Morgunblaðið - 09.12.1999, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 09.12.1999, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999 43. STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. VEIKARI MÁLEFNASTAÐA MÁLEFNALEG staða stjórnarflokkanna hefur veikzt á þeim vikum, sem liðnar eru frá því, að þingsálykt- unartillaga ríkisstjórnarinnar um Fljótsdalsvirkjun var lögð fram. Yfirlýsing talsmanns Norsk Hydro þess efnis, að tímasetningar væru ekki eins stífar af hálfu fyrirtækis- ins og haldið hefur verið fram í umræðum hér og að það mundi ekki draga úr áhuga þess á þátttöku í álveri á Reyðarfirði þótt framkvæmdir mundu frestast í einhvern skamman tíma hafa átt mestan þátt í að veikja málefna- stöðu þeirra, sem mælt hafa með samþykkt þingsályktun- artillögunnar. Síðari yfirlýsing Norsk Hydro hefur engu breytt í þessu efni enda var hin fyrri yfirlýsing ekki dreg- in til baka með þeirri síðari. Aðalröksemd talsmanna þess að virkja án umhverfismats hefur verið sú, að ekki væri tími til að fara í umhverfismat. Yfirlýsing talsmanns Norsk Hydro sýnir, að sú röksemd stenzt ekki. Það er líka veikleikamerki hjá talsmönnum virkjunar án umhverfismats að fallast ekki á þá hugmynd eins þing- manna Vinstri grænna, að óska eftir því að fulltrúar Norsk Hydro komi á fundi þingnefnda þannig að alþingis- menn geti kynnzt sjónarmiðum forráðamanna Norsk Hydro milliliðalaust. Hvers vegna geta menn ekki fallizt á slíka hugmynd? Ef talsmenn virkjunar án umhverfismats eru svo sannfærðir um, að réttar upplýsingar hafi komið fram á íslandi um afstöðu Norks Hydro ættu þeir að fagna tækifæri til þess að fá það staðfest með afdráttar- lausum hætti. Það er ákaflega erfitt að dæma um það hver hafi rétt fyrir sér í deilum um það, hvort gróðurfar og dýralíf á hinu umdeilda svæði hafi verið rannsakað nægilega vel. Hins vegar er ljóst að staðhæfingar 2. minnihluta um- hverfisnefndar Alþingis um það efni hafa komið illa við þá sem standa að skýrslu Landsvirkjunar og þeir telja bersýnilega að þessar staðhæfingar séu rangar. Deilur af þessu tagi eru hins vegar til marks um nauðsyn þess, að þingnefndir og Alþingi sjálft hafi nægan tíma til þess að komast til botns í því hvor aðilinn hafi rétt fyrir sér, ef það er þá yfirleitt hægt. Fyrsti minnihluti umhverfisnefndar, sem leggur til að þingsályktunartillagan verði samþykkt, lýsir engu að síð- ur vissum áhyggjum yfir áhrifum fyrirhugaðra fram- kvæmda á umhverfið. Þannig segir í nefndaráliti 1. minni- hluta: „... þó að mikið hafi dregið úr umhverfisspjöllum af völdum virkjunarinnar frá upphaflegum áformum sé nauðsynlegt af hálfu Landsvirkjunar að skoða frekari að- gerðir til mótvægis eða til að draga úr umhverfísspjöll- um ... Fyrsti minnihluti telur nauðsynlegt að Lands- virkjun birti áætlun um hvernig það verði gert ...