Morgunblaðið - 02.09.1990, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 02.09.1990, Blaðsíða 26
26 C MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1990 t Maðurinn minn, GEIR HALLGRÍMSSON seðlabankastjóri, lézt aðfaranótt 1 september. Erna Finnsdóttir. t Faðir okkar, ÓSKAR GISSURARSON áðurtil heimilis á Lokastfg 23, andaðist í Landakotsspítala föstudaginn 31. ágúst. Ásgeir Óskarsson, Helga Óskarsdóttir, Birna Óskarsdóttir, Guðlaug Óskarsdóttir. t Föðurbróðir okkar, KRISTJÁN JÓNSSON frá Snorrastöðum, Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi, lést í sjúkrahúsi Akraness föstudaginn 31. ágúst sl. Jarðarförin auglýst.síðar. Systkinin frá Snorrastöðum. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, JÓNJÓNASSON járnsmiður, Eskihlíð 22, Reykjavfk, lést fimmtudaginn 30. ágúst. Þóra Eiríksdóttir, Kristín Jónsdóttir, Gylfi Guðjónsson, Jón Torfi Gylfason, Hjalti Gylfason. t Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, BIRNA EYJÓLFSDÓTTIR, Asparfelli 2, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju miðvikudaginn 5. september kl. 15.00. Fyrir hönd annarra vandamanna, Eiríkur H. Tryggvason, íris Eiríksdóttir, Tryggvi Eiríksson, Eyjólfur Róbert Eiríksson. t Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, SVAVA í. GUÐMUNDSDÓTTIR, sambýlinu Skjólbraut 1a, Kópavogi, sem lést fimmtudaginn 23. ágúst, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju mánudaginn 3. september kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Hjartavernd. Fyrir hönd annarra vandamanna, Guðlaug B. Rögnvaldsdóttir, Björgvin Bergsson. t SVERRIR ÞÓR verður jarðsunginn frá Langholtskirkju miðvikudaginn 5. septem- ber kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á umönnunar- og hjúkrunarheimilið Skjól og Orgelsjóð Langholtskirkju. Ebba Björnæs Þór, íris Björnæs Þór, Kári Sveinbjörnsson, Kristján Björnæs Þór, Friðrik Björnæs Þór, Jón Þ. Þór, Elfn Guðmundsdóttir og barnabörn. Ingimar Guðmunds- son - Minning Fyrir skömmu lést í Sjúkraskýlinu í Bolungarvík móðurbróðir minn Ingimar Guðmundsson. I þessari síðbúnu samantekt viidi ég minnast þessa góða frænda míns og riíja upp nokkur minningarbrot sem mér eru kær. Ingimar var fæddur í Rekavík bak Látur árið 1904, sonur Guðmundar Pálmasonar vitavarðar á Straumnesi og fyrri konu hans Ketilríðar Þor- kelsdóttur. í Rekavík óist Ingimar upp í stór- um barnahópi. Þegar hann var fjög- urra ára veiktist hann hastarlega af kíghósta og líklega hafa einhver önnur veikindi lagst að um svipað ieyti. Uppfrá þessu gekk Ingimar ekki heill til skógar. Hann lamaðist að nokkru og vinstri hönd og fótur krepptist og stirðnaði. Honum var auk þess stirt um mál og talið óskýrt. Lífsbaráttan var hörð um síðustu aldamót í afskekktri smávík fyrir opnu hafi. Fullfrískt fólk mátti hafa sig allt við til að komast af. Afkom- an var háð líkamlegu atgervi, kröft- um og heilsu. Má því fara nærrri um hversu þeir sem voru minnimátt- ar urðu að leggja sig fram ef þeir áttu ekki að vera öðrum byrði. Eftir að Ingimar varð fullorðinn dvaldi hann á ýmsum stöðum og m.a. var hann um skeið heimilismað- ur hjá séra Jónmundi á Stað í Grunnavík. Ingimar minntist séra Jónmundar alla tíð með mikilli þökk og virðingu. Á prestssetrinu leið honum vel og sem dæmi um gæsku og mannkærleika séra Jónmundar má geta þess að einhveiju sinni tók hann Ingimar með til Reykjavíkur í einni af fyrstu ferðum sjóflugvéla hér á landi. Fyrir fatlaðan ungan mann sem ekki átti margra kosta völ í lífinu hefur þessi för verið ævintýri. Margra annarra minntist Ingimar með hlýju, ekki síst Soffíu Bærings- dóttur í Bolungarvík og barna henn- ar Vagns og Ásdísar sem hann var tíður gestur hjá eftir að hann varð heimilisfastur í Sjúkraskýlinu í Bol- ungarvík. Ingimar átti