Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 43
GÍSLI GESTSSON
MYND AF LOKA LAUFEYJARSYNI
í Árbog for Jysk arkæologisk selskab, Kuml 1959, er grein eftir
prófessor P. V. Glob, sem heitir Avlsten. Þar er lýst aflsteini,1),
sem fannst vorið 1950 í f jörunni við Snaptun í Horsens-firði í Dan-
mörk. Steinninn er nú í Forhistorisk Museum í Árhus.
Aflsteinn var til forna hafður í smiðju til varnar því að smiðju-
belgurinn ofhitnaði eða brynni. Aflsteinninn stóð á aflinum fyrir
aftan eldinn. Á steininum var gat, og var stút smiðjubelgsins stung-
ið í það að aftan, og kom þá blásturinn fram í gegnum aflsteininn,
sem kom þannig í stað hleðslu og langs aflhólks (blístru), sem tíðk-
aðist síðar. Ekki þekkjast aflsteinar á Islandi.
Steinninn frá Snaptun er 20 sm hár, 24,5 sm breiður og 7,5 sm
þykkur. Hann er haglega gerður; framhliðin er kúpt og á hana er
ásamt öðru skrautmunstri markað mannsandlit með grunnum strik-
um. Gatið á steininum er skammt fyrir neðan hökuskegg mannsins
og eru nokkur elidmerki í kringum það. Allur svipur mannsmynd-
arinnar sver sig í ætt við andlitsmyndir, sem markaðar eru á rúna-
steina víða í Danmörk og Svíþjóð, og e.r þessi þó nokkru einfaldari
að gerð. Samt verður að ætla, að hún sé frá svipuðum tíma og þær,
eða eins og P. V. Glob ætlar, frá víkingaöld. Þess má geta, að sumarið
1959 fannst svipað andlit markað á beinstykki í kumli hjá Ljótsstöð-
um í Unadal í Skagafirði. Mun sá hlutur vera frá 10. öld, og kemur
þetta vel heim við aldursákvörðun P. V. Globs. Aflsteinninn frá
Snaptun er úr klébergi. Sú bergtegund er ekki til í Danmörk, en
klébergsnámur eru hins vegar í Noregi, og er trúlegt að þar hafi
1) Orðið aflsteinn er ekki til í íslenzku, en er myndað eftir norska heit-
inu á steinum þessum, avlsten. Aflsteinar eru vel þekktir í Noregi, sjá Jan
Petersen, Vikingetidens redskaper. Oslo 1951, lds. 103—104. Ennfr. Arne
Skjolsvold, Klebersteinsindustrien i vikingetiden. Oslo—Bergen 1961, bls.
37—39.