Morgunblaðið - 31.12.1993, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 31.12.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÓSTUDAGUR 31. DESEMBER 1993 17 Haraldur Haraldsson gagnrýnir vinnubrögð við útboð á SR-mjöli Segir fyrirfram ráðið hver fengi fyrirtækið HARALDUR Haraldsson, sem bauð í hlutabréf ríkisins í SR-mjöli hf., fullyrðir að búið hafi verið að ákveða fyrirfram hveijum fyrirtækið yrði selt og útboðið hafi verið pólitískt sjónarspil. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra ákvað á miðvikudag að taka tilboði í hlutabréfin frá Benedikt Sveinssyni og Jónasi Aðalsteinssyni fyrir hönd 21 útgerðar- fyrirtækis og þriggja fjármálafyrirtækja sem hljóðaði upp á 725 milljón- tr og greiðist á næstu tveimur króna staðgreiðslu. Haraldur Haraldsson og Sigurður G. Guðjónsson lögmaður, sem lagði fram kauptilboð í SR-mjöl fyrir hönd Haraldar, boðuðu til blaðamannafund- ar í gær. Þar fullyrti Haraldur að búið hefði verið að ákveða hveijir fengu SR-mjöl til kaups áður en til útboðs kom. Þeir Sigurður gagnrýndu vinnu- brögð við útboðið harðlega, meðal ann- ars það að tilboðsgjafamir tveir fengu ekki að vera viðstaddur þegar tilboðin vom opnuð. „Hvað var verið að fela þar?“ spurði Haraldur. Haraldur vildi ekki upplýsa hvemig stæðu með honum að tilboðinu í SR- mjöl en söluaðilar hefðu verið upplýst- ir um það í trúnaði. Hann sagði þó að í þeim hópi væru útgerðarmenn og Búnaðarbankinn og þýskur banki hefðu ætlað að tryggja lánsfé. Ekki væri um aðra erlenda aðila að ræða. Sigurður sagði að þeir hefðu verið kallaðir á stuttan fund með seljand- anum, skömmu eftir að tilboðinu var skilað. Þar hefði verið farið yfir hveij- ir stæðu að tilboðinu, hvemig ætti að flármagna það, hvemig ætti að endur- greiða lánin og fleira. Hins vegar hefði ekki legið fyrir hvemig eignaraðild myndi skiptast milli hluthafa. Það væri þvf tilbúningur hjá sjávarútvegs- árum. Haraldur bauð 801 milijón ráðherra að ekki hefði verið sýnt fram á að skilyrðum um fjárhagslegan styrk væri fullnægt. Haraldur og Sigurður sögðu, að full- trúum seljenda hefði verið bent á að hjá VÍB lægi yfirlýsing frá Búnað- arbanka íslands um væntanlega þátt- töku hans í að fjármagna kaup Harald- ar á hlutabréfunum og að þessa yfirlýs- ingu mætti fá staðfesta hjá bankanum. Ásakanir um óeðlileg tengsl Sigurður G. Guðjónsson sagði á blaðamannafundinum, að með sölunni væri verið að hygla Benedikt Sveins- syni og Sjóvár-veldinu eins og hann orðaði það. „Hann er stór hluthafí í íslandsbanka sem á Verðbréfamarkað íslandsbanka og bróðir hans er í banka- ráði Islandsbanka. Menn geta því velt því fyrir sér hvaða áhrif það kann að hafa á starfsmenn fyrirtækis, að stór hluthafi í því fyrirtæki er með tilboð inni í þá vera að leggja það til að til- boði Benedikts verði tekið. Þetta ber allt að sama branni, að á íslandi era aðeins 14 aðilar sem mega eiga eign- ir, þar á meðal Engeyjarættin," sagði Sigurður. Hann sagði að óskað hefði verið eftir viðræðum við sjávarútvegsráðu- neytið, meðal annars vegna atriða í fréttatilkynningu, sem ráðuneytið sendi frá sér á miðvikudag, og þeir teldu vega mjög að æru Haraldar. Þeir hefðu óskað eftir