Morgunblaðið - 15.07.1994, Blaðsíða 4
4
IÞROmR
fKfrgiiwMaíilíí
■i
FOLX
■ BRYNJAR Duvíðsson lék í
marki Þórsara gegn Víkingum í
fjarveru Ólafs Péturssonar. Vara-
markvörðurinn á bekknum var Ei-
ríkur Eiríksson, gamalreyndur
markmaður sem síðast lék með Þór
snemma á síðasta áratug. Þess má
geta að Eiríkur er 41 árs, og var
valinn besti markmaður lávarða-
deildarinnar á síðasta Pollamóti
Þórs.
■ ARSENAL hætti í gær í kapp-
hlaupi um framherjann Chris Sutton
hjá Norwich. Félagið vill 5 milljónir
punda fyrir hann. Arsenal hafði
boðið í Sutton, eins og Blackburn,
en dró sig í hlé í gær. Því er talið
líklegt að Sutton gangi til liðs við
Blackburn í dag.
■ TONY Cascarino, sem leystur
hefur verið undan samningi hjá
Chelsea, var í gær í Frakklandi þar
sem hann ræddi við forráðamenn
Marseille. Liðið var dæmt niður í
2. deild vegna fjármálamisferlis og
má ekki fá til sín leikmenn, sem það
þarf að borga fyrir. Þar sem Cascar-
ino er laus undan samningi gæti
Marseille samið við hann.
■ TONY Adams, fyrirliði Arsenal,
sem hefur verið hjá félaginu síðan
hann var 13 ára, fær ágóðaleik áður
en tímabilið hefst í haust, 13. ágúst.
Arsenal mætir þá Crystal Palace á
Highbury, og reiknað er með að
Adams fái jafnvel um andvirði 16
milljónir króna í vasann.
■ PETER Atherton, varnarmaður
hjá Coventry er farinn til Sheffield
Wednesday. Sérstakur gerðardómur
úrskurðaði að Wednesday þurfi að
greiða 800.000 pund fyrir hann, and-
virði um 86 milljóna króna.
■ TOMMY Burns hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri skoska úrvals-
deildarliðsins Celtic. Burns sagði á
mánudaginn starfi sínum sem fram-
kvæmdastjóri hjá úrvalsdeildarliðinu
Kilmarnock lausu, og var ráðinn ti!
Celtic í gær. Burns lék í mörg ár
með Celtic og var mjög vinsæll hjá
félaginu.
■ KENNY Sansom sem lék 88
landsleiki með enska landsliðinu í
knattspymu, hefur verið ráðinn þjálf-
ari hjá Watford og mun einnig leika
með liðinu. Watford hefur keypt
sóknarmanninnn Jamie Moralee frá
Millwall á tæpar fímmtíu milljónir.
■ BRYAN Robson, fyrrum fyrirliði
Manchester United og Englands,
sem nýlega tók við starfí fram-
kvæmdastjóra Middlesbrough, hef-
ur fengið Bryan „Pop“ Robson til
liðs við sig sem þjálfara. Þessi nafni
stjömunnar var mikill markaskorari
á sínum tíma með West Ham og
Sunderland, en hefur starfað sem
unglingaþjálfari hjá Manchester
United síðustu ár.
■ ANDY Gray hefur verið leystur
undan samningi við Tottenham, og
er frjálst að fara til annars félags.
Gray, sem er þeldökkur miðvallar-
leikmaður, kom fyrir 600.000 pund
frá Crystal Palace fyrir þremur
árum.
■ DAVE Bassett, þjálfari Sheffi-
eld United, er að kaupa miðjumann-
inn Gary Parker frá Aston Villa
fyrir 750.000 pund. Það er mesta
upphæð sem United hefur greitt fyr-
ir leikmenn.
■ NEIL Emblem, 22 ára stórefni-
legur vamarmaður hjá Millwall,
hefur verið seldur til Wolves á eina
milljón punda.
