Morgunblaðið - 02.07.1998, Blaðsíða 5
4 C FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998
.+
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998 C 5#
URSLIT
Tennis
Wimbledon-mótið
Einliðaleikur kvenna, 4. umferð:
1-Martina Hingis (Sviss) vann Tamarine
Tanasugarn (Tælandi) 6-3 6-2
3-Jana Novotna (Tékklandi) vann 10-Irina
Spirlea (Rúmeníu) 6-2 6-3
7-Venus Williams (Bandar.) vann Virginia
Ruano Pascual (Spáni) 6-3 6-1
5-Arantxa Sanchez Vicario (Spáni) vann 15-
Dominique Van Roost (Belgíu) 3-6 6-3 6-2
Einliðaleikur karia, 4. umferð:
9-Richard Krajicek (Hollandi) vann Wayne
Ferreira (S-Afríku) 6-3 6-3 7-5
Davide Sanguinetti (Italíu) vann Francisco
Clavet (Spáni) 7-6 (7-3) 6-1 6-4
Jan Siemerink (Hollandi) vann Magnus
Larsson (Svíþjóð) 4-6 6-3 6-3 6-2
1-Pete Sampras (Bandar.) vann Sebastien
Grosjean (Frakkl.) 6-3 6-4 6-4
14-Goran Ivanisevic (Króatíu) vann Todd
Martin (Bandar.) 7-6 (7-5) 6-3 3-6 7-6 (7-2)
Mark Philippoussis (Astralíu) vann Jason
Stoltenberg (Ástralíu) 5-7 6-1 6-3 6-3
Átta manna úrslit karla:
Richard Krajicek, Hollandi, vann Davide
Sanguinetti, Italíu 6-2, 6-3, 6-4
Tim Henman, Englandi, vann Petr Korda,
Tékklandi 6-3, 6-4, 6-2.
Pete Sampras, Bandar., vann Mark
Philippoussis, Ástralíu 7-6 (7-5), 6-4, 6-4.
Goran Ivanisevic, Króatíu, vann Jan
Siemerink, Hollandi 7-6 (12-10), 7-6 (7-5), 7-
6 (8-6)
Átta manna úrslit kvenna:
Martina Hingis, Sviss, vann Aröntxu
Sanchez Vicario, Spáni 6-3, 3-6, 6-3
Natasha Zvereva, Hvíta-Rússl., vann
Monicu Seles, Bandar. 7-6 (7-4), 6-2
Nathalie Tauziat, Frakkl., vann Lindsay
Davenport, Bandar. 6-3, 6-3.
Jana Novotna, Tékklandi, vann Venus
Williams, Bandar. 7-5, 7-6 (7-2)
Knattspyma
Noregur
Haugesund - Stabæk .................2:1
Lilleström - Brann ................1:1
Rosenborg - Molde...................1:2
Strömsgodset - Moss ................2:0
Tromsö - Kongsvinger ...............3:0
Vildng - Bodö/Glimt ................1:1
VSlerenga - Sogndal.................4:0
Staðan
Molde ................10 8 2 0 31: 7 26
Rosenborg............. 9 6 2 1 29: 8 20
Stabæk ...............10 6 2 2 16:10 20
Viking................10 6 1 3 24:15 19
Moss .................10 5 1 4 12:21 16
Tromsö ...............10 4 3 3 17:14 15
Lilleström............10 4 2 4 16:24 14
Strömsgodset..........9333 13:16 12
Kongsvinger........... 9324 12:16 11
Bodö/Glimt............9243 16:19 10
Váierenga.............10 3 1 6 19:24 10
Haugesund ............10 1 2 7 13:20 5
Brann ................10 0 5 5 10:17 5
Sogndal...............10 0 4 6 8:25 4
Fijálsíþróttir
Bellinzone-mótið
Fór fram í Bellinzone í Sviss í gær:
Karlar
1.500 m hlaup .....................mín.
1. Luke Kipkosgei (Kenýa).......3:35.49
2. Giuseppe D’Urso (Ítalíu).....3:35.78
3. David Lelei (Kenýa) .........3:36.14
100 metra hlaup....................sek.
