Morgunblaðið - 18.05.2000, Blaðsíða 1
A L L R A L A N D S
B L A Ð
M A N N A
B
2000
FIMMTUDAGUR18. MAI
BLAD
Hjörvar Hafliðason
hjá Karlsruher
HJORVAR Hafliðason, markvörður úr Val, er j
þessa dagana til reynslu hjá þýska knattspymu-
félaginu Karlsruher. Hjörvar æfði með félaginu j
um tíma í vetur og stóð sig það vel að Karlsruh- l
er óskaði eftir því að fá hann aftur til sín þar |
sem liðið leitar nú að markverði fyrir næsta
tímabil. Karlsruher, sem lék fyrir hönd Þýska-
lands í UEFA-bikamum fyrir aðeins tveimur
áram, er nú neðst í 2. deild ogþegar fallið en
hefur ráðið Stefan Kunz, fyrmm landsliðs-
mann, sem þjálfara fyrir næsta tímabil.
Hjörvar, sem er 19 ára, var aðalmarkvörður
Vals í úrvalsdeildinni í fyrra en lék áður með
HK. Hann hefur verið varamarkvörður Vals-
manna í vor efdr að þeir fengu Bandaríkja-
manninn John Mills til Iiðs við sig. Hjörvar verð-
ur ekki í leikmannahópi Vals gegn Þrótti í
fyrstu umferð 1. deildarinnar annað kvöld.
Draumur
„íslendinga-
liðanna“ úti
DRAUMUR íslendingaliðanna Bolton og Stoke um að komast
deild ofar í ensku knattspyrnunni varð að engu í gærkvöldi.
Bolton tapaði fyrir Ipswich, 5:3, í framlengdum leik í úrslita-
keppni 1. deildarinnar og Stoke beið lægri hlut fyrir Gillingham,
3:0, einnig í framlengdum leik, í úrslitakeppni 2. deildar.
Bolton náði þrívegis forystunni
gegn Ipwich en Jim Magilton
jafnaði metin fyrir heimamenn í öll
skiptin og það síðasta gerði hann á
lokamínútu venjulegs leiktíma. í
framlengingunni var tveimur leik-
mönnum Bolton vísað út af og það
færðu leikmenn Ipswich sér í nyt og
skoruðu tvö mörk. Ipswich fékk þrjár
vítaspyrnur í leiknum og nýtti tvær
þeirra. Ipswich mætir nær örugglega
Bamsley í úrslitaleik um úrvalsdeild-
arsætið en Bamsley vann fyrri leik
sinn gegn Birmingham, 4:0, en tvö síð-
astnefndu liðin mætast öðru sinni í
dag.
Guðni heim-
Eiður seldur?
Guðni Bergsson lék allan tímann í
liði Bolton en Eiður Smári Guðjohn-
sen var fjarri góðu gamni vegna
meiðsla sem hann hlaut í fyrri viður-
eign liðanna. Nú þegar það liggur Ijóst
fyrir að Bolton kemst ekki í úrvals-
deildina er nokkuð ömggt að þeir
Guðni og Eiður Smári yfirgefa félagið.
Guðni hyggur á heimför og Eiður
Smári verður líklega seldur til ein-
hvers þeirra úrvalsdeildarliða sem
hafa borið víumar í hann að undan-
fömu.
Stoke tveimur f ærri
í rúman klukkutíma
Lærisveinar Guðjóns Þórðarsonar
háðu hetjulega baráttu á útivelli gegn
Gillingham en Stoke missti tyo leik-
menn út af með rauð spjöld í venjuleg-
um leiktíma. Bakvörðurinn Clive
Clarke fauk út af á 43. mínútu og
Graham Kavanagh fóm sömu leið á
52. mínútu. Eftir það var á brattann að
sækja en Gillingham náði að komast
yfir eftir 55. mínútna leik. Fleiri urðu
mörkin ekki í venjulegum leiktíma en í
framlengingunni tókst Gillingham að
tryggja sér farseðilinn á Wembley
með því að skora tvö mörk. í stöðunni
2:0 munaði minnstu að Stoke skoraði
en skot varamannsins Paul Connors
fór í markstöngina. Brypjar Bjöm
Gunnarsson var besti maður Stoke og
lék allan tímann og það gerði Bjarni
Guðjónsson sömuleiðis. Amar Gunn-
laugsson var tekinn af velli þegar
Stoke missti Kavanagh af velli.
