Lögberg - 20.07.1933, Blaðsíða 1

Lögberg - 20.07.1933, Blaðsíða 1
46. ARGA.NGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 20. JÚLÍ' 1933 NÚMER 29 Framboð við alþingiskosningar 16. júlí Þó a<5 framboÖsfrestur sé eigi út runinn fyr en kl. 12. á hádegi í dag má gera ráð fyrir, að flest eða öll framboÖ hafi veriÖ fram komin í gær. Hér verður skýrt frá þeim fram- boðum, sem kunn voru í kærkvöldi. (Skammstafanir: S — Sjálfstæðis- flokkur. F = Framsóknarflokkur. J = Jafnaðarmenn. K = Komm- únistar). Reykjavik: Þar verða þrir listar í kjöri: A-listi Alþýðuflokksins: Héðinn Valdimarsson, Sigurjón Á. Ólafsson, Jónína Jónatansdóttir og Sigurður Ólafsson., B-listi Kommúnistaflokksins: Brynjólfur Bjarnason, Guðjón Benediktsson, Stefán Pétursson, og GuSbrandur Guðmundsson. C-listi Sjálfstæðisflokksins: Jakob Möller, Magnús Jónsson, Pétur Halldórsson og Tóhann G. Möller. Hafnarf jörður: Bjarni Snæ- björnsson (S), Kjartan Ólafsson (J), Björn Bjarnason (K). Gullbringu og Kjósarsýslu: Ól- afur Thors (S), Klemens Jónsson kennari (F), Guðbrandur Jónsson (J), Hjörtur Helgason (K). Borgarfjarðarsýsla: Pétur Otte- sen (S), Jón Hannesson (F), Sig- urjón Jónsson (J). Mýrasýsla: Torfi Hjartarson (S), Bjarni Ásgeirsson (F), Matt- hias Guðbjartsson (K). Snæfellsness- og Hnappadals- sýsla: Thor Thors (S), Hannes Jónsson (F), Jón Baldvinsson (J). Ennfremur: Arthur Alexander Guðmundsson og Óskar Clausen. Dalasýsla: Þorsteinn Þorsteins- son sýslum. (S), Þorsteinn Briem (F). Barðastrandarsýsla: Sigurður Kristjánsson (S), Bergur Jónsson (F), Páll Þorbjarnarson (J), An- drés Straumland (K). Vestur-ísafjarðarsýsla: Guðm. Benediktsson bæjargjaldkeri (S), Ásg. Ásgeirsson (F), Gunnar Magnúss (J). • ísafjörður: Jóhann Þorsteinsson (S), Finnur Jónsson (J), Jón Rafnsson (K). Norður ísafjarðarsýsla: Jón A. Jónsson (S), Vilmundur Jónsson (J) . Strandasýsla: Tryggvi Þórhalls- son (F). Vestur - Húnavatnssýsla: Þórar- inn Jónsson (S), Hannes Jónsson (F), Ingólfur Gunnlaugsson (K). Austur-Húnavatnssýsla: Jón Pálmason, Akri (S), Guðmundur Ólafsson (F), Erling Ellingsen (K) . Skagafjarðarsýsla: Jón Sigurðs- son, Reynistað (S), Magnús Guð- mundsson (S), Brynleifur Tobías- son (F), Steingrimur Steinþórsson (F), Guðjón B. J’aldvinsson (J), Elísabet Eiríksdóttir (K), Pétur Eaxdal (K). Eyjafjarðarsýsla: Einar Jónas- son (S), Garðar Þorsteinsson (S), Bernharð Stefánsson (F), Einar Árnason (F), Felix Guðmundsson (J)> Jóhann Guðmundsson (J), Gunnar Jóhannesson '(K), Stein- grímur Aðalsteinsson (K). Akureyri: Guðbrandur ísberg (S), Árni Jóhanhsson (F), Stefán Jóh. Stefánsson (J), Einar Olgeirs- son (K). Suður-Þingeyjarsýsla: Kári Sig- urjónsson (S), íngólfur Bjarnason (F), Aðalbjörn Pétursson (K), Jón H. Þorbergsson (þjóðernis- hreyfing). Norður-Þingeyjarsýsla: Júlíus Havsteen sýslum. (S), Björn Kristjánsson (F). Norður-MúlasýslaGísli Helgason (S), ,Jón Sveinsson (S), Halldór Stefánsson (F), Páll