Morgunblaðið - 06.08.1993, Page 8

Morgunblaðið - 06.08.1993, Page 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1993 Morgunblaðið/Sverrir Zulkefli fulltrúi ferðamálaráðs Malasíu, Johan Pals frá flugfélaginu Malaysia Airlines og Auður Björnsdóttir frá Samvinnuferðum-Land- sýn, sem skipuleggur 20 daga ferð til Malasiu í haust. Haustferð S-L til Malasíu og Singapúr SAMVINNUFERÐIR-Landsýn skipuleggja 20 daga ferð til Malasíu og Singapúr í haust. Fararstjóri er Friðrik Haraldssson sem áður hefur farið með hópum á þessar slóðir. Verð miðað við að gist sé í tvíbýli er rúmlega 213 þús. kr. en í einbýli um 260 þús. kr. með ástæðum sagði Singapúr sig úr sambandinu 2 árum síð- ar. Malasía samanstendur nú af 11 ríkjum. Þar er rakt hitabeltisloftslag, um 20-32 gráðu hiti og monsúnvindar. Efnahagur er blómlegri í Malasíu en mörgum löndum heimshlutans og er landið m.a. þekkt fyrir gúmmí og pálmaolíu. Zulkefli og Johan Pals sögðu að uppbygging ferðaþjónustu gengi vel og væri reynt að höfða til sem flestra í afþreyingu. Margir golfvellir hafa verið gerðir, ævintýraferðir skipulagðar og verslanahallir með vest- Flugdrekagerð er listgrein í Malasiu og rænu ívafl verið byggðar. flugdrekaflug algeng tómstundaiðja við getum byggt upp Ferðatilhögun var kynnt í Reykjavík fyrir skömmu og komu H.S. Zulkefli ferðamálafulltrúi Mal- asíu og Johan J. Pals frá Malaysia Airlines til landsins af því tileftii. Lagt verður upp 23. sept., flogið til Singapúr og dvalið í 2 daga. Meðal viðkomustaða í Malasíu eru höfuðborgin Kuala Lumpur, Pen- ang-eyja og Borneo þar sem nátt- úrufegurð þykir stórbrotin. Þá er 2ja daga ferð í regnskóg, sem að sögn Zulkeflis er hinn elsti í heimi, en þess má geta að regnskógar þekja rúmlega 60% Malasíu. Siglt er með skútu til Langka vw'-eyj akl as- ans og farið upp í Cameronhálend- ið, sem m.a. er þekkt fyrir terækt. Blönduð menning Ríkjasambandið Malasía var stofnað 1963, en af pólítískum lúxusþjónustu, því landið er efnað. Vegir eru góðir og allar sam- göngur sömuleiðis. Lestarkerfi okk- ar er gott og flugsamgöngur tíðar og ódýrar,“ sagði Zulkefli. Meiri- hluti íbúa eru múslimar, en meiri- hluti þjóðþingsins aðhyllist hægfara stefnu sem tekur tillit til kínverskra og indverskra þjóðarbrota og trúar- bragða þeiiTa. Zulkefli gerir ekki mikið úr deilum milli hinna ólíku íbúa Malasíu. „Það eru í raun for- réttindi að hin ólíka menning skuli geta blandast eins og hún gerir í Malasíu. Þar má sjá mismunandi byggingastíl, kynnast fjölbreyttu mataræði og vera vitni að fleiri trú- ar-og þjóðhátíðum en hjá öðrum þjóðum. Þessi íjölbreytileiki tel ég að sé mikilvægur fyrir þjóð sem vill að ferðaþjónusta verði sífellt vaxandi atvinnugrein." ■ Brynja Tomer flugvallasköttum. Á hverjum sunnudegi í sumar er efnt til dagskrár í Perlunni frá kl. 14-19 og^eru þar hvers konar uppákomur fyrir íslenska sem er- lenda gesti. Áhersla er iögð á að kynna ullarvörur okkar hvort sem eru peysur eða ullarteppi eins og stúlkurnar vefja um sig á mynd- inni. Ýmis fyrirtæki kynna vaming og gestir fá að smakka á smárétt- um, flutt er tónlist og margt fleira er á dagskránni. ■ MorgunDiaoio/övemr Sýningarstulkur í ullarteppteppum Gistimál í góðu horfi á