Gillingham leikur gegn Wigan í úr-
slitaleik um sæti í 1. deild, en Wigan
vann Milwall samtals, 1:0.
Reuters
Hakan Sukur, til hægri, heldur á sigurlaunum Evrópubikarkeppni félagsliða ásamt félögum sín-
um í Galatalsaray, eftir að liðið vann Arsenal, 4:1, að lokinni vítaspyrnukeppni í úrslitaleik í Kaup-
mannahöfn í gær.
Anna María hætl
Jón Þ. úrVal
til FH-inga
JÓN Þorgrímur Stefánsson,
sem hefur leikið með Val í
úrvalsdeildinni í knattspymu
undanfarin tvö ár, hefur
gengið frá samningi við 1.
deildarlið FH. Félagaskipti
hans em ekki frágengin og
því ekki Ijóst hvort hann spili
með Hafnarfjarðarliðinu
þegar það sækir KA heim í
fyrstu umferðinni annað
kvöld Jón, sem verður 25 ára
á sunnudaginn, lék áður með
HK en einnig með Keflavík
og Breiðabliki í úrvalsdeild-
inni þar sem hann á samtals
56 leiki að baki.
Anna María Sveinsdóttir, sem án
nokkurs vafa er mesta afreks-
kona landsins í körfuknattleik fyrr
og síðar, hefur ákveðið að leggja
skóna á hilluna.
„Já, ég ætla að hætta, ég er orðin
svo gömul,“ sagði Anna María í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, en hún
stendur á þrítugu. „Ég segi altént
núna að ég sé hætt og ég ætla að
reyna að standa við það en maður
veit ekki hvernig þetta verður í
haust. Ég veit það verður erfitt enda
mikil viðbrigði og ætli maður verði
ekki að skipta alveg um lífsstíl,"
sagði Anna María sem sagðist stefna
að því að koma ekki nærri körfubolta
næsta vetur, nema til að horfa á.
Ferill hennar er sérlega glæsileg-
ur, en hún byrjaði ellefu ára að æfa
körfuknattleik og hefur leikið í ein
15 ár í efstu deild, og í henni og bik-
arkeppninni hefur hún leikið 391
leik. Hún hefur níu sinnum orðið ís-
landsmeistari og tíu sinnum bikar-
meistari.
Anna María hefur leikið 51 lands-
leik en íslenska kvennalandsliðið
hefur alls leikið 62 leiki frá upphafi
vega. í vetur náði hún þeim áfanga
að fara yfir 1.000 fráköst á ferlinum
og hefur engin önnur stúlka tekið
annað eins af fráköstum. Hún er
einnig stigahæst hér á landi frá upp-
hafi, hefur gert 4.210 stig í efstu
deild.
Elsta heimsmet-
ið í sundi fallið
ÁSTRALSKA sundkonan Sus-
an O’Neill bætti f gærmorgun
elsta heimsmetið í sundi er
hún synti 200 metra flugsund
á 2.05,81 mfnútu á ástralska
meistaramótinu. Metið hefur
staðið í 19 ár en bandarfska
stúlkan Mary T. Meagher setti
það er hún synti á 2.05,96.
O’Neill bætti því metið um 'Vioo
úr sekúndu.
„Ég var farin að efast um
að ég næði þessu meti nokk-
urn tíma,“ sagði O’NeilI eftir
metsundið. „Ég átti ekkert
frekar von á því að ég næði
metinu núna, enda var ég
mjög nærri því enn eina ferð-
ina í undanúrslitum í gær,“
sagði meistarinn en þá synti
hún á 2.06,51 mín. „Mér leið
mjög vel f sundinu og heyrði á
látunum f áhorfcndum að ég
hlyti að vera nærri metinu og
það hjálpaði mér. Ég held ég
geti synt hraðar og núna þeg-
ar ég hef brotið ísinn vona ég
að svo verði,“ sagði O’Neill.
KR-INGAR HEFJA MEISTARAVÖRNINA í LAUGARDALNUM / B2