Morgunblaðið - 30.08.1995, Blaðsíða 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRIMA
MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1995 C 3
+
HESTAR
Brýnt að lengja
keppnistímabilið
SKRANINGIN á Lokasprettinn
í Varmadal sprengdi af sér öll
bönd og fór dagskrá mótsins
af þeim sökum nokkuð úr
böndum. Dagskrá lauk ekki fyrr
en klukkan að verða tíu um
kvöldið og nánast komið myrk-
ur. Þessi mikla þátttaka sýnir
vel að þrátt fyrir erf iða stöðu
í mörgu er víkur að hestamót-
um er áhuginn mikill og gróska
f keppnismennskunni.
Vissulega hefði verið þörf á að
gera einhveijar ráðstafanir til
að tryggja að mótinu lyki fyrr því
botninn datt nokkuð
úr mjög góðri
stemmningu þegar
líða tók á daginn og
ljóst var að ekki
tækist að ljúka dagskrá fyrr en í
myrkri. Var fólk farið að yfirgefa
svæðið og los komið á þá sem eftir
voru. Að öðru leyti var mjög vel
staðið að mótinu og aðdáunarvert
hversu góð aðstaðan þarna er orð-
in. Það er einn ábúenda í Varmad-
al, Jón Sverrir Jónsson sonur hins
kunna skeiðkóngs fyrri ára Jóns í
Varmadal, sem hefur staðið að
þessu ásamt sonum sínum Jóni og
Björgvini og tengdadótturinni
Berglindi Árnadóttur. Skeiðbrautin
hefur í bæði skiptin sem hún hefur
verið notuð skilað afbragðs tímum
og sömuleiðis er hringvöllurinn
ágætur.
Mótið nú sýnir kannski betur en
margt annað að brýn þörf er á að
lengja keppnistímabil hestamenns-
kunnar. Hestar eru í feikna góðu
formi og líklega aldrei betri en á
þessum tíma séu þeir í þjálfun á
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
EFTIR harða keppnl unnu Viðar og Fiðringur, lengst tll hægri,
sig upp í fyrsta sætið, Berglind og Fjöður komu næst og þá
Sylvía og Galsl, Sigurður og Freyr og Hlnrik og Hugur.
Höggvið nærri meti
Annað árið í röð náðust bestu
tímar ársins á skeiðbrautinni
í Varmadal og í bæði skiptin er það
■_■■■■ síðasta mót ársins,
Valdimar Lokasprettur, sem
Kristinsson skilar þessum ár-
skrifar angri. Nú eins og í
fyrra voru þar að
verki Ósk frá Litladal og Sigurbjöm
Bárðarson en tíminn 21,45 sek. er
aðeins 1/20 úr sekúndu frá gildandi
meti Leists frá Keldudal.
Tímar í 150 metrunum voru einnig
mjög góðir og árangur Snarfara frá
Kjalarlandi og Sigurbjöms, 14,2 sek.,
líklega með bestu tímum ársins á
vegalengdinni. Djákni frá Efri-Brú
sem nú virðist kominn í uppsveiflu
hjá Ragnari Hinrikssyni á nýjan leik
og kannski ekki seinna vænna, mætti
grimmur til leiks og sigraði glæsilega
í gæðingaskeiðinu með 103 stig.
Reyndar gat að líta marga glæsilega
skeiðspretti á mótinu, hægt að kalla
þetta vekurðarveislu. Skeiðhestarnir
eru í miklu banastuði þessa dagana
og hefði verið sorglegt ef ekki hefðu
verið fleiri mót framundan því vissu-
lega gætu metin legið í loftinu við
góðar aðstæður. Andvaramenn hafa
tekið boltann á lofti og ákveðið að
halda mót um næstu helgi.