Akranesi MIKIL breyting hefur orðið í gistimálum á Akranesi því í fyrra var tekið í notkun nýtt tjaklstæði skammt frá Jaðars- bakkalaug og Langasandi. Aðsóknin að tjaldstæðinu margfaldaðist og er aðstaða þar mjög góð, m.a. fyrir hús- bfla. Gistiheimilið Barbró tók einnig til starfa í nóvember sl. og Hótel Ósk, sem er heimavist Fjölbrauta- skólans, er rekið yfir sumar- mánuðina. Góðir veitingastaðir eru einnig í bænum. Mikið hefur verið unnið í afþreyingarmálum og er nú rekin hestaleiga og hjónaleiga. Golfvöllur sem alið hefur af sér margan afrekskylfinginn er skammt frá Skógræktinni. Skóg- ræktin er meðal vinsælustu úti- vistarsvæða í bæjarlandinu. Þórdís G. Arthursdóttir ferða- málafulltrúi sér um rekstur upp- lýsingamiðstöðvar fyrir ferðamenn sem er á Skólabraut 31, rétt við Akratorg. Upplýsingamiðstöðin er opin allt árið og er þar að fá allar upplýsingar um dægradvöl og hvað er á döfinni hveiju sinni. ■ Jón Gunnlaugsson, Akranesi Forsetinn brá á leik á Bjössaróló. Bjössaróló er örugglega einn frumleg- asti róluvöllur hérlendis GESTIR í Borgarnesi mættu hafa í huga að við landtöku Borgarfjarðarbrúar, sunnan fjarðar, er Seleyrin og þar á bærinn skika við brúar- sporðinn. Ferðamenn geta rennt ókeypis fyrir silung. Alltaf koma upp sögur um að öðru hveiju sé sett í lax þarna en kunnugir segja það undartekningartilvik. Ef börnin eru með er tilvalið að sýna þeim „Bjössaróló“ sem er örugglega einn frumlegasti róluvöllur hérlendis. Völlurinn er niðri við sjó, vestast í gamla bænum þar sem Skúlagata og Helgugata mætast. Það er smið- urinn Bjöm Guðmundsson sem hefur haft veg og vanda af upp- byggingu hans. Hefur hannað og smíðað öll tækin. Margir sem eiga leið um Borgarnes bregða Séð yfir Borgarnes sér á Bjössaróló og þegar Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, var í opinberri heimsókn í Borg- arnesi ásamt fríðu fömneyti kom hún þar við og brá á leik í rólun- um. ■ Theódór Kr. Þórðarson, Borgarnesi I silung vii Biúna eða á „Bjössaróló" Frakkar únotategastir vii Bandaríkjamenn FRAKKAR eru ónotalegastir altra við bandaríska ferðamenn og síðan koma Þjóðveijar og þá samlandar. Bandaríska ferða- blaðið Travel & Leisure kannar í hveijum mánuði viðhorf les- enda sinna til aðskiljanlegustu efna. í nýjasta hefti var birt niður- staða úr skoðanakönnun á því hvar bandarískir ferðamenn hefðu mætt hranalegustu viðmóti og sögðu 26% þeirra sem svöruðu að Frakkar væru áberandi verstir, Þjóðveija nefndu 9% og Banda- ríkjamenn töldu 7% versta. Næst á eftir vom ítalir og Japanir. Síðan nefndu 3% Austur- ríkismenn, Bahamabúa, Grikki, Hong Kong-búa, ísraela, Mexíkó- menn og Spánveija. Bandaríkamönnum á ferð er- lendis fannst írar vingjamlegastir allra, síðan komu Englendingar, ítalir, Nýsjálendingar, Tælending- ar, Frakkar (4%), Hollendingar og Mexíkómenn. Þá voru lesendur beðnir að nefna dæmi um ónotalegasta við- mót sem þeir hefðu mætt. Einn skrifaði: „Ég var staddur í íran og slátrari sem hélt ég væri að taka mynd af sér henti í mig ný- slátruðu lambi.“ Annar sagði: „Á upplýsingaskrifstofu í Lyon spurði ég starfsmann hvort hann talaði ensku. Hann svaraði: „Já, þegar mér sýnist svo.“ ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.