Morgunblaðið - 11.03.1999, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 11.03.1999, Blaðsíða 56
56 FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ GUNNAR Hrafn og Sigrún Ýr eru í mikilli uppsveiflu þessa dagana og urðu Islandsmeistarar í sínum flokki í sígildum samkvæmisdönsum. HREINAR og fallegar línur hjá Skapta og Lindu, sigur- GUÐNI Rúnar og Helga Dögg hafa verið í fremsta flokki vegurum í flokki áhugamanna í sígildum samkvæmis- í nokkur ár og eru góðir og skemmtilegir dansarar. dönsum. Dansveizla í Hafnarfírði DAIVS íþróttaliúsiO við Strandgötu f Hafnarfírði ÍSLANDSMEISTARAMÓT í 5 og 5 dönsum, með frjálsri aðferð, fór fram f fþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði sl. laugardag. Keppnin var haldin á vegum DIS og fór fram á bezta veg. SAGA danskeppna í Evrópu er ekki eins gömul og ætla mætti, því fyrsta danskeppni sem vitað er að haldin hafí verið í Evrópu er tangó- danskeppni sem haldin var í Nice í Frakklandi undir stjórn Camille de Rhynal árið 1907. Það var greinilegt að dönsunum fí-á „nýja heiminum" (BNA) var vel tekið og þein-a beðið með mikilii óþreyju og eftirvæntingu. Þarna er í raun hægt að setja upphafs- punktinn að sígildum samkvæm- isdönsum eins og við þekkjum þá í dag. Fyrsta ,*heimsmeist- aramót" hélt Camille de Rhynal í París 1909, og þó svo sú keppni jafnist ekkert á við þær heimsmeist- arakeppnir sem haldnar eru í dag, þá er mjög áhugavert að skoða þess- ar fyrstu „heimsmeistarakeppnir" í sögulegu ijósi. A tímabilinu 1909-1921 kepptu allir í sama flokki alveg óháð því hvort um atvinnu- menn eða áhugamenn var að ræða og eins skipti ekki máli hvaðan fólkið var, þetta var bara danspar, þó svo að herrann væri frá Spáni og daman frá Frakklandi. Það var ekki fyrr en 1922 sem farið var að keppa í flokkum atvinnumanna og áhuga- manna í sitthvoru lagi og er svo enn í dag, hvað sem verða kann í náinni framtíð. Árið 1986 var haldið fyrsta ís- landsmeistaramót í dansi og fór það fram á Hótel Sögu í Reykja- vík að viðstöddu fjölmenni. Þeir sem voru á staddir á Hótel Sögu fyrir röskum 13 árum og enn eru viðloðandi þessa fal- legu íþrótt, hafa fengið að sjá hvílíkum stökkbreytingum dans- inn hefur tekið hér á landi. íslandsmeistaramót í dansi, með frjálsri aðferð fór fram í Iþróttahús- inu við Strandgötu í Hafnarfirði sl. laugardag. Keppt var í greinum sí- gildra samkvæmisdansa og suður- amerískra dansa og voru keppendur á annað hundrað, en einnig var boð- ið upp á keppni í dansi með grunn- sporum. Um kvöldið var svo úrtöku- mót fyrir Evrópu og heimsmeistara- mót fyrir pör sem dansa með frjálsri aðferð, þetta var einnig mjög spenn- andi keppni og athyglisvert að úrslit kvöldsins voru ekki endilega í sam- ræmi við það sem gerst hafði fyrr um daginn. í