Tíminn - 01.09.1965, Blaðsíða 1

Tíminn - 01.09.1965, Blaðsíða 1
) !• * » FÓLKIÐ KAUPIR KARTÖFLU í BÍLUM GRÆN- METISVERZL. MB—Reykjavik, þriðjudag. Kartöflustriðið svonefnda stendnr enn. í dag sendi Græn metisverzhin landbúnaðarins bfl í Kðpavog og seldi úr hon trni kartöflnr og uppi eru ráða gerðir um að senda bfla víðar til þess að auðvelda húsmæðr um að ná í Þessa nauðsynja- vöru, sem smásöluverzlanir hafa nú sett á „bann!ista“ vegna þess að þær telja sig ekki hagnast nægilega á að selja Hana. Blaðið átti í dag tal við Jóhann Jónasson, forstjóra Grænmetisverzlunar landbúnað arins og sagði hann að allt sæti við sama í „kartöflustríðínu". AUmargir fisksalar halda áfram að selja kartöflur, mikið hefur selzt í hinum nýja grænmetis markaði í Síðumúla 24, en þar er á boðstólum alls kyns græn meti auk kartaflna á vægu verði og í dag var gerð fyrsta tilraun til að selja kartöflur úr bíl- Var sendur bíll í Kópa vog. Jóhann kvaðst ekki hafa verið relknað með mikilli sölu, enda lítill tími gefizt til að auglýsa söluna, en þó hefði reyndin orðið sú að talsvert mikið hefði selzt. Væri nú í athugun að auka þessa þjón ustu og myndi sennilega næst verða farið tíl Hafnarfjarðar og svo um þau hverfi Reykja víkur, sem verst væru sett. Jóhann kvað sér ekki kunnugt um neinar mótaðgerðir kaup manna vegna þessarar bílasölu og hefðu engin mótmæli borizt frá þeim vegna hennar. FÉÐ FLYKKIST NIÐUR í BYGGÐ MB-Reykjavik, þriðjudag. Illviðrakaflanum, sem gengið hef ur yflr Norðurland að undanförnu er nú lokið, og í dag var þar yfir leitt bezta veður, en fjöll eru enn alhvít. Heyskapur hefir stað ið i stað viðast norðanlands í um hálfan mánuð og í snjónum síð ustu vikuna hefur fé flykkzt nið ur til byggða og hefur verið rek ið til réttar á a. m. k. fjórum stöðum i Húnavatnssýslu og Skagafjarðarsýslu. í dag skein sól á Norðurlandi eftir nær óslitinn illviðrakafla í hálfan mánuð. Síðustu viku hef ur snjóað meira og minna og eru fjöll alhvít. Fé hefur flykkzt niður í byggð og hefur sums stað ar verið rekið til réttar. Á fimmtudaginn var réttað í Staðar rétt í Skagafirði og á sunnudag inn í Sauðárkróksrétt. í gær var svo réttað í Vatnsdalsrétt og í dag í Auðkúlurétt. Heldur virtist þeim Vatnsdælingum féð rýrt, en á það ber að lita að það var blautt og svangt, en náð var í það fram fyrir girðingu, þar sem það var á hagleysu vegna snæv arins. Skagfirðingar telja féð hafa litið allvel út. Erlingur Davíðsson, ritstjóri á Akreyri, kannaði þessi mál fyrir blaðið í Eyjafjarðarsýslu og Þing eyjarsýslum. Hann kvað fé víð ast hvar hafa komið heim til byggða og sums staðar í ríkum mæli, nefndi hann t. d. að við fjárgirðingu Akureyrarbæjar hefðu i gær verið mörg hundruð fjár og frammi í Saurbæjar- og Hrafnagilshreppum væri mikið fjöldi kominn. Þar væru bændur Framhald á 14. síðu Ráð- herra- skiptin Reykjavík, 31. ágúst 1965. Á fundi ríkisráðs í Reykjavík í dag féllust handhafar valds forseta ís lands á