því að gefin verði út ný tilkynning. Jafnframt hefði sjávarút- vegsráðherra verið tilkynnt um að leit- að yrði til umboðsmanns Alþingis til að fá úr því skorið hvort reglur sfjóm- arfarsréttar hefðu verið brotnar, til dæmis vegna þess að VÍB var falið að annast söluna eftir að í ljós kom að Benedikt Sveinsson var einn af til- boðsgjöfum. Loks hefði sjávarútvegs- ráðherra verið bent á, að kaup Bene- dikts á SR-mjöli gætu brotið í bága við ákvæði um hringamyndun í sam- keppnislögum, en Benedikt situr í stjómum margra stórra fyrirtækja hér á landi. Að sögn Þorsteins Pálssonar nefndi Haraldur meðal annars Sjóvá-Almenn- ar sern samstarfsaðila sinn, í gögnum sem hann skilaði þegar hann óskaði eftir því að gera tilboð í SR-mjöl. Þetta hefði síðan ekki reynst rétt þegar bet- ur var að gáð, en á þeim tímapunkti hefði Haraldi þótt eðilegt að Sjóvá undir forastu Benedikts Sveinssonar, væra aðilar að kaupum, ef þau væra með honum. Staðfest var á blaða- mannafundi Haraldar og Sigurðar, að meðal annars hefði verið rætt við Sjóvá-Almennar og Olíuverslun íslands um stuðning við kaupin og Haraldur hefði talið eftir viðræður við Einar Sveinsson forstjóra Sjóvár á framstig- um málsins, að Sjóvá væri tilbúið að leggja fram ábyrgðir gagnvart erlend- um lánveitanda. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra um ásakanir Haralds Staðlausir stafir að leik- reglum hafi ekki verið fylgt ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra segir ásakanir Haralds Haraldssonar staðlausa stafi. Hann segir að leikreglum hafi verið fylgt en Haraldur hafi ekki getað sýnt fram á fjárhagslegan styrk á bak við tilboð sitt. Þorsteinn Pálsson sagði að ráðgjaf- arfyrirtækið hefði rætt við Búnaðar- bankann á miðvikudag og einmitt í þeim viðræðum hefði ekki komið fram nein vísbending um að þeir íjármunir væru fyrir hendi sem tilboðið byggð- ist á. „Við ákváðum í upphafi að standa mjög vandvirknislega að þessari sölu og völdum ráðgjafarfyrirtækið [VÍB] á grundvelli útboðs. Þetta ráðgjafar- fyrirtæki gerði tillögur um málsmeð- ferð og hafði framkvæmd með hönd- um undir stjórn sérstaks söluhóps sem skipaður var af ráðuneytinu. Það var ákveðið að fara í lokað útboð og þeir sem fengju að bjóða yrðu fyrir- fram að sýna fram á fjárhagslegan styrk til að standa við tilboðið og tryggja rekstur fyrirtækisins áfram, hveijir stæðu að útboðinu og hvernig hlutir myndu dreifast. Haraldur í Andra uppfyllti ekki þau skilyrði sem sett voru í útboðslýsingu að gera grein fyrir fjárhagslegum styrk og hveijir stæðu að baki tilboð- inu þegar útboðsgögn voru afhent. Eg tók hinsvegar þá ákvörðun að hann skyldi fá útboðsgögnin og mætti gera tilboð. Það er eina frávik- ið sem var frá settum leikreglum, gert til að ívilna honum og gefa hon- um tækifæri til að svara þeim spurn- ingum sem leikreglurnar gerðu ráð fyrir að yrði svarað. Þegar tilboðs- fresturinn rann út átti ráðgjafinn við- töl við báða aðilana sem sendu inn tilboð til að fá fram hvort þessar upplýsingar væru þá fyrir hendi. Hann átti einnig viðtal við viðskipta- bankann, sem var tilnefndur, og nið- urstaða hans var sú að svör hefðu ekki fengist. Því eru ásakanir um óeðlileg