1. Bruny Surin (Kanada)...........10.08
2. Osmond Ezinwa (Nígeríu)........10.12
3. Vincent Henderson (Bandar.)...10.32
110 m grindahlaup
1. Colin Jackson (Bretl.) ........13.10
2. Tony Dees (Bandar.) ...........13.39
3. Reggie Torian (Bandar.)........13.47
3.000 m hindrunarhlaup.............mín.
1. Jonathan Kandie (Kenýa)......8:14.06
2. Patrick Sang (Kenýa).........8:15.57
3. Julius Kiptoo (Kenýa)........8:15.88
Kringlukast......................metrar
1. John Godina (Bandar.)..........67.43
2. Jason Tunks (Kanada)...........65.87
3. Andreas Seelig (Þýskalandi)....65.47
Konur
Míluhlaup..........................mín.
1. Gabriela Szabo (Rúmeníu) ....4:19.30
2. Anita Weyermann (Sviss)......4:23.92
3. Kathy Butler (Bandar.).......4:27.71
100 m hlaup........................sek.
1. Savatheda Fynes (Bahama).......11.11
2. Xuemei Li (Kína) ..............11.19
3. Endurance Ojokolo (Nígeríu) ...11.24
100 m grindahlaup
1. Svetlana Dimitrova (Búlgaríu) .... 12.78
2. Angela Vaughn (Bandar.) .......13.15
3. Watanasin Reawadee (Tælandi) ... 13.36
I kvöld
Bikarkeppni KSI
16-liða úrslit karla:
Fylkisvöllur: Fylkir - FH......20
Grindavík: Grindavík - KR U-23 .20
Laugardalsvöllur: Próttur - Fram20
2. deild karla:
Dalvík: Dalvík - Fjölnir ......20
Leiknisvöllur: Leiknir - Reynir S.20
Siglufjörður: KS - Selfoss ....20
Þorlákshöfn: Ægir - Tindastóll . 20
3. deild:
Grenivík: Magni - Hvöt ........20
Krossmúlav.: HSÞ-b - Nökkvi .. .20
Egilsstaðir: Höttur - Neisti...20
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
KVAstóð
í Leiftri
Steinþór
Guðbjartsson
skrifar
Leiftur þurfti að hafa þó nokkuð
fyrir 4:2-sigri á KVA í 16 liða úr-
slitum bikarkeppninnar á Eskifirði í
gærkvöldi. Heima-
menn voru mun
ákveðnari til að
byrja með en um
miðjan fyrri hálf-
leik urðu kaflaskipti. Þá fékk Leift-
ursmaðurinn Sindri Bjamason að sjá
rauða spjaldið en það var sem spark
í afturenda gestanna og sex mínút-
um síðar braut Kári Steinn Reynis-
son ísinn þegar hann skoraði af
stuttu færi eftir atgang í teig KVA í
kjölfar innkasts frá hægri. „Eg hef
ekki skorað síðan í þriðju umferð Is-
landsmótsins og því var tími til kom-
inn,“ sagði Kári Steinn við Morgun-
blaðið. Hann byrjaði sem afturliggj-
andi vængmaður hægra megin en
þegar fækkaði í liðinu fór hann inn á
miðjuna og Peter Ogaba dró sig aft-
ur. „Ég var miklu meira í boltanum á
miðjunni og það var ánægjulegt að
koma okkur á bragðið," sagði Kári
Steinn.
Markið hafði lamandi áhrif á
heimamenn og þeir voru sem áhorf-
endur þegar Uni Arge bætti öðru
marki við eftir gagnsókn skömmu
fyrir hlé, en aðdragandinn var glæsi-
legur. Jens Martin Rnutsen spyrnti
út á Rastislav Lasorik, sem gaf fram
á Pál Guðmundsson, en hann sendi á
Færeyinginn. Þriðja markið kom
líka eftir gagnsókn; John Nilsen
brunaði upp hægri kantinn og gaf
fyrir markið þar sem Lasorik kom
aðvífandi á fjærstöng og skoraði af
öryggi. „Við héldum að þetta yrði
auðvelt einum fleiri en annað kom á
daginn,“ sagði Miroslav Nikolie,
þjálfari og leikmaður KVA. „Þeir tví-
efldust og við gáfum eftir við hvert
mark; vorum komnir á hælana í stöð-
unni 3:0.“
Dragan Stonjanovic, sem fékk
gullið tækifæri til að jafna 1:1,
minnkaði muninn upp úr miðjum
seinni hálfleik, skoraði eftir gagn-
sókn. Skömmu síðar bætti Uni Arge
fjórða marki Leifturs við en Boban
Ristic átti síðasta orðið á síðustu
mínútu, skoraði með þrumuskoti eft-
ir að hafa fengið boltann aftur eftir
aukaspyrnu utan teigs. Skömmu áð-
ur klúðraði Dragan dauðafæri og
Jens Martin greip boltann eftir víta-
spyrnu Miroslavs.