KNATTSPYRNA / BIKARKEPPNI KSI
Guðmundur markvörður
var hetja Breiðabliks
GUÐMUNDUR Hreiðarsson
markvörður Breiðabliks var
hetja Kópavogsbúa í gærkvöldi
þegar lið hans sló lið IBK út úr
bikarkeppninni. Markalaust var
eftir framlengingu og úrslitin
réðust í vítaspyrnukeppni þar
sem Guðmundur varði eina
spyrnu.
Guðmundur gerði fleira því á síð-
ustu mínútu síðari hálfleiks
varði hann mjög vel skalla frá Kefl-
víkingum og bjargaði
Skúli Unnar Því að ÍBK kæmist
Sveinsson 1:0 yfir á síðustsu
skrifar sekúndunum.
Leikurinn var ann-
ars með þeim leiðinlegustu sem und-
irritaður hefur séð lengi og það voru
fleiri á sama máli því harðir fylgis-
menn beggja liða höfðu á orði að það
Vítaspyrnu-
keppnin
0:1 .......Marko Tanasic
1:1 ...Kristófer Sigurgeirsson
1:1 ..Kristinn Guðbrandsson
(Guðmundur varði)
2:1 .....Arnar Grétarsson
2:2 .....Georg Birgisson
3:2 ...Grétar Steindórsson
3:3 .....Gunnar Oddsson
4:3 ...Gunnlaugur Einarsson
4:3.....Óli Þór Magnússon
(skot í stöng)
væri sem betur fer ekki oft sem
menn væru við það að sofna á knatt-
spyrnuleik. Liðin léku þó þokkalega
á milli vítateiganna í fyrri hálfleik
en gallinn var sá að alltaf þegar
menn komust í sókn vantaði fleiri
samherja. Varnarleikurinn var í fyr-
irrúmi. Allt of oft sá maður rólega
sókn heimamanna fjara út og þá
voru sex eða sjö leikmenn þeirra enn
á eigin vallarhelmingi.
Síðari hálfleikur var mjög dapur
og það var ekki fyrr en rétt á síð-
ustu mínútunum að áhorfendur
rumskuðu. Fyrst átti Grétar Stein-
dórsson skot í stöng ÍBK-marksins
og Guðmundur varði meistaralega
frá Georgi Birgissyni. í framlenging-
unni fengu liðin þokkaleg færi sem
ekkert varð úr.
í vítaspyrnukeppninni varði Guð-
mundur aðra spymu ÍBK, frá Kristni
Guðmundssyni og fímmta spyrnan,
frá Óla Þór, fór í stöngina og þar
með sigraði Breiðablik 4:3.
Morgunblaðið/Bjami
Oli Þór Magnússon, KefIvíkingur, og Gústaf Ómarsson, liðsmaður Breiðabliks, berjast um boltann.
Fylkismenn höfðu betur
í baráttunni á Ólafsfirði
FYLKIR sigraði Leiftur 2:0 á
Ólafsfirði og tryggði sér þar
með sæti í átta liða úrslitum
bikarkeppninnar ásamt sjö fyr-
studeildarliðum. Sigurinn var
heldur ósanngjarn því Leifturs-
menn voru mun meira með
boltann og lengi vel fór leikur-
inn fram á vallarhelmingi Fylk-
ismanna.
Bjarni Jóhannsson, þjálfari Leift-
urs, var að vonum ánægður í
leikslok. „Við áttum undir högg að
sækja en náðum að
nýta þau fáu færi
sem okkur gáfust,
og ég er afskaplega
ánægður með að
vinna Leiftur á heimavelli. Það var
Frá
Sigurði
Biömssyni á
Ólafsfirði
mikilvægt fyrir okkur, móralskt,"
sagði Bjarni við Morgunblaðið. Varð-
andi framhaldið sagði hann að bikar-
keppnin væri stemmning augna-
bliksins og hann léti hveijum degi
nægja sína þjáningu.
