Fréttablaðið - 21.11.2001, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 21.11.2001, Blaðsíða 14
3 i' i i ) i' i;j~ « «>, c! \ lí!ATT3>V KNATTSPYRNA Hvernig fer leikur Deportivo La Coruna og Arsenal? „Eigum við ekki að segja jafntefli 1-1. Ég hef nú ekki fylgst mikið með þessu núna en þeir eru erfiðir heim að sækja en Arsenal nær þó stigi. Ég held Henry skori fyrirArsenal." Valur Fannar Gíslason, leikmaður Fram EílSO-PJEILP karla Lið Leikir U J T Mörk Stig Haukar 7 7 0 0 192:165 14 Valur 7 6 1 0 199:166 13 Þór A. 8 5 2 1 223:204 12 KA 8 3 2 3 203:195 8 Grótta/KR 7 4 0 3 178:185 8 FH 8 2 3 3 203:199 7 Selfoss 8 3 1 4 218:218 7 UMFA 7 3 1 3 163:163 7 (R 7 3 1 3 154:162 7 HK 7 2 2 3 191:190 6 Stjarnan 8 2 2 4 197:205 6 IBV 8 2 1 5 208:232 5 Fram 7 0 3 4 163:176 3 Víkingur 7 0 1 6 153:185 1 Esso deild karla: Jafntefli á Selfossi handbolti Selfoss tapaði fyrsta stiginu á heimavelli í æsispenn- andi viðureign við Stjörnuna, sem endaði með 29-29 jafntefli í gær. Á Seltjarnarnesi lagði Grótta/KR Víking örugglega, 25-20, og hafði verið yfir allan leikinn. ■ -ivolpar óska eftir heimili Hvolparnir hennar Möndlu eru komnir aldur til að byrja nýtt lif á nýjum heimilum. þeir líkjast mömmunni eru þeir skapgóðir, glaðir og greindir á mælikvarða hunda. Upplýsingar i slma 551 6176. Lægsta vero frá 990 kr. LYFTULEIGAN etí •VESTURVÖR 9* ' S f H I : 5 6 4 3520* • www.lyftuleigan.is • 14 FRÉTTABLAÐIÐ 21. nóvemer 2001 MIÐVIKUDAGUR Meistaradeild Evrópu: Liverpool lá á Anfield knattspyrna Leiknir voru fjórir leikir í A og B riðlum Meistara- deildar Evrópu í gær og voru tveir þeirra stórleikir. Á Olymp- íuleikvanginum í Miinchen mættu heimamenn í Bayern Eng- landsmeisturum Man. Utd. og á Anfield í Liverpool komu Bör- sungar í heimsókn. Leikur Bayern Miinchen og Man. Utd var tíðindalítill framan af. Núverandi meistarar Bayern byrjuðu betur en Manchester, meistarar 1999. Það var marka- laust í hálfleik en Denis Irwin hafði þá bjargað af línu Manchester eftir skalla frá Has- an Salihamidzic. Ruud van Ni- stelrooy skoraði fyrsta mark leiksins af stuttu færi eftir send- ingu frá Michael Silvestre. Manchester hresstist við þetta og átti Roy Keane m.a. hörkuskot í þverslá, rétt áður en Paulo Sergio náði að jafna í 1-1 fyrir Bayern og endaði leikurinn þan- nig Á Anfield náði Liverpool for- ystu um miðjan fyrri hálfleik þegar Michael Owen lyfti boltan- um yfir Roberto Bonano, mark- vörð Barcelona. Patrick Kluivert sá hinsvegar um að jafna rétt fyrir hálfleik og komu Börsung- ar síðan mun sterkari til leiks eftir hlé. Bæði Rochenbach og Overmars skoruðu mörk fyrir liðið og tryggði því 3-1 sigur. Tyrkneska liðið Galatasary náði mikilvægri forystu á ítölsku meistarana AS Roma þegar Sebastien Pérez skoraði af stuttu færi um miðjan fyrri hálfleik. Liðið hafði ekki tapað heimaleik í BÖRSUNGASIGUR Leikmaður Barcelona, Luis En- rice, smeygir sér mjúklega framhjá Danny Murphy hjá Liverpool á Anfield í gær. Barcelona vann með þremur mörk- um gegn einu. mettíma og ekki féll metið í gær. Fyrirliði Nantes, Erwin Sánchez, tók skot af löngu færi á mark Boavista, snemma í fyrri hálfleik. Markvörðurinn Mickael Landreau lét blekkjast af snún- ingi boltans og missti hann því í netið í eina skiptið í leiknum. ■ LANDSLIÐSMAÐUR Pétur Marteinsson hefur verið fastamaður í (slenska landsliðinu undanfarið. Alls hefur hann leikið 25 landsleiki með aðalliðinu og 20 ungmennalandsleiki. Þýsk og austurrísk lid með tilbúna samninga Pétur Hafliði Marteinsson gengur til liðs við Stoke 1. janúar. Hann braut ristarbein á æfingu fyrir skömmu. Hann segist tilbúinn að leika hvaða stöðu sem er og jafnvel í markinu ef Guðjón Þórðarson óski eftir því. knattspyrna íslenski landsliðs- maðurinn Pétur Hafliði Marteins- son hefur loks skrifað undir tvegg- ja og hálfs árs samning við íslend- ingaliðið Stoke. Pétur, sem lék með Stabæk í Noregi síðastliðin þrjú ár, gengur formlega til liðs við enska 2. deildar liðið 1. janúar, en