„Við vissum að þetta yrði ekki
auðvelt en það er alltaf gott að sigra
og það er ánægjulegt að Leiftur
skuli vera í átta liða úrslitum," sagði
Páll Guðlaugsson, þjálfari Leifturs.
„Þó við værum einum færri var
sóknarleikur okkar góður og við
nýttum færin. Mótherjarnir voru
hættulegir en við héldum haus þó
þetta hafi verið mjög erfitt undir lok-
in. Þá hafði ég líka skipt þremur
mönnum inn á því við eigum mikil-
vægan leik heima við Islandsmeist-
ara IBV á sunnudag og okkur veitir
ekki af öllum óþreyttum í þá viður-
eign. Hins vegar sýndum við að við
getum þetta, enda erum við með gott
lið, og með réttu hugarfari eigum við
að komast langt.“
Eins og gefur að skilja fóru leik-
menn inn í klefa eftir leik en
Miroslav dreif sína menn út aftur á
æfingu. „Ég var ekki ánægður með
leikinn og úrslitin," sagði hann. „Ég
vildi að við spiluðum eins og Leiftur
en nú er þessu verkefni lokið og þá
getum við einbeitt okkur að Islands-
mótinu. Við erum með nýtt lið og ég
vildi spila fyrir fólkið en hugarfarið
var ekki rétt.“
Morgunblaðið/Golli
UNE Arge (t.h.) skorar hér annað mark Leifturs án þess að Veig-
ar Sveinsson komi vörnum við.
Tryggvi skoraði
Tryggvi Guðmundsson skoraði
fyrsta mark Tromsö í 3:0 sigri
gegn Kongsveinger á heimavelli en
heil umferð fór fram í norsku knatt-
spymunni í gærkvöldi og bar það
helst til tíðinda að Rosenborg tapaði
fyrir Molde á heimavelli, 1:2, í
toppslag deildarinnar. Þetta var
fyrsta tapið hjá Rosenborg á tímabil-
inu.
Tryggvi átti góðan leik fyrir Tromsö
og var nálægt því að skora annað
mark rétt fyrir leikslok er hann tók
aukaspymu og boltinn stefndi efst í
markhomið, en markvörðurinn bjarg-
aði meistaralega í hom. Tromsö er nú í
6. sæti deildarinnar með 15 stig eftir
10 umferðir. Molde er efst með 26 stig
og síðan koma Rosenborg og Stabæk
með 20 stig.
Ríkharður Daðason og Auðun
Helgason vom í byrjunarliði Viking
sem gerði jafntefli, 1:1, á heimavelli við
Bodö/Glimt. Bæði mörkin í leiknum
vom sjálfsmörk. Ríkharður náði að
skora en markið var dæmt af þar sem
Ríkharður braut á markverðinum um
leið og hann setti boltann í netið. Vik-
ing er í ijórða sæti með 19 stig.
Islendingaliðin Lilleström og Br-
ann gerðu jafntefli, 1:1. Rúnar Krist-
insson og Heiðar Helguson vom í
byrjunarliði Lilleström en hvorki
Agúst Gylfason né Bjarki Gunn-
laugsson léku með Brann.
Helgi Sigurðsson var ekki í byrjun-
arliði Stabæk sem sigraði Haugesund
0:1 á útivelli. Sömu sögu er að segja af
Óskari Þorvaldssyni, sem lék ekki með
Strömsgodset sem vann Moss á
heimavelli, 2:0. Válerenga vann stór-
sigur á Sogndal 4:0 og gerði Bjöm
Viljugrein þrennu. Brynjar Gunnars-
son var ekki í byrjunarliði Válerenga.