gegnum árin hafa þessar keppn- ir verið miklar veizlur fyrir augað og var einnig svo að þessu sinni, að sögn viðstaddra. AIlu- voru flokkarn- ir tiltölulega jafnir og spennandi og er greinilegt að dansinn er enn á uppleið hér á landi, sérstaklega þó suður-amerísku dansarnir. Yngzti flokkurinn með frjálsri að- ferð var flokkur Unglinga I. I sí- gildu samkvæmisdönsunum sigruðu Hrafn Hjartarson og Helga Bjöms- dóttir, ákaflega efnilegt og skemmti- legt par sem hefur verið í fremstu röð síðastliðin ár, þótt þau séu ung að árum. I öðru sæti urðu Benedikt Þór Asgeirsson og Sig- rún Anna Knútsdótt- ARNIÞórog Erla Sóley eru fs- landsmeistarar f áhugamanna- flokki í suður-am- erískum dönsum. Það er ekki ofsög- um sagt að þau dansi dans nauta- banans, Paso Doble, með mikl- um tilþrifum. m*á&: ir, sem hafa verið á hraðri siglingu upp á við og gera góða hluti í dag. I suður-amerísku dönsunum sigruðu Hrafn og Helga einnig, en í öðru sæti urðu frændsystkinin Sigurður Ragnar Amarsson og Sandra Espesen, par sem einnig hefur verið í mikilli sveiflu upp á við á síðustu 2 árum. Næsti flokkur var flokkur Ung- linga II. Þar sigruðu Hilmir Jens- son og Ragnheiður Eiríksdóttir í báðum flokkum, mjög örugglega. Hilmir og Ragnheiður eru mjög skemmtilegt og léttdansandi par sem mjög skemmtilegt er að horfa á því þau bera sig ákaflega vel á gólf- inu. í öðru sæti í flokki sígildra samkvæmisdansa og einnig mjög ömgglega unnu Grétar Ali Khan og Jóhanna Berta Bernburg, en þau em tiltölulega nýbyrjuð að dansa saman og gaman að sjá hversu vel þau hafa náð saman á svo stuttum tíma. Mjög athyglisvert par! í öðru sæti í suður-amerísku dönsunum voru Davíð Gill Jónsson og Halldóra Sif Halldórsdóttir. Þau hafa unnið til fjölda verðlauna í gegnum árin og eru glæsilegir og mjög teknískir dansarar. I flokki ungmenna sigruðu Gunn- ar Hrafn Gunnarsson og Sigrún Yr Magnúsdóttir í flokki sígildra sam- kvæmisdansa. Gunnar Hrafn og Sigrún sigruðu örugglega í sínum flokki og sýndu og sönnuðu um helgina hvers þau eru megnug. Þau eru öguð í dansinum og lifandi yfir því sem þau eru að gera. Að sögn Hinriks N. Valssonar danskennara gerðu þau mjög vel og áttu sigurinn svo sannarlega skilinn og sérstak- lega var gaman að sjá hve mikið þeim hefur farið fram að undan förnu. Isak Halldórsson Nguyen og Halldóra Osk Reynisdóttir unnu til silfui'verðlauna í sígildu-sam- kvæmisdönsunum. En skemmst er þess að minnast að þau unnu til gullverð- launa á Norðurlanda- mótinu og Opnu Kaupmannahafnar- keppninni. En Isak og Halldóra unnu til gullverðlauna í suður-amerísku dönsunum á laug- ardag. Isak og Halldóra eru ákaf- lega heillandi og gi-ípandi par, mjög leikræn og einstaklega gaman að horfa á þau dansa. I öðru sæti í suð- ur-amerísku dönsunum voru