í tölti fullorðinna bitust hjónin
Sigurbjörn Bárðarson á Oddi frá
Blönduósi og Fríða Steinarsdóttir á
Hirti frá Hjarðarhaga um efsta sæt-
ið og mátti þar glöggt sjá að Sigur-
björn gefur aldrei neitt þegar í keppni
er komið, jafnvel þótt sjálf eiginkon-
an eigi hlut að máli. Alexander
Hrafnkelsson á Kveik frá Ártúnum
vann sig úr B-úrslitum upp í fjórða
sæti en Erling Sigurðsson á Feldi frá
Laugarnesi var ekki á því að hleypa
honum lengra. Snæfellingurinn
Gunnar Tryggvason mætti með stóð-
hestinn Þyt frá Brimilsvöllum og
hélt sínu fimmta sæti en Orri Snorra-
son féll í sjötta með Gorm hinn unga
sem virðist eiga góða framtíð þrátt
fyrir fallið í þetta skiptið.
Guðmar Þór keppti á Spuna frá
Syðra-Skörðugili sem virðist óðum
að ná sér eftir bakmeiðsli sem hann
hlaut í sumar. Sigruðu þeir næsta
örugglega í unglingaflokki en Ásta
Kristín sem kom næst á Nökkva frá
Bjarnastöðum vann sig upp um sæti,
hafði skipti við Magneu Rós á Vafa
sem gerði það gott á Akranesi fyrir
rúmri viku.
í barnaflokki átti Viðar Ingólfsson
góðan dag eða öllu heldur gott kvöld
því komið var kvöld þegar úrslitin
fóru fram. Fiðringur kom geysivel
fyrir undir öruggri stjórn Viðars og
grei'nilegt að þeir ætluðu sér ekki
að láta þriðja sætið duga. Uppskáru
þeir vel að lokum og voru óumdeilan-
lega sigurvegarar.
Skídaþjálfari óskast
Skíðadeild Hugins á Seyðisfirði
vantar þjálfara.
Upplýsingar gefur Björg
í síma 47-21301 og 47-21260.
annað borð. Einnig má sjá á þessu
móti og íslandsbankamóti Ðreyra
helgina áður að opnu síðsumars-
mótin njóta mikilla vinsælda. Inn í
þetta spilar að haustin eru að verða
einn besti sölutími á hrossum og
tamningamenn margir hveijir eru
með hross í þjálfun langt fram á
haust. Síðastliðin tvö til þijú ár
hafa frístundahestamenn einnig
stundað útreiðar lengra fram á
haustið en áður tíðkaðist þannig
að við blasir að lengja megi keppnis-
tímabilið og mætti ætla að síðasta
mót ársins væri hægt að halda
fyrstu eða aðra helgi í september.
URSLIT
Hestar
Lokasprettur ’95. Mótið haldið í
Varmadal 26. ágúst.
Tölt. Fullorðnir:
1. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Oddi frá
Blönduósi, 93.
2. Fríða Steinarsdóttir, Fáki, á Hirti frá
Hjarðarhaga, 92.
3. Erling Sigurðsson, Fáki, á Feldi frá Laug-
amesi, 87.
4. Alexander Hrafnkelsson, Fáki, á Kveiki
frá Ártúnum, 84.
5. Gunnar Tryggvason, Snæfellingi, á Þyti
frá Brimilsvöílum, 84.
Gæðingaskeið. Fullorðnir
1. Ragnar Hinriksson, Fáki, á Djákna frá
Efri-Brú, 103.
2. Alexander Hrafnkelsson, Fáki, á Hjalta,
96.
3. Sigurður Marínusson, Fáki, á Snarfara
frá Kjalarlandi, 94.
4. Jón K. Hafsteinsson, Sleipni, á Ölveri frá
Dýrfinnustöðum, 92.
5. Guðmundur Einarsson, Sörla, á Brimi frá
Hrafnhólum, 91.
150 metra skeið
1. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Snarfara
frá Kjalarlandi, 14,2 sek.
2. Ragnar Hinriksson, Fáki, á Djákna frá
Efri Brú, 14,45 sek.
3. Logi Laxdal, Fáki, á Tvisti frá Minni-
borg, 15,27.