Sonurinn
hafði betur
Bjöm Ingi
Hrafnsson
skrífar.
R-ingar eru komnir í fjórð-
ngsúrslit bikarkeppninnar í
knattspyrnu eftir 4:1 stórsigur á
Valsmönnum í gær-
kvöldi. Leiksins verð-
ur helst fyrir sögulega
endurkomu Arnórs
Guðjohnsens, en hann
lék með Valsmönnum í gærkvöldi og
var það fyrsti félagsleikur hans hér á
landi í rúm tuttugu ár. I treyju sigur-
vegaranna úr Vesturbænum var hins
vegar sonur Arnórs, Eiður Smári og
mun ekki hafa gerst áður hér á landi
að feðgar hafi leikið hvor gegn öðrum
í sambærilegri keppni.
Leikur liðanna var á köflum bráð-
skemmtilegur. Heimamenn tóku for-
ystuna eftir aðeins tíu mínútna leik og
var þar að verki Andri Sigþórsson
með stórglæsilegri hjólhestaspyrnu
eftir laglega útfærða sókn. Sannar-
lega frábært mark, sem myndi sóma
sér vel í hvaða heimsmeistarakeppni
sem er.
Við markið var sem KR-ingar slök-
uðu aðeins á klónni, einkum eftir að
markaskorarinn Andri var borinn af
leikvelli, marinn á hné. Eiður Smári
Guðjohnsen kom inn á í hans stað og
sýndi strax ágæt tilþrif. Rétt undir
leikhlé var Jón Þ. Stefánsson óhepp-
inn að jafna ekki metin þegar hann
komst einn inn fyrir vöm Vesturbæ-
inga, en Kristján Finnbogason tíma-
setti úthlaup sitt hárrétt og hirti bolt-
ann nánast af tábergi Jóns.
I seinni hálfleik fór að rigna og það
virtist hafa ágæt áhrif á Valsliðið.
Strax í upphafi fékk Tryggvi Vals-
son, sem nýkominn var inn á sem
varamaður, sannkallað dauðafæri en
brást bogalistin. Skömmu seinna
gerði Sigurbjörn Hreiðarsson hins
vegar engin mistök og jafnaði metin
eftir laglegt spil við Arnór Guðjohn-
sen og Tryggva Valsson.
Jöfnunarmarkið var í samræmi við
gang leiksins, en af einhverjum völd-
um tókst Valsmönnum þó ekki að
nýta meðbyrinn. Þeir virtust aftur
tapa völdum á miðjunni og ekki leið á
löngu áður en þeir lentu aftur undir.
Hörkuskot Einars Þórs Daníelssonar
söng í netinu eftir að Valsmönnum
mistókst að hreinsa boltann úr vörn-
inni eftir aukaspymu.
Tvö mörk undir lokin tryggðu KR
síðan ömgga leið í næstu umferð
keppninnar. Fyrst skoraði Guðmund-
ur Benediktsson úr vítaspyrnu og
síðan gerði varamaðurinn Grímur
Garðarsson forkunnarfagurt sjálfs-
mark er hann skallaði boltann í eigið
netaflöngufæri.
Sigurinn var sanngjarn, en þó of
stór miðað við gang leiksins. Vals-
menn áttu nefnilega ágæt færi, sem
þeim tókst þó ekki að nýta, enda
heilladísirnar víðsfjarri Hlíðarenda
þessa dagana. Þótt Arnór hafi nánast
komið beint úr flugvélinni átti hann
laglegar rispur og er greinilegt að
þar fer afar sterkur leikmaður, sem á
eftir að styrkja Valsliðið í erfiðri
botnbaráttu. Koma hans mun eflaust
hafa jákvæð áhrif á liðið, þótt hann
hefði eflaust kosið betri byrjun.
„Þetta var erfitt hér í kvöld, enda
er ég nánast nýlentur og lék minn
síðasta leik í Svíþjóð fyrir tveimur
dögum,“ sagði hann eftir leik. „Það
býr ýmislegt í þessu Valsliði. Við lék-
um á köflum ágætlega, en misstum
dampinn undir lokin og því fór sem
fór. Það var auðvitað sérstök tilfinn-
ing þegar sonurinn kom inn á, þótt
við værum ekki mikið á sama svæði.