svo Gunnar Hrafn og Sigrún Ýr, en þau eru teknísk í sínum dansi og öguð, en mættu stundum sýna meiri inn- lifun og túlkun í dansinum að mínu mati, en þau eru samt sem áður ákaflega glæsilegt danspar og í mikill uppsveiflu um þessar mundir. I flokki 16-18 ára í sígildum sam- kvæmisdönsum sigruðu Skapti Þór- oddsson og Linda Heiðarsdóttir. Skapti og Linda eru mjög vel sam- stillt og skemmtilegt par. Það fer ekki mikið fytnr þeim, en það fer ekki á milli mála að þarna eru mjög góðir dansarar á ferð. I öðru sæti voru ísak og Halldóra. í suður-am- erísku dönsunum sigruðu Ami Þór og Erla Sóley Eyþórsbörn mjög ör- ugglega. Það var mikill kraftur í Árna og Erlu og gaman að sjá þau í svona góðu formi aftur að sögn Hin- riks. Gunnar Hrafn og Sigrún unnu til rilfurverðlauna. I flokki fullorðinna sigruðu Björn Sveinsson og Bergþóra M. Berg- þórsdóttir og í öðru sæti urðu Jón Eiríksson og Ragnhildur Sandholt. Bæði þessi pör hafa dansað í fjölda ára og gaman að sjá hversu áhuga- söm og eljusöm þau em og nokkuð greinilegt að þau hafa stundað æf- ingar sínar samviskusamlega. Um kvöldið var svo keppt í úr- tökumótinu og þar sigruðu í flokki Unglinga II, Hilmir Jensson og Ragnheiður Eiríksdóttir en þau dönsuðu geysilega vel að sögn Hin- riks. Davíð Gill Jónsson og Halldóra Sif Halldórsdóttir urðu í 2. sæti. I mjög spennandi flokki ungmenna sigruðu Gunnar Hrafn Gunnarsson og Sigrún Ýr Magnúsdóttir eftir harða baráttu við Isak Halldórsson Nguyen og Halldóru Ósk Reynis- dóttur. Þó náði spennan hámarki í flokki áhugamanna í suður-amerísk- um dönsum. Þar sigruðu Árni Þór og Erla Sóley einnig eftir harða bar- áttu við Rafick Hoosain og Elísa- betu Sif Haraldsdóttur. Að sögn var þessi keppni mjög tvísýn og bæði pörin dönsuðu ákaflega vel. Mikil kraftur og dansgleði einkenndi þessi pör og svo fór að lokum að Árni og Erla fóru með sigur af hólmi. Það má með sanni segja að þessi loka- keppni hafí sett punktinn yfir i-ið að afloknum skemmtilegum og góðum dansdegi. I hléi úrtökumótsins var keppt í kúrekadönsum og var sú keppni mjög skemmtileg og spennandi og einstaklega gaman að horfa á þá breidd sem er í íslenzkri dansflóru. Kúrekadansaramir settu mikinn og mjög skemmtilega svip á þessa ann- ars svipmiklu danskeppni. Dómarar keppninnar voru fimm, erlendis frá og einn íslenzkur og stóðu sig mjög vel að flestra áliti. Jóhann Gunnar Arnarsson IJRSLIT: Unglingar I, sígildir samkvæmisdansar 1. Hrafn Hjai’tars/Helga Bjömsd. KV 2. Benedikt Þ. Ásgeirss7Sigrún A Knútsd. HV 3. Sigurður R. AmarssySandra Espesen ; KV 4. Agnar SigurðssÆlín D. Einarsd. - 'GT 5. Vigfús KristjánssySigný J. Tryggvad. KV 6. Davíð M. SteinarssySunneva S. Olafsd: GT . Unglingar I, suður-amerískir dansar: 1. Hrafn Hjartars/Helga Bjömsd. .. 