Leiftursmenn náðu fljótlega góð-
um tökum á leiknum og í fyrri hálf-
leik fór leikurinn að mestu fram á
vallarhelmingi gestanna. Þeir skutu
tvívegis góðum skotum að marki en
markvörður Fylkismanna sá við
þeim í annað skiptið og varnarmenn
í hitt. Mikil hætta skapaðist á 21.
mínútu eftir skot að marki, mark-
vörður Fylkis varði en hélt ekki bolt-
anum og varnarmenn náðu síðan að
hreinsa. Upp úr því fengu Fylkis-
menn tvö færi en Þorvaldur mark-
vörður varði vel. Leiftursmenn fengu
síðan færi á færibandi eftir þetta,
en náðu ekki að skora. Fylkismenn
náðu því hins vegar á 42. mínútu,
er Þórhallur Dan Jóhannsson skor-
aði eftir slæm varnarmistök.
Síðari hálfleikur var þófkenndur
til að byija með, en Leiftursmenn
náðu síðan tökum á leiknum aftur.
Á 57. mínútu átti Slobodan Milisic
gott skot framhjá og skömmur síðar
small knötturinn í stöng Fylkis-
marksins. Fylkismenn náðu hins
vegar að bæta við marki á 73. mín-
útu, en það gerði Kristinn Tómasson
eftir laglega fléttu.
Leiftursmenn höfðu tök á leiknum
lengst af en lokahnykkinn vantaði
og virtist sem áhugaleysi væri yfir
liðinu. Fylkismenn nýttu færi sín vel
og það skipti sköpum.
Breiðablik - IBK
0:0
Kógavogsvöilur, 16 liða úrslit bikarkeppni
KSI, fimmtudaginn 14. júlí 1994.
Breiðablik sigraði í vítaspyrnukeppni, 4:3.
Aðstæður: Góðar.
Gult spjald: Valur Valsson, Breiðabliki (55.
fyrir að sparka knetti eftir að dómarinn
dæmdi), Hákon Sverrisson, Breiðabliki
(117. brot). Gestur Gylfason, ÍBK (88.
sparkaði i mótheija), Óli Þór Magnússon,
ÍBK (105. mótmæli)
Dómari: Bragi Bergmann. Góður.
Áhorfendur: 260 greiddu aðgang.
Breiðablik: Guðmundur Hreiðarsson - Gú-
staf Ómarsson, Einar Páll Tómasson, Hákon
Sverrisson - Jón Stefánsson (Sigurjón Krist-
jánsson 46.), Gunnlaugur Einarsson, Valur
Valsson (Vilhjálmur Haraldsson 81.), Amar
Grétarsson, Kristófer Sigurgeirsson - Rast-
islav Lazorik, Grétar Steindórsson.
ÍBK: Ólafur Gottskálksson - Karl Finnboga-
son, Sigurður Björgvinsson, Kristinn Guð-
brandsson - Ragnar Margeirsson (Georg
Birgisson 68.), Gunnar Oddsson, Ragnar
Steinarsson, Marko Tanasic, Gestur Gylfa-
son - Kjartan Einarsson (Sverrir Þór Sverr-
isson 91.), Óli Þór Magnússon.
Víkingur - Þór 4:6
Víkingsvöllur:
Mörk Víkings: Óskar Óskarsson (48. og
73. ), Marteinn Guðgeirsson (77.), Bjöm
Bjartmarz (78.).
Mörk Þórs: Bjarni Sveinbjömsson (6., 17.
og 36.), Láms Orri Sigurðsson (25.), Júlíus
Tryggvason (57.), Guðmundur Benedikts-
son (62.).
Gult spjald: Hreinn Hringsson, Þór.
Dómari: Jón Siguijónsson.
Áhorfendur: 100.
Víkingur: Axel Gomes - Guðmundur Árna-
son, Björn Bjartmarz, Stefán Ómarsson -
Sigurgeir Kristjánsson, Lárus Huldarsson,
Marteinn Guðgeirsson, Hörður Theódórs-
son, Halldór Jónsson (Trausti Ómarsson
55.) - Guðmundur Gauti Marteinsson (Jón
Grétar Ólafsson 62.), Óskar Óskarsson.
