Morgunblaðið - 01.12.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.12.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 274. TBL. 87. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Ráðherrafundur WTO í Seattle Athöfn aflýst vegna harðra mótmæla Seattle. AP, The Washington Post. SETNINGARATHOFN ráðherra- fundar aðildarríkja Heimsviðskipta- stofnunarinnar (WTO) var aflýst í gær vegna aðgerða þúsunda mótmæl- enda á götum Seattleborgar. Eftir að mótmælendur höfðu komið í veg fyrir að þátttakendur í athöfninni kæmust að ráðstefnuhöllinni þar sem athöfnin átti að fara fram var sú ákvörðun tek- in að fella athöfnina niður. Mótmæl- endur eru sundurleitur hópur mann- réttindasamtaka, náttúru- og dýra- vemdarsinna, trúarhreyfínga og verkalýðssamtaka sem eiga það sam- eiginlegt að vera andvígir starfsemi Heimsviðskiptastofnunarinnar. Mótmælin ollu umferðartöfum víða í borginni og þurfti lögregla að beita táragasi gegn mótmælendum sem höfðu hlekkjað sig saman og lagst á götuna til að koma í veg fyrir að þátt- takendur kæmust leiðar sinnar á setningarathöfnina. Fjöldi mótmæl- enda var einnig handtekinn. Lögregla kom um tíma í gær í veg fyrir að fréttamenn kæmust inn í ráð- stefnuhöllina vegna þess að mótmæl- endum hafði tekist að komast þai' inn fyrir dyr. Síðar handtók lögreglan tvær konur og einn karlmann inni í höllinni. Fólkið hrópaði slagorð gegn Heimsviðskiptastofnuninni meðan lögregla færði það burt í handjámum. Mótmæli urðu einnig í miðborg Lundúna í gær í tengslum við ráð- herrafundinn í Seattle. Þar kom til átaka milli nokkur hundruð mómæl- enda og lögreglu. Mótmælendur köst- uðu smáhlutum og kveiktu í lögreglubíl og hlutu nokkrir minni- háttar meiðsl í átökunum. Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, tók í gær að nokkru leyti undir mál- stað mótmælenda er hann sagði að hann vildi beita sér fyrir því að um- hverfismál og kjör launþega yrðu á dagskrá í viðræðunum. Ver sjávarútvegsstefnu ESB Franz Fischler, sem fer með land- búnaðar- og sjávarútvegsmál innan framkvæmdastjómar Evrópusam- bandsins, staðhæfði í yfirlýsingu á mánudag að styrkjum ESB til sjávar- útvegs væri ætlað að minnka stærð fiskiskipaflota sambandsins og hindra ofveiði. Yfirlýsinguna má túlka sem yiðbrögð við áskorun Bandaríkjanna, Islands og fleiri ríkja frá því á mánu- dag um að ríkisstyrkir til sjávarút- vegs verði aflagðir í heiminum. Fischler segir að fullyrðingar um að sjávarútvegsstefna ESB stuðli að ofveiði séu ekki á rökum reistar og að umtalsverðum fjármunum sé varið til að stuðla að vemdun fiskistofna, fækkun sjómanna og til að minnka fiskiskipaflota innan sambandsins. Ný umferðar- lög í Noregi Farsím- ar bann- aðir við akstur Ósló. Morgunblaðið. NEÐRI deild norska Stór- þingsins, Odelstinget, hefur samþykkt ný lög sem banna ökumönnum að tala í farsíma meðan bifreið er á ferð, að því er fram kemur í Aftenposten. Lögin era sett í kjölfar nokk- urra alvarlegra umferðar- óhappa í Noregi sem rakin hafa verið til þess að ökumenn höfðu ekki athygli við aksturinn vegna þess að þefr voru að tala í farsíma. Framfaraflokkurinn einn á móti Framfaraflokkurinn var eini flokkurinn á þingi sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu. Flokkar sem studdu framvarp- ið vísuðu til rannsóknar opin- beraar stofnunar í Noregi sem sýnir að hætta á slysum eykst ef ökumenn tala í farsíma með- an á akstri stendur. Nýju lögin munu að líkindum öðlast gildi um næstu áramót. AP Andstæðingar frumvarps um kosningarétt kvenna fagna í Kúveit í gær. Lögðust gegn kjörgengi kvenna Kúveitborg. AFP, AP. LOGGJAFARÞINGIÐ í Kúveit hafnaði í gær í atkvæðagreiðslu að veita konum í landinu kjörgengi og kosningarétt frá og með árinu 2003. 