Morgunblaðið - 15.01.1998, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.01.1998, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Suðurskautsfararnir komnir heim, þreyttir en ánægðir LEIÐANGURSMENN beijast gegn hörðum vindi í desember, skömmu fyrir lok ferðarinnar. INGÞÓR Bjarnason með frosið skegg og sárar Þennan dag komust þeir ekki nema um sjö kílómetra. varir í fímbulkuldanum. Guð og gæfan var með okkur * Suðurskautsfararnir þrír komu til Islands í gær. Þeir voru þreyttir og báru merki þess erfíðis sem þeir hafa lagt á sig síðustu vikurnar, en ánægðir með afrekið og ___móttökurnar á Islandi. Helgi_ Þorsteinsson fylgdist með heimkomunni. ISLENSKU suðurskautsfaram- ir, Ólafur Öm Haraldsson, Har- aldur Öm Ólafsson og Ingþór Bjamason, vom þreytulegir, síðhærðir, skeggjaðir, magrir og með ummerki kalsára í andliti þegar stigu inn í flugstöðvarbygginguna á Keflavíkurflugvelli klukkan rétt rúmlega sex í gærmorgun eftir flug frá Orlando í Bandaríkjunum. Ferðin frá Suðurskautslandinu hafði tekið tæpa fjörutíu flugtíma með stuttri hvíld á milli. Þeir virtust þó hafa nægan vilja og orku til sinna allri þeirra athygli sem að þeim beindist allan gærdaginn, enda ánægðir með að fórin hefði gengið slysalaust. „Guð og gæfan var með okkur,“ sagði Ólafur Órn eftir heim- komuna. Eftir að þremenningamir stigu úr flugvélinni fengu fjölskyldur þeirra nokkur augnablik í einrúmi til að heilsa þeim eftir langan aðskilnað, en síðan tók við hersing fjölmiðla- manna, samherja Ólafs úr Fram- sóknarflokknum, félagsmanna í Alpaklúbbnum og ýmissa sem að- stoðað höfðu þá við undirbúninginn og meðan á ferðalaginu stóð. Heiðursgöng úr skfðum Félagar í Alpaklúbbnum mynd- uðu heiðursgöng úr skíðum sem suðurskautsfararnfr gengu gegnum að hópnum sem beið þeirra. Halldór Ásgrimsson utanríkisráðherra flutti stutta ræðu þar sem hann lofaði af- rek ferðalanganna og sagði íslensku þjóðina vera stolta af þeim. Einnig fagnaði þeim Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra og framsóknar- þingmennirnir Hjálmar Árnason og Valgerður Sverrisdóttir. Frá Keflavíkurflugvelli var haldið í verslunina Útilíf í Glæsibæ þar sem samankomnir voru helstu aðstoðar- menn suðurskautsfaranna og spurðu þá spjörunum úr um hvemig hefði gengið. Þeir vildu meðal annars vita hvemig fatnaðurinn, tækin og mat- urinn hefði reynst. Mishlýtt á höndum eftir stöðu sólar Þeir Ólafur, Haraldur og Ingþór lofuðu búnaðinn, en gátu þó bent á ýmislegt sem bæta mætti, enda hafði hver einstakur hlutur gengist undir harða prófraun. Þeir nefndu sérstaklega að þeim hefði orðið kalt á höndunum. „Við vorum með svarta hanska sem hlýnuðu vel þeg- ar sólin skein á þá,“ sagði Ólafur. „Fyrri hluta dagsins var okkur því hlýtt á þeirri hendinni sem þá sneri mest á móti sólu en hin var kaldari. Eftir því sem leið á daginn og sólin færðist á himninum snerist þetta við.“ Sveið undan koníakinu Þremenningamir fengu kalsár á andlit, hendur og læri, Haraldur þó minnst. Hann slapp einnig alveg við sár á vömm sem kvöldu félaga hans nyög á tímabili. „Þegar við fengum okkur koníakssopa í tilefni af því að hafa náð einhverri breiddargráðunni sveið ansi mikið í varimar," segir Ingþór. Lítið var haft fyrir rakstri á ferða- laginu, enda var skeggið ágæt vörn gegn veðrinu. Klakadrönglar vildu þó safnast í það og þá varð að slá af áður en sest var að snæðingi. Eitt sinn fór svo að húfa fraus föst við skeggið á einum þeirra, og ekki var önnur leið til að losa hana heldur en að klippa það. Suðurskautsfaramir íslensku lentu ekki í neinum veralegum erfíðleikum í ferðinni og hlýtur það að teljast vel sloppið. Af þremur leiðöngram sem lögðu af stað á pólinn um svipað leyti varð einn að gefast upp. INGÞÓR og Ólafur Öm skála fyrir jólunum á aðfangadag, í koníaki sem þeir drukku úr filmuhylkjum. í baksýn em sokkar hengdir til þerris í tjaldinu og í poka glyttir í dagbók eins af ferðalöngunum. ÍSLENSKI fáninn blaktir við Ijald leiðangursmanna á Suðurskautslandinu í síðari hluta ferðarinnar. Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir EIGINKONUR suðurskautsfaranna heilsa þeim innilega á Keflavíkurflugvelli í gærmorgun eftir langar fjarvistir. Bensínblandaður matur orkuríkur Þau áföll sem Islendingamir lentu í vora að mestu minniháttar. Til dæmis lenti bensín í hluta matarbirgða þeirra. Þeir Ólafur og Ingþór segja þó að Haraldur hafi látið sig hafa það að borða mat þótt eitthvert bensín- bragð hafi verið af honum. Haraldur samsinnir og segir að það hafi enda verið mjög orkuríkur kostur. Ekki veitti af, þvi matarlystin óx stöðugt eftir því sem leið á ferðina. Dag- skammturinn var 5.500-6.000 kalorí- ur, sem er tvöfalt það sem fullorðnir þurfa á að halda við venjulegar kring- umstæður. Þegar sá fyrir endann á ferðalaginu voru þeir þó famir að bæta við skammtinn til að seðja hungrið. Haraldur sagðist í gær reyndar ennþá hafa borðað svo mikið í einni máltíð eftir að ferðinni lauk að hann gæti ekki hugsað sér meira. Þeir Ólafur og Ingþór segjast báð- ir hafa lést um nálægt sjö kfló í ferð- inni. Haraldur þyngdist hins vegar um fimm, en segist varla telja að það hafi verið fita sem bættist við. Þijár vikur til aðlögunar að hversdagslífinu I hádeginu í gær var haldin mót- taka í Ráðherrabústaðnum fyrir þá Ólaf, Harald og Ingþór. Friðrik Sophusson fjármálaróðherra var gestgjafi í fjarvera Davíðs Oddsson- ar forsætisráðherra. Fleira var á dagskrá dagsins og margir vildu ræða við þremenningana, en þeir vora greinilega þreyttir enda höfðu þeir ekki sofið nema í flugvélum síð- ustu þrjá sólarhringa. Næstu vikur ætla þeir að reyna að jafna sig og að- laga sig venjulegu lífi. Ólafur Örn segir að miðað við reynsluna frá því fyrir nokkrum áram, þegar þeir gengu yfir Grænlandsjökul, mætti gera ráð fyrir þremur vikum til að venjast hraða hversdagslífsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.