Hermanns- son (F), Gunnar Benediktsson (K), Sigurður Árnason (K). Seyðisf jörður: Lárus Jóhannesson (S), Haraldur Guðmundsson (J). Suður-Múlasýsla: Jón Pálsson dýralæknir (S), Magnús Gíslason sýslum. (S), Ingvar Pálmason (F) (óvíst var hver yrði meö Ingvari), Árni Ágústsson (J), Jónas Guð- mundsson (J). Austur-Skaftafellssýsla:’ Stefán Jónsson, Hlið (S), Þorleifur Jóns- son (F), Eiríkur Helgason (J). Vestur-Skaftafeissýsla: Gísli Sveinsson (S), Lárus Helgason (F)- Rangárvallasýsla: Jón Ólafsson (S), Pétur Magnússon (S), Páll Zoj)haniasson (F), Sveinbjörn Högnason (F). Westmannaeyjar: Jóhann Þ. Jó- sefsson (S), Guðmundur Péturs- son (J), ísleifur Högnason (K). Arnessýsla: Eirikur Einarsson (S), Lúðvík Norðdal (S), Jörund- ur Brynjólfsson (F), Magnús Torfason (F), Einar Magnússon- (J), Ingimar Jónsson (J), Haukur Björnsson (K), Magnús Magnús- son (K). —Mbl. Nýja lánið Fylkisstjórnin í Manitoba hefir tekið nýtt lán, eins og getið var um hér í blaðinu fyrir skommu að til stæði, að upphæð $3,500,000. Þessi skuldabréf fylkisins voru öll seld á fáeinum dögum, sem sýnir að þeir sem peninga hafa eru ekki hræddir við aS lána Manitobafylki og er það út af fyrir^sig gott og blessað. Er þetta lán tekið til að standa straum af þeim útgjöldum fylkisins, sem beint leiðir af atvinnuleysinu. Hafði fylkið ekki getað greitt sveitafélög- unum sumum sinn hluta af atvinnu- leysisstyrknum, og skuldaði þar t. d. Winnipeg bæ miljón dollara. Fær nú bærinn þessa miklu fjárupphæð og sveitarfélögin^það sem þeim ber. En fylkið verður að greiða háar rentur af þessu fé, kostar fylkið raunverúlega 6%, eða rúmlega það í næstu 25 ár. Reyndi fylkiS að fá þetta fé frá sambandsstjórninni, því hún getur fengið peningalán með betri kjörum heldur en fylkin. En það gat með engu móti gengið og varð fylkið því að leita sjálft beint til peningamannanna og greiða hærri rentur heldur en góðu hófi gegnir. Er Hitler Gyðingur? Það er nú komið upp úr kafinu að kanslarinn þýski, Adolf Hitler, sé Gyðingur, eftir því sem haft er eftir blaði einu í Austurríki. Þyk- ist blaðið hafa órækar sannanir fyr- ir því, aS Hitler sé af Gyðingafjöl- skyldu, sem mann fram af manni liafi verið í Austurríki. Var áður alkunnugt, að þar er hann fæddur, en fluttist ungur til Þýskalands. Það hefir lengi verið alkunnugt, að Hitler er litill vinur Gyðinganna, þó sögurnar af meðferð Þjóðverja á Gyðingum, síðan Hitler komst til valda, séu kannske nokkuð orðum auknar. “Frændur eru frændum verstir,” segja menn, og sannast það á Hi(ler, ef hér er rétt sagt frá um ætterni hans. Fylkiskosningar Almennar fylkiskosningar fara fram í Nova Scotia, hinn 22. ágúst. Þar hefir íhaldsf lokkurinn völdin og hefir haft síðan 1925. Hafði frjáls- lyndi flokkurinn þá setið að völd- um i Nova Scotia í 43 ár. Ihalds- flokkurinn liefir litinn meirihluta á þinginu. Meiri afgangur Uppskeruárið, eins og það er kallað, endar 31. þ. m. Hinn 1. ágúst byrjar nýtt