst ætt- ingjum og vinum hennar fyrir norðan. Um hana verður sagt það sem hún sjálf sagði um lærimóður sína: „Hún var mikil ljósmóðir og göfug, trúuð kona.“ Gunnar M. Sandholt AUGNABLIKS- ANNÁLL eftirMagnús Oskarsson NÚ GENGUR það glatt. Við höfum ráðherra án ráðuneytis, aðstoðarmann án ráðherra og Borgaraflokkinn eins og líkfylgd án líks. Svo höfum við Stefán Valgeirsson sem gert hefur skrítluna um Flokk mannsins að alvöru. Við bætist handhafi forsetavalds, sem fyrir ári í nýjum 200 þúsund króna samkvæmiskjólum, fyrir lánsfé frá sjálfri sér, brá fæti fyrir annan handhafa sama valds — af siðferðisástæðum. Þriðji handhafi forsetavaldsins, sjálf- ur forsætisráðherrann, dylgjar um útgjöld fyrirrennara síns og> slapp aldrei þessu vant ekki með dylgjumar, og stundar nú lúsa- leit í gömlum nótum og kvittun- um embættisins. Við skulum vona að hann rekist ekki á reikning fyrir grænar baunir. Höfúndur er borgarlögmaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.