Morgunblaðið - 23.11.1994, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B/C/D
268. TBL. 82. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Stórveldin ræða frekari árásir flugvéla NATO
Serbar þrengja að
múslimum í Bihac
Skotið á breskar herflugvélar yfir norðurhluta Bosníu
Sarajevo, Napólí. Reuter.
ARASIR Bosníu-Serba á múslima-
borgina Bihac héldu áfram í gær,
þrátt fyrir loftárásir herflugvéla
Atlantshafsbandalagsins (NATO) á
flugvöll Serba í Krajina-héraði á.
mánudag. Ráku serbneskir hermenn
hundruð flóttamanna á undan sér
og skildu eftir sig slóð brunninna
þorpa, að sögn liðsforingja í gæslu-
liði Sameinuðu þjóðanna. Fulltrúar
Bandaríkjastjómar ræddu við
stjómir annarra NATO-ríkja í gær
og sögðu koma til greina að beita
loftárásum gegn Bosníu-Serbum til
að koma í veg fyrir fall Bihac.
Skotið var eldflaugum að tveim
breskum Sea Harrier ormstuþotum
í gær yfir norðurhluta Bosníu frá
svæði sem er á valdi Serba en þær
sluppu óskaddaðar. Talið er að mjög
erfitt verði að beita loftárásum gegn
Serbum í Bihac-héraði vegna stað-
hátta, hætta sé á að mannfall yrði
einnig í röðum óbreyttra borgara
eða gæsluliða SÞ á svæðinu.
Að sögn talsmanna SÞ eru herir
Serba, sem ráða yfir fallbyssum og
skriðdrekum, nú aðeins tvo km frá
miðborg Bihac og barist er af hörku,
hús úr húsi. Fimm óbreyttir borgar-
ar féllu aðfaranótt þriðjudags, að
sögn borgaryfirvalda.
Astandið er afar slæmt í Bihac
en engin hjálpargögn hafa borist
þangað frá því í maí, her Serba
hefur komið í veg fyrir flutning
hjálpargagna þangað. Um 190.000
manns eru nú í borginni.
Hóta frekari árásum
William Perry, vamarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, lýsti því yfir
í gær að NATO myndi hiklaust beita
loftárásum að nýju ef Serbar gerðu
frekari loftárásir á Bosníu frá völl-
um í Krajina-héraði. Árás NATO á
mánudag á Udbina-flugvöllinn hef-
ur sætt gagnrýni í Washington
vegna þess að aðeins var sprengdur
upp flugvöllur Serba í Krajina en
ekki ráðist á herflugvélar þeirra.
Fulltrúar SÞ segja að takmarkið
hafi verið að veita viðvörun en jafn-
framt verði að gæta þess að rjúfa
ekki öll tengsl við Bosníu-Serba með
of hörðum aðgerðum gegn þeim og
þjóðbræðrunum í Krajina. Tveir
menn féllu í árásinni á flugvöllinn
og fjórir særðust. Serbar telja að
aðeins taki sólarhring að gera við
flugbrautirnar.
Serbar hyggja á hefndir
Serbar brugðust ókvæða við loft-
árás NATO og hótuðu hefndum.
Ratko Mladic, yfirmaður hers Bos-
níu-Serba, sagði Serba ekki geta
tryggt öryggi gæsluliða SÞ eftir
árásina og að heijum SÞ yrði fram-
vegis ekki leyft að fara um land
Srpska-lýðveldisins, sjálfskipaðs
ríkis Bosníu-Serba.
Radovan Karadzic, leiðtogi
Bosníu-Serba, tók í sama streng.
„Við íhugum nú að gjalda líku líkt.
Við munum velja stund og stað og
munum gæta þess að [aðgerðin]
Skattur
ábúfé
Sydney. Reuter.
ASTRALSKIR vísindamenn
em að gera tilraunir með efni,
sem á að minnka „útblástur“
frá nautgripum og sauðfé,
þ.e.a.s metangasmyndun, sem
talin er eiga mikinn þátt í
gróðurhúsaáhrifunum. Er von-
ast til, að þetta nýja efni komi
í veg fyrir, að stjómvöld leggi
mengunarskatt á búfénaðinn.
Á hveiju ári gefa 24 milljón-
ir nautgripa og 150 milljónir
fjár í Ástralíu frá sér alls 2,2
milljónir tonna af metangasi.
Vísindamaður hefur nú
fundið skaðlaust efnasam-
band, sem dregur úr gasmynd-
un þegar kúm er gefið það, og
í ljós kom við rannsóknir, að
skepnunum varð mjög gott af
því. Er nú verið að reyna það
á sauðfé.
NATO.
Reuter
BRESKUR stjórnandi brynvarins vagns gæsluliðs Sameinuðu þjóðanna afhleður vélbyssu skammt
frá ratsjárstöð í Sarajevo í gær. Serbar í Bosniu og Krajina-héraði í Króatíu hótuðu hefndum vegna
loftárása NATO á mánudag en réðust þó ekki gegn gæsluliðunum sem flestir eru franskir eða breskir.
Brundtland um fram-
tíð Noregs utan ESB
Yrðum í
reynd ein
ÍEFTA
Ósló. Morgunblaðió.
