Morgunblaðið - 20.02.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.02.1992, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 42. tbl. 80. árg. FIMMTUDAGUR 20. FEBRUAR 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Evrópska efnahagssvæðið: Nýtt álit frá Evrópu- dómstólnum í apríl Brussel. Frá fréttaritara Morgunblaðsins, Kristófer M. Kristinssyni. Framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins (EB) ákvað í gær að leita að nýju eftir umsögn Evrópudómstólsins um niðurstöður samningaviðræðnanna um Evrópskt efnahagssvæði (EES) hvað varðar dómstóla og eftirlitsstofnanir. Samkvæmt heimildum í Brussel er vonast til, að hægt verði að undirrita samninginn á ráðherrafundi EB 6. apríl næstkomandi þannig að hann geti tekið gildi 1. janúar 1993. Þrátt fyrir yfirlýs'ingar um hið gagnstæða ' samþykkti fram- kvæmdastjóm EB á fundi í Bruss- el í gær að senda samkomulagið, sem náðist við aðildarríki Frí- verslunarbandalags Evrópu (EFTA) um nýjan dómstólakafla í EES-samningnum, til umsagnar hjá dómstóli bandalagsins í Lúx- emborg og bar framkvæmda- stjórnin við skýlausri beiðni Evr- ópuþingsins þar að lútandi. Segja talsmenn EB, að allar líkur séu á því, að umsögn dómstólsins verði jákvæð enda brjóti samkomulagið, sem gert var við EFTA, í engu í bága við sáttmála EB. Samkvæmt heimildum í Brassel hefur þegar verið haft samband við Evrópu- dómstólinn auk þess sem flest þyk- ir benda til, að lausnin hafi verið fundin í nánu samráði við hann. í gær ákváðu samningamenn bandalaganna að ganga frá endan- legum samningstexta með stað- festingu aðalsamningamannanna frá því á föstudag til dreifíngar innan aðildarríkja samningsins. Það þykir þess vegna líklegt að undirbúningur undir staðfestingu EES samningsins geti hafist nú þegar í aðildarríkjum hans. Þá hefur Evrópuþingið farið fram á að fá samningstextann sem fyrst til þess að hægt sé að kynna efni hans rækilega þó svo að ekki sé mögulegt að taka hann fyrir formlega fyrr en samningurinn hefur verið undirritaður. í Brussel eru skiptar skoðanir um hvaða áhrif sú óumflýjanlega töf sem ný umfjöllun Evrópudómstólsins veld- ur kemur til með að hafa en rík áhersla er lögð á að standa við þær dagsetningar sem settar voru fram í upphafi. Fari svo að umsögn dómsins verði neikvæð verður, að sögn talsmanna EB, að taka málið upp að nýju en ekki er talið útilok- að að ákveðið verði að ganga frá samningnum þrátt fyrir neikvæða umsögn EB dómstólsins. Á fundi utanríkisviðskiptanefndar Evrópu- þingsins sagði talsmaður fram- kvæmdastjórnarinnar að samning- unum væri að fullu lokið og engin ástæða væri til að ætla annað en að Evrópudómstóllinn legði bless- un sína yfir niðurstöður samninga- mannanna frá í síðustu viku. Hann sagði jafnframt að álit dómstólsins lægi fyrir eftir 6—8 vikur. Þing- menn á Evrópuþingingu lýstu í gær ánægju með ákvörðun fram- kvæmdastjórnarinnar jafnframt því sem þeir itrekuðu mikilvægi þess að standa við þann ásetning að samningurinn taki gildi í upp- hafi næsta árs. Kosningar í Punjab Um þriðjungur kjósenda í Punjab á Indlandi virti að vettugi hótanir öfgamanna af trúflokki sikha og tók í gær þátt í fyrstu kosningunum í ríkinu í fimm ár eða síðan ríkið var sett beint undir stjórn- ina í Nýju Delhí. Var mikill viðbúnaður við alla kjörstaði en um hálf milljón hermanna og þjóð- varðliða gætti þess, að kosningarnar færu friðsam- lega fram. Á síðustu fimm árum hafa 12.000 manns misst lífið í óöldinni í ríkinu og þar af 5.700 aðeins í fyrra. Úkraínumenn Pfainirvna af- vopnunarviðræður Jeltsíns Talið að 64 milljónir manna í Rússlandi einu þurfi á aðstoð að halda Kíev, Frankfurt, Moskvu. Reuter. LEONÍD Kravtsjúk, forseti Úkraínu, gagnrýndi Borís Jeltsín, forseta Rússlands, harðlega í gær fyrir að eiga viðræður um kjarnorkuafvopn- un fyrir hönd samveldisríýanna án þess að hafa til þess umboð. Er óttast, að þessi yfirlýsing geti aukið enn ágreininginn með leiðtogum tveggja stærstu samveldisríkjanna. Háttsettur rússneskur embættis- maður sagði í gær, að Rússar þyrftu að fá eina