marga sanna vini og hann endurgalt þá vináttu með því sem hann átti best, — hlýju, einlægni og trúmennsku. Þrátt fyrir fötlun sína var Ingimar verkmaður góður. Öll þau verk sem honum voru falin og hann réði við leysti hann af hendi með stakri prýði. Hann var snyrtimenni mikið og vandaði allt sem hann gerði svo sem honum var frekast unnt. Þegar ég var að alast upp í foreldrahúsum í Eyrardal í Súðavík voru vélar yfir- leitt ekki komnar til sögunnar við heyskapinn. Ingimar, sem gjarnan dvaidi á heimilinu á sumrin, var lið- tækur við að riija og raka. Hins vegar var hann ekki alltaf ánægður með flýti og vinnulag annarra og hafði því oft sérstakan flekk í sinni umsjá. Þar voru rifgarðar þráðbeinir Svava Guðmunds- dóttír - Minning Fædd 20. júlí 1916 Dáin 23. ágúst 1990 Mágkona mín, Svava Guðmunds- dóttir, fékk hvíldina snemma morg- uns, fimmtudaginn 23. þ.m., eftir langvarandi heilsuleysi, sem hijáð hafði hana um árabií, en hún barð- ist við af æðruleysi og óbilandi krafti, sem var aðdáunarverður. Foreldrar Svövu voru Guðlaug Klementsdóttir og Guðmundur Jak- obsson bílstjóri hjá Smjörlíkisgerð- inni Smára í fjöldamörg ár. Þau hjón voru Húnvetningar að ætt, en búsett hér í borg um árabil, og eign- uðust í sínu hjónabandi átta börn, 6 dætur og 2 syni. Ein af dætrun- um, Svava, og Rögnvaldur bróðir minn gengu í hjónaband 20. nóvem- ber 1940 og eignuðust þau eina dóttur, en slitu samvistir, annar maður Guðlaugar var Halldór Bjarnason, stýrimaður, hann fórst með mb. Maríu 1. febrúar 1973, börn þeirra eru fjögur, þrjár dætur og sonur sem fæddist 26. maí 1973, skömmu eftir lát föður síns. Um árabil hefur Guðlaug verið í sambúð með Björgvini Bjarnasyni sjómanni, Austfirðingur að ætt, Svava mat hann mikils og var hann mikili vin- ur barna og barnabarna og góður heimilisfaðir. Árið 1978 fluttu þau Svava og Röggi í Fannborg nr. 1, þar leið þeim vel þrátt fyrir heilsu- leysi beggja, þar andaðist Röggi 22. maí 1980, og Svava þá orðin LEGSTEIIXIAR GRANÍT - MARMARI Helluhrauni 14, 220 Hafnafjörður, pósthólf 93, símar 54034 og 652707. t Faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, HELGI ÞORLEIFSSON, sem lést á Hrafnistu 27. ágúst, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kapellu 4. september kl. 15.00. Þeir, sem vildu minnast hans, er bent á Hrafnistu, Reykjavík. Maria Júlía Helgadóttir, Reynir Guðsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginkona mín og móðir okkar, ELLEN JÓNA KRISTVINSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 3. september kl. 15.00. Birgir Jónsson, Ása Sólveig, Ellen Birgis, Linda Björk, íris Ösp, Axel Jón. og jafnir, föng og lanir eins og lista- verk og hvergi strá í óreiðu. Enda þótt ég eigi margar góðar og hlýjar minningar um Ingimar er mér þó minnisstæðast hversu ein- lægur hann var, trúr og áreiðanleg- ur. Það var sama hvort það var stórt eða smátt sem honum var trúað fyr- ir. Hann lagði allt í sölurnar til að reynast traustsins verður. Þegar fólk sem maður með sanni getur talið til vina sinna, hverfur á braut verða slíkar minningar skýrari og maður gerir sér betur grein fyrir hversu dýrmætar og gefandi þær eru. Hafi Ingimar þökk fyrir allt það góða sem hann gaf af sjálfum sér. Hrólfur Kjartansson einstæðingur, en með góðra manna hjálp fluttist hún í febrúar ’87 í sambýlið Skjólbraut la í Kópavogi, og þar eins og áður leið henni vel, sagðist vera á dásamlegu, góðu heimili, allir góðir. Sjálf var hún einstaklega hjartahlý og góð kona. Hreinlætið og notalegheitin á heim- ili hennar var einstætt. Við, fjölskyldan, þökkum sam- fylgdina og vitum að nú mun Svava sameinast Rögga á Guðs vegum. Með þökk fyrir allt. Guðmundur Kristjánsson 108 Reykjavík, Sími 31099 Opiö öll kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.