Tíminn - 12.08.1965, Blaðsíða 3

Tíminn - 12.08.1965, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 12. ágúst 1965 it Nasser, forseti í Egyptalandi, hefur eignast tengdason og mynd in er af brúShjómuium og forset amun. Nasser er til vinstri, þá dóttir hans Hoda 19 ára, og Hatem Sadek, 27 ára ríkisstarfsmað'ur. ★ LeiStogi kínverskra kommún ista Mao Tse Tung, annar frá' vlnstri, tók nýlega á móti franska menntamálaráðherranum Andre Malraux (annar frá hægri) í Pck ing og áttu Þeir „vinsainlegar um ræffur“ saman. Myndin er tekin af þeim í Peking. ic Næsta mynd er af hópi „frið arsinna“ sem heimtuðu að fá að tala við forsctann um ástandið í Víetnam. Tveir af fulltrúum for setans buðust til að ræða við þá, en þeir sögðust ekki tala við neinn annan en sjálfan Lyndon B. Johnson. ★ Heimsmcistarinn í linefaleik um Cassius Clay — öðru nafni Muhamed AIi — er nú staddur í Svíþjóð og hefur það vakið nokk um úlfaþyt, að hann hefur ekki fengið aðgang að tveimur veitinga húsum — og er ýmsu borið við. Ekki hafa þó öll veitingahús sænsk sett bann á ,,kjaftaskinn“ Cassius — og hér sést hann drekka sína mjóik á einu þeirra. ________3 HisrT Á VÍÐÁVANbr Kynslóðaskipti Eitt af vandamáiuin land- búnaðarins er, hve erfltt er ungu fólki að stofna til bú- skapar í sveit. Er knýjandi nauðsyn, að hið opinbera greiði fyrir kynslóðaskiptum á góðum jörðum. Þetta verður að gerast með ýmsum hætti og þó fyrst og fremst með meiri og ódýrari iánum. Ungu fólki mun þó þykja heldur ógimilegt að kaupa jörð og fara að búa, ef það sér fram á að það verði að skiija jörð ina eftir í eyði og eignir sínar verðlausar, þegar það vegna aldu.rs eða af öðrum ástæðum verður að hætta búskap. V4 jarða í eyði Skv. skýrslum Landnáms ríkisins munu nú vera rúmlega 7200 býli í landinu, en af þeim eru 1800 eða um fjórðungur í eyði. Landnám ríkisins telur helming eyðijarðanna ekki byggilegan við nútimaaðstæðu.r og kröf'ur. Meiri hluti Þessara eyðijarða er í einkaeign. Það má telja eins sjálfsagt og eðli- Iegt og að stuðia að því að scm flestir bændur eigi þær jarðir, sem þeir erja, að ónytj að land sé í opinberri eigu. Með þeim liætti einum fæst sá ráðstöfunarréttur yfir eyði jörðum, sem nauðsynlegur er tH þess að koma þeim aftur í not, sem bezt þykja henta hverju. sinni, hvort sem þar er um sölu til ábúðar aftur, skiptingu milli nágrannajarða, viðbót við afréttarlönd, eða ann að slíkt að ræða. Hvað segja þeir? í nágrannaiöndum, eins og t. d. Svíþjóð og Finnlandi, tíðkast Það, að slofnanir á vcgum ríkisins, sem hafa það sérstaka hlutverk, að kaupa jarðir, sem fara í eyði, og bæta þær, skipta þeim þeim milli nágrannajarða og endur skipuleggja byggðina með þeim og ýmsum öðrum hætti. Staðhættir eru reyndar aðrir þar en hér á landi. því að þar eru jarðir víða of landlitlar til að búin geti stækkað eins og skyldL en hér á landi mun bú- stærðin í fæstum tilfellum tak- markast af ræktunarskllyrðum eða landrými. Þó er það til — einkum, hvað snertir Þær jarðir, sem nú eru í eyði. í Iögum um Landnám ríkis ins er gert ráð fyrir því, að Laridnámlð geti keypt upp eyðl jarðir í svipuðum tilgangi og er í Svíþjóð og Finnlandi, en til þess að Landnámið hafi getað fullnægt þessu hlutverkl sínu hefur skort fjármagn. Úr því verður að bæta. Ríkið þarf að geta eignast eyðijarð imar, bætt þær og endorsÚpu lagt á sem hagkvæmasta hátt. Miklir möguleikar Það verður að búa í haginn fyrir framtíðina. Þeir eru há- værir um þessar mundir, sem telja íslcnzkan landbúnað 6- alandi og óferjandi. Þeirra ill- spár munu ekki rætast, þvi að öruggt er að landbúnaður hlýt ur að vaxa og blómgast, ef niðurrifsmenn fá ekki vilja sinn. Þörfin innanlands fyrir landbúnaðarafurðir mun vaxa stórlega á næstu árum vegna mikillar fólksfjölgunar og allt Framhaid á bls. 14

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.