“ Ummæli skipulagsstjóra ríkisins, sem vitnað er til í nefndaráliti 2. minnihluta, vekja einnig athygli en þar segir: „Kom fram í máli hans, að ekki liggur fyrir deili- skipulag af þeim svæðum, sem framkvæmdir við Fljóts- dalsvirkjun eru fyrirhugaðar á, en hann telur að þær kalli á gerð deiliskipulags, annars vegar fyrir aðkomu- og stöðvarhússvæði og hins vegar fyrir stíflustæði ... Þá lýsti skipulagsstjóri því mati sínu, að hann teldi að skv. 36. gr. skipulags- og byggingarlaga þyrfti byggingarleyfi fyrir varanlegum húsbyggingum, sem gerðar væru í tengslum við virkjanir, en það ætti m.a. við um stöðvar- hús, íbúðarhús, mötuneyti og verkstæði. Þá upplýsti hann, að byggingarleyfi væri ekki fyrir húsbyggingum vegna Fljótsdalsvirkjunar. Ennfremur greindi hann frá því að framkvæmdaleyfi fyrir byggingu virkjunarinnar frá sveitarstjórn, samkvæmt þágildandi skipulags- og byggingarlögum, væru ekki til staðar, að undanskildu leyfi fyrir aðkomugöngum virkjunarinnar. Kom fram hjá skipulagsstjóra að hann teldi að aðrar framkvæmdir við virkjunina, sem ekki væru byggingarleyfisskyldar, þar á meðal stíflugerð, vegir, veitur og efnistökustaðir, væru háðar framkvæmdaleyfi skv. 27. gr. skipulags- og bygg- ingarlaga.“ Gera má ráð fyrir, að síðari umræðan um þingsályktun- artillögu ríkisstjórnarinnar verði mun veigameiri en sú fyrri og muni mótast mjög af þeirri vinnu, sem lögð hefur verið í að kanna málið bæði í umhverfisnefnd og iðnaðar- nefnd. Þótt á þessari stundu sé ekkert sem bendi til þess, að meirihluti Alþingis skipti um skoðun er hitt ljóst að hver sem niðurstaðan verður á þetta mál eftir að verða víti til varnaðar. Eftir þær umræður, sem nú þegar hafa farið fram um málið, mun stjórnvöldum áreiðanlega ekki koma til hugar framvegis að leggja til framkvæmdir af þessu tagi án umhverfismats. Þórður Friðjónsson forstjórí Þjóðhagsstofnunar, um ábendingu OECD Ekki ráðlegt að ana að neinu Forstjóri Þjóðhagsstofnunar segir að áhugavert sé að Islendingar kanni annað viðmið í peningamálastefnu sinni en fast gengi eins og sérfræðingar OECD hafa bent á. ÞÓRÐUR Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, segir að ábend- ingar sérfræðinga OECD um að ís- lendingar ættu að athuga annað við- mið í peningamálastefnu sinni en fast gengi, séu áhugaverðar en ekki sé rétt að ana að neinu. Skynsamlegustu leiðirn- ar séu háðar því hvort Islendingar nálgist pen- ingamálasamstarf Evrópuþjóðanna og evr- una eða verði áfram með sjálfstæðan gjaldmiðil til lengri tíma litið. í ársskýrslu OECD er lagt til að íslensk stjórnvöld athugi annað viðmið peningamálast- efnu sinnar en fast gengi. Leggja sérfræðingar OECD til að kannaður verði sá möguleiki að nota verðbólgumarkmið sem viðmið pen- ingastefnu og að leyfa ætti meiri sveigjanleika í skráningu gengis. „Stöðugt gengi, innan ákveðinna marka, hefur verið grannur pening- astefnunnar,“ segir Þórður. „Ég held að það sé ekkert álitamál að þessi stefna hefur í aðalatriðum reynst vel fram að þessu. Ég tel að það hafi verið skynsa- mlegt að fylgja þeirri stefnu að vera með fastar viðmiðanir. Það breytir hins vegar ekki því að þetta var aldrei eitthvert frambúðar- kerfi og viðmiðanir af þessu tagi hljóta að vera í stöðugri endur- skoðun,“ sagði hann. Getur verið skynsa- mlegt að viðhalda gengisstöðugleika Þórður