milljón tonna af mat- vælum sem fyrst og þrjár milljónir tonna að auki á árinu. Kravtsjúk, forseti Ukraínu, sagði á fréttamannafundi í gær, að hefði Jeltsín verið að ræða um að fækka kjarnorkuvopnun samveldisríkjanna á fundi sínum með George Bush Bandaríkjaforseta nýlega, hefði hann ekki haft til þess neitt umboð. Sagði hann, að Jeltsín gæti aðeins Danmörk-N oregur: Ösamkomulag um flutn- ing á rússneskum þorski Ósló. Frá fréttarilara Morgunblaðsins, Jan Gunnar Furuly. ER EÐLILEGT að rússneskur þorskur sem Danir hafa keypt sé fluttur landleiðina um Noreg og þaðan til Danmerkur? Nei, segja Norðmenn en deilan um þetta mál er farin að valda erfiðleikum í samskiptum frændþjóðanna. Líta Danir hana mjög alvarlegum aug- um og Poul Schluter forsætisráðherra og Uffe Ellemann-Jensen utanríkisráðherra hafa rætt hana sérstaklega við norska starfsbræð- ur sína. Að því er segir í norska blaðinu Aftenposten eru Danir ævareiðir Norðmönnum fyrir óliðlegheitin og þeir líta á þau sem vanþakklæti af verstu tegund með tilliti til þess sem þeir lögðu á sig fyrir Norð- menn í samningunum um Evrópska efnahagssvæðið. Það hafi einfald- lega verið þeim að þakka hvað tókst að ná fram tollalækkun á mörgum norskum afurðum. í hnotskurn snýst deilan um at- vinnu og útflutningstekjur en Norðmenn vilja að rússneski þorsk- urinn sé unninn í Noregi. Dönsku fiskiðjuverin þurfa hins vegar meiri fisk en fæst af dönsku bátunum og Dönum finnst ekki nema eðli- legt að þeir fái að vinna þann rúss- neska fisk sem þeir hafi borgað fyrir, jafnvel þótt hann hafi við- komu í Noregi. Ekkert bendir þó til sinnaskipta hjá Norðmönnum, sem vísa i lagaheimildir frá sjötta áratugnum og koma í veg fyrir landanir rússnesku fiskiskipanna — nema fiskurinn verði unninn í Nor- egi. fækkað þeim vopnum, sem Rússar réðu yfir, og lagði til, að samveldis- ríkin fjögur, sem hafa kjarnorku- vopn á landi sínu, Rússland, Úkra- ína, Hvíta Rússland og Kazakhstan, stæðu saman að afvopnunarviðræð- um_ við Bandaríkjastjórn. Á fundi þeirra Bush og Jeltsíns í síðasta mánuði var rætt um verulega fækkun kjarnaodda og þeir James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, og Andrei Kozyrev, utanríkis- ráðherra Rússlands, samþykktu á þriðjudag að flýta viðræðum um frekari fækkun kjarnorkuvopna. Ágreiningur Úkraínumanna og Rússa í efnahags- og hermálum hef- ur farið dagvaxandi og óttast marg- ir, að hann geti orðið til að sundra samveldinu. Jegor Gaidar, aðstoðar- forsætisráðherra Rússlands, sagði í gær í viðtali við vikuritið Líter- atúrnaja Gazeta, að það gæti haft skelfilegar afleiðingar og hann kvaðst hafa meiri áhyggjur af sam- skiptum Rússlands og annarra sam- veldisríkja en af samskiptunum við umheiminn að öðru leyti. Jevgeníj ívanov, sem sæti á hjálp- arnefnd rússneskra stjórnvalda, sagði í Frankfurt í gær, að Rússland eitt þyrfti að fá í aðstoð eina milljón tonna af matvsélum á næstu tveimur eða þremur mánuðum og fjórar millj- ónir tonna alls á árinu. Tvær milljón- ir tonna af kjöti, eina milljón tonna af sykri, 300.000 tonn af matarolíu og 800.000 af barnamat, þar á með- al þurrmjólk. Sagði hann ekki um að ræða hungursneyð í landinu en áætlað væri, að 64 milljónir manna, aldrað fólk, öryrkjar, munaðar- leysingjar, börn og flóttafólk, þyrftu á hjálp að halda. -------» ♦ ♦------- Forkosningar í Bandaríkjunum: Áhyggjur af einangr- unarstefnu Manchester, London. Reuter. SLOK frammistaða George Bush í forkosningunum í New Hamps- hire í fyrradag hefur vakið áhyggjur víða um lönd og ótta við að hann fari að dæmi andstæðinga sinna og gerist talmaður aukinnar einangrunar- og verndarstefnu. Niðuretöður forkosninganna voru þær, að Bush fékk 58% atkvæða og Pat Buchanan 40% en í forkosning- um demókrata bar Paul Tsongas sig- ur úr býtum með 35% atkvæða. Raunar býst enginn við, að Buchanan geti sigrað Bush i forkosningaslagn- um en ljóst er að mikið fylgi hans stafi af áróðri fyrir öllu sem amer- ískt er og gegn því sem er útlent. Sjá frétt á bls. 24.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.