uppskeruár. Eftir því sem séð verður nú, er meiri af- gangur af hveiti i Canada, eftir þetta uppskeruár, heldur en nokk- urntíma áður hefir verið, eða hundrað og níutíu miljónir mæla. Hér í Sléttufylkjunum nam hveiti- uppskeran á uppskeruárinu, sem nú er að enda 420,000,000 mæla og i öllu landinu um 440,000,000 mæla. I þetta sinn verður uppskeran áreið- anlega miklu minni heldur en í fýrra. Hvað mikið minni er vitan- lega ekki hægt að segja enn, en hald- ið er nú, að þar muni muna meira en fjórðaparti. Kemur það fyrst og fremst til af því, að sáð hefir verið í færri ekrur en í fyrra, en hitt veldur þó meiru, að tiðin hefir víða verið óhagstæð, of miklir hitar og þurkar. Og svo eru engisprett- urnar að gera töluvert að því að draga úr uppskerunni. Bankarán Bankarán var framið i Winnipeg á mánudaginn. Það var útibú Nova Scotia bankans á Stadacona Ave., Elmwood, sem rænt þar í þetta sinn. Ræningjarnir voru þrir, en í bank- anum var aðeins bankastjórinn H. W. Johnstone og bókhaldarinn, sem er íslenzk stúlka, Miss Ágústa Brynjólfson. Var hér höfð sama aðferð eins og vanalega, að þau voru rekin inn í öryggisskáp, en ræningjarnir létu greipar sópa um peningana og fóru svo sína leiN Sagt er að þeir hafi náð þarna um $2,000. V erkalaunaskatturinn Þessum 2% skatti, sem oft hefir verið minst á hér í blaðinu, var í fyrstu heldur illa tekið af bæjar- stjórninni í Winnipeg. Héldu sum- ir bæjarráðsmennirnir að hann væri ólöglegur og vildu ekkert hafa með hann að gera. Nú hafa allir bæjar- ráðsmennirnir, að því er virðist, nema kannske Flye, sannfærst um að skatturinn muni vera fyllilega lögmætur, og hefir bæjarstjórnin nú ákveðið, að skatturinn skuli inn- kallaður af verkamönnum bæjarins og borgaður fylkisstjórninni eins og lög standa til. Uppþot í Winnipeg Margir meiddir. Samkomulagið er ekki alt af nærri gott milli Austur-Evrópufólksins, sem heima á í Norður-Winnipeg, og á sunnudagskveldið lenti hreint og beint í áflogum og barsmíðum milli þessa fólks. Úkraníumenn hafa einhvers konar þjóðræknisfélag sín á milli'og var það félag að halda fund á sunnudagskveldið í sam- komuhúsi sem því tilheyrir og er á strætamótum Flora Ave. og Mc- Kenzie Str. \’oru þar um sex hundr- uð manna. Voru þarna kommúnist- ar margir, eftir bví sem sagan seg- ir, og gerðu þeir hávaða mikinn og gauragang þegar Dr. Mandryka, sem var aðalræðumaðurinn á fund- inum, var að f lytja sitt erindi. Lenti þá þegar í bardaga og var barist með stólum og hverju öðru sem hönd á festi. Meiddust þarna margir meira og minna, en þó engir svo niikið, að flytja þyrfti þá á sjúkrahús. Þrír lögreglumenn vortt þarna viðstadd- ir, en gátu við ekkert ráðið. Varð því að senda marga fleiri lögreglu- menn til að skakka leikinn. Utan frá voru allir gluggar á einni hlið fund- arhússins brotnir með grjótkasti. Frá Rómaborg til Chicago Italski flugflotinn, 24 loftskip og 96 menn, er kominn til Chicago. Gekk þessi langa flugferð