Þór: Brynjar Davíðsson - Hlynur Birgisson,
Júlíus Tryggvason, Þórir Áskelsson - Orm-
arr Örlygsson, Láms Orri Sigurðsson, Drag-
an Vitörovic, Páll Gíslason (Sveinn Pálsson
55.), Ámi Þór Ámason (Hreinn Hringsson
74. ) - Bjarni Sveinbjömsson, Guðmundur
Benediktsson.
Þróttur R.-ÍBV 2:4
Þróttaravöllur:
Mörk Þróttar: Hreiðar Bjarnason (50.),
Haukur Magnússon (54.).
Mörk ÍBV: Þórir Ólafsson (36.), Friðrik
Sæbjörnsson (72.), Zoran Ljubicic (95.,
118.)
Gult spjald: Hjá Þrótti Ragnar Egilsson
fyrir brot, Amar Bjarnason fyrir brot, og
Kristinn Atlason aðstoðarþjálfari fyrir
óprúðmannlega framkomu. Hjá ÍBV fékk
Dragan Manjocivic fyrir brot, Bjarnólfur
Lámsson fyrir brot.
Dómari: Gísli Guðmundsson.
Áhorfendur: Um 110.
Þróttur: Fjalar Þorgeirsson, Páll Einarsson,
Ágúst Hauksson, Arnar Bjarnason, Haukur
Magnússon (Biynjólfur Schram 85.), Sævar
Guðjónsson, Hreiðar Bjarnason, Theodór
Jóhannsson, Gunnar Gunnarsson (Skúli
Egilsson 22.), Valdimar Pálsson, Ragnar
Egilsson.
ÍBV: Friðrik Friðriksson, Sumarliði Árna-
son (Bjarnólfur Lámsson 65.), Magnús Sig-
urðsson (Friðrik Sæbjörnsson 73.), Dragan
Manjocivic, Jón Bragi Arnarsson, Hermann
Hreiðarsson, Heimir Hallgrímsson, Zoran
Ljubicic, Steingrímur Jóhannesson, Nökkvi
Sveinsson, Þórir Ólafsson.
Leiftur - Fylkir 0:2
Ólafsfjarðarvöllur:
Mörk Fylkis: Þórhallur Dan Jóhannsson
(42.), Kristinn Tómasson (73.)
Gult spjald: Slobodan Milisic, Leiftri, og
Ásgeir M. Ásgeirsson, Fylki, báðir fyrir
brot.
Leiftur: Þorvaldur Jónsson, Friðrik Einars-
son, Einar Einarsson (Bergur Björnsson),
Gunnar Már Másson, Gunnlaugur Sigur-
sveinsson, Mark Duffield (Sindri Bjama-
son), Matthías Sigvaldason, Páll Guðmunds-
son, Sigurbjöm Jakobsson, Slobodan Mil-
isic, Sverrir Sverrisson.
Fylkir: Kristján Sturluson, Halldór Steins-
son, Ingvar Ólafsson, Brandur Siguijóns-
son, Ólafur Stígsson, Ásgeir Már Ásgeirs-
son, Aðalsteinn Víglundsson, Finnur Kol-
beinsson, Gunnar Þór Pétursson (Ómar
Bendtsen), Kristinn Tómasson, Þórhallur
Dan Jóhannsson.
Ikvöld
Knattspyma kl. 20
Bikarkeppnin - 16. liða úrslit:
Akranes................ÍA - KR
Hlíðarendi.........Valur - Fram
Grindavík...........UMFG - FH
Akureyri..........KA - Stjarnan
2. deild karla:
Neskaupst.......Þróttur - Selfoss
2. deild kvcnna B:
Ólafsfjörður.......Leiftur - ÍBA
3. deild karla:
Skallagrv.....Skallagr. - Völs.
4. deild:
Grótturv..........Grótta - UMFA
Þorlákshöfn........Ægir - Ökkli
Gervigr.......Léttir - Framiierjar
Melar..............SM - Þrymur