GRO HARLEM Brundtland, for-
sætisráðherra Noregs, gerði ekki
mikið úr áhrifum Islands er hún
svaraði spurningu blaðamanns
Morgunblaðsins á blaðamannafundi
í gær um það hver yrðu áhrif ríkja
fríverslunarbandalags Evrópu,
EFTA, á þróun, EES-samningsins,
ef Norðmenn höfnuðu aðild að Evr-
ópusambandinu, ESB, og yrðu
áfram í EFTA ásamt Islendingum.
„Ekki áhrifamikil eining“
„Að þessu sinni er það í rauninni
bara Noregur, sem er eftir í EFTA,“
sagði Brundtland og vísaði til þess
að hin EFTA-ríkin, sem máli skiptu,
væru gengin í Evrópusambandið.
„Sviss hefur hafnað EES-samn-
ingnum. Það, sem við höfum til að
byggja á, eru rúmlega 4 milljónir
Norðmanna auk íslendinga. Það er
ekki áhrifamikil eining og á enga
möguleika á að hafa áhrif til jafns
við 380 milljónir manna í ESB“.
Brundtland og tveir aðrir ráð-
herrar fengu í gær send bréf frá
óþekktum sendanda og voru virkar
hvellhettur í umslögunum. Norska
lögreglan kannaði málið í gær-
kvöldi.
■ Ekkiannaðtækifæri/14
-----» » «-----
Verðfall í
Wall Street
New York. Reuter.
VERÐ hlutabréfa lækkaði um 2,43%
á mörkuðum í New York í gær vegna
ótta við að vextir yrðu hækkaðir.
Verðfall varð einnig á mörkuðum
í Asíu síðar í gær. Talið er að banda-
ríski seðlabankinn hyggist hækka
vexti til að koma í veg fyrir ofþenslu
í hagkerfinu. Fjárfestar telja að
vaxtahækkunin geti dregið um of
úr hagvextinum og hagnaði fyrir-
tækja.
Dæmdur í Danmörku
fyrir stríðsglæpi
Kaupmannahöfn. Morgnnblaðið.
BOSNÍSKUR flóttamaður, sem
ákærður hefur verið fyrir stríðs-
glæpi í Bosníu, var í gær dæmd-
ur í átta ára fangelsi fyrir dönsk-
um rétti. Maðurinn hefur verið
úrskurðaður geðveikur og mun
því hefja afplánunina á geð-
veikrahæli. Honum verður vísað
úr landi eftir að hann hefur af-
plánað dóminn.
Mál mannsins kom upp í vor,
þegar hann dvaldist í dönskum
flóttamannabúðum. Þar voru þá
menn, sem báru að maðurinn
hefði staðið fyrir grimmilegum
pyndingum .í sömu fangabúðum
og þeir. Maðurinn var sjálfur
fangi, en gekk erinda fangavarð-
anna. I einu tilfelli leiddu mis-
þyrmingarnar til dauða.
Sjálfur hefur maðurinn sagt
að hann hafi aðeins reynt að lifa
af fangavistina og hefur haldið
því fram að honum sé ruglað
saman við samfanga sinn, sem
nú er látinn.
Nú eru hliðstæð réttarhöld í
gangi víðar í Evrópu, er snerta
meinta stríðsglæpi í fyrrum
Júgóslavíu.
Meint spillingarafbrot forsætisráðherra Ítalíu í sviðsljósinu
Dómarar boða rannsókn
Róm. Reuter.
ÍTALSKIR rannsóknardómarar til-
kynntu Silvio Berlusconi, forsætis-
ráðherra Italíu og auðkýfingi, í gær
að málefni hans væru í rannsókn
vegna hugsanlegrar spillingar. Er
þetta mikið áfall fyrir hann og get-
ur skipt sköpum fyrir framtíð hans
í embætti.
Berlusconis sagði í yfirlýsingu til
fjölmiðla í gærkvöldi að hann væri
ekki að hugleiða afsögn. „Aðeins
skýrt og ótvírætt vantraust þingsins
á ríkisstjórn mína gæti þvingað mig
til að leggja fram lausnarbeiðni",
sagði hann. Forsætisráðherrann
sagðist myndu leita til Oscars Luig-
is Scalfaros forseta um stuðning
vegna ómaklegra árása
sem andstæðingar hefðu
staðið fyrir.
Næg gögn?
Ansa-fréttastofan skýrði
frá því að dómararnir hefðu
beðið forsætisráðherrann
að mæta til yfirheyrslu. Það
gera þeir almennt ekki fyrr
en þeir telja sig hafa næg gögn í
höndunum til að reka málið áfram.
Talið er, að málið, sem er til rann-
sóknar, snúist um mútur, sem stór-
fyrirtæki Berlusconis, Fininvest,
hafi greitt skatteftirlitsmönnum
áður en Berlusconi sneri sér að
stjórnmálum. Hann hefur
áður lýst yfir, að féð hafi
verið greitt en aðeins vegna
þess, að spilltir embætt-
ismenn hafí krafist þess.
Dagblaðið Corríere della
Sera í Mílanó sagði frá til-
kynningu dómaranna í gær-
morgun og raunar áður en
Berlusconi fékk hana í
hendur. Segja stuðningsmenn hans,
að með tímasetningunni hafi bein-
línis verið stefnt að því að lítillækka
forsætisráðherrann, sem nú er gest-
gjafi alþjóðlegrar ráðstefnu um
glæpi en hún er haldin í Napólí á
vegum Sameinuðu þjóðanna.
Berlusconi