Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1976, Blaðsíða 119
KRISTJÁN ELDJÁRN
MINNISGREINAR ÁRNA MAGNÚSSONAR
UM MERKA KIRKJUGRIPI
Inngangur.
I Landsbókasafni fslands eru varðveitt nokkur smáblöð runnin frá
Árna Magnússyni, Lbs. 268 fol. III, 11, sem á eru minnisgreinar
um merka íslenska kirkjugripi ásamt teikningum af sumum þeirra.
Blöðin bárust safninu úr dánarbúi Björns Jenssonar, kennara við
Lærðaskólann, en áður höfðu þau verið í eigu Jóns Sigurðssonar for-
seta, föðurbróður hans. Augljóslega eru þessi blöð komin úr safni
Árna og hafa þaðan borist til Jóns Sigurðssonar og orðið innlyksa
þar. Fér verður ekki reynt að rekja með hvaða hætti þetta kynni að
hafa gerst, enda skiptir það ekki miklu máli.
Minnisgreinar þessar og uppdrættir eru nokkuð einstök í sinni
röð og eiga skilið að koma fyrir manna sjónir sökum ótvíræðs minja-
fræðilegs gildis. Hér verður aðalatriðið að birta hvort tveggja,
greinar og uppdrætti, en lesmál það, sem greinunum fylgir hverri
um sig, ber að skoða sem litla tilraun til að grafast nokkuð fyrir um
hlutina sem þær fjalla um og nýta fróðleik þeirra í þágu íslenskra
kirkjugriparannsókna og myndskýringarfræði.
Greinarnar eru allar skrifaðar á góðan pappír, í áttablaðabroti
(10,3 X 16,4 sm), ýmist einblöðungar eða tvíblöðungar og minna
að frágangi á þau „octavblöð“, sem Árni Magnússon uppálagði skrif-
urum sínum að nota þegar hann var að koma upp hinu mikla safni
sínu af íslenskum innsiglismyndum (sjá Sigilla islandica I—II,
Magnús Már Lárusson og Jónas Kristjánsson sáu um útgáfuna,
Handritastofnun Islands, Reykjavík 1965—67). Árni lét sér engar
miðaldaminjar óviðkomandi, og vel mætti ímynda sér að þessi blöð
væru dálítill vísir að heimildasafni um merkilega íslenska kirkju-
gripi, sem einhvern tíma hefði hvarflað að honum að koma sér upp.
Skýrasta vitnið um þennan áhuga Árna á gömlum kirkjugripum
eru drög hans að lýsingu Hóladómkirkju og gripa hennar, sjá ísl.
fornbréfasafn III, bls. 606—611.