4. Þórður Þorgeirsson, Geysi, á Örvari frá
Ási, 15,3 sek.
5. Jón K. Hafsteinsson, Sleipni, á Ölveri frá
Dýrfinnustöðum, 15,4 sek.
250 metra skeið
1. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Ósk frá
Litladal, 21,45 sek.
2. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki á Gordon frá
Stóm-Ásgeirsá, 22,02 sek.
3. Sigurður Marínusson, Fáki, á Snarfara
frá Kjalarlandi, 22,26 sek.
4. Kristján Þorgeirsson, Herði, á Þrym frá
Þverá, 23,5 sek.
5. Sigurður Sigurðarson, Herði, á Edda frá
Reykjum, 23,7 sek.
250 metra stökk
1. Dagur Benónýson, Herði, á Byl frá Bæ.
2. Rúnar Sigurpálsson, Herði, á Roða frá
Kirkjulæk.
3. Sölvi Sigurðarson, Herði, á Mósa frá
Blönduhlíð.
4. Tómas Bentsson, á Guttormi frá Stóra-
Fjalli.
5. Jóhann Þór Jóhannesson, Herði, á Skjóna.
Víðavangshlaup
1. Jóhann Þór Jóhannesson, Herði, á Skjóna.
2. Guðiaugur Pálsson, Herði, á Hjálmi frá
Guðnabakka.
3. Tómas' Bentsson, á Guttormi frá Stóra-
Fjalli.
4. Stefán Hrafnkelsson, Herði, á Vopna frá
Víðivöllum.
5. Berglind I. Árnadóttir, Herði, á Pæper
frá Varmadal.
Tölt-unglingar
1. Guðmar Þór Pétursson, Herði, á Spuna
frá Syðra-Skörðugili, 79..
2. Ásta Kristín Victorsdóttir, Gusti, á
Nökkva frá Bjamastöðum, 62.
3. Magnea Rós Axelsdóttir, Herði, á Vafa
frá Mosfellsbæ, 75.
4. Kristín H. Sveinbjarnardóttir, Fáki, á
Valíant frá Hreggstöðum, 59.
5. Gunnhildur Sveinbjarnardóttir, Fáki, á
Þrá Barkarstöðum, 58.
Tölt-börn
1. Viðar Ingólfsson, Fáki, á Fiðringi frá
Ögmundarstöðum, 65.
2. Berglind Rósa Guðmundsdóttir, Gusti, á
Fjöður frá Svignaskarði, 76.
3. Sylvía Sigurbjömsdóttir Fáki, á Galsa
frá Selfossi, 73.
4. Sigurður Pálsson Herði, á Frey, 56.
5. Hinrik þór Sigurðsson á Hug frá Skarði,
57.
Mót um helgina
Andvari í Garðabæ gengst fyrir móti um
helgina. Keppt verður í A og B flokki gæð-
ing og 150 og 250 metra skeiði.
IÞROTTIR
KAPPAKSTUR
Hlífðarbúnaðurinn bjargaði
MÓTORHJÓLAKAPPINN Karl Gunnlaugsson flaug harkalega á hausinn í mótorhjólakeppnl í Englandi.
Hann handarbrotnaði, en hjálmur og hlífðargalll varnaðl frekari meiðslum. Hvíta skellan á hjálmlnum
sýnir skemmdirnar á hjálminum sem er ónýtur.
Barátta um fall
og Evrópusætin
FJÓRTÁNDAumferðin í1.
deildinni íknattspyrnu karla
hefst í kvöld með þremur leikj-
um og henni lýkur síðan annað
kvöld með tveimur leikjum, þar
sem bikarúrslitaliðin koma við
sögu en leikjunum var frestað
vegna bikarúrslitaleiksins. í
kvöld taka FH-ingar á móti
Eyjamönnum, Keflvíkingar fá
Breiðablik í heimsókn og Vals-
menn bregða sér til Ólafsfjarð-
ar. Annað kvöld leika KR og
Akranes og Fram og Grindavík.
Það eru fímm umferðir eftir og
því 15 stig eftir í pottinum.
Baráttan um íslandsmeistaratitilinn
er löngu búin. Skagamenn eru ör-
uggir um þann titil fjórða árið í röð,
en KR-ingar eiga fræðilegan mögu-
leika á að ná þeim að stigum og
raunar Eyjamenn líka, en þeir mögu-
leikar eru aðeins fræðilegir.
Spennan í deildinni snýst því orðið
um hvaða lið falla í 2. deild og einn-
ig um næstu sæti á eftir Skaganum,
en þar eru sæti í Evrópukeppninni í
boði. FH-ingar, með Inga Björn Al-
bertsson sem nýjan þjálfara, þurfa
nauðsynlega á stigum að halda í
leiknum gegn Eyjamönnum í kvöld.
FH er neðst með 8 stig og Reykjavík-
urfélögin Valur og Fram koma þar
á undan með 11 stig. Eyjamenn eru
hins vegar í þriðja sæti deildarinnar
með 22 stig og hafa komið verulega
á óvart í sumar. Þeir stefna ótrauðir
að sæti í Evrópukeppninni og haldi
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Leikir sem
eftir eru
ÍA: KR (Ú), Grindavík (H),
Fram (Ú), Val (Ú), ÍBV (H).
Keflavík: Breiðablik (H), Fram
(H), FH (Ú), Leiftur (H), KR
(ú).
Fram: Grindavík (H), Keflavík
(Ú), ÍA (H), FH (Ú), Val (H).
IBV: FH (U), Leiftur (H), KR
(Ú), Grindavík (H), ÍA (Ú).
Leiftur: Valur (H), ÍBV (Ú),
Breiðablik (H), Keflavík (Ú),
FH (H).
Grindavík: Fram (Ú), ÍA (Ú),
Valur (Ú), ÍBV (Ú), Breiðablik
(H).
Breiðablik: Keflavík (U), FH
(H), Leiftur (Ú), KR (H),
Grindavík (Ú).
FH: ÍBV (H), Breiðablik (Ú),
Keflavík (H), Fram (H), Leiftur
(Ú).
Valur: Leiftur (U), KR (H),
Grindavík (Ú), ÍA (H), Fram
(ú). . . .
KR: IA (H), Valur (U), IBV
(H), Breiðablik (Ú), Keflavík
(H).
Dattá 160 km hraða
- í stórri mótorhjólakeppni á Snetterton-kappakstursbrautinni í Englandi
KARL Gunnlaugsson, nýkrýndur
íslandsmeistari í kvartmílu, þykist
lánsamur aö hafa sloppið með
handarbrot eftir að hann féll af
keppnishjóli sínu íkappakstur-
skeppni í Englandi. Hann féll af
hjólinu á 160 km hraða fyrir framan
hóp annarra keppenda í stórri mót-
orhjólakeppni á Snetterton-kapp-
akstursbrautinni. Hann keppti þar
ásamt Þorsteini Marel, sem varð í
sjöunda sæti í liðakeppni ásamt
tveimur breskum ökumönnum.
Eg slapp ótrúlega vel og var hrædd-
ur í fyrsta skipti í keppni. Ég fór
alltof geyst í beygju, missti stjórn á-
hjólinu og kastaðist í veg fyrir aðra
keppendur, sem voru fyrir aftan. Ég
var alltof bráður, ætlaði að slá í gegn
í fyrsta hring, en flaug í stað þess á
hausinn í fyrstu beygju,“ sagði Karl
Gunnlaugsson í samtali við Morg-
unblaðið. „Ég lenti á höfðinu og öxlun-
um og munaði minnstu að ég yrði
undir hjólinu, sem var fyrir aftan mig.
