Morgunblaðið - 08.07.1992, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 08.07.1992, Blaðsíða 41
KNATTSPYRNA / MJOLKURBIKARKEPPNIN FOLK' ■ LÁRUS Sigurðsson, mark- vörður Þórs, marðist illa á hásin í leiknum í gærkvöldi. Hann varð að fara af velli er nokkrar mín. voru eftir, var fluttur á sjúkrahús en fékk að fara heim að skoðun lokinni. ■ PAVAL Vandas leikmaður KA var sá eini úr 1. deild sem var úr- skurðaður í leikbann á fundi aga- nefndar KSÍ í gær. Fékk eins leiks bann fyrir að hafa fengið fjögur gul spjöld í leikjum sumarsins til þessa. Vandas verður því ekki með í deildarleiknum gegn ÍBV nyrðra á föstudaginn. ■ PÉTUR Ormslev lék ekki með Fram í gær. Hann er meiddur á hné og kom nafni hans Pétur Þ. Oskarsson inn í liðið fyrir hann. ■ VALUR Valsson lék ekki með UBK í gær. Hann meiddist í baki á æfingu á laugardaginn og gat því ekki leikið með. ■ BALDUR Bragason kann að fagna marki. Hann fór flikk flakk þegar hann gerði mark Vals í gær. ■ ÓMAR Jóhannsson, leikmaður og aðstoðarþjálfari ÍBV var skorinn upp við meiðslum á hægra hné sl. fímmtudag og ljóst er að hann leik- ur í fyrsta lagi aftur með liðinu í síðustu umferðum deildarinnar. ■ SÍGURLÁS Þorleifsson, þjálf- ari Eyjamanna var mjög vonsvik- inn yfir vítaspymudómnum sem hann taldi ekki réttan. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um leikinn. ■ SALERNISAÐSTAÐA fyrir áhorfendur á Isafjarðarvelli er lít- il sem engin, og hefur lítið verið gert til að bæta úr þeim málíum þrátt fyrir stöðugar kvartanir hags- munaaðila. aólin^öUur Leiru ígsssa»v íáóUnsvöllur Le* oqí | g auo/.ntUiívniM flfTTOSWI GiaMaHTjoaoM MOKGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1992 Yfirburðir Vals ífyrri hálfleik BIKARMEISTARAR Vals hófu þátttöku sína í Mjólkurbikarnum með glæsilegum leik ífyrri hálfelik gegn Breiðabliki. Tvö mörk með minútu millibili dugðu Valsmönnum í átta liða úrslitin og undir lokin bættu þeir við þriðja markinu en heimamönnum var hins vegar fyrirmunað að skora. Valsmenn byrjuðu af miklum krafti og léku raunar skemmtilega í fyrri hálfleiknum. Ágúst fékk gullið SkúliUnnar tækifæri til að skora Sveinsson strax eftir sjö mín- útur en Cardaklija, markvörður Blika, varði vel. Anthony Karl Gregory gerði fyrsta mark leiksins á 9. mínútu. Hann fékk boltann á vítateigslín- unni og snéri hliðinni í markið. Hann tók knöttinn laglega niður á brjóstið, snéri sér og vippaði knett- inum glæsilega með hægra fæti efst í markhornið. Arnljótur Davíðsson gerði annað mark Vals aðeins mínútu síðar. Hann fékk sendingu inná mark- teigshornið hægra megin, lék á einn varnarmann Blika og vippaði yfir markvörðinn. Tvö mörk með mínútu millibili og bæði gerð þannig að knettinum var vippað yfir mark- vörðinn. Valsmenn yfirspiluðu Blika fyrsta hálftímann en eftir það kom- ust heimamenn meira inní leikinn og fengu mörg færi til að minnka muninn og jafna. Það tókst þeim ekki því Bjarni Sigurðsson lokaði marki Vais. Þegar sjö mínútur voru eftir gerði Baldur Bragason þriðja mark Vals, fékk boltann á mark- teig, að því er virtist rangstæður, en ekkert var dæmt og hann skor- aði örugglega. Leikurinn var fjörugur en full mikil harka færðist í hann í síðari hálfleik. Blikar voru að vonum orðn- ir langeygir eftir marki því færin fengu þeir svo sannarlega, en ekk- ert gekk. Hilmar, Amar og Siguijón voru bestu menn Blika en Valsliðið lék allt vel að þessu sinni. Morgunblaðiö/Sverrir Vippað! Amljótur Davíðsson gerir hér annað mark Vals gegn UBK. Hann vippaði knettinum yfir markvörðinn eins og Anthony Karl gerði í fyrsta markinu. • FH vann ÍBK svo eins og þeir byijuðu þann fyrri með stórsókn og ætluðu sér greini- lega ekkert annað en sigur. Ifyrsta umtalsverða færið kom í hlut Olafs Kristjánssonar en skot hans hafnaði í stönginni. Þá gerðu Keflvíkingar sig seka um glappaskot sem kost- aði mark og virtist um leið draga úr þeim allar vígtennur. Ólafur markvörður sendi boltann til vam- armanns sem huggðist senda hann áfram, en tókst ekki betur til en svo að hann sendi boltann beint til Andra Marteinssonar sem var fljót- ur að þakka gott boð og skoraði yfír Ólaf. Því næst átti Hörður Magnússon skot í stöng og stuttu síðar bætti hann við öðru marki FH - skallaði í markið eftir sendingu frá Hall- steini Arnarsyni. Keflvíkingum tókst svo að rétt sinn hlut með marki skömmu fyrir leikslok þegar FH-ingar gleymdu sér augnablik í vöminni og var þar að verki Georg Birgisson. Nýr hópleikur! Sumarleikur '92 hefst í leikviku 28. Hafiö samband við okkur í síma: 91-688322 fslenskar getraunir FH-INGAR tryggðu sér réttinn til að leika í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar þegar þeir sigruðu Keflvíkinga 2:1 í Keflavík í gærkvöldi og voru það eftir atvikum sanngjörn úrslit. í hálfeik var staðan 0:0. Hafnfirðingar sem höfðu fengið slæma útreið í síðustu tveim- ur leikjum sínum í 1. deild hófu leikinn með látum og gerðu harða hríð að marki Keflvík- inga í upphafi leiks- ins. Heimamenn vörðust þó vel og náðu smám sam- an að láta meira að sér kveða og voru þeir raunar betri aðilinn lengstum í fyrri hálfleik. Ekki var mikið um marktækifæri og eina umtalsverða færið kom í hlut Keflvíkinga, en Stefán Arnarson varði vel gott skot frá Gunnari M. Jónssyni. Síðari hálfleikinn hófu FH-ingar Björn Blöndal skrifarfrá Keflavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.