Morgunblaðið - 25.04.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.04.1992, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/LESBOK 93. tbl. 80. árg. LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Geysilegt tjón í Guada- lajara Óttast er að allt að þúsund manns hafi beðið bana í gas- sprengingunni í Guadaíajara, næststærstu borg Mexíkó, á miðvikudag, en í gær höfðu alls 230 lík fundist. Á annað þúsund manns særðust og rúm 15.000 misstu heimili sín. Mikil reiði ríkir á meðal borg- arbúanna í garð yfirvalda, sem hafa verið sökuð um að hafa látið hjá líða að fyrirskipa fólki að fara af svæðinu þrátt fyrir að þeim hafi verið skýrt frá gasleka. Carlos Salinas de Gortari forseti hefur fyrirskip- að rannsókn á málinu og niðurstaða hennar á að liggja fyrir á mánudag. Á myndinni kanna björgunarmenn og veg- farendur skemmdirnar af völdum sprengingarinnar. Sjá frétt á bls. 24. Reuter Afganistan: Skæruliðar ná Jalalabad og undirbúa valdatöku nýs ráðs Kabúl. Thc Daily Tcleffraph. SKÆRULIÐAR í Afganistan náðu í gær á sitt vald mikil- vægri borg, Jalalabad, sem er miðja vegu milli höfuðborgar- innar, Kabúl, og landamæranna að Pakistan. Skæruliðarnir höfðu setið um borgina frá því sovéska hernámsliðið fór úr landinu árið 1989 og heimildir herma að þeir hafi náð henni án verulegrar mótspyrnu. Þá var greint frá því að afganskar skæruliðahreyfingar væru að mynda 51 manns ráð til að stjóma landinu og stefnt væri að því að það kæmi saman í Kabúl innan tveggja daga. Héimildarmenn The Daily Tele- graph sögðu að ráðið kynni að fara til afgönsku höfuðborgarinn- ar með Benon Sevan, sérlegum sendimanni Sameinuðu þjóðanna, sem hyggst fara til borgarinnar á mánudag. Samkvæmt' heimildarmönnum úr röðum skæruliða verður Sigbut- ullah Mujadidi, leiðtogi afgönsku útlagastjórnarinnar frá 1988, for- seti ráðsins. Þeir sögðu hann hafa orðið fyrir valinu vegna þess að hann væri veikastur afgönsku leið- toganna og keppinautar hans hefðu talið að þeir myndu eiga auðvelt með að hafa áhrif á störf hans. Einn heimildarmaður staðhæfði að skæruliðaleiðtoginn Gulbuddin Hekmatyar, sem er heittrúaður múslimi, yrði forsætisráðherra. Erkifjandi hans, Ahmed Shah Masood, fengi hins vegar embætti varnarmálaráðherra. Allar helstu borgir Afganistans eru nú á valdi skæruliða og fyiT- verandi stjórnarhermanna, að Kabúl undanskilinni. Skæruliða- hreyfingarnar sitja nú um höfuð- borgina og reyna að fá stjórnar- hermenn, sem veija hana, til að gefast upp. Skæruliðarnir skiptast enn í tvær fylkingar og fréttaskýr- endur telja að enn sé hætta á að bardagar blossi upp á milli þeirra þrátt fyrir stöðugar samningavið- ræður leiðtoganna. Á miðnætti í fyrrinótt rann út sá frestur sem skæruliðar undir stjórn Hekmaty- ars höfðu gefíð Masood og banda- mönnum hans til að kalla skæru- liða sína frá Kabúl. Allt var þó með kyrrum kjörum í gær. Hek- matyar hefur hótað að ráðast á borgina gefíst stjórnin ekki upp án skilyrða í dag. Þrír atkvæðamiklir hershöfð- ingjar hvöttu skæruliðahreyfing- arnar til að mynda nýja stjórn sem allra fyrst. „Ákvörðun þeirra mun fá Afgani til að tárast af gleði,“ sagði einn þeirra, Nurul Haq Ulo- omi. Stjómin í Kabúl hefur þegar sagt að hún sé reiðubúin að afsala sér völdum ef skæruliðahreyfíng- arnar, sem eru að minnsta kosti tíu, gætu komið sér saman um myndun nýrrar stjórnar. Frakkland: Rússneskir njósnarar valda mikl- um usla París. The Daily Telegraph. RÚSSNESKUR njósnahringur, sem