Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1968, Blaðsíða 1
KRISTJÁN ELDJÁRN
KRÝNING MARÍU, ALTARISBRÍK
FRÁ STAÐ Á REYKJANESI
1
Þjóðminjasafn íslands eignaðist merkilegan grip hinn 21. ágúst
1967. Það er 60 sm há eikarmynd af síðskeggjuðum krýndum manni,
sem situr á bekk. Gefandinn er frú Ingibjörg Sigurðardóttir (f. 6. 3.
1874), nú til heimilis á Elliheimilinu Grund í Reykjavík. Frú Ingi-
björg var seinni kona Boga Sigurðssonar (f. 8. 3. 1858, d. 23. 6. 1930),
verzlunarstjóra í Skarðsstöð og síðar kaupmanns í Búðardal í Dala-
sýslu. Það er nú orðið fágætt, að safni'ð eignist líkneski úr kaþólskum
sið, og þykir því hlýða, að dýrðarmaður þessi fylgi Árbók úr hlaði
að þessu sinni. En áður en líkneskinu er lýst og það sett í það sam-
hengi, sem auðið verður, er rétt að skýra frá því, sem frú Ingibjörg
hefur frá því að segja.
Frú Ingibjörg segist fyrst hafa séð líkneskið árið 1905, er hún
kom Sem gestur að Búðardal, átta árum áður en hún varð seinni
kona Boga. Áður en hún fór þaðan, sagði Bogi við hana: „Komdu
frænka, ég verð að sýna þér húsguðinn“. Sýndi hann henni þá líknesk-
ið, þar sem því hafði verið komið fyrir á borði og stjakar með kertum
settir fyrir framan það. Bogi sagði Ingibjörgu, a'ð þetta væri mynd
af Ólafi helga, og minnir hana, að myndin væri talin komin úr Brjáns-
lækjarkirkju á Barðaströnd, en þó er það óljóst fyrir henni, og við
seinni eftirgrennslan gat hún rifjað upp, að Bogi mundi á einhvern
hátt hafa fengið líkneskið um hendur séra Filippusar Magnússonar,
en hann var prestur á Stað á Reykjanesi 1895—1902. Ingibjörg tel-
ur, að Bogi hafi verið búinn að eiga líkneskið nokkur ár, þegar hún
sá það 1905, og hafi eignazt það ekki síðar en um aldamót, jafnvel
eitthvað fyrr. Méð líkneskinu átti að hafa verið Maríumynd, sem
Ingibjörg kann lítið frá að greina, en hana minnir helzt að talin hafi
verið skemmd.
Bogi Sigurðsson kom líkneskinu til viðgerðar hjá Stefáni Eiríks-