lausnarbeiðni Guð mundar f. Guðmundssonar frá ráðherraembætti. Jafn Ifraimt viar Emil Jónsson, sjávarútvegs- og félags- málaráðherra skipaður ut anríkisráðherra í stað Guðmundar í Guðmunds sonar með sama verksviði og hann hafði. Þá var Eggert Þorsteinsson, al- þingismaður, skipaður sjávarútvegs- og félagsmála ráðherra í stað Emils Jóns sonar með sama verksviði og hann hafði. Þá var staðfest aðild ís lands að Norðurlandasamn- ingi um afnám vegabréfaeft irlits, staðfest var breyting á reglugerð fyrir Háskóla íslands, gefin út tilskipun um nýja lyfjaskrá og stað festar ýmsar afgreiðsliar, sem fram hafa farið utan fundar. Frétt frá rfkisráðsritara. BRÓÐIR HAMMARSKJÖLD KREFST SKADABÓTA VEGNA SKRIFA UM AÐ HANN HAF! FYRIRFARID SÉR NTB—Stokkh. þriðjudag. í dag hófust réttarhöld í rrtáli því, sem bróðir Dag Hammarskjöld, Sten, hefur höfðað gegn nokkrum sænskum blöðum og útgef enda vegna skrifa þeirra um Dag Hammarskjöld. Borgarrétturinn í Kalm ar vísaði á bug þeirri kröfu Sten Hammarskjöld, að bók sem gefin hefur ver ið út um dauða Dags, verði gerð upptæk. Hefur Sten krafizt skaðabóta að upp- hæð 100.000 til 150.000 sænskar krónur af útgef- andanum. Verður það mál tekið fyrir 23. september. Einíg hefur Sten Hammar- skjöld stefnt blöðunum Syd- svenska Dagbladet og Idun- Veckojournalen 'fyrir að hafa birt greinar um dauða Dags Hammarskjöld, þar sem því er haldið fram, að hann hafi komið fyrir sprengju í flug- vélinni, sem hann fórst með, þannig ráðið sjálfum sér og samferðamönnum sínum bana Aðalritstjóri Sydsvenska Dag bladet sagði í réttínum i dag, að blaðið hefði ekki ætlað að breiða út ósannar sögur um dauða Hammarskjölds- heldur hefði aðeins verið skýrt frá grein um málið, sem birzt nefði í þýzka vikublaðinu Der Spieg el. Hefði Þetta verið liður i fréttaþjónustu blaðsins, og hefði í ritstjómargrein daginn eftir að fréttin birtist, verið vísað á bug fullyrðingum Der Spiegel. Ritstjóri Idun-Veckojourn- alen hefur lýst yfir, að það hafi verið mistök að birta grein þá um dauða Hammarskjölds. sem tekin var úr bandariska tíma ritinu Fact. Rithöfundurinn Bent Stjern crantz hefur nýlega gefið út bók um dauða Dags Hammar skjölds, þar sem hann fullyrð ir, að Dag hafi fyrirfarið sjálf um sér og þeím 15 mönnum. sem voru með honum í hinni örlagaríku för yfir Kongó fyrir fjórum árum. Einnig er þar rætt margt um kynferðislíf Hammarskjölds og trúarhug- myndir hans. Sten Hammarskjöld krefst 100000 sænskra króna af Syd- svenska Dagbladet og jafn- hárrar upphæðar af Idun-Vecko journalen Nema skaðabótakröf urnar því 300000—350000 sænskum krónum. 'mBKmá V , - ,** * ' Dag Hammarskjöld Dag Hamarskjöld. aðalritari Sameinuðu þjóðanna, fórst á- samt fimmtán manns, er hann var á leið til fundar við Moise Tsjombe í Katanga. Flugvélin fórst hinn 18. september 1961. Ekki eru taldar iíkur á, að sprenging hafi orðið i vélinni. wwppfpiwipw RmssaB

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.