Morgunblaðið - 11.07.1992, Blaðsíða 16
16
MORGtJNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JULÍ 1992
Jöklahj ólaleiðangnr 1992:
Ætla að hjóla
yfir Vatnajökul
FIMM menn leggja í dag af stað í einstaka ferð yfir Vatnajökul.
Þeir hyggjast hjóla þvert yfir hann og nota tækifærið um leið til
að vekja athygli á landgræðslumálum. Leiðangursmenn hafa í
því skyni notið aðstoðar Landgræðslu ríkisins. Stöð 2 sýnir í
haust heimildamynd sem jöklafararnir gera um ferðina.
Leiðin er áætluð vera um 140
kílómetrar og ferðatími á jöklinum
sjálfum taiinn verða um 7-10 sól-
arhringar. Lagt verður á jökulinn
við Eyjabakkajökul og þaðan hald-
ið í vestur. Þeir munu leggja leið
sína suður fyrir Grímsvötn og koma
ofan af jöklinum við Jökulheima.
Aldrei fyrr hefur verið lagt á
jökulinn á hjólum. i samtali við
Morgunbiaðið sögðu Sigursteinn
Baldursson leiðangursstjóri og
Ingimundur Stefánsson að það
væri að mörgu leyti táknrænt að
hjóla því það væri mjög umhverf-
isprúður ferðamáti. Engin vélknúin
farartæki verða því með og einu
tækin sem notuð verða eru fjar-
skiptatæki auk GPS-staðsetningar-
tækis.
Þeir leggja áherslu á í baráttu
sinni að allir, jafnt almenningur
sem félagasamtök, geta beitt sér
fyrir bættri landgræðslu og gegn
auknum uppblæstri. Þeir nefna sem
dami að hægt væri að gerast sjálf-
boðaliði og stunda gróðursetning-
ar. Ennfremur mætti styðja samtök
á borð við Landið fýkur burt. En
fyrst og síðast ætti fólk að reyna
að breyta hugarfari sínu og stuðla
að góðri og almennri umgengni.
Fimmmenningamir hafa notið
aðstoðar Landgræðslunnar auk
þess sem nokkur fyrirtæki hafa
styrkt þá. í fréttatilkynningu frá
Landgræðslunni, sem gefín var út
af þessu tiiefni, fagnar hún öllum
stuðningi. Hún hvetur alla til að
gefa gaum vandamálum er lúta að
uppblæstri. Hefting foksands við
Vatnajökul er einmitt mikið kapps-
mál stofnunarinnar.
Leiðangursmennimir em allir
Morgunblaðið/Sverrir
Eins og sjá má eru leiðangursmennirnir reiðubúnir að takast á
við jökulinn. Frá vinstri: Ingimundur Stefánsson, Haraldur Örn
Ólafsson, Ingþór Hrafnkelsson, Guðmundur Eyjólfsson og Sigur-
steinn Baldursson leiðangursstjóri.
reynd á Eyjafjallajökli og gekk það
að sögn Sigursteins og Ingimundar
vel. Þeir geta aðeins hjólað að nóttu
til þar sem undirlagið þarf nauð-
synlega að vera frosið. Þeir munu
þurfa að hjóla á negldum dekkjum
sem að hluta til er búið að hleypa
loftinu úr.
011 ferðin verður síðan kvik-
mynduð af jöklaförunum sjálfum
en fyrirhuguð er gerð heimildar-
myndar um hana. Hún verður
væntanlega sýnd á Stöð 2 næsta
haust.
á Cfe
reiðhjóli yfir Vatnajökul
vanir jöklaferðum og með í ferð
er einnig hjólreiðasérfræðingur.
Þeir hafa undirbúið sig að kappi
og hafa hjólin meðal annars verið
Tveir Islendingar hyggj-
ast klífa Kommúnistatind
Kommúnistatindurinn, 7495 metra hár. Ljósmynd/Bjðm Ólafsson
Morgunblaéið/KGA
Fjallgöngumennirnir Einar Stefánsson og Björn Ólafsson halda
í dag af stað til Tadzhíkístan í Samveldisríkjunum.
TVEIR íslenskir fjallgöngu-
menn munu í dag hefja ferð
sína til Samveldisríkisins
Tadzhíkístan þar sem þeir
ætla að stunda íþrótt sína. Þar
ætla þeir að dvelja í rúmar
fjórar vikur og hyggjast klífa
þijá tinda. Einn þeirra er
hæsti tindur Samveldisins Pik
Kommunizma eða Kommún-
istatindurinn en hann er 7495
metra hár.
Félagarnir eru báðir vanir liðs-
menn hjálparsveita og eru virkir
Alpaklúbbsmenn að auki. Þeir
hafa meðal annars klifið hæsta
fjall N-Ameríku, Mt. McKinley.
Þeir eru og vel kunnugir aðstæð-
um í Tadzhíkístan en þangað
fóru þeir fyrir réttum tveimur
árum. í samtali við Morgunblað-
ið lýsti Björn Ólafsson aðstæðum
og tók sérstaklega fram að
margt hafí breyst síðan. Þar
standa upp úr þær pólitísku
hræringar sem hafa átt sér stað
í landinu. Órólegt hefur verið í
ríkinu síðastliðinn vetur en að-
spurður kvaðst Björn ekki óttast
að hræringarnar stofni ferð fé-
laganna í hættu.
Fjallgöngumennirnir taka all-
an búnað með sér svo og þann
mat sem þeir munu neyta á
göngunni. Þeir þiggja aðeins
aðstoð heimamanna í því er Iítur
að ferðalögum til og frá fjall-
göngusvæðinu. Fyrsti áfanga-
staður þeirra er Moskva, en það-
an fljúga þeir til höðuðborgar
Tadzhíkístan, Dushanbe. Þangað
verða þeir komnir næsta þriðju-
dag. Þá er eftir tíu daga ganga
inn að þeim búðum sem verður
miðstöð þeirra. Eftir það er að-
eins eftir glíman við tindana.
Tindamir þrír eru misháir, sá
lægsti 6900 metrar en frægastur
þeirra er Kommúnistatindurinn,
hæsti tindur fyrrum Sovétríkja,
7495 metra hár. Ef göngumönn-
unum tekst að klífa hann yrði
það hæsti tindur sem íslendingar
hafa lagt að velli. Það er þó, að
sögn Björns, ekki það sem þeir
sækjast eftir í raun og veru.
Svæðið sé fyrst og fremst heill-
andi og sniðið að áhugamáli
þeirra félaganna.
Björn sagðist vera bjartsýnn
á ferðina og kvað vandamálin
vera þau sömu og alltaf. í fyrsta
lagi þyrfti að aðlagast þunnu
lofti. Því bæri að varast að flýta
sér um of en sé það gert er jafn-
an hætta á að háfjallaveiki brjót-
ist út. í öðru lagi sagði hann að
hvergi væri hægt að treysta á
veður og allra síst á háfjalla-
svæði. Reynslan hafí einnig mar-
goft sýnt að snjóflóð á þessu
svæði eru mjög hættuleg. Þetta
er að mati Bjöms atriði sem
reyndir fjallgöngumenn gera sér
grein fyrir. Þeir viti af hættunum
og stundi íþrótt sína í samræmi
við það.
Heimferðin verður að öllum
líkindum styttri. Þeir gera ráð
fyrir að geta fengið far frá búð-
unum með þyrlu og losna þannig
við gönguferðina til baka. Fjali-
göngumennimir em væntanlegir
heim um miðjan ágúst.
