Tíminn - 20.07.1965, Blaðsíða 1
HAMDBÓK
VERXLUNAR MANNA
ÁSKRMFTARSÍIVM
4 4CCOA
lOUOO lOuoO toooo
HANDBÖK
VERZLUNARMANNA
ÁSKRNFTARSÍMI
tS68B 16688 16686
1..•.....
' '
-
*. < “•• ;
wœW
• • -
■
i
]y/ :
WwwwRtKSwS
Susane Reith í Reykjavikurhöfn í gær, Inn í myndina er feld önnur sem tekln var í vetur af fram-
partlnum á strandstaS á Raufarhöfn.
ÁTTA METRA MUNUR
KJ—Reykjavík, mánudag
Þá er hið margumtalaða skip
Susanne Reith komið alla leið
hingað til Reykjavíkur, og von
andi verður þetta ekki enda-
staðurínn hennar, því þetta
er allra laglegasta skip Þegar
búið er að mála það, og á áreið
anlega eftir að gera siit gagn.
Svo sem kunnugt er af fyrri
fréttum þá strandaði skipið á
Raufarhöfn í vetur,, og gáfust
tryggjendur þess upp á að
bjarga því .af strandstað. Björg
unarfélagið Björgun keypti þá
skipið á strandstað, og hefur
síðan verið unnið markvisst að
því að koma því á flot aftur.
Susanne brotnaði á rífinu þar
sem hún strandaði og eyðilagð
ist stór hluti skipsskrokksins í
miðjunni. Skáru björgunar-
mennimir skipið í tvennt, og
skemmdína burt, en skeyttu síð
an fram og aftur endana sam
an, settu sement í rifumar og
síðan var skipinu siglt hingað
suður til Reykjavíkur í fylgd
vitaskipsins Árvakurs. Geírk
ferðin að óskum, og ganghrað
inn var 8—9 mílur, eða
eins og hjá meðal fiskibát.
Hingað til Reykjavíkur kom
skipið snemma í morgun. og
var lagt við Ingólfsgarð og
komu margir í dag til að
skoða skipið, því mörgum
finnst Það ganga furðuverki
næst að hægt var að bjarga
skipinu og gera það haffært á
nýjan leik. Dælur voru að vísu
í gangi alla leiðina suður, og
reyndar hér í höfninni líka
Skipið mun nú verða tekið
til fullnaðarviðgerðar í slipp.
Susanne Reith á án efa eftir að
verða gott skip. þrátt fyrir að
hafa verjð stytt um 8 metra.
HALIDÓR LAXNESS UM ÞÁ FRÉTT
LAND OG FOLK, AÐ HANN VERÐI
FORSETAEFNI í NÆSTU KOSNINGUM:
„Það hefur bara ein-
MB—Reykjavík, mánudag.
Danska blaðið Land og
folk segir á sunnudaginn,
að sterk öfl á Islandi vinni
að því, að nóbelsskáldið
Halldór Laxness verði í
kjöri við næstu forseta-
kosningar. „Það hlýtur
bara einhvern að hafa
dreymt þetta" sagði Lax-
ness, þegar blaðið bar
„fróttina" úndir hann 1
dag.
í dag barst blaðinu svohljóð
andi fréttaskeyti frá Geir Að-
ils, fréttaritara Tímans í Kaup
mannahöfn:
Land og Folk, dagblað komm
únista i Danm., skýrír frá því
í gær, að sterk öfl á íslandj
vinni að undirbúningi fram-
boðs skáldsins og nóbelsverð
launahafans Halldórs Laxness
til forsetakjörs. Sagt er að al-
merinur áhugi sé á því að
hinn 63 ára rithöfundur verði
í kjöri við forsetakosningarnar,
sem fara fram í júní, 1968, skrif
ar blaðið“.
Blaðjð hafði í dag samband
vjð Halldór Laxness. Hann
hló við og sagði: „Ég hefi nú
bara aldrei heyrt talað um
þetta. Það hlýtur einhvern að
hafa dreymt þetta! Það hefur
aldrei nokkur maður minnzt á
þetta við mig. Ég hefi enga
hugmynd um af hvaða rótum
þetta er runnið. Þetta kemur
mér algerlega á óvart og mér
finnst þetta bara hlægilegt!"
FJÖLMENNASTA
ÞING
ISLANDI
JHM—Reykjavík, mánudag.
Fjölmennasta þing, sem haldið hefur verið á íslandi, hefst
hér i borg n. k. fimmtudag, og verða þátttakendurnir um 1200
manns. Þetta er nítjánda norræna skólamótið, og sækja það
bæði kennarar og aðrir sem að kennslumálum starfa. Frá
Norðurlöndum koma a. m. k. 850 manns, en innlendir þátt-
takendur verða um 330—340.
Mótið verður sett í Háskólabíó,
en lokafundurinn verður á Lög-
bergi. á Þingvöllum. Eins og geta
má nærri þá er erfitt fyrir Reykja
vík að hýsa svo marga gesti, bæði
erlendis frá og utan af landi. Til
að leysa vandann koma 370 manns
með austur-þýzka skipinu Fritz
Heskert, sem er í leigu hjá sænsku
ferðaskrifstofunni RESO, en hún
sér um komu flestra fulltrúanna.
nema Finnana.
Um 150 fulltrúum verður komíð
fyrir i herbergjum út í borginni,
en um helmingur Þeirra mun
dvelja á heimilum kennara. í
Sjómannaskólanum fá 50 manns
gistingu, en afgangurinn verður á
gistthúsum.
Nokkrir af fulltrúum eru komn
ir til landsins, svo og fréttamenn
frá Norðurlöndum sem munu fylgj
ast með þinginu. Kennslumálaráð
herrar Dana og Finna verða hér,
þeir K. B. Andersen og Jussi
Saukkonen Frá Noregi kemur
Helge Sivertsen, menntamálaráð
herra, og frá Svíþjóð S. Moberg,
ráðuneytisstjórí.
Flestir gestanna munu dvelja hér
í a. m. k. 2—3 daga eftir að mót
inu lýkur. Hátt á annað hundrað
manns ætlar að fljúga til Akur
eyrar. með F í á laugardaginn
kemur. strax að þinginu loknu
til að skoða sig um á Norðurlandi
Tala gestanna fer stöðugt vax
andi og daglega koma skeyti með
tílkynningum um nýja þátttakend
ur, s. I. laugardag barst m.a. sím
skeyti frá sænsku ferðaskrifstof-
unni RESO er var á þriðja metra
á lengd með nöfnum Þátttakenda.
Laxness: „Mér flnnst þetta bara hlægilegt"