Alþýðublaðið - 26.05.1960, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 26.05.1960, Blaðsíða 1
tHMMD 41. árg. — Fimmtudagur 26. ma£ 1860 — 118. tbl. AÐALFUNDUR Sam- vinnufélagsins Hreyfils var haldinn sl. mánudag. Var fundurinn langur, enda deilur miklar með bílstjórum. Einkum var mikið rifizt um talstöðv ar, er fráfarandi stjórn félagsins hafði fest kaup á í Danmörku, án þess að bera það mál undir fé- lagsmenn. Kommúnistar hafa farið með völd í Hreyfli undanfarið. svarfur kéngur. SAMKVÆMT skákregl- unum ætti svarti kóngur- inn hérna á myndinna nú að vera mát, en Nat King Cole, hljómlistarmaðurinn * heimsfrægi, sýnist ekki aldeMis á þeim buxunum. Hann er að heilsa Eliza- beth drottningu, sem kom á hljómleika hans í Lond- on. Skyldu tveir menn nú ganga úx stjórn félagsins. Voru þeir báð ir í kjöri á ný, en annar þeirra, kommúnistinn Jón Einarsson, féll fýrir Ingimundi' Ingimund- arsyni_ Var sú kosning mikið á- fall fyrir kommúnista í félag- inu. Töpuðu kommúnistar síðan öllum kosningum eftir það. talstöðvarnar Mikið var rætt á fundinum um talstöðvakaup fráfarandi stjórnar Hafðf stjórn félagsins fest kaup á 100 talstöðvum í Danmörku og gert bindandi samninga um lántökur vegna kaupanna án þess að bera málið undi'r félagsmenn_ Var þar um 1—2ja millj. kr. lán að ræða. Mjög eru skiptar skoðanir með- al bílstjóra um ágæti þessara talstöðva og því ámælisverðara þykir það meðal félagsmanna, að stjórn félagsins skyldi ekki bera svo stórt mál undir félags- fund. Gert var ráð fyri'r að hver talstöð kostaði 20 þús. kr. Málið varð ekki útrætt á fundinum. Göður afli í Keflavík Keflavík í gær. HEILDARAFLI bátanna hér á vertíðinni hefur orðið 27.291 lest hjá 56 bátum í 3411 róðr- X!m. í fyrra nam aflinn 24.639 lestum í 3039 róðrum. Aflahæst ur var Askur, skipstjóri Angan- týr Guðmundsson með 1071 lest í 90 róðrum. Næsthæstur var Ólafur Magnússon, skipstjóri Óskar Ingibergsson með 1000 lestir í 95 róðrum. Og þriðji var Báran, skipstjóri Jón Sæmunds son, með 821 lesí í 88 róðrum. - sagði rit stjórinn ÞETTA er líkt meff hermennsku og blaffamennsku: Þegar ritstjórar fá snjallar hugmyndir (aff þeirrá dómi), kalla fyrir sig blaffamann og segja: „Þú þarft aff skreppa suff- ur á Keflavíkurflugvöll, þjóta urn í þotH og skrifa grein um ævintýr- xð“, — ja, þá er blaffamaffurinn í sama bát og óbreytti dátinn: hann verffur aff halda suffur í Keflavík hvort sem honum líkar betur effk verr og gerast þotuflugmaffur, þó aff hann megi ekki um þotur hugsa án þess aff fá gæsahúð. — Og hér hafiff þiff í hnotskurn skýringuna á því, hvernig blaffakona viff AÍ- þýffublaffiff varff fyrsti íslenzki kvenmaffurinn sem flýgur í orustu- þotu. Hún heitir Hólmfríffur Gunn- arsdóttir. Hún flaug meff ^VIan J. Grill flugkaptein, sem hér er aff lagfæra flugbúninginn, sem flug- herinn lánaffi henni til flugsins. HÚN SEGIR FRÁ FLUGINU í OPNUNNI f DAG OG ÞAR ERU FLEIRI MYNDIR. -- (Ljósm. varnarliffsins). FUNDI Landssambands íslenzkra útvegsmanna lauk um kl. 1 í fyrrinótt. Varð fundurinn allsögu- legur undir lokin og mik- il átök um tillögur þær, er fram voru komnar. — Mikil gagnrýni kom fram á fiskverðið, en stjórn LÍÚ hótaði að segja af sér ef nokkur tillaga yrði sam þykkt er fæli í sér mót- mæli gegn því. Samþykkt var tillaga um það, að framvegis skuli aldrei hefja róðra nema fiskverðið liggi á- kveðið fyrir áður. 'Voru útvegs- menn sammála um það, að ó- fært væri að hringla með fisk- verðið eins og gert hefði verið í vetur, er LÍÚ tilkynnti í fyrstu hærra verð en endanlega varð síðan ofan á. TILLAGA DREGIN TIL BAKA. Miklar umræður urðu um til- lögu, er stjórn LÍÚ leit á sem mótmæli við gildar.di fiskverð, og ákvörðunina um það. Hótaði stjórn LÍÚ að segja af sér, ef tillaga þessi yiði samþykkt, og var tillagan þá borin til baka. Litlar umræður urðu um síld- arverðið, en þó kom það fram, að útvegsmönnum þótti verð bræðslusíldar of lágt. Ógurlegf tjón i jarð skjálftum

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.