Lúðrasveit Reykjavíkur 1992. Ljósmynd/Edda Völva Eiríksdóttir
Lúðrasveit Reykjavíkur 70 ára:
Lúðrasveit tilheyrir
við hátíðleg tækifæri
- segir Sverrir Sveinsson
LÚÐRASVEIT Reykjavíkur varð 70 ára þann 7. júlí síðastliðinn. Sveit-
in var stofnuð sumarið 1922 og er því elsta starfandi lúðrasveit lands-
ins. Að jafnaði leika um 30-40 manns í sveitinni. Hefur hún í áranna
rás tekið þátt í mörgum merkisviðburðum i sögu þjóðarinnar, allt frá
Alþingishátíðinni 1930 til 200 ára afmælis Reykjavíkur árið 1986. Síð-
an Hljómskálinn var fullbyggður veturinn 1922-1923 hefur sveitin æft
þar á hveijum þriðjudegi í 9-10 mánuði á ári, en á síðasta ári fór
fram mikd viðgerð á skálanum.
Lúðrasveit Reykjavíkur varð til við
sammna tveggja lúðrasveita, Hörpu
og Gígju, sem störfuðu í Reykjavík
fram að þeim tíma. Æfingar hinnar
nýju sveitar hófust strax eftir samr-
unann, og um leið var hafist handa
við að reisa Hljómskálann, sem
stendur í Hljómskálagarðinum í
Reykjavík. Byggingin tók skamman
tíma, og veturinn 1922-1923 var
farið að leika í skálanum, og síðan
þá hefur hann verið fast aðsetur
sveitarinnar.
Fyrsti stjórnandi Lúðrasveitar
Reykjavíkur var Þjóðverjinn Otto
Bötcher, sem starfaði hér við góðan
orðstír í 3 ár. Þá tók Páll ísólfsson
við og var stjómandi sveitarinnar í
um áratug. Síðan hafa margir tón-
listarmenn haldið um tónsprotann,
en lengst allra var Páll Pampichler
Pálsson, sem starfaði með sveitinni
frá 1949 til 1975. Núverandi stjórn-
andi er Eiríkur Stephensen.
Sverrir Sveinsson, ritari stjómar
sveitarinnar, segir sveitina æfa 9-10
mánuði ársins og hafi gert alla tíð.
„Við hátíðleg tækifæri finnst fólki
það tilheyra að lúðrasveit leiki,“
sagði hann. Hann kvað sveitina með-
al annars hafa leikið við Alþingishá-
tíðina á Þingyöllum árið 1930, hátíð-
arhöldin í tilefni 1100 ára afmæli
íslandsbyggðar árið 1974, 200 ára
afmæli Reykjavíkur, og við allar
embættisinnsetningar forseta lýð-
veldisins íslands.
Sveitin hefur auk þess farið fímm
sinnum í tónleikaferðir til útlanda.
Þrisvar hefur sveitin heimsótt Vest-
ur-íslendinga í Kanada og Bandaríkj-
unum, árið 1972, árið 1975 þegar
haldið var upp á 100 ára landnámsaf-
mæli íslendinga í vesturheimi og
árið 1987.
Þótt sveitin samanstandi ekki
lengur einungis af karlmönnum er
starfandi kvenfélag í sambandi við
sveitina, sem aðstoðar við fjáröflun.
„Þetta hefur breyst úr algjörum kar-
laklúbbi og við höfum fengið mikið
af konum til liðs við okkur og það
er bara til bóta,“ sagði Sverrir. „Það
er heldu ekkert kynslóðabil í lúðra-
sveitinni, sá elsti er á sjötugsaldri
en yngsti maður er 11-12 ára.“
„Okkur þykir merkilegt að starfa
í svo gömlu félagi sem Lúðrasveit
Reykjavíkur er,“ sagði Sverrir. „Það
er ofarlega í okkar hugum að við-
halda hefðinni, og ásamt því er
stærsta markmiðið að vera sífellt að
bæta tónlistina."
Næsta verkefni sveitarinnar verð-
ur að Ieika við heimsókn Þýskalands-
forseta þann 16. júlí.