sagði að þeg- ar rætt væri um að hverfa frá genginu sem einhverskonar undir- stöðu peningamálastefnunnar og nota verðbólgumarkmið sé mikil- vægt að hafa í huga hvert stefna skuli í framtíðinni. „Þar er um tvö meginsjónarmið að ræða. Annars vegar að beita eigi hagstjórn í ríkisfjármálum og pen- ingamálum til að tryggja stöðugleika og jafnvægi í þjóðarbúskapnum. Eðli máls samkvæmt er það hlut- verk ríkisfjármálanna að viðhalda jafnvægi í þjóðarbúskapnum þegar til lengri tíma er litið og það felur í sér að halda þarf uppi nægilegum þjóðhagslegum sparnaði til þess að sporna við að viðskiptahallinn fari úr böndum. Hins vegar er svo hlutverk peningamálastefnunnar að tryggja markmiðið um stöðugt verðlag. Mér virðist að ef grunnhugsunin til fram- tíðar er sú að horft verði hugsanlega til einhverskonar samstarfs í gengis- málum við Evrópuþjóðirnar, og nálgast evruna, þá er skynsamlegt að að reyna að viðhalda miklum gengisstöðugleika og nálgast þau mörk sem helst eru höfð til viðmið- unar svo við gætum síðar meir, ef við vildum, gerst aðilar að peninga- samstarfmu með einhverjum hætti. Þá er auðvitað ekki æskilegt að um miklar gengissveiflur sé að ræða í aðdraganda þess, heldur væri þvert á móti æskilegt að stuðla að því að okkur tækist að jafna hagsveiflurnar meira með beitingu ríkisfjármálanna en með gengissveiflum. Ef við drögum hins vegar upp aðra mynd , þar sem stefnt væri að því að byggt verði á sjálfstæðum gjaldmiðli til lengri tíma, horfir mál- ið aðeins öðruvísi við. I því ljósi væri tvímælaust íhugunarvert að skoða vandlega hvort ætti að fara yfir í verðbólgumarkmiðið sem grunntón í peningamálastefnunni. Ég er þeirrar skoðunar að það eigi ekki að ana að neinu í þessum efn- um. Ef við lítum á peningamálast- efnuna undanfarin ár þá má sjá að það hefur aldrei reynt á þessi við- miðunarmörk og það er ekki fyrr en núna að við erum farnir að nálgast efri mörkin. Það væri í sjálfu sér hægt að leysa annars vegar með því að halda sig fast við þessi mörk eða einfaldlega að víkka mörkin. Margar þjóðir hafa gengisstöðugleika að markmiði en eru ekki með föst við- miðunarmörk, heldur haga gengis- festunni innan einhverra annarra viðmiðana, sem eru kannski ekki gerðar opinberar. Ég hef enga sann- færingu fyrir því að við núverandi aðstæður eða í framtíðinni sé rétt að vera með einhverja fasta tölu í þessum efn- um,“ sagði Þórður. Mikilvægt að auka gjaldeyris- forðann Hann sagði að ábending OECD væri áhugaverð en ef íslendingar stefndu að því að vera með sjálf- stæðan gjaldmiðil til lengri tíma væri mjög mikilvægt að Seðlabank- inn byggi yfir miklum gjaldeyris- forða. „Eg teldi ráðlegt að hann væri með meiri gjaldeyrisforða en hann er með núna og jafnframt væri mjög æskilegt að ná því markmiði að á sama tíma greiddi ríkissjóður niður erlendar skuldir í miklu ríkari mæli en gert hefur verið vegna þess að ef við erum með sjálfstæðan gjaldmiðil til lengri tíma er óneitanlega ekki heppilegt að treysta á að hægt sé að halda jafnvæginu með mjög miklum vaxtamun. Vaxtamunurinn er mjög mikill um þessar mundir og það fel- ur í sér að samkeppnisstaða fyrir- tækja sem eiga ekki greiðan aðgang að erlendu fé, er þeim mun verri gagnvart fyrirtækjum í samkeppnis- löndunum,“ sagði Þórður og bætti við að æskilegt væri að vaxtamunur gagnvart öðrum löndum minnkaði verulega. Forsendur þess væru mik- ill gjaldeyrisforði Seðlabankans og litlar erlendar skuldir. Sex fyrirtæki stofna nýtt hugbúnaðarfyrirtæki Fynrtækið eMR yf- irtekur 75% hluta- fjár í Gagnalind FYRIRTÆKIÐ eMR hefur verið stofnað til að vinna að þróun upplýs- ingakerfa fyrir heilbrigðisstofnanir. Að stofnun eMR standa Tölvumiðlun hf sem á 26% hlut, íslensk erfða- greining sem á 20% hlut, Landssími Islands sem á 20% hlut, Hugvit sem á 14% hlut, FBA sem á 15% og íslenski hugbúnaðarsjóðurinn sem á 5% hlut. Nafnverð hlutafjár hins nýja fyrir- tækis verður 100 milljónir króna. Tal- ið er að ráða þurfi tugi starfsmanna til hins nýja fyrirtækis. Sá hluti Hugvits og Tölvumiðlunar, sem unnið hefur að þróun upplýsinga- kerfa fyrir heilbrigðisstofnanir, flyst yfir í nýja fyrirtækið. Auk þess yfir- tekur eMR 75% af hlutabréfum í Gagnalind hf. sem áður voru í eigu ís- lenskrar erfðagreiningar og Lands- símans. eMR og Gagnalind munu vinna náið saman og er stefnt að því að fyrirtækin sameinist sem fyrst til að efla þróunarstarfið enn frekar. Tölvumiðlun og Gagnalind hafa verið með stærstu fyrirtækjum, hvort á sínu sviði, innan upplýsingatækni fyr- ir heilbrigðisgeirann. Tölvumiðlun hefur þróað röntgendeildakerfi og legudeildakerfi en Gagnalind sjúkra- skrárkerfi og nýta 82 heilsugæslust- ofnanir hugbúnað Gagnalindar. Ágúst Guðmundsson er fram- kvæmdastjóri eMR. Hann segir að þau fyrirtæki sem hér snúi bökum saman hafi hvert um sig verið í fremstu röð á sviði hugbúnaðargerð- ar fyrir heilbrigðisstofnanir. Ávinningur með samhæfðum lausnum Sá ávinningur sem náist með sam- starfinu sé að samhæfa lausnir og bæta heilbrigðisþjónustu. Aðstan- dendur eMR telji að með því að sam- eina kraftana haldist frumkvæðið í þessari þróunarvinnu hér innanlands og jafnframt skapist frekari sóknar- færi til að flytja út hugbúnaðai-lausnir á þessu sviði. Hann segir að nýja fyr- irtækið ætli að keppa við það besta erlendis og því kjósi menn að samein- ast og skapa eins öflugt fyrirtæki og hægt er. „Lítil fyrirtæki eiga einfald- lega enga möguleika á að standa sig í þessari samkeppni. Fyrirtækin sem nú eru að stofna eMR standa framar- lega í þessari tækni nú þegar og með samruna skapast möguleikar á þessu sviði,“ segir Ágúst. Eins og fyrr segir á nýja fyrirtækið 75% í Gagnalind sem hefur haft samning við heilbrigðisráðuneytið um tölvuvæðingu heilsugæslunnar og innleiðingu sjúkraskrárkerfa. Ágúst segir að haldið verði áfram að vinna eftir þeim samningi. Eins og fyrr greinir er stefnt að því að Gagnalind sameinist nýja fyrir- tækinu að fullu og öllu innan tíðar en 25% eignarhluti fyrirtækisins er í dreifðri eign margra fjárfesta. Is- lensk erfðagreining hefur á undan- förnum vikum aukið hlut sinn í Gagnalind úr 20% hlut sem keyptur var í janúar sl. í yfir 55%. ÍE keypti m.a. hlut FBA í fyrirtækinu. Ekki er ljóst hvert gengið hefur verið á hluta- bréfum í Gagnalind. Ágúst segir að eMR yfirtaki tölu- verða starfsemi sem Tölvumiðlun og Hugvit hafi verið með á sjúkrahúsun- um, þ.e. kerfi fyrir röntgendeildir, göngudeildir, legudeildir og fleira. „Meginmarkmiðið er að sameina þessa þekkingu í eitt fyrirtæki til þess að sækja á erlendan markað. Tölvumiðlun á systurfyrirtæki sem hefur flutt út hugbúnað síðustu ár fyrir tugi milljóna króna á ári fyrir heilbrigðisgeirann. Ætlunin er að búa til enn betri og samhæfðari kerfi til að sækja með á erlendan markað en að sjálfsögðu skila þessi kerfi sér líka hér á heimamarkaði," segir Ágúst. Miklir möguleikar á erlendri grundu Þorsteinn Víglundsson, fram- kvæmdastjóri Gagnalindar, segir að líklegasta skýringin á því að íslensk erfðagreining jók hlut sinn í Gagna- Meira en 100 milljónir tölva í heiminum eru nettengdar lind sé sú að fyrirtækið hafi viljað meiri áhrif inn í nýja fyrirtækið. Hann segir að oft hafi komið til tals að efna til samvinnu milli Tölvumiðlunar og Gagnalindar og oft verið bollaleg- gingar þar um. „Þetta er tiltölulega lítill markaður hérlendis en Tölvumiðlun og Gagna- lind hafa þróað mjög góðan hugbún- að. Möguleikarnir eru mjög miklir á erlendri grundu vegna þess að við er- um miklu lengra komnir en t.d. menn í Danmörku," segir Þorsteinn. Við erum eldri en við höldum Úlfur Árnason prófessor í Lundi. Mannskepnan hefur hingað til verið álitin um 175 þúsund ára, en Ulf- ur Arnason, prófessor í Lundi, hefur með kenn- ingum sínum tvöfaldað aldur okkar. Sigrún Davíðsdóttir sat ráð- stefnu um kenningar hans og heyrði viðbrögð fræðimanna við þeim. „NU ERU þessar kenningar komnar fram og þá er hægt að hrekja þær eða samþykkja," segir Erie Harley, prófessor við Háskólann í Cape Town í Suður-Afríku. Harley er einn rúm- lega þrjátíu vísindamanna, sem komu nýlega saman til að ræða kenningar í þróunarlíffræði á ráðstefnu í Lundi, þar sem kenningar Ulfs Amasonar, prófessors í sameindaþróunarfræði í Lundi, og samstarfsfólks hans hafa verið miðlægar. Harley og fleiri við- staddir álíta að kenningar Úlfs um að maðurinn sem tegund sé um 400 þús- und ára í stað 175 þúsund ára eins og áður var talið séu vel rökstuddar. Sjálfur segir Harley í samtali við Morgunblaðið að hann hafi fyrst verið í vafa er hann var beðinn um að rit- dæma grein Úlfs um þetta efni fyrir rúmu ári en rök hans hafi sannfært sig um réttmæti kenninga hans og þær villur, sem Úlfur bendir á að hafi verið í eldri kenningum. 250 ár enginn tími í þróunarsögunni Á vísindaráðstefnu, þar sem verið er að spá í nýjustu tækni og aðferða- fræði erfðafræðinnar, gleymist þó ekki hin sögulega vídd. í þetta skiptið var það Gunnar Broberg, prófessor í hugmyndasögu, sem miðlaði henni í fyrirlestri um Carl Linné (1707-1778), sem fyrir 250 árum ferðaðist um Skán og skrifaði ferðalýsingu um þennan landshluta í anda upplýsing- astefnunnar og þá meðal annars hvernig landsgæðin gætu best nýst þjóðinni. Með það í huga að í salnum sátu menn frá Evrópu, Bandai'íkjunum, Asíu og Afríku var