Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.06.1895, Blaðsíða 2
122
sú, að gagnfræða-kermslumn yrði liætt á
Norðurlandi, heldur ætti þá gagnfræða-
kennslan í Flensborg að hætta.
Ný bœjarstjírrnarlög fyrir Reylcjavil',
sern stefna að því, að veita fleirum kosrr-
ingarrétt til bæjarstjórnar, en áður hafa
haft hann.
Önnur stjórnar-frumvörp eru öll þýð-
ingarminni.
---—c------------
Alþingis kosning.
Kjörfundur var haldinn í Hafnarfirði
15. júní þ. á., til þess að kjósa alþingis-
mann í stað síra Þórarins heitins Böðvars-
sonar, og voru þar 4 í kjöri: Björn búfr.
Bjarnarson á Iteykjahvoli, Hannes land-
ritari Hafstein í Reykjavik, Magniis kaup-
maður Blöndal í Hafnarfirði og hóraðs-
læknir ÞóriSur Thoroddsen í Keflavík.
— Yið fyrstu kosninguna hlaut enginn
nægan atkvæða-fjölda: Þ. Tli. 141 atkv.,
H. Hafst. 83, Bj. Bj. 38 og M. Bl. 37;
varð því að endurtaka kosninguna,, og
lýstu þeir Björn og Magnús því þá yfir,
að þeir drægju sig í hlé, kváðust myndu
gefa Þ. Th. atkvæði sín, til þess að ekki
ykist landshöfðingja-liðið á þingi, og skor-
uðu á kjósendur sína að gera slíkt hið
sama; var því að eins milli þeirra Þórð-
ar og Hannesar að velja, og fóru svo
leikar, að Þórður Thoroddsen var kosinn
alþingismaður kjördæmisins með 207
atkv., en Hannes landritari Hafstein fókk
að eins 85 atkv.
Kosning þessi er hvívetna talin mesti
ósigur fyrir landshöfðingja, og það því
fremur sem Gullbr. & Kjósarsýsla hefir
einatt verið talin fremur íhaldssamt kjör-
dæmi; en öllum iná of bjóða, og er það
vel, að augu sem flestra opnist, svo að
þeir læri rétt að meta stjórnarstefnu lands-
höfðingja; þurfti því þó ekki um að kenna,
að ekki væri gert allt, sem hægt var, til
þess að afla Hannesi fylgis, því að bæði
var hann sjálfur á einlægu ferðalagi fram
og aptur um kjördæinið, nærfellt hálfs-
mánaðar-tima á undan kosningunni, og
eins voru þeir félagar landritarans: W.
Ó. Breufjörð kaupmaður, Kr. 0. Þorgríms-
son bóksali, Þorleifur Bjarnason (bróðir
dánumannsins í Stykkishólmi) o. fl. á
harða spretti gegnum kjördæmið fram og
aptur í fleiri daga, til þess að telja um
fyrir kjósendunum, svo að fá munu þess
dæmi, að kosning hafi yerið sótt með
ÞJOÐ VIT.JINK UNOI.
öllu meira kappi hér á landi; og þegar
til kjörfundar-tímans kom höfðu þeir
fólagar landritarans leigt gufubátinn
„Elín“, til þess að flytja kjósendur Hann-
esar ókeypis á kjörfundarstaðinn; en þrátt
fyrir nokkurra hundraða króna tilkostnað,
og óminnilegan gauragang, varð árang-
urinn af starfi þeirra landshöfðingja-liða
ekki burðugri, en að ofan segir, og hafa
kosninga-úrslit þessi hvívetna mælzt injög
vel fyrir. — Er það mjög lofsvert, hve
kjörfundur þessi var vel sóttur; í sumuin
fjarlægustu hreppunuin, þar sem fylgis-
menn ÞóriJar Thoroddsen áttu heima, sátu
ekki neina 1—2 kjósendur heima, og
höfðu þeir þó engan gufubát að fleyta
sér á til kjörfundarins, með því að til-
raunir Þórðar, að fá gufubátinn „Odda
leigðan austan af Eyrarbakka, urðu á-
rangurslausar, eða voru hindraðar af
fylgismönnuin Hannesar.
---
Annar Nói. A höfninni í San Francisko býr
einsetumaður einn, Richard Smith að nafni, i
gömlum og hrörlegum skips-garmi, og heldur
hann, að liann sé annar Nói. Hann segir, að
San Francisko og Oakland muni sökkva í sjóinn
vegna guðleysis íbúanna, og að að eins tkeinir
útvaldir muni komast urn borð til hans, og
fprða þannig lífi sínu. E>að er innblástur heilags
anda, sem hefir frætt hann k þessu, segirhann;
og hann á að búa i skipi þessu, sem mun varð-
veita hann frá tortímingu, þar til Messías kemur,
og tilkynnir lionum raðstafanir sínar. Hann
gengur ætið berhöfðaður og berfættur. Hann
hefir alla tið verið ókvæntur, er nú 70 ára að
aldri, og hefir verið einsetumaður í siðastl. 30
ár. Það er trúin, sem heldur við i honum lífinu;
að öðrum kosti myndi hann fyrir iöngu vera
sálaður úr hungri. Fiskveiðar gæti hann haft
nógar á skipi sínu, en hann getur engrar fæðu
neytt úr dýraríkinu, og borðar því ekki annað,
en pönnukökur og ávexti. — Aður en hann
gerðist einsetumaður, ferðaðist hann fram og
aptur um ríkið, og seldi guðsorðabækur, er hann
ók ávallt með sór í hjólbörum.
Telefón stöðvar i Bandaríkjunum voru 1.
janúar þ. á. 582,506 að tölu, eða þvi sem næst
einar stöðvar fyrir hverja 100 íbúa.
Keisarinn í Kína hefir nýlega numið úr gildi
hið eldgamla kkvæði um, að allir þeir, er leggðu
á fiótta, þegar ófriður væri, skyldu tafarlaust
hálshöggnir. Það hefir sem sé sýnt sig í þessum
ný afstaðna ófrið milh Japansmanna og Kín-
verja, að það var ekki svo auðvelt að fylgja því
ákvæði.
LandsyfiiTéttardómur í
máli Ólafs húsmanns Ólafssonar á ísafirði,
sem Lárus „dánuma9ur“ var lengst að
IV, 31.
eltast við, út af framburði lians í máli
Skida Thoroddsen, var loks upp kveðinn
10. júní þ. á., og var hr. Ól. ÓJafsson,
sem vita rnátti, dlgjörlega sýknaður, í stað
þess að Lárus haíði dæmt hann frá æru
(í vatns og brauðs hegningu!!), sem kunn-
ugt er orðið.
En málskostnaðinum í máli þessu hefir
landsyfirrétturinn skipt á milli þeirra
vinanna Ólafs og Lárusar, með því að
Lárus var dæmdur til að borga allan
áfrýjunar-kostnaðinn, þegar máli þessu
var áfrýjað í fyrra skiptið, og dómur
Lárusar ómerktur, vegna ýmsrar lögleysu
hans.
En hvers vegna ekki að lofa Lárusi
að borga einum brúsann?
Það hefði þó mörgum sýnzt maklegra,
sem þekkja allar aðfarir hans í öllum
þessum eltinga-leik gegn heiðvirðu og
mikils-metnu gamalmenni.
II- Ivr. Friðrilisson, yfir-
kennari við lærða skólann í Reykjavík,
hefir sótt um lausn frá embætti sínu með
eptirlaunum frá 1. okt. þ. á. að telja.
Sviptur embætti. Samkvæmt
fyrirheiti ráðherrans í bréfi 22. apríl þ.
á., og íýrir velviljaða milligöngu Magn-
úsar Stephensens, hefir ritstjóri blaðs þessa
31. maí þ. á. verið „leystur“ frá embætti
með eptirlaunum, og ætlar stjórnin að
ákveða lionum eptirlaunin eptir áratölu
þeirri, er liann gegndi embætti, enda
þótt þetta sýnist ríða í beinan bága við
stjórnarskrána og eptirlaunalögin. — En
trúlegt er, að þá Magnits og NeUemann
hafi ekkert langað til þess, að leggja
eptirlaunafrv. fyrir þingið, eins og mál
þetta er í garðinn búið af þeirra hendi,
enda munu og eptirlaunin með þessu
móti þykja nógu há fyrir ekki betur
„séðan“ mann, en ritstjóri blaðs þessa
er hjá stjórninni.
Skipstrand. Eitt af kaupför-
um Gránufélagsins, „Christine“ að nafni.
strandaði í nánd við Siglufjörð í síðastl,
maímánuði, fermt 130 skpd. af saltfiski.
T3átstapi varð á Eyjafirði 17. maí
síðastl., og drukknuðu þrír menn.
Fulltrúakosningar til
• Pingvallaíundar. Aukkosn-