Morgunblaðið - 10.05.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.05.1996, Blaðsíða 1
mngnttlrlsifrft C 1996 FOSTUDAGUR 10. MAÍ BLAÐ KNATTSPYRNA Morgunblaðið/Kristinn Deildarbikarmeistarar Breiðabliks Blikastúlkur fyrstar til að fagna tKlinum Breiðabliksstúlkur urðu fyrstar til að verða meistarar í deildarbikarkeppni KSÍ, en þær unnu Val 4:2 í úrslitaleik í strekkingsvindi _ á gervi- grasinu að Asvöllum í Stefánsson Hafnarfírði í gærkvöldi. ís- skníar landsmeistararnir úr Kópa- vogi voru betri og áttu skil- ið að sigra en bikarmeistaramir frá Hlíðar- enda héldu ágætlega í við mótherjana allan leikinn. Þótt veðurguðirnir hafi haft sín áhrif var leikurinn ágætlega leikinn, enda mátti gera ráð fyrir því þar sem 13 stúlkur liðanna eru í landsliðshópnum, sem var valinn vegna leiks um helgina. Blikastúlkur byijuðu gegn vindi og eftir sjö mínútur gaf Asthildur Helgadóttir bolt- ann fyrir markið á Stojönku Nikolic, sem gerði fyrsta markið. Valsstúlkur lögðu ekki árar í bát og aðeins fímm mínútum síðar jafnaði Bergþóra Laxdal. Skömmu síðar gaf Margrét Ólafsdóttir, Breiðabliki, inná Helgu Ósk Hannesdóttur sem vippaði yfir Birnu Maríu Björnsdóttur í marki Vals, boltinn hrökk í slá og fyrir markið þar sem Stojanka kom í annað sinn og skoraði í autt markið. Á átjándu mínútu síðari hálf- leiks skoraði Ásthildur þriðja mark Breiða- bliks og átta mínútum síðar kom fjórða markið þegar Inga Dóra Magnúsdóttir hamraði í mark af 25 metra færi. En Vals- stúlkur sóttu í sig veðrið og rétt fyrir leiks- lok minnkaði Írís Andrésdóttir muninn í 4:2. Blikastúlkur spiluðu oft og tíðum mjög vel og eru til alls líklegar í sumar. Vanda Sigurgeirsdóttir og Kristrún L. Daðadóttir náðu vel saman í vörninni og á miðjunni höfðu Ásthildur, Margrét og Inga Dóra undirtökin. Valsstúlkur virtust ekki í eins góðu leikformi og fengu ekki mikinn frið til að spila á sínum hraða. Guðrún Sæ- mundsdóttir lék vel í vöminni ásamt Erlu Sigurbjartsdóttur og Birna María í markinu var ágæt. „Við stefndum alltaf að því að verða deildarbikarmeistarar enda erum við með sterkt lið,“ sagði Ásthildur, sem átti tví- tugsafmæli í gær. „Mér líst vel á sumarið og þessi keppni _er skref í rétta átt til að íjölga leikjum. Ég geri ráð fyrir að við í Breiðabliki, Valur og KR eigi eftir að vera á toppnum í sumar þó að önnur lið geti auðveldlega blandað sér í baráttuna, en aðallega vona ég að keppnin verði jöfn og skemmtileg í sumar. Það er mikið að ger- ast hjá landsliðinu og nóg framundan," bætti hún við. Átta Blikastúlkur í landsliðinu í knattspyrnu ÍSLENSKA kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir sænska iandsliðinu skipað stúlkum 20 ára og yngri í æfingaleik á Sandgerðisvelli kl. 16 á sunnudag. Átta stúlkur 116 manna hópi eru úr Breiðabliki, fimm frá Val, tvær í KR og ein frá í A en eftirtald- ar stúlkur skipa hópinn: Markverðir: Sigfríður