óneitanlega skondið að hugsa til þess að fyrir 250 árum var Linné einn fárra Svía, sem hafði ferðast um alla Svíþjóð og nærlig- gjandi lönd. Nú til dags er Linnés þó ekki fyrst og fremst minnst sem ferða- bókahöfundar heldur sem foður flokkunarkerfis náttúrufræðinnar. Það er ekki fyri' en með tilkomu DNA-rannsókna, sem gera okkur kleift að rýna inn í innstu gerð erfða- efnisins, að flokkunarkerfi Linnés hefur að hluta riðlast. Rannsóknir Úlfs og samstarfsmanna hans eru dæmi um þær nýju brautir sem DNA-rannsóknir hafa rutt. Tímasetn- ingar í þróun dýrategundanna byggð- ust framan af einkum á tímasetningu steingervinga, en nú geta DNA-rann- sóknir stutt enn frekar við þá tíma- setningu og varpað upp gleggri og jafnvel á stundum nýrri mynd. Tími til að hreinsa úr skúina- skotum vísindanna? Ymsir af þeim sem vinna með steingervinga hafa átt erfitt með að koma heim og saman þeirri kenningu að leiðir mannsins og simpansans, sem er apa skyldastur manninum, hefðu ekki skilið fyrr en fyrir fimm milljónum ára, eins og hin viðtekna hugmynd þróunarfræðinnar hefur verið undanfarinn rúman áratug. Steingervingafundir hafa ekki að öllu leyti fallið að þessari mynd. Með rannsóknum sínum á stein- gervingum hafa frönsku vísinda- mennirnir, Louis de Bonis og Stepha- ne Ducrocq, báðir komist að því að þessi aðskilnaður hljóti að hafa átt sér stað fyrir um 9-13 milljónum ára. Þeir eiga því ekki í vandræðum með að taka við þeirri kenningu Úlfs að þessi aðskilnaður hafi átt sér stað fyr- ir um tíu milljónum ára. Af undirtekt- um á ráðstefnunni má almennt marka að það sé ákveðinn léttir fyrir steing- ervingafræðingana að taka mið af þessum nýju kenningum. Einn af þeim, sem komu á ráðstefnuna til að kynnast betur kenningum Úlfs, er Philippe Janvier, sérfræðingur við Náttúrufræðisafnið í París. Hann bendir á að framan af hafi eingöngu steingervingar verið tiltækir til að gera grein fyrh’ þróun tegundanna og setja þær upp í ættartré. Þegar að- ferðir sameindalíffræðinnar hafi kom- ið til sögunnar hafi ættartrén tekið litlum breytingum og fátt komið á óvart. „Kenningar Úlfs bregða hins vegar upp alveg nýrri mynd,“ segir Janvier. „Með sérhverri dýrategund, sem hann hefur athugað, fugla, fiska og nú síðast apa, hefur hann komið fram með alveg nýja mynd og róttækar breytingar.“ Til að útskýra hversu róttækar hugmyndir Úlfs séu bendir Janvier á að þetta sé svona eins og að halda því fram að Islend- ingar komi frá Suður-Am- eríku og Svíar frá Afríku. „Kenningar hans eru ein- faldlega gjörólíkar því sem áður tíðkaðist." Sjálf- ur segist Janvier hafa komið til að fræðast um hverjar séu forsendur þessara róttæku kenninga og bætir við, „Við höfum hugsanlega haft rangt fyrir okkur.