auk Stoke voru þýsk og austurrísk efstu deildar lið á eftir honum. „Ég er mjög sáttur við þennan samning,“ sagði Pétur. „Eg met það mikils að Guðjón (Þórðarson, framkvæmdastjóri Stoke), sýndi mér þennan áhuga og hlakka mikið til að vinna með honum aftur eins og í landsliðinu. Ég hafði um nokk- ur lið að velja en lið í Þýskalandi og Austurríki voru með samninga tilbúna fyrir mig. Mér fannst bara heildarlausnin á Stoke pakkanum mest spennandi." Samkvæmt norskum fjölmiðl- um tafðist samningagerðin vegna þess að Pétur vildi setja ákvæði inn í samninginn um að hann yrði laus frá félaginu ef það ynni sér ekki sæti í 1. deild. Aðspurður sagði Pétur að þetta væri úr lausu lofti gripið, en vildi ekki tjá sig um einstök atriði í samningnum. Pétur sagði að Stoke þyrfti ekki að greiða Stabæk neitt fyrir hann, því hann yrði samningslaus um áramótin. Hann sagðist hafa meiðst lítillega á æfingu fyrir skömmu. Hann hefði misstigið sig og brotið lítið bein í ristinni og því hefði það ekki haft neitt upp á sig fyrir Stoke að fá hann strax, því hann yrði frá keppni í rúman mán- uð. Ef hann hefði ekki meiðst hefði Stoke hugsanlega viljað fá hann strax og þá þurft að greiða Stabæk einhvern pening. Pétur sagðist hafa verið í sam- bandi við hina íslendingana hjá Stoke, sem hefðu borið félaginu vel söguna. Þeir hefðu sagt að sem atvinnumaður í knattspyrnu þyrfti maður að prufa að leika í Englandi því þar væri stemmningin sérstök. „Þetta er geysilega spennandi. Þrátt fyrir að 2. deildin í Englandi sé ekki hátt skrifuð í heimsfótbolt- anum þá er Stoke stór klúbbur með mikla sögu og er nú í góðri stöðu að komast upp um deild. Mér skilst að liðið sé með fínan mannskap og ég vona bara að ég geti haft þar eitthvað að segja.“ Pétur er fjölhæfur leikmaður og getur bæði leikið í vörn og á Maðurinn og ferillinn NAFN: Pétur Hafliði Marteinsson FÆDDUR: 14. júlí 1973 FERILL: Leiknir 1979 Fram 1979-1991 Leiftur 1992- 1993 Fram 1994- 1995 Hammarby 1996-1998 Stabæk 1999-2001 Stoke 2002-? LANDSLEIKIR: 25 A 20 U21 EIGINKONA: Unnur Valdimars- dóttir GÆLUDÝR: Hundurinn Offi ÁHUGAMÁL: Samfélagsmál, listir, tónlist og bíómyndir UPPÁHALDS LEIKARI: Rúnar Freyr Gíslason UPPÁHALDS HLJÓMSVEIT: Bítlarnir BESTI KNATTSPYRNUMAÐUR- INN: Alessandro Del Piero miðjunni. Hann sagðist í raun vera sama hvaða stöðu Guðjón myndi láta hann leika, hann yrði bara ánægður með að vera í liðinu. „Það kemur bara ljós hvar mað- ur passar best inn í þetta og hvar maður kemur að mestum notum. Ef hann vill setja á mig mark- mannshanska þá bara geri ég það. Leikurinn er skemmtilegur og það skiptir ekki öllu máli hvar maður spilar." trausti@frettabladid.ís Marteinn Geirsson um son sinn: Hann er kominn í Mekka fótboltans knattspyrna „Mér líst bara ágæt- lega á þetta. Ég talaði seinast við hann í morgun og hann er nokk- uð sáttur, fyrir utan óhappið sem hann varð fyrir um helg- ina,“ sagði Marteinn Geirs- son, fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu og faðir Péturs Hafliða Marteinssonar, þegar Fréttablaðið spurði hann í gær út í nýgerðan samning Péturs við Stoke City. „Hann er kominn í Mekka fót- boltans. Það má kannski segja að hann sé kominn út í gluggann því það er mikið fylgst með enska boltanum og ef Stoke stendur sig vel, fer alla leið eins og ætlunin er, þá lítur þetta ansi vel út.“ Áðspurður hvort hann teldi að Pétur Hafliði ætti eftir að ná lengra sagði Marteinn. „Það fer bara eftir honum og hvað hann ætlar sér. Ef hann ætlar sér hef ég trú á því að hann geri það. í dag segist hann ætla að vera í þrjú ár í viðbót en það getur allt breyst." Marteinn segir þá feðga vera aðdáendur Manchester United og segist nú styttast í að hann heimsæki heimavöll liðsins. „Nú fylgist maður meira með Stoke að sjálfsögðu. Ég hef aldrei farið á Old 'Ihafford en nú styttist líklega í það. Ég sé samt ekki Stoke spila þar næstu 2-3 árin nema kannski í bikarkeppn- inni.“ ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.