50 þingmenn og 14 ráðherrar í rfkis- stjórninni, allt karlmenn, greiddu atkvæði um frumvarp ríkisstjórnar- innar og voru 32 á móti og þijátíu með en tveir sátu hjá. Ríkisstjórnin hefur sagt að hún muni hugsanlega leggja frumvarpið fram aftur síðar. Komið hefur á óvart að ýmsir yfir- lýstir stuðningsmenn frumvarpsins annað hvort sátu hjá við atkvæða- greiðsluna eða greiddu atkvæði gegn frumvarpinu. Flestir þing- menn sem styðja ríkisstjórnina og tilheyra hópi shíta-múslíma í landinu greiddu atkvæði með frumvarpinu en heittrúarmenn súnníta og full- trúar ættbálka á þingi voru á móti. Nokkur hundruð karlmenn, margir úr hópi heittrúaðra múslíma, voru saman komnir við þinghúsið í gær og fögnuðu ákaft niðurstöðunni. Konur sem voru á þingpöllum með- an á atkvæðagreiðslunni stóð lýstu hins vegar sárum vonbrigðum með úrslitin. „Þetta eru mikil vonbrigði. Hræsni sumra þingmanna er ótrú- leg,“ er haft eftir einni þeirra. Aðrar konur sem viðstaddar voru hvöttu konur í landinu til að örvænta ekki heldur halda áfram baráttu sinni fyrir pólitískum réttindum. Emírinn í Kúveit, Sheikh Jaber al-Ahmad al-Sabah, hefur um hríð reynt að fá þingið til að samþykkja að konum í landinu verði veittur kosningaréttur og kjörgengi. Síðast- liðið vor gaf hann út tilskipun um að konur skyldu öðlast slík réttindi frá og með árinu 2003. Tilskipunin, ígildi eins konar bráðabirgðalaga, var gefin út meðan hlé stóð yfir á þingstörfum vegna kosninga í land- inu en numin úr gildi þegar þingið kom aftur saman til fundar í haust. Samkomulag Breta, Frakka, Þjóðverja og Itala um varnarstefnu ESB Tillögur kynntar á leið- tosfafundi í Helsinki »rí« AKP TILKYNNT var í París í gær að samkomulag hefði náðst milli ríkis- stjórna Frakklands, Þýskalands, Bretlands og Ítalíu um tillögur varðandi fyrirhugaða sameiginlega varnarstefnu Evrópusambandsins. Samkomulagið var kynnt í yfir- lýsingu sem gefin var út vegna fundar þjóðarleiðtoga Frakklands og Þýskalands í gær en tillögurnar munu verða lagðar fram á fundi leiðtogaráðs ESB í Helsinki 10,- 11. desember næstkomandi. Samkvæmt tillögunum verða settar upp sérstakar stofnanir til að annast mótun og framkvæmd sameiginlegrar varnarstefnu ESB. Gert er ráð fyrir að komið verði á fót 50-60.000 manna hersveitum sem lúti sjálfstæðri stjórn og geti verið reiðubúnar til aðgerða á átakasvæðum á innan við 60 dög- um frá því fyrirmæli um það ber- ast. Markmiðið er að Evrópusam- bandið verði í stakk búið að grípa til hernaðaraðgerða í álfunni á eig- in spýtur, án þátttöku Atlantshafs- bandalagsins. Litið er á yfirlýsingu Frakka og Þjóðverja sem framhald hliðstæðr- ar yfirlýsingar sem gefin var út eftir fund Tonys Blairs, forsætis- ráðherra Bretlands, og Jacques Chiracs, forseta Frakklands, í síð- ustu viku. I báðum tilvikum er lögð áhersla á að NATO verði eftir sem AP Schröder ávarpaði franska þingið í gær að loknum fundi þjóðarleiðtoga Frakka og Þjóð- verja. Hann er fyrsti kanslarinn sem hlotnast sá heiður. áður meginstoð hervarna í álfunni. í yfirlýsingunni frá því í gær er ennfremur lagt til að skapað verði öflugt flugsamgöngu- og flutninga- kerfi fyrir sameiginlegan herafla ESB. Á mánudag lét Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, svo um mælt eftir fund sinn með for- sætisráðherra Noregs, Kjell Magne Bondevik, að Evrópuríkj- um sem ættu aðild að NATO en stæðu utan ESB ætti að standa til boða að taka þátt í mótun sam- eiginlegrar varnarstefnu Evrópu- sambandsins. Evran féll í kjölfar ummæla leiðtoganna Ýmis fleiri mál bar á góma á fundi þjóðarleiðtoga Frakka og Þjóðverja í gær. Chirae Frakk- landsforseti sagði við fréttamenn að hann væri sannfærður um að evran ætti eftir að styrkjast gagn- vart dollar á næstunni vegna hag- vaxtar í evruríkjunum. Hann sagði einnig að áhyggjur vegna falls evr- unnar á mánudag, þegar verð evr- unnar fór allt niður í 1,0038 dollara á mörkuðum, væru ástæðulausar. Schröder sagði við sama tækifæri að ekki væri þörf á inngripi af hálfu Evrópska seðlabankans vegna þess hve gott efnahags- ástandið væri í þeim ellefu ríkjum sem aðild eiga að Efnahags- og myntbandalaginu. í kjölfar ummæla leiðtoganna lækkaði gengi evrunnar á markaði í London. MORGUNBLAÐIÐ X. DESEMBER1999
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.