64SIÐURB/C •fttunUiiM^ STOFNAÐ 1913 8.tbl.82.árg. MIÐVIKUDAGUR12. JANUAR1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Skipverjinn sem fórst við strand björgunarskipsins Goðans Missti tekið á stýrimi er seinna brotið reið yfir Endurfundir SKIPBROTSMENNIRNIR sex af björgunarskipinu Goðanum komu til Reykjavíkur í gær- kvöldi. Ingileif Arngrímsdóttir kona Sigmars Ægis Björgvins- sonar og dætur þeirra fögnuðu Sigmari innilega. Engar líkur eru taldar á því að unnt verði að bjarga Goðanum af strand- stað í Vöðlavík, en áfram verð- ur reynt að ná Bergvíkinni á flot. KRISTBJÖRN Guðlaugsson háseti á björgunarskipinu Goð- anum segir í samtali við Morgunblaðið að við fyrsta brotið sem reið yfir hafi skipið lagst á bakborða og gríðarlegur halli komið á það. Þá hafi ljósavélin, öll sljórntæki og fjar- skiptabúnaður skipsins dottið út. Rúðurnar í brúnni og hurð bakborðsmegin í henni ásamt karmi og öðru hafi mölbrotnað. „Stuttu síðar skall annað brotið á skipinu. Ég komst ekki fram í stýrishúsið en gægðist inn og sá að stýri- maðurinn hélt sér í stýrið og reyndi að stýra uppí. Síðan kom fylla og þá missti hann takið og féll niður í átt að tómri dyragættinni. Matsveinninn og hinn hásetinn reyndu að teygja sig eftir honum. Hann sagði „ég er fastur" og siðan ekki meir," segir Kristbjörn. Hann kveðst aldrei hafa fyllst ótta þá rúmu níu klukkutíma sem áhöfnin beið björgunar upp á von og óvon, en það hafi samt sem áður verið ólýsanlegur léttir að sjá þyrlurnar birtast fyrir víkurmynn- ið. „Þeir unnu hratt og af stórkost- legu öryggi, slökuðu sínum mönn- um niður með hraði og ákváðu í hvaða röð við værum hífðir um borð. Þeir unnu frábært verk sem maður fær aldrei fullþakkað með öflugum verkfærum sem við verð- um að eignast," segir Kristbjörn. Hann segir þessa reynslu hafa breytt lífsmati sínu. „Eg lít lífið allt öðrum augum í dag en fyrir tveimur dögum," segir Kristbjörn. Móttökuathöfn í flugstöðinni Mennirnir sex sem björguðust af Goðanum komu til Reykjavíkur í gærkvöldi með kistu hins látna félaga síns. Eftir að vinir og ætt- ingjar höfðu tekið á móti mönnun- um var stutt athöfn í flugstöð- inni. Viðstaddir voru vinir og vandamenn skipverjanna sjö auk fulltrúa útgerðarfélagsins. Var lesin bæn og flutt ritningarorð við kistu hins látna, en að ósk ætt- ingja er að svo stöddu ekki unnt að birta nafn hans. Björgunarmönnunum tíu var vel fagnað er þeir lentu á Keflavíkur- flugvelli. Fjölskyldur og sam- starfsmenn, auk yfirmanns varn- arliðsins og sendiherra Bandaríkj- anna, tóku á móti mönnunum og var m.a. lesið úr þakkarbréfi frá dómsmálaráðherra. í dag mun for- stjóri Landhelgisgæslunnar af- henda áhöfnum þyrlnanna heið- ursskjal. Sjá forystugrein blaðsins dag, fréttir og frásagnir á bls. 18-21 og baksíðu. jviurgunuiauiu/ n.nsumi Keutcr Róstursöm þingsetning FYRSTI fundur nýkjörins þings Rússlands var haldinn í gær. Strax kom til harðra deilna milli stuðningsmanna Borís Jeltsíns forseta og þjóðernissinnans Vladímírs Zhírínovskíj og á köfl- um munaði litlu að þingið leyst- ist upp. Á myndinni má sjá einn stuðningsmanna Zhírínovskíjs reyna að koma í veg fyrir að Vasílíj Seljúnín, þingmaður fyrir Valkost Rússlands, geti tekið til máls. Sjá nánar bls. 24. Forseti Póllands hefur efasemdir um „Samstarf í þágu friðar" Leiðtogar NATO hóta sprengjuárásum á Serba Brussel. Reuter, The Daily Telegraph. EMBÆTTISMENN hjá Atlantshaf sbandalaginu (NATO) sögðu í gær að til greina kæmi að hefja loftárásir innan nokkurra daga á sveitir Serba, sem sitja um borgina Srebrenica í Bosn- íu og flugvöllinn í Tuzla. Á leiðtogafundi ríkja Atlantshafs- bandalagsins, sem lauk í Brussel í gær, var samþykkt að ítreka hótun um loftárásir ef Serbar leyfðu ekki kanadískum friðar- gæsluliðum, sem hafa hafst við í Srebrenica í sjö mánuði, að yfirgefa borgina. Serbar hafa hindrað hollenskar sveitir, sem áttu að leysa Kanadamennina af fyrir jól, í að komast til Srebrenica. Var hótunin um sprengjuárásir samþykkt eftir mikinn þrýsting frá Bill Clinton Bandaríkjaforseta og Francois Mitterrand Frakklands- forseta, sem sögðu að NATO ætti að hætta að hafa uppi marklausar hótanir. „Hvort að gripið verður til loftárása eða ekki fer eftir því hvernig Bosníu-Serbar haga sér," sagði Clinton eftir fundinn. For- seti Kanada sagðist telja að sprengjuárásir væru neyðarúrræði og hefði hann tekið það skýrt fram á fundinum. ¦ Nokkrir leiðtoganna sögðu fundinn hafa verið sögulegan og Manfred Wörner, framkvæmda- stjóri Atlantshafsbandalagsins, sagði að hann markaði söguleg tímamót þar sem bandalagið hefði tekið stórt skref inn í tuttugustu og fyrstu öldina. Á fundinum var ákveðið að bjóða ríkjum Austur- Evrópu til friðarsamvinnu undir yfírskriftinni „Samstarf í þágu friðar". „Dyrnar hafa verið opnað- ar. Ég hvet samstarfsaðila okkar til að grípa þetta tækifæri," sagði Wörner. Að loknum fundinum flaug Clinton til Tékklands en það er fyrsti áfangi hans í ferð um aust- urhluta Evrópu til að kynna hina nýju friðarsamvinnu. í dag mun hann eiga fund með leiðtogum Tékklands, Póllands, Ungverja- lands og Slóvakíu. Lech Walesa, forseti Póllands, sagði í viðtali við pólska sjónvarp- ið í gær að hann myndi leggja mikla áhersla á framtíðaraðild Pólverja að NATO er hann hittir Clinton. Hann sagðist búast við erfiðum fundi þar sem hann ætti von á að Bandaríkjainenn myndu verja þá afstöðu að bjóða þessum þjóðum friðarsamvinnu í stað að- ildar. Walesa sagðist vera þeirrar skoðunar að þetta hefðu verið mistök og að ganga hefði þurft lengra. I kvöld heldur Clinton áleiðis til Moskvu með viðkomu í Kiev, höf- uðborg Úkraínu. í Moskvu mun hann eiga tveggja daga fund með Borís Jeltsín Rússlandsforeta. Sjá viðtal við Davíð Oddsson forsætisráðherra á bls. 24.