Hann þarf að spila meira til að koma
sér í form og ég er ansi hræddur um
að við Valsmenn hefðum meiri not
fyrir hann en KR. Ef þeir eru með
topplið í dag á íslenskan mælikvarða,
er ljóst að Valsliðið á ekki langt í land
og ég er bjartsýnn á betra gengi í
næstu leikjum."
KR-ingar eru til alls líklegir í bikar-
keppninni. Þar á bæ er breiddin
greinilega nægileg, því yngra lið fé-
lagsins mun leika gegn Grindvíking-
um í bikarkeppninni í kvöld. Sá mögu-
leiki er því sannarlega fyrir hendi, að
tvö lið KR-inga leiki í fjórðungsúrslit-
unum, jafnvel hvort gegn öðru.
Eyjamenn
léku í vara-
búningi
Þórs
BRAGI Bergmann, dómari
leiks Þórs og ÍBV, sam-
þykkti ekki að Eyjamenn
lékju í varabúningi sínum,
rauðum treyjum með hvít-
um ermum. Þar sem Þórs-
arar leika í hvítum peysum,
taldi Bragi að hvítu ermarn-
ar gætu ruglað dómara
leiksins í ríminu, ef um
peysutog væri að ræða í
leik. Eyjamenn fengu vara-
búning Þórsara lánaðan,
sem er alrauðar peysur eins
og varabúningur ÍBV var.
Naumur sigur
Evjamanna
URSLIT
Knattspyma
Bikarkeppni KSÍ.
Breiðablik - ÍR................3:0
Bjarki Pétursson (17.), Sigurður Grétarsson
(33. - vsp.), Marel Balvinsson (90.).
Þór-ÍBV .......................1:2
Halldór Áskellsson (66.) - Hlynur
Stefánsson 2 (24., 78.).
KR-Valur.......................4:1
Andri Sigþórsson (10.), Einar Þór
Daníelsson (62.), Guðmundur Benediktsson
(81. - vsp.), Gríraur Garðarsson (85. -
Íslandsmeistarar Eyjamanna eru
komnir í 8 liða úrslit bikarkeppn-
innar eftir að liðið sigraði Þór 2:1 á
mmmg Akureyri
fíeynir B. gærkveldi. „Þetta
Eiríksson var hörkuleikur og
kritor , ... *
eg er mjog anægð-
ur með að vera kominn áfram,“
sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari
IBV. „Við áttum mjög góð tækifæri
í fyrri hálfleik og hefðum átt að
gera út um leikinn, en það gekk
ekki og því lentum við í ströggli í
seinni hálfleik. Þórsarar léku af
miklum krafti en þegar upp var
staðið var það reynslan hjá mínum
mönnum sem gerði gæfumuninn.“
Fyrri hálfleikur var fremur ró-
legur framan af og nokkuð jafn og
fátt bar til tíðinda þar til fyrsta
markið kom á 24. mínútu. Hlynur
Stefánsson fékk þá knöttinn á um
25 metra færi og var ekkert að
tvínóna við hlutina og þrumaði
knettinum efst í markhorn Þórs-
ara. Gísli Sveinsson, markvörður
Þórs, hafði hendur á knettinum en
það var ekki nóg og fyrsta markið
varð staðreynd. Eftir markið voru
gestirnir mun atkvæðameiri og
áttu nokkur ágæt færi fyrir hlé, en
tókst ekki að skora.
Þórsarar komu ákveðnir til
seinni hálfleiks^ og var jafnræði
með liðunum. A 66. mínútu kom
^vSmÍn,SÍgUrbJÖrn Hreiðarsson (55;)' , „ svo mark Þórs og var þar að verki
V.ð,r - Víkmgur .......-2:2 ____X
Morgunblaðið/Arnaldur
Hvemig stóð ég mlg?