ljóstrað hefur verið upp um í Frakklandi, teygði arma sína til Bretlands og annarra Vestur- Evrópuríkja, að sögn franskra embættismanna. Leyniþjónustumenn vinna nú að því baki brotnu að reyna að gera sér grein fyrir þeim skaða sem nýstofnaður rússneskur njósna- hringur hefur valdið. Sextugur belgískur kaupsýslumaður, Emile Eliard, stjórnaði starfsemi hans frá Brussel. Belgíudeild njósnahringsins hef- ur verið upprætt en hún fékkst aðallega við iðnaðarnjósnir og hernaðarleyndarmál. Eftir að upp komst um njósnirnar var fjórum Rússum vísað úr landi í Belgíu og voru tveir þeirra stjórnarerindrek- ar er störfuðu við rússneska sendi- ráðið. I Frakklandi er hermt að hringurinn hafi m.a. komist yfir upplýsingar um svonefnt Rita-fjar- skiptakerfi sem Frakkar notuðu til þess að senda leynilegar upplýs- ingar meðan á stríðinu fyrir botni Persaflóa stóð. Franskur heimilda- maður sagði að hefði njósnahring- urinn náð eins miklum árangri í öðrum löndum væri ljóst að mikið tjón hefði hlotist af starfsemi hans. Upp komst um njósnahringinn eftir að fyrrum starfsmaður sov- éska sendiráðsins í Brussel, Vladímír Komoplíev, bað um póli- tískt hæli í kjölfar hruns Sovétríkj- anna. Sönnun fundín fyr- ir Hvellinum mikla London. Reuter. STJARN- og stjarneðlisfræðingar víða um heim eru í sjöunda himni ef svo má segja vegna merkilegrar uppgötvunar banda- rískra vísindamanna. Þeir hafa fundið „gárur“ á geimgeislun- inni en þær geta skýrt hvers vegna stjörnur og stjörnuþokur urðu til og staðfesta einnig kenninguna um upphaf alheims í Hvellinum mikla. „Þetta er uppgötvun aldarinn- ar ef ekki allra tíma,“ sagði Step- hen Hawking, prófessor við Cambridge-háskóla og einn fremsti stjamfræðingur í heimi þrátt fyrir að vera mikið fatlaður og bundinn við hjólastól. Sagði hann, að uppgötvunin staðfesti kenningar sínar og annarra um það, sem gerst hefði eftir Hvell- inn mikla. „Það hefði átt að finnast einhver „óregla“, ein- hveijar leifar hennar, en upp úr henni eru stjörnuþokurnar sprottnar, sólir og reikistjörnur eins og jörðin,“ sagði Hawking. Samkvæmt kenningunni um Hvellinn mikla var allt efni sam- ankomið á einum stað fyrir 15 milljörðum ára. Þá var alheimur- inn minni en ein frumeind en svo leystist hann úr læðingi í gífur- legri sprengingu. Hann hefur síðan verið að þenjast út en vísindamenn hafa furðað sig á hvers vegna hann er ekki samur og jafn að öllu leyti. „Gárurnar" á geimgeisluninni, þessar leifar óskapnaðarins í upphafi, skýra það, „þær eru týndi hlekkurinn“ eins og Carlos Frenk, eðlisfræð- ingur við Durham-háskóla í Eng- landi, sagði. Reuter Stjórnmálakarpinu mótmælt Allt að 75.000 félagar í verkalýðshreyfingunni Samstöðu í Póllandi gengu um götur Varsjár í gær til að krefjast þess að stjórnmála- menn landsins hættu að karpa og einbeittu sér að því að koma á efnahagsumbótum. Þetta er fjölmennasta kröfuganga í Póllandi frá því Samstaða kom kommúnistum frá völdum 1989. „Þetta er næstsíð- asta viðvörunin. Sú síðasta verður allsherjarverkfall," sagði Marian Krzaklewski, leiðtogi hreyfingarinnar. Lech Walesa forseti ávarpaði fólkið og kvaðst styðja kröfur þess. Talið er að hann hafí átt þátt í skipulagningu göngunnar vegna óánægju með störf þingsins, sem einkennist af sundrungu og er skipað fulltrúum 29 flokka. Myndin var tekin af göngufólkinu og á líkkistunni fyrir miðju stendur: „Gjöf til stjórnarinnar frá verkalýðnum."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.