Svo rann ég 150 metra eftir brautinni
og út á grasbala. Ég þorði ekki að
hreyfa mig og hugsaði um það hvort
ekki væri nú tími til kominn að hætta.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég
meiðist í keppni á mótorhjóli. Sem
betur fer reyndust meiðslin ekki alvar-
leg. Ég var með sérstaka axlarpúða
og bakplötu, sem sjálfsagt bjargaði
miklu. Á spítala var síðan gert að
meiðslunum og ég er með þrjá stál-
pinna í handarbakinu, þar sem ég
brotnaði."
Þrátt fyrir þetta áfall hyggst Karl
KR öðru sæti sínu í deildinni mun
það lið sem verður í þriðja sæti keppa
í UEFA-keppninni að ári og fjórða
sætið gefur rétt til keppni í Toto-
keppninni.
Keflvíkingar eru í 5. sæti með 19
stig og hafa fullan hug á að komast
ofar og ná í Evrópusæti, þeir ætla
sér því sigur á móti Blikum í kvöld
en Kópavogsiiðið er í mikilli fall-
hættu, er í fjórða neðsta sæti, aðeins
þremur stigum á undan Fram og Val.
Leiftur er í fjórða sæti með 21
keppa í kappakstri í Englandi á næsta
ári og í kvartmílu hérlendis. „Þorsteinn
stóð sig vel í mótinu úti, var um tíma
í fjórða sæti, en féll í það sjöunda vegna
bilunar í hjólinu. Við eigum alveg er-
indi erlendis á þolakstursmót, þar sem
ekið er samfleytt í sex klukkutíma.
Svona óhapp er góð lexía, þótt hún sé
sársaukafull. Ég mun ekki æða af stað
af sama kappi. Svo sannar þetta nauð-
syn þess að vera með góðan öryggis-
búnað, hvort sem menn keppa á mótor-
hjóli eða aka á götunum," sagði Karl.
stig, tveimur stigum á undan Kefla-
vík og einu stigi á eftir Eyjamönnum,
þannig að baráttan er hörð á þessum
vígstöðvum. Valur, eina liðið sem
hefur alltaf leikið í efstu deild hér á
landi, er hins vegar í bullandi fall-
hættu og það er nokkuð sem fyrrum
stórveldi sættir sig ekki við.
Það má því búast við spennandi
leikjum í fyrstu deildinni í kvöld og
ef til vill ekki síður á morgun því
þá gætu Skagamenn tryggt sér Is-
landsmeistaratitilinn.
Raith mætir
ÍA heima
FORRÁÐAMENN skoska Liðs-
ins Raith Rovers segja að þeg-
ar Ijóst var að mótherjar liðs-
ins væri Akranes, hefði það
bjargað því að þeir yrðu að
fara með Evrópuleikinnn frá
heimavelli liðsins, Starks
Park, sem tekur 5.000 áhorf-
endur. Þeir segja að ef mót-
heijinn hefði orðið þekktari
lið en Akranes, hefðu þeir
farið með leikinn til Edin-
borgar — á heimavöll Hibs,
eða á vðli St. Johnston, sem
taka fleiri áhorfendur — alla
í sæti. Þess má geta að Skaga-
menn leika heimaleik sinn
gegn Raith á Akranesi.
Morgunblaðið/Sverrir
ÚLFAR Óttarsson, varnarmaður hjá Breiðabliki, sést hér í keppni við Kjartan Einarsson, sókn-
arleikmann Keflvíklnga. Þeir eigast við í Keflavík í kvöld.
Salako á ný í lands-
liðshóp Englands
John Salako, miðherji Englands,
sem lék síðast landsleik 1991,
er á ný kominn I landsliðshópinn.