FEÐGARNIR Arnór og Eiður Smári ræða
málin í léttum dúr eftir leikinn í gær-
kvöldi. Hér gætu þeir verið að velta því
Víta-
spymu
keppni
í Garði
Víkingur, efsta liðið í 1. deildinni, hafði betur
gegn Víði, efsta liði 2. deildar, er liðin mætt-
ust í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar í gær-
■■■■■■■ kvöldi. Úrslitin réðust ekki fyrr
Skúli Unnar en í vítaspyrnukeppni því hvoru
Sveinsson Uði tókst að skora tvívegis í þær
skrífar 120 mínútur sem leikurinn og
framlengingin stóð.
Gunnar S. Magnússon, markvörður Víkinga,
vár hetja liðsins því hann varði tvær vítaspym-
ur og tryggði liðinu áframhaldandi þátttöku í
keppninni. „Þetta er bara sálfræði," sagði hann
eftir leikinn. „Fyrstu spymurnar voru vinstra
megin við mig og það hlaut að koma að því að
boltinn kæmi hægra megin,“ sagði hann og þar
varði. hann fyrri spyrnuna.
Goran Lukic skaut í stöng úr fyrsta vítinu en
Sumarliði Arnason skoraði fyrir Víking og
Hlynur Jóhannsson fyrir Víði. Arnar Hrafn Jó-
hannsson skoraði úr annarri vítaspymu Víkings
áður en Gunnar varði og Þór Hauksson gerði
þriðja mark Víkinga. Gunnar varði síðan aðra
vítaspymu og sigurinn var í höfn.
Hinn eldfljóti Kári Jónsson skoraði fyrir
heimamenn eftir 80 sekúndur en Sumarliði
jafnaði. Heimamenn voru einnig snöggir uppá
lagið eftir hlé því þá skoraði Kári eftir fimm
mínútur og Arnar Hrafn Jóhannsson jafnaði á
62. mínútu, tveimur mínútum eftir að hann
kom inná sem varamaður. Víkingurinn Mar-
teinn Guðgeirsson var rekinn af velli á 104.
mínútu en hann hafði fengið að líta gula spjald-
ið í lok fyrri hálfleiks, nokkuð sem var ekki
sanngjarnt.
+
• Víkingur vann í vítaspyrnukeppni 3:1.
Kári Jónsson (2. og 50.) - Sumarliði Árnason
(25.), Arnar Hrafn Jóhannsson (62.).
KVA - Leiftur ........................2:4
Dragan Stonjanovic (72.), Boban Ristic (90.)
- Kári Steinn Reynisson (26.), Uni Arge (37.,
78.), Rastislav Lasorik (58.)
NM stúlkna
Þýskaland - ísland ...................2:0
• íslenska liðið leikur um sjönda sætið við
Holland á morgun.
„gamli jaxlinn" Halldór Áskelsson,
sem skoraði með góðu skoti af víta-
teig eftir fallegan undirbúning Jó-
hanns Þórhallssonar. Tólf mínútum
fyrir leikslok kom svo sigurmark
Eyjamanna. Rútur Snori'ason tók
hornspyrnu og sendi háan bolta
fyrir markið sem fór yfir markvörð
Þórs og beint á kollinn á Hlyni
Morgunblaðið/Björn Gíslason
INGI Sigurðsson sækir að marki Þórs, þar sem Eyjamaðurinn í
marki Akureyrarliðsins, Gísli Sveinsson, er til varnar.
Stefánssyni, sem skallaði í netið af
stuttu færi.
í heild var um prýðilegan leik að
ræða og var baráttan mjög mikil á
báða bóga. Þrátt fyrir tapið geta
Þórsarar borið höfuðið hátt því
þeir léku lengstum vel og vora
hvergi ragir. Leikmenn IBV sýndu
það undir lok leiksins hversu mikið
reynslan hefur að segja í leik sem
þessum og var greinilegt að eftir
að þeir voru komnir yfir í lokin var
engin áhætta tekin og leikið til ör-
uggs sigurs, sem þeir og uppskáru.
„Á réttri leið hérna
í Kópavoginum“
Iýliðamir í úrvalsdeildinni, IR-
ingar, urðu að þola tap fyrir
Blikum í sextán liða úrslitum bik-
■■■I^^^H arkeppninnar, 3:0.
Edwin Heimamenn vom
Rögnvaldsson sprækari í leik
sem einkenndist af
nokkurri baráttu og áttu sigurinn
vissulega skilið.
