Dagsbrún


Dagsbrún - 10.08.1918, Blaðsíða 1

Dagsbrún - 10.08.1918, Blaðsíða 1
DAGSBRÚN GEFIÐ tóT AF ALPÝÐUFLOKKNUM 34. tbl., 4. Hús og lieinili. Á síðasta fundi fátækranefndar var rætt hvort tiltækilegt væri að senda nokkrar fjölskyldur, sem fá sveitarstyrk, heim til framfærzlu- sveitar sinnar, til þess með því að rýma lítilsháttar til í bænum, og þannig fá lausar nokkrar íbúðir handa hinum mörgu húsnæðislausu fjölskyldum. Ekki var tekin nein ákvörðun um þetta, og varla verð- ur hún tekin. Pví þó vel geti kom- ið til mála að senda heim á sveit sína einhleypa menn, sem aðeins eru búnir að vera hér stutt, enga eiga hér að, og því eru betur komnir farnir úr bænum, þá er mannúðin, sem betur fer, það langt komin í höfuðborg hins íslenzka ríkis, að í alvöru tala menn ekki um að senda heim til framfærzlu- sveitar sinnar, fjölskyldumenn, sem eru búnir að vera hér svo árum skiftir, og eiga hér alla kunningja sína, en þekkja orðið enga heima í fæðingarhreppi sínum — að ekki sé minst á konuna, sem máske hefir aldrei komið í fæðingarhrepp mannsins. En um leið og þetta mál vekur enn á ný eftirtekt allra hugsandi borgara á hinni miklu húsnæðis- neyð, dettur manni ósjálfrátt í hug hvort Reykjavíkurborg geti ekki með þeim hundrað þúsund króna tilkostnaði, er hún árlega ver til fátækraframleiðslu, látið fólkinu, er styrksins nýtur, líða betur en nú. Að gamalmennahæli þurfi að koma upp áður en langt um líð- ur, og að sömuleiðis þurfl hæli fyrir munaðarlaus börn, þau, er bærinn á að sjá fyrir, mun flest- um ljóst, því bersýnilegt er, hve óheppilegt er að þurfa að hola gamalmennum og umkomulausum börnum niður, þar, sem bezt gegnir, og skal það ekki frekar gert að umtalsefni hér. En höfundur þessarar greinar öiinnist þess að hafa lesið í út- lendu tímariti, að fátækrastjórnin í borginni Pósen (í Austur-Þýzka- landi) hafl útvegað þurfalingum sínum smