Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1976, Blaðsíða 1
SIGURÐUR ÞÓRARINSSON
GJÓSKULÖG OG GAMLAR RÚSTIR
fírot úr íslenskri bj'ggðasögu
Grein þessi er að mestu úr erindi sem flutt var í Vís-
indafélagi Islendinga 27. nóv. 1974. S.Þ.
Árið 1974 var þess minnst með ýmsu móti að ellefu aldir voru
liðnar frá upphafi norrænnar byggðar á Islandi. Raunar virðast
fræðimenn alveg sammála um það eitt í þessu sambandi, að ekki hafi
þessi byggð hafist árið 874, ef miða skal við búsetu Ingólfs Arnar-
sonar. Hér skakkar þó ekki svo miklu að máli skipti. Athyglis-
verðara var hversu lítið var í hátíðahöldum ársins minnst á þá sem
námu hér land á undan norrænum mönnum. Enda þótt flestum
fræðimönnum um þessi mál beri víst saman um það, að keltneskir
munkar hafi hér aldrei fjölmennir verið og landnám þeirra í flestu
tilliti litlu skipt fyrir hið norræna landnám, vekur það þó spurningar
sem krefjast svars. Er sú eðlilegust, hvort ekki sé líklegt að þessir
einsetumunkar hafi haft með sér húsdýr, og þá helst geitur og sauðfé,
og þá einnig líklegt að eitthvað af þessum húsdýi’um hafi sloppið úr
vörslu munkanna og tímgast og fjölgað sem villifénaði í landinu
áður en norrænir menn komu á vettvang. Æskilegt væri að geta
svarað þessari spurningu afdráttarlaust játandi eða neitandi. Enn
er þó ekki hægt að staðhæfa meira en það, að ekki hefur enn komið
fram neitt, er bendi til þess að hér hafi verið fyrir villt sauðfé og/eða
geitfé við upphaf norræns landnáms og þessi staðreynd bendir
sterklega til þess, að það hafi a. m. k. ekki verið mikið um slíkan
fénað. Hún bendir einnig til þess, að búseta keltneskra munka hér-
lendis hafi verið bæði fámenn og tiltölulega skammvinn. En þar
með er ekki þvertekið fyrir að eitthvað hafi verið hér af fénaði er
norræn búseta hófst. Hugsanlegt er að frjógreining tengd gjósku-
lagarannsóknum geti gefið eitthvað ákveðnara svar um þetta.
En víkjum nánar að norrænni búsetu á íslandi. Almennt er talið
að landnámi hafi verið lokið, að heita má, fyrir stofnun Alþingis
árið 930 og að fólkinu í landinu hafi haldið áfram að fjölga fram á
miðja 11. öld og jafnvel fram á þá 12. Um það hversu há íbúatalan
hafi orðið á þessum öldum, eru fræðimenn ekki sammála, en flestir