Fátt virtist þó stefna í sigur
Breiðabliks á upphafsmínútunum,
þegar gestimir úr Breiðholti vom
atkvæðameiri. Þeim tókst þó aldrei
að skapa sér fyrsta flokks mark-
tækifæri, en Blikar nýttu upphlaup
sín vel og höfðu tveggja marka for-
skot í leikhléi eftir mörk þeirra
Bjarka Péturssonar, sem hann
gerði á 17. mínútu, og þjálfarans
Sigurðar Grétarssonar úr víta-
spyrnu á 33. mínútu. Vítaspymuna
fengu Blikar eftir að Sævar Þór
Gíslason braut klaufalega á Sigurði
þjálfara.
Örvænting greip um sig í her-
búðum IR í síðari hálfleik og var
það ekki til að bæta frammistöðu
þeirra á vellinum. Of mikið óðagot
ríkti í sóknarleik þeirra og Blikar
virtust hreinlega vera fleiri inni á
vellinum. Sóknir Breiðhyltinga
misfómst nær undantekningalaust
er þeir færðust nær vítateig heima-
manna. Til að bæta gráu ofan á
svart, komst Marel Baldvinsson
einn inn fyrir vörn IR á síðustu
mínútu leiksins og bætti þriðja
markinu við.
„Við vomm bara á tánum og lék-
um virkilega vel. Eftir að við
komumst í 2:0 reyndum við mest-
megnis að halda fengnum hlut í
síðari hálfleik, en þrátt fyrir það tel
ég okkur hafa átt betri marktæki-
færi en ÍR eftir hlé. Þetta sýnir
bara að við emm á réttri leið hérna
í Kópavoginum. Á góðum degi get-
um við unnið öll lið á heimavelli,“
sagði Sigurður Grétarsson að leik
loknum.
Guðrún
byrjar vel
GUÐRÚN Amardóttir tók þátt
í 400 m grindahlaupi á frjálsí-
þróttamóti á Ítalíu í gærkvöldi -
varð í fimmta sæti á 56,46 mín.
Þetta er góður tími hjá Guð-
rúnu, þar sem rnótið var hennar
fyrsta á keppnistímabilinu. Guð-
rún keppir á móti í Linz í Aust-
urríki um helgina og Zagreb í
Króatíu á þriðjudaginn.
FOLK
■ ALÞJÓÐAskíðasambandið, FIS,
ákvað á fundi sínum í Prag fyrir
skömmu að heimsmeistaramótið í
alpagreinum árið 2003 verði í St.
Moritz í Sviss. HM í alpagreinum
næsta vetur verður í Vail í Banda-
ríkjunum og í St. Anton í Austurríki
árið 2001. HM í norrænum greinum
verður í ítalska bænum Val di
Fiemme 2003. Ennfremur var
ákveðið að HM í skiðastökki verði í
Vikersund í Noregi árið 2000 og í
Harrachov í Tékklandi árið 2002.
■ MARTIN Osswald, skíðaþjálfari
frá Þýskalandi, hefur verið ráðinn
landsliðsþjálfari Norðmanna í alpa-
greinum. Hann verður með heims-
bikarliðið í vetur og tekur við starf-
inu af Austurríkismanninum Dieter
Bartsch. Osswald eða „Ossi“ eins og
hann er kallaður var þjálfari ólymp-
íuliðs Þjóðverja fyrir leikana í Lil-
lehammer 1994.
■ FRODE Grodás, landsliðsmark-
vörður Norðmanna, hefur verið orð-
aður við enska 1. deildarfélagið
Norwich City.
■ TOMMY Svensson, fyrrverandi
landsliðsþjálfari Svíþjóðar, hefur
hafnað boði um að gerast þjálfari
Celtic. Hann átti að fá 27,5 millj. ísl.
kr. í árslaun.
■ LIVERPOOL hefur hug á að
kaupa varnarmanninn Eric Sikora
frá franska liðinu Lens á 120 þús.
pund.
■ BRIAN Kidd verður áfram að-
stoðarmaður Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóra Man. Utd. Hann hefur
verið nefndur sem næsti knatt-
spyrnustjóri Everton.