Sophusdóttir, Breiða- bliki, og Birna M. Björnsdóttir, Val. Aðrir leik- menn: Vanda Sigurgeirsdóttir, fyrirliði, Margrét Ólafsdóttir, Ásthildur Helgadóttir, Helga Ósk Hannesdóttir, Katrín Jónsdóttir, Erla Hendriks- dóttir og Sigrún Óttarsdóttir úr Breiðabliki, Vals- stúlkurnar Guðrún Sæmundsdóttir, Ragna Lóa Stefánsdóttir, Ásgerður H. Ingibergsdóttir og Kristbjörg H. Ingadóttir, KR-ingamir Guðlaug Jónsdóttir og Olga Færseth og Ingibjörg H. Ólafs- dóttir frá í A. Þrír frá Bulls í varnarlið ársins SCOTTIE Pippen, Michael Jordan og Dennis Rod- man, leikmenn Chicago Bulls, vom valdir í NBA- vamarlið ársins. Hinir í liðinu em David Robin- son, San Antonio, og Gary Payton, Seattle, sem var útnefndur besti varnarmaður deildarinnar. Þetta er í fyrsta sinn í 13 ára sem þremur leik- mönnum úr sama Uði hlotnast þessi heiður eða síðan Philadelpiu leikmennirnir Maurice Cheeks, Bobby Jones og Moses Malon vom valdir í liðið 1983. Það eru þjálfarar NBA-Iiðanna sem velja liðið og vora úrslitin kunngerð í gær. Pippen fékk flest atkvæði í kjörinu, eða alls 56. Jordan kom næstur með 53, Payton 48, Robinson 42 og Rodman 30. Pippen, Jordan og Payton vora þeir einu sem voru á öllum seðlunum 28. Þeir sem næstir komu í kjörinu voru; Hakeem Olíguwon, Houston (27 stig), Horace Grant, Orl- ando (25), Mookie Blaylock, Atlanta (22), Derrick McKey, Indiana (15) og Bobby Phills, Cleveland (12). Leikið um úrslitasæti í deildarbikar karla SÍÐUSTU leikirnir í úrslitariðlum deildarbikar- keppni karla verða í kvöld og þá ræðst hvaða lið leika til úrslita. Fram tekur á móti íA á Valbjarn- arveUi kl. 19 og Breiðablik og Grindavík leika á Kópavogsvelli kl. 19.30. IA og IBV gerðu 1:1 jafntefli en ÍBV vann Fram 2:0. SigriFram í kvöld, verði jafntefU eða fari 1:0 fyrir ÍA fer ÍBV í úrslit. Ef ÍA vinnur 2:0 ræður hlutkesti hvort ÍA eða ÍBV haldi áfram en önnur úrslit en framan sögð koma Skagamönnum í úrslit. Grindavík vann Fylki 3:2 en Fylkir vann Breiða- blik 1:0 og því eru allir möguleikar fyrir hendi en tvö lið geta samt aldrei orðið jöfn að stigum og markatölu. Aldrei einsjafnt hjá veðbönkum VEÐB ANKAR í London telja möguleika Liverpool og Manchester United á bikarmcistaratitlinum jafna, átta á móti 13, og hefur slíkt jafnræði ekki ríkt síðan þeir hófu starfsemi 1961. Möguieikar á jafntefli era fimm á móti níu. BikarúrsUtaleikminn á Wembley er hápunktur enska knattspyrnutímabilsins og komast mun færri að en vilja en leikurinn verður á morgun. Jafntefli hjá Brann BRANN náði aðeins 1:1 jafntefli gegn Moss i norsku 1. deildinni i knattspyrnu í gærkvöldi, en Moss er í næstneðsta sæti. Birkir Kristinsson og Ágúst Gylfason ásamt félögum i Brann máttu þola 10:0 tap gegn Rosenborg um helgina, en Uð- ið er um miðja deild. KORFUBOLTI: SHAQ OG HARDAWAY MEÐ SAMTALS 73 STIG FYRIR ORLANDO / C4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.