Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992 15 Fjörkippir í tónlistarlífinu eftirAtla Heimi Sveinsson Um helgina var starfsáætlun ís- lensku hljómsveitarinnar kynnt, en nú hefst ellefta starfsár hennar. Hljómsveitin hefur þá sérstöðu í tónlistarlífi okkar, að hún leggur aðaláherslu á íslenska tónsköpun, eldri sem yngri, og hefur gert það frá upphafí. Ég vil ekki gera lítið úr hlut annarra — nefni nokkra af handahófí — Hamrahlíðarkórinn, Kammersveit Reykjavíkur og margra tónlistarmenn — _en um þessar mundir virðist mér íslenska hljómsveitin fremst meðal jafningja í því að stuðla að tónsköpun hér- lendis og ræktar við tónlistarar- fleifð okkar. íslenska hljómsveitin hefur feng- ið fjölda íslenskra tónskálda til að skrifa verk, sem flutt hafa verið á tónleikum hennar. Má þar á meðal nefna tónleikaröðina Námur, þar sem leggjast saman sköpunarkraft- ar tón-, ljóð- og myndlistarskálda. Við munum heyra í vetur nýtt verk um Jón Arason, þar sem Mist Þor- kelsdóttir og Illugi Jökulsson stilla saman sálarstrengi sína. Einnig er lögð rækt við tónlistar- hefð okkar. Til dæmis verða tónleik- ar með lögum Inga T., hins aust- fírska ljúflings, í tilefni af hundrað ára afmæli hans og fluttur verður strengjakvartett eftir Helga Helga- son, þess sem samdi Öxar við ána á síðustu öld. Þá verður einnig minnst aldarafmælis Páls ísólfsson- ar, sem verðugt er. Stefna hljómsveitarinnar er rammíslensk og það er gott. Við eigum að stunda nýsköpun og muna um leið eftir fortíðinni og ávallt bera okkur saman við það besta, sem er að gerast í öðrum löndum, þeim sem við köllum gjarnan „hinn stóra heim“. Meginhöfundur þessarar íslensku tónmenningarstefnu — ásamt góð- um samstarfsmönnum — er Guð- mundur Emilsson, hljómsveitar- stjóri og tónlistarstjóri Ríkisút- varpsins. Hann hefur verið óþreyt- andi við að kynna íslenska tónlist í gegnum tíðina, hér heima og á erlendri grund. Fyrr á þessu ári var ég á tónleikum í Grenoble, en hann stjórnaði hljómsveitinni þar og flutti eitt af hljómsveitarverkum mínum. Þetta var mikið upplifelsi og mikil hrifning. Franskir gagnrýnendur höfðu orð á því hve hógvær Guð- mundur væri, en öruggur í túlkun sinni, þar væri ekkert óþarfa handapat, ekkert nema það sem máli skipti. Eitthvað á þessa leið sagði einn og annar talaði um ná- kvæma stjórn, litríka og ástríðu- fulla. Og fleira í þessum dúr. Og næst mun Guðmundur stjórna Fíl- harmóníuhljómsveitinni í Búkarest og verður þar með fyrstur íslend- inga til að stjórna erlendri þjóðar- hljómsveit. Vonandi fylgja fleiri í kjölfarið. En tónlistardeild Ríkisútvarpsins er æ meir í sviðsljósinu, enda margt að gerast á vegum hennar — ný tónlistarmenning er að verða þar til. Ríkisútvarpið er að færast kröft- uglega í aukana á tónlistarsviðinu. Það er gott og löngu tímabært. Það er oft talað um hina dauðu hönd ríkisins og ríkisfýrirtækja, en svo er ekki alltaf, ekki þegar góðir menn sitja við stjórnvölinn. Þá get- ur höndin verið lifandi og skap- andi. Og sú er raunin nú í tónlistar- deild Ríkisútvarpsins. Á hennar vegum hefur verið haldin ráðstefna tónvísindamanna, sem tókst mjög vel. Miklum tónleik- um, yfírlit ellefu hundruð ára ís- lenskrar tónlistar, var útvarpað beint til u.