■ HOLLENSKI miðvallarleikmað-
urinn Giovanni van Bronckhorst
skrifaði undir fjögurra ára samning
við Glasgow Rangers í gær.
■ WALERT Smith, fyrrum knatt-
spymustjóri Glasgow Rangers, tók
við stjórninni hjá Everton í gær -
tók við starfi Howard Kendall, sem
var rekinn á dögunum.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Verkbann sett á leikmenn
Eigendur liðanna í NBA-deild-
inni settu verkbann á leikmenn
í gærdag eftir að slitnaði upp úr
mmmi samningaviðræð-
Gunnar um milli stéttarfé-
Valgeirsson lags leikmanna og
skr'far eigenda á mánu-
dag. Talið er að
erfitt muni verða að ná samkomu-
lagi eftir þessa ákvörðun forráða-
manna liðanna og deildarinnar þar
sem leikmenn telja verkbannið vera
merki um að eigendur séu ekki til-
búnir að gefa nokkuð eftir í kröfum
sínum við stéttarfélag leikmanna.
Á miðjum áttunda áratugnum
sömdu leikmenn og eigendur um
að skipta með sér gróðanum af inn-
komu deildarinnar - sérstaklega af
sjónvarpsréttindum og miðasölu -
og hafa leikmenn fengið æ stærri
hlut af þessum gróða eftir því sem
liðið hefur á þetta samkomulag.
Þessu vilja eigendurnir breyta, en
leikmenn halda því fram að þeim
hafi ekki enn verið boðið neitt í
staðinn.
Helst er deilt um hvemig útfæra
eigi svokallað launaþak hjá hðun-
um. Þeim er aðeins leyft að hafa tólf
leikmenn á launaskrá í einu og geta
aðeins greitt þeim ákveðna heildar-
upphæð. I gegnum árin hafa þó ver-
ið gerðar ýmsar undanþágur og er
hin svokallaða „Larry Bird regla“
mikilvægust þeh-ra. Sú regla gerir
liðum kleift að fara upp fyrir launa-
þakið með því að semja að nýju við
sína eigin leikmenn sem eru með
lausan samning. Þetta hefur gert
liðum eins og Chicago Bulls kleift
að borga Michael Jordan ótnilegar
fjárhæðir og leikmönnum sínum
margfalt heildarlaunaþakið. Það
hefur einnig gert það að verkum að
hðin hafa getað haldið í reyndari
leikmenn og þannig skapað ákveð-
inn stöðugleika. Hins vegar hafa
laun þessara leikmanna farið upp úr
öllu valdi að sögn eigendanna, sem
eru þó þeir sömu og semja við leik-
mennina.
Patrick Ewing frá New York
Knicks er formaður stéttarfélags
leikmanna. „Eigendurnir eru með
ávísanaheftin og ef þeim finnst að
stórstjörnurnar í liðunum séu með
of há laun þá geta þeir einfaldlega
sagt það í samningaviðræðum við
okkur. Þá er það undir okkur kom-
ið að finna önnur lið sem ei-u tilbú-
in að ganga að kröfum okkar,“
sagði hann eftir að ákvörðunin um
verkbannið hafði verið tilkynnt.
Verkbannið gerir það að verkum
að enginn leikmaður úr deildinni
mun leika með landsliði Bandaríkj-
anna á heimsmeistaramótinu í
körfuknattleik eftir um það bil
mánuð. Þá munu engar samninga-
viðræður verða leyfðar milli liða og
einstakra leikmanna, til dæmis
mun Chicago Bulls ekki geta rætt
við Miehael Jordan og Scottie
Pippen um nýja samninga og gæti
það orðið til þess að erfiðara yrði
að halda liðinu saman en annars.
Flestir telja að þetta bann gæti
leitt til þess að fresta yrði leikjum í
upphafi keppnistímabilsins í byrj-
un nóvembermánaðar í fyrsta sinn
í sögu deildarinnar. Liðin munu fá
fyrstu greiðslu sína fyrir sjón-
varpsréttindin í nóvember og halda
því flestir sérfræðingar um málefni
deildarinnar að hæpið sé að leikir
hefjist fyrr en um miðjan desem-
bermánuð, ef ekki seinna.