10' 2. Sigurður R. Amarss/Sandra Espesen KV 3. Vigffis Kristjánss/Signý J. Tryggvad. KV 4. Benedikt Þ. Ásgeirss/Sigrún L Knútsd. HV 5. Agnar SigurðssJElín D. Einarsd. GT 6. Davíð M. Steinarss/Sunneva S. Ólafsd. GT Unglingar II, sígildir samkvæmisdansar 1. Hilmir Jenss./Ragnheiður Eiríksd. GT 2. GrétarAKhan/JóhannaB. Bemburg KV 3. Guðni R. Kristinss/Helga D. Helgad. HV 4. Davíð G. Jónss./Halldóra S. Halldórsd. GT 5. Hafst M. Hafsteinss/Aðalheiður Sigfúsd. HV Unglingar II, suður-amerískir dansar: 1. Hilmir Jenss/Ragnheiður Eiríksd. GT 2. Davíð G. Jónss/Halldóra S. Halldórsd. GT 3. GrétarA.Khan/JóhannaB.Bemburg KV 4. Hafst. M. Hafsteinss/Aðalheiður Sigfúsd. HV 5. Guðni R. Kristinss/Helga D. Helgad. HV 6. Hrafn Davíðss/Laufey Sigurðard. GT Ungmenni, sígildir samkvæmisdansar: 1. Gunnar H. Gunnarss/Sigrún Yr Magnúsd. GT 2. ísak H. Nguyen/Halldóra Ó. Reynisd. HV 3. Skapti Þóroddss/Linda Heiðarsd. HV 4. Hannes Þ. Egilss/Hrund Ólafsd. HV 5. Oddur A. Jónss/Ingveldur Lárusd. HV 6. Gunnar Þ. Pálss/Bryndís Símonard. HV 7. Ragnar M. Guðmundss/Kristíana Kristjánsd. HV Ungmenni, suður-amerískir dansar: 1. ísak H. Nguyen/Halldóra Ó. Reynisd. HV 2. Gunnar H. Gunnarss/Sigrún Yr Magnúsd. GT 3. Hannes Þ. Egilss/Hrund Ólafsd. HV 4. Gunnar Þ. Pálss/Bryhdís Símonard. HV 5. OddurA Jónss/Ingveldur Lámsd. HV 6. Ragnar M. Guðmundss/Kristíana Kristjánsd. HV Áhugamenn, sígildir samkvæmisdansar: 1. Skapti Þóroddss./Linda Heiðai'sd. HV 2. ísak H. Nguyen/Halldóra Ó. Reynisd. HV 3. Gunnar Þ. Pálss/Bryndís Símonard. HV Áhugamenn, suður-amerískir dansar: 1. Árni Þ. Eyþórss/Erla S. Eyþórsd. KV 2. Gunnar H. Gunnarss/Sigrún Ýr Magnúsd.GT 3. Hannes Þ. Egilss/Hrund Ólafsd. HV 4. Ragnar M. Guðmundss/Kristíana Kristjánsd. HV Fullorðnir, sígildir samkvæmisdansar: 1. Björn Sveinss/Bergþóra M. Bergþórsd. GT 2. Jón Eiríkss/Ragnhildur Sandholt GT Urslit úrtökumótsins: Fiokkur ungmenna, sígildir samkvæmisdansar: 1. Gunnar H. Gunnarss/Sigrún Ýr Magnúsd. GT 2. ísak H. Nguyen/Halldóra Ó. Reynisd. HV 3. Gunnar Þ. Pálss/Bryndís Símonard. HV 4. Hannes Þ. Egilss/Hrund Ólafsd. HV 5. Ragnar M. Guðmundss/Kristíana Kristjánsd. HV Flokkur Unglingar II, tíu dansar: : 1. Hilmir Jenss/Ragnheiðui' Eiríksd. GT 2. Dávíð'G. Jónés/Hálldóra S. Halldórsd. GT 3, Guðni; I{. Kristinss/Helga D. Helgad. HV 4/Gréta Á. Khán/Jóhanna B. Bemburg GT 5. Hafst. M. Hafsteinss/Aðalheiður Sigfúsd. HV Flokkur áhugamanna, suður-amerískir dansar: 1. Árni Þ. Eyþórss./Erla S. Eyþórsd. KV 2. Rafick Hoosáin/Elísabet S.Haraldsd. HV 3. ísak H. Nguyen/Halldóra Ó. Reynisd. HV 4. Gunnar H. Gunnarss/Sigrún Ýr Magnúsd. GT 5. Gunnar Þ. Pálss/Bryndís Símonard. HV 6. Hannes Þ. Egilss/Hrund Ólafsd. HV 7. Ragnar M. Guðmundss/Kristíana Kristjánsd. HV
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.