að öllii leyti ágætlega, nema hvað eitt flug- skipið laskaðist eitthvað og einn af mönnunum lét lífið í Amsterdam. Er það eina óhappið, sem fyrir kom á þessari löngu ílugleið, sem er 6,100 milur. Nokkra viðdvöl hafði flotinn á írlandi og í Reykjavík; var hann hér um bil viku og lítur út fyrir að það hafi aðallega verið vegna þoku á Atlantshafinu. Frá Reykjavík var flogið í einu til Labrador, og er það lengsti áfang- inn á leiðinni. Þaðan til New iBrunswick, þá til Montreal og svo til Chicago. Frá því að loftflot- inn fór frá ítalíu og þangað til hann lenti í Chicago voru einir 16 dagar, en á flugi yar hann ekki nema 47J4 klukkustund. Foringi þessarar farar er, eins og kunnugt er, Italo Balbo, hershöfð- ingi og ráðherra á ítalíu. Var hon- um alstaðar tekið með fögnuði, og félögum hans, hvar sem komið var. Þar á meðal og ekki sizt í Reykja- vík. Höfum vér í Montreal blaði séð all-langt' skeyti frá Reykjavík, dagsett 6. júli, þar sem nokkuð er sagt frá komu flugflotans þangað. Flugflotinn settist á sjóinn þar sem Vatnagarðar heita, rétt innan við Reykjavík. Hafði honum þar fyrirfram verið ætlaður staður, og ýmsar umbætur gerðar. Var þar mikill mannf jöldi saman kominn og hafði verið frá því fyrst sást til flotans. Mótorbátar voru til stað- ar til að flytja flugmennina í land. Þar var forsætisráðherrann, Ásgeir Ásgeirsson og frú hans og Jón Þor- láksson borgarstjóri í Reykjavík, til að taka á móti Balbo hershöfðingja og mönnum hans og bjóða þá vel- kotnna. Sex ára gömul dóttir for- sætisráðherrans gaf Balbo blóm- vönd og hann kysti hana fyrir. Þeg- ar móttöku athöfninni var lokið voru Italirnir fluttir í bílum inn í Reykjavík og alstaðar var margt fólk meðfram brautinni, sem fagn- aði þeim Sem bezt það kunni. Ital- arnir gistu á Hotel Borg, þar sem þeim fyrirfram hafði verið búinn gististaðuf. Fréttin getur þess enn fremur, að til standi að foringjum flugflotans verði haldin veizla og að stjórnin hafi útvegar italskt vín til að gæða þeim á. Er þessi flugferð Italanna nú þeg- ar orðin mikil fræðarför og verður það þó enn meir, ef þeim hepnast að komast aftur heilu og höldnu heim til ítalíu, sem vonandi verður. Eru þeir nú á förum til New York og Washington. TEtlar Balbo að hitta Roosevelt forseta og bera honum kveðju frá Mussolini. Tólf vinnudagar Verkamenn C.P.R. félagsins, þeir, sem vinna á Weston verkstæð- inu hér vestan við borgina, hafa nú i ár unnið tíu daga á mánuði, að jafnaði. En þennan mánuðinn vinna þeir tólf daga. Það lítur því út fyr1 ir að þar sé eitthvað dálítið meira að gera, heldur en að undanförnu. Kannske er þetta vottur um aukna atvinnu og betri tíma, þó í litlu sé. Yfir dollar í fyrsta sinn siðan í ágústmánuði 1930, komst maí hveiti á Winnipeg markaðinum upp í dollar mælirinn, eða rúmlega þaS, $1.02(4, í vikunni sem leið. Eftirspurnin var áköf og margir hafa orðið til að kaupa. Veldur hér líklega miklu um, að uppskeruhorfur í Vestur-Canada