vinnubrögð úr lausu lofti gripnar." Varðandi ásakanir um óeðlileg við- skiptakjör sagði Þorsteinn Pálsson að það væru mjög eðlileg kjör í við- skiptum af þessu tagi að greiða mest- an hluta kaupverðsins á fyrsta ári og lítill hluti flyttist á annað árið. „Ég held að ekki verði um það deilt að þetta sé mjög viðunandi söluverð. Það er yfir nafnverði hlutabréfanna og þetta er áhætturekstur þar sem stundum gengur vel og stundum illa. Það hefur gengið vel upp á síðkastið en við vitum að það verða áfram sveiflur í þessari grein,“ sagði Þor- steinn. Ekkert búið að ræða við Lands- bankann, aðallánardrottin SR SR skuldar yfir milljarð króna í Landsbanka íslands EKKERT liefur verið rætt við aðallánardrottin SR, Landsbanka ís- lands, sem á rúman milljarð króna lyá SR, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Að sögn Sverris Hermannssonar bankastjóra Lands- bankans táknar þetta það að annaðhvort ætlar Þorsteinn Pálsson sjávar- útvegsráðherra að lána hinum nýju kaupendum SR þá upphæð sem fyrirtækið skuldar í Landsbankanuin, eða að hipir nýju kaupendur ætla að greiða upp skuldir fyrirtækisins í Landsbankanum. og samþykktar af fjármálaráðherra. Okkur varðar ekkert um þótt þeir „Það hefur ekki verið farið fram á neina samninga við okkur í Lands- bankanum," sagði Sverrir í samtali við Morgunblaðið í gær, „og ekkert hefur verið við okkur talað. Við höf- um ekki samþykkt að færa skuldir Síldarverksmiðja ríkisins yfir á SR mjöl, enda ekki verið beðið um það. Það eru Síldarverksmiðjur ríkisins með fullkominni ríkisábyrgð sem skulda okkur stórfé. Allar lántökur fýrirtækisins voru bornar undir og uppáskrifaðar af sjávarútvegsráð- herra hverrar einustu ríkisstjómar hafi ekki fylgt lagafyrirmælum, um að fara út í Alþingi og fá lántökurn- ar samþykktar.“ Mál kaupenda Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra sagði að umrædd lán hefðu ekki verið tekin með ríkisábyrgð þótt þau hefðu verið tekin af ríkisfyr- irtæki. Því væri það nýrra eigenda að standa skil & skuldum fyrirtækis- ms eða endurfjármagna þær og það væri útaf fyrir sig samningsatriði við viðskiptabanka fyrirtækisins. Hann sagðist gera ráð fyrir að nýir eigend- ur SR-mjöls myndu sýna fram á það fyrir 1. febrúar, þegar þeir taka við fyrirtækinu, hvernig þeir hygðust taka á þessu máli. Ríkið hefði ekki krafist þess að kaupendurnir gerðu grein fyrir því í tilboði sínu. „Sverrir sagði að hann ætti bágt með að skilja að ríkisvaldið gæti gengið til samninga um sölu á Síldar- verksmiðjum ríkisins, án þess að ræða nokkuð við aðallánardrottin fyr- irtækisins. „Landsbankinn heldur því fram og heldur sér fast við það og það verður sótt að lögum, að það sé fullkomin ríkisábyrgð á lánum þeim sem hann hefur í gegnum tíðina veitt Síldarverksmiðjum ríkisins,“ . sagði Sverrir Hermannsson. i Gleðilegjól (!) m HAGKAUP firimudans- leikurtnn eftir Verdi í flutningi Lyric Opera of Chicago verður á Aðalstöðinni FM 90.9 kl. 13.00 á nýársdag með Kristjáni Jóhannssyni í hlutverki Gústafs konungs. LEIKFELAG REYKJAVÍKUR SÍMl 16620 Skipholti 19, 105 9Mf9M AÐALSTÖÐIN .döBSr-re X6T - ooe\eð-re imie

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.