“ Janvier bendir á að ýmsir af þeim, sem koma til að taka þátt í umræðun- um séu vísindamenn sem komist hafi að niðurstöðum sem ekki falli inn í viðteknar trúarsetningar þróunar- fræðinnar og vilji þá kanna hvort nið- urstöður þeirra falli betur að kenn- ingum Úlfs. „Úlfur notar aðrai' aðferðir en áður hefur tíðkast, hefur bent á villur í fyrri kenningum og þorh' að hafna fyrri kenningum. Ég er tilbúinn til að ræða kenningar hans og til að hugsa hlutina upp á nýtt. Það má vel vera að aðferðir hans og kenningar séu upphafið að alveg nýj- um leiðum í sameindaþróunarfræði,“ bætii' Janvier við hugsi. Tregða til að hafna viðteknum kenningum og taka upp nýjar hefur löngum einkennt vísindaheiminn og undir það tekur Janvier. „Á 25 ára vísindaferli mínum hef ég hvað eftir annað séð dæmi um tregðu til að samþykkja nýjar kenningar. Kenning kemur fram, henni vex fiskur um hrygg, aðrar kenningar koma upp í kringum hana og styðja við hana og verja hana árásum. Én allt í einu dug- ir það ekki til. Nýjar upplýsingar falla ekki að þeirri gömlu og það verður nauðsyn á rækilegum tiltekt- um. Við erum kannski komin að þeim áfanga í ættartré náttúrunnar.“ Kenningar sem skekja vísindaheiminn „Þegar ég var ungur hélt ég að það væri nóg að fá birta grein í viður- kenndu tímariti og þá væri kenning manns komin á kreik,“ segir Eric Harley, þegar hann hefur umræður vísindamannanna. „Kenning Úlfs er dæmi um að svo er ekki. Hann hefur birt kenningar sínar í viðui'kenndum tímaritum og samt er þrúgandi þögn um þær.“ Þögnin var þó rofin á ráð- stefnunni, því þar voru þær ræddar af kappi út frá ýmsum sjónarhomum. Harley segir í samtali við Morgun- blaðið að nú gefist tækifæri til að ræða hugmyndirnar. „Úlfur hefur sannarlega skekið vísindaheiminn með róttækum kenningum sínum. Ég var í vafa þegar ég sá þær fyrst, en röksemdir hans, bæði um hans eigin * kenningar og villuna í fyrri kenning- um, hafa sannfært mig. Kenningar hans eru einfaldlega þungvægari en áður hafa sést,“ segir Harley. Kenningar þarf að ræða og reifa áður en þær ná því að verða viður- kennd trúarsetning, sem tekin er í kennslubækurnar. „Það er ekki gott að segja hvort og hvenær kenningar Úlfs verða viðteknar, en ráðstefnan hér er spor í þá átt. Flestir, sem ein- hvers mega sín á þessu sviði, eru hér og annaðhvort verða kenningar Úlfs hraktar eða þær verða viðteknar." í hita umræðnanna minnir Úlfur á að ein ástæðan fyrir því að menn hafi fylgt viðteknum kenningum um þró- unarsögu mannsins hafi verið sú að það sé einfaldlega erfitt að fá birtar gi-einar um kenningar, sem gangi á skjön við viðteknai' skoðanir. Fransk- ur vísindamaður kinkar ákaft kolli. „Einmitt," hvíslar hann að sessunaut sínum. „Þetta er líka mikilvægt atriði varðandi nýjar vísindakenningar, mjög mikilvægt.“ Einar Árnason, prófessor í erfða- fræði við Háskóla íslands, minnir á að Francis Crick, sem á sínum tíma sýndi fram á uppbyggingu erfðaefnis- ins ásamt James D. Watson, hafi sagt frá því að þeir félagar hafi kallað< kenningar sínar „dogma“, trúarsetn- ingar, því í andrúmsloftinu í Cambr- idge um miðja öldina hafi ungir menn einmitt verið áfjáðir í að ráðast á trúarsetningar og allt sem hét við- teknar skoðanir. „En það eru líka margir, sem helst fylgja viðteknum skoðunum. Þess vegna eiga bylting- arkenndar kenningar oft erfitt upp-- dráttar.“ Kenningar þarf að ræða og reifa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.