Salako meiddist illa á hné fyrir fjór-
um árum, þannig að um tíma leit
allt út fyrir að knattspyrnuferill hans
væri á enda. Terry Venbales, lands-
liðsþjálfari Englands, valdi í gær
landsliðshóp sinn fyrir vináttuleik
gegn Kólumbíu á Wembley í næstu
viku. Paul Ince, AC Milan, Les Ferd-
inand, Newcastle og Darren Ander-
ton, sem er meiddur, eru ekki í hópn-
um. Inn koma David Seaman, mark-
vörður Arsenal og Tony Adams,
Arsenal og Rob Jones, Liverpool,
sem gátu ekki tekið þátt fjögurra
landa móti í Englandi í júni. Þá eru
Newcastle-leikmenninrir Steve
Howey og Robert Lee einnig komnir
á ný í hópinn, sem er þannig skipað-
Markverðir: David Seaman (Arse-
nal), Tim Flowers (Blackburn Ro-
vers).
Vamarleikmenn: Rob Jones (Liver-
pool), Gary Neville (Man. Utd.),
Tony Adams (Arsenal), Steve Howey
(Newcastle), Gary Pallister (Man.
Utd.), Graeme Le Saux (Blackburn),
Stuart Pearce (Nott. For.)
Miðvallarspilarar: Steve McMana-
man (Liverpool), David Platt (Arse-
nal), Robert Lee (Newcastle), Jamie
Redknapp (Liverpool), David Batty
(Blackburn), John Barnes (Liverpo-
ol), Paul Gascoigne (Glasgow Ran-
gers), Dennis Wise (Chelsea)
Sóknarleikmenn: Teddy Shering-
ham (Tottenham), Peter Beardsley
(Newcastle), Nick Barmby (Midd-
lesbrough), Stan Collymore (Li-
verpool), John Salako (Coventry),
Alan Shearer (Blackburn).
Seeler sækist eftir völd-
um hjá Hamburger
UWE Seeler, fyrrum iniðherji Hamburger og þýska landsliðsins
— markvarðahrellirinn mikli á árum áður, hefur hug á að taka
völdin hjá Hamburger SV og gera liðið að nýju að stórveldi.
Seeler, sem er einn af vinsælustu knattspyrnumönnum sem Þýska-
land hefur átt, er 58 ára, mun gefa kost á sér sem stjórnarformað-
ur liðsins á ársfundi þess í nóvember. (
33 í lands-
kvenna
KRISTINN Bjömsson, lands-
liðsþjálfari kvenna, hefur valið
eftirtaldar knattspyniukonur í
undirbúningshóp fyrir Evrópu-
keppni kvennalandsiiða, sem
hefst 17. september með leik
gegn Rússum.
Frá Brelðabliki: Sigfríður Sophus-
dóttir, Vanda Siguigeirsdéttir, Ásthild-
ur Helgadéttir, Margrét Ólafsdóttir,
Helga Osk Hannesdóttir, Sígrún Ótt-
arsdóttir, Erla Hendriksdóttir. Frá KR:
Sigríður F. Pálsdóttir, Olga Fœraeth,
Guðlaug Jónsdóttir, Helena Ólafsdóttir,
Olga Einarsdóttir, Ásdís Þorgilsdóttír,
Inga Dóra Magnúsdóttir, Gerður Guð-
mundsdóttir. Frá Stjöniunni: Auður
Skúladóttir, Katrín Jónsdóttir, Ragna
Lóa Stefánsdóttir, Hanna Kjartansdótt-
ir, Steinunn H. Jónsdóttir, Rósa Dogg
Jónsdóttir. Frá Vali: Guðrún Sœ-
mundsdóttir, Ásgerður H. Ingibergs-
dóttir, Hjördís Símonardóttir, Krist-
björg H. Ingadóttir, Birna BjömsdótUr.
Frá ÍA: Jónfna Vfgiundsdóttir, Ásta
Benediktsdóttir, Ingibjörg H. Ólafs-
dótUr, Laufey Sigurðardóttir, Áslaug
Ákadóttir.
Ikvöld
Knattspyrna 1. deild karla:
Kaplakriki: FH - ÍBV ...18.30
Keflavík: Keflavík - Breiðab... ...18.30
Ólafsfjörður: Leiftur - Valur... ...18.30
1. deild kvenna: ...18.30
3. deild karla: Dalvík: Dalvík - Leiknir R ...18.30