þ.b. 30 landa í fyrsta sinn, frumflutningur íslensks verks, frábærir flytjendur sem starfa hér. Djasshátíð er mikil vítamínssp- rauta. Samkeppni hljóðfæraleikara fékk einstaklega góðar undirtektir og var mikil uppsveifla hjá ungu metnaðargjörnu tónlistarfólki. Þá eru í aðsigi heiðursverðlaun og tón- verkasamkeppni, sem væntanlega verður mönnum hvati til margra góðra verka. Og ekki má gleyma tónlistardeg- inum, sem er að taka á sig form, og ráðstefnu íslenskra tónlistar- manna, sem er á næsta leiti í Efsta- leitinu! Þar má búast við fjörugum skoðanaskiptum, sem eru forsenda allra framfara. Og fleira má tína til, en hér læt ég staðar numið. „Meginhöfundur þess- arar íslensku tónmenn- ingarstefnu — ásamt góðum samstarfsmönn- um — er Guðmundur Emilsson, hljómsveitar- stjóri og tónlistarstjóri Ríkisútvarpsins. Hann hefur verið óþreytandi við að kynna íslenska tónlist í gegnum tíðina, hér heima og á erlendri grund.“ Atli Heimir Sveinsson Öll þessi starfsemi hefur vakið athygli á menningu okkar erlendis, meðal tónlistarfrömuða. Um það er mér persónulega kunnugt. Menn- ingarvitar annarra landa sjá að um þessar mundir er eitthvað að gerast uppi á „litla“ íslandi. Það er verið að koma okkur á landakort heims- menningarinnar. Svoleiðis á það að vera. Það er ánægjulegt þegar raun- veruleg menningarstefna er að fæð- ast, sem tekur mið af okkur sem þjóð og einstaklingum. Ég vona aðeins að þetta sé upphafíð að ein- hveiju meiru, að þessi menningar- stefna lognist ekki útaf eða staðni. Þess vegna verðum við að styðja hana. Halda vöku okkar og vera áhugasöm og gagnrýnin. Þá halda fjörkippirnir áfram. Höfundur er tónskild. Borland kynnir EINSTAKT TILBOÐ á töflureiknum! Sameinadu kostina Núna getur þú gert mjög góð kaup á töflureiknum frá Borland. Þú getur fengið frábæran töflureikni fyrir DOS og Windows á verði annars þeirra. Þetta einstaka tilboð kallar Borland WinDOS™ Nýjung: Quattro Pro ffyrir Windows með minnis- blokkum í Quattro Pro fyrir Windows er hægt að gera fjölmargt sem er ómögulegt með öðrum töflureikni. Frumlegar minnis- blokkir (Notebooks) með flipum sem gefa má nöfn gera þér auðveldara en nokkru sinni að skipuleggja töflumar þínar og halda þeim við. Hlutaskyggnir (Object Inspector) opnar valseðla sem veita með nýjum hætti aðgang að við- eigandi möguleikum. Og í Quattro Pro er rómuð grafík sem jafnast á við sjálf- stæð grafíkforrit. Auðvelt er að sækja gögn í gagnagrunna og nota ný og öflug verkfæri við að greina samhengi hlut- anna. Auk þess er allt sem þarf til að búa til sérsmíðuð notendaforrit. Allt þetta og margt fleira gerir Quattro Pro fyrir Windows öflugra og aðgengilegra en áður hefur þekkst. Hafðu samband, þú færð hvergi öflugri teflwreikni! Quattre Pre i fyrir j Windows eg DOS i __________________ l Tvöfaldur pakki | á einföldu verði J Tímabundið tilboð, gríptu tœkifærið! Stf-ÓLAFÓI& Kynning á Borland hugbúnaði, laugardaginn 31. okt. í Yersló frákl. 13.30 til 15. ^ÖLaTILBO^' Meðfylgjandi er „Quattro Pro 4.0... hinn fullkomni DOS töflureiknir" InfoWorld, apríl 1992 Enginn annar töflureiknir hefur unnið til jafn margra viðurkenninga og Quattro Pro fyrir DOS. Milljónir notenda hafa þegar valið Quattro Pro því í honum sameinast á einstæðan hátt öflugir þrýstihnappar og gröf sem laga sig eftir breytingum gagnanna. Fróbær samhæfni við Lotus og Excel Það er ekki nóg að Quattro Pro lesi og visti skrár með Lotus og Excel sniði auk margra annarra heldur getur forritið líka notað fjölva og umbrot úr öðrum forritum. Af hverjw WinDOS? Með WinDOS tilboðinu er mun auð- veldara en áður að flytja sig milli DOS og Windows. Hægt er að nota bæði DOS og Windows ef það hentar t.d. Windows í vinnunni og DOS á fartölv- unni eða heima. Þú hefur alveg einstakt tækifæri til að fá þér Quattro Pro WinDOS núna. Gríptu tækifærið strax í dag og fáðu þér fullkominn töflureikni fyrir DOS og Windows á tilboðsverði. ORTOLVUTÆKNI Tölvukaup hf • Skeifunni 17 • Sími 687220 • Fax 687260 VZterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiöill!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.