Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1968, Blaðsíða 107
NY ALDURSGREINING ÚR REYKJAVlK
í Árbók Fornleifaíélagsins 1967 getur dr. Krist.ján Eldjárn um
aldursákvörðun eftir geislakolsaðferð á sýnishorni, sem undirritaðir
tóku í um 1.85 m. dýpi við boi'un í miðbænum árið 1962, úr holu
nr. 20, gerðri á lóð hússins nr. 16 við Aðalstræti. Var hér lag fornra
leifa og virðist mega ætla, að um sé að ræða gólfskán. Greiningin
var gerð í rannsóknarstofu Þjóðminjasafns Dana í Kaupmannahöfn
og ber hún þar númerið K-940. Aldur reyndist 1340 * 100 ár fyrir árið
1950, þ. e. 610 e. Kr. ± 100 ár. Úr laginu kom viðarkolamylsna,
blandin ösku, beinamulningi og jurtaleifum. Greiningin fór fram á
viðarkolunum, sem líklega eru úr birki, svo og á öðrum jurtaleifum.
Kolin verða talin örugg vísbending um mannavist, en jurtaleifarnar
geta hafa verið eldri og hækkað aldur sýnishornsins.
Nú hefur verið gerð ný geislakolsgreining á mannvistarleifum i
Reykjavík og aldursgreindur höggspónn úr evrópsku lerki (sam-
kvæmt umsögn Haralds Ágústssonar viðarfræðings), er fannst með-
al beinaleifa og viðarkurls í mókenndu lagi við suðvesturhorn grunns-
ins fyrir húsinu nr. 4 í Tjarnargötu (Steindórsprent), en hann
var grafinn árið 1944. Leifar þessar voru í um 1.80 m. dýpi. Sýn-
ishornið tók dr. Finnur Guðmundsson fuglafræðingur og veitti hann
okkur góðfúslega leyfi til að nota viðinn til aldursgreiningar.
Við sendum spóninn eðlisfræðistofnun háskólans í Uppsölum, greindi
aldur hans dr. Ingrid Olsson, og er númerið U-2082. Reyndist aldur
spónsins 1140 ± 70 ár fyrir árið 1950, þ. e. 810 ± 70 ár e. Kr. Okkur
þykir einsætt, að mannshöndin hafi unnið viðinn, sem spónn þessi er
úr, mjög snemma í byggðarsögu Reykjavíkur. Báðar aldursákvarð-
anirnar styðjast við það, að helmingatími C 14 sé 5570 ár.
í næsta hefti Árbókar Fornleifafélagsins verður gerð nánari grein
fyrir fornminjum í Revkjavík og aldursákvörðun á þeim.
Þorkett Grímsson og Þorleifur Einarsson.