eru ekki nærri góðar og heldur ekki yfirleitt í Bandarikjunum. íslenzkt útvarp Morgunblaðið i Reykjavík skýrir frá alllöngu viðtali, sem það hefir átt við Mr. Ásmund P. Jóhannsson, sem nú er á íslandi. Það sem blaðið hefir eftir Mr. Jóhannsson er aðal- lega um almenn mál hér vestra. En þar er lika vikið að málum X’estur- íslendinga og þá sérstaklega Þjóð- ræknisfélaginu. Segir Mr. Jóhanns- son að því vegni sífelt betur og bet- ur, og að það hafi nú ýms nýmæli með höndum. “Eitt er það m. a. að gangast íyrir því að endurvarpað yrði vestra, íslenzku útvarpi nokkr- um sinnum á ári. Hefir þingmaður Wjinnipeg, W. W. Kennedy lofað stuðningi sínum við það mál.” Prestastefnan 1933 Dagana 22.—24. þ. m. var presta- stefnan haldin hér í bæ og hófst með guðsþjónusfu í dómkirkjunni kl. 1 siðdegis 22. júni og eftirfarandi altarisgöngu sýndóuspresta. Séra Björn Magnússon á Borg prédik- aði. En sjálf fundarhöldin hófust kl. 4 í samkomuhúsi K. F. U. M. Voru þar samankomnir nálega 40 andlegrar stéttar menn í embættum og atik þeirra nokkrir uppgjafa- prestar og prestsefni. Eftir að fundur hafði verið sett- ur með bænaflutningi ga“f biskup yfirlit yfir helstu viðburði næstlið- ins fardagaárs, er varða þjóðkirkju vora. Mintist hann í upphafi ræðu sinnar látins uppgjafaprests, Skúla prófasts Skúlasonar, tveggja prests- ekkna, Elínar Ögmundsdóttur Scheving og Guðrúnar Ólafsdóttur Johnsen, svo og prófastskonuhnar Vigdísar Pálsdóttur í Stafholti, sem látist höfðu á árinu. Af þjónandi prestum hafði enginn andast um- liðið fardagaár, en tveir höfðu látið a'f prestskap (séra Ólafur Sæmunds- son í Hraungerði og séra Knútur Arngrímsson á Húsavík). Aftur höfðu bæst við 6 nýir starfsmenn, sem sé kandídatarnir: Valgeir Helgason, Benjamín Kristjánsson, Gunnar Jóhannesson, Garðar Svav- arsson og Sigurður Pálsson og presturinn séra Friðrik A. Friðriks- son (áður í Vesturheimi). Væri því tala starfsmanna ldrkjunnar nú alls 106 og 2 aðstoðarprestar. Veitt höfðu verið 9 prestaköll. (Hruni séra Jóni Thorarensen, Saurbær á Hvalf jarðarströnd séra Sigurjóni Guð j ónssyni, Kirk j ubæ j arklaustur séra Óskari J. Þorlákssyni, Bildu- dalur séra Jóni Jakobssyni. Grund- arþing kand. Benjamin Kristjáns- syni, Brjánslækur séra Birni O. Björnssyni, Stóri Núpur kand. Gunnari Jóhannessyni, Hraungerði kánd, Sigurði Pálssyni og Húsavík séra Friðrik A. Friðrikssyni). En settir prestar í þessi tvö: Þykkva- bæjarklausturs-prestakall, séra Val- geir Helgason (áður settur á Stóra Núpi) og Hofsprestákall í Alfta- firði, kan. Garðar Svavarsson. Prestlaus væru nú þessi 5 presta- köll: Staðarhólsþing, Barð í Fljót- um, Hofteigur, Sandfell í Öræfum og Þingvellir.—Skipaður var einn prófastur á árinu, sem sé i Kjalar- nesprófastsddbmi: dómkirkjuprest- ur Bjarni Jónsson. Nýjar kirkjur voru vigðar á áíinu: Grafarkirkja á Skaftártungu, Sigluf jarðar kirkja og Stóruborgar kirkja í Grímsnesi. Ilina fyrstnefndu vigði prófastur, hinar tvær biskup. Tvö prestseturs- hús voru reist, annað á Þingeyri við Dýraf jörð, en hitt á Norðfirði, bæði úr steinsteypu. Kaup voru fest á prestsíbúð handa Akureyrarpresti og Mýrdalsþingapresti (í Vík),- og handa Ögurþingapresti var keypt jörðin Hvítanes með nýju ibúðar- húsi. Tvær prestsíbúðir: í Hruna og Kálfafellsstað fengu ítarlega að- gerð, og eru nú nálega sem nýjar (Framh. á bls. 5) Frá Islandi Hinn 1. nóvember síðastliðinn voru skráðir hér 731 atyinnuleys- ingjar, 623 hinn 1. febr. og 268 hinn 1. maí. Meðal þeirra voru mjög fáar konur. — Við seinustu talningu var engin skráð, 3 i febrú- ar og 2 í nóvember. Atvinnuleys- ingjar 1. maí skiftast þannig að 252 eru daglaunamenn, 5 sjómenn og 11 iðnaðarmenn. Á sama tíma voru taldir atvinnulausir á Akureyri 34 daglaunamenn, 1 sjómaður og 3 iðnaðarmenn, og í \’estmannaeyjum 30 daglaunamenn og 3 sjómenn. Mbl. 22. júní. Árið 1880 voru karlmenn á Is- landi 471 af þúsundi, en konur 529. Þessi hlutföll eru að smábreyt- ast. Árið 1890 voru karlar 475 af þúsundi, 1901 479,-1910 482, 1921 488 og 1930 voru þeir orðnir 492 af þúsundi. I sveitunum voru karl- menn fleiri en konur, eða 513 af þúsundi, en í Reykjavík var kven- fólkið í stórum meirihluta 538 af þúsundi, eða 116 konur á móts við hverja 100 karlmenn. Við manntalið á Islandi 193° voru hér 1507 menn fæddir erlend- is, 592 í Danmörk, 417 í Noregi, 141 á Færeyjum, 128 í Þýskalandi, 11 í Kanada, 60 i Bretlandi, 43 í Sví- þjóð, 21 i Bandaríkjum, 34 í öðr- um löndum. Af þessum mönnum höfðu 530 íslenzkan ríkisborgara- rétt. Eru það ýmist útlendingar, sem að lögum hafa fengið ríkis- borgararétt fyrir sig og fjölskyldur sínar, útlendar konur íslenzkra manna, sem fengið hafa ríkisborg- ararétt við giftinguna, eða börn ís- lenskra manna, fáedd erlendis. (Úr Hagtíð.). Matvinnungur Já, enn segir æskan þeim öldruðu skák. I sveit skal nú senda svolítinn strák. Er heims út í hildi heldur nú fyrst, mjóvaxinn maður í miðsumarsvist. Því lexiur lífsins þær lærast þar bezt. Hann byrjar í barði og beislar þar hest. Eins rís hann með röðli og rekur þá kýr. En enginn veit ennþá, hvað í honum býr. Hann framast og fitnar og fyrir sin störf fær matinn, hver mesta er mannkynsins þörf. Það stórmálið stríða nú stjórnkænir við; en manndáðir megrast og myrkt er það svið. Því ránskuldir raðast á ríkjanna bök.— Heill svolitlum sveini við sjálfbjargar tök. /. Th. —Lesb. Doktorspróf Einars Ó. Sveinssonar Heimspekisdeild háskóla íslands hefir sæmt Einar Ó. Sveinsson doktorsnafnbót fyrir rit um Njálu. Er þess rits getið á öðrum stað í blaðinu. Fór athöfnin fram í Neðri- deildarsal Alþingis, hinn 16. júní, Stýrði Ágúst H. Bjarnason pró- fessor athöfninni, en til andmæla voru af hálfu háskólans, prófessor- arnir Sigurður Nordal og Árni Pálsson. Var lofsorði miklu lokið á ritið og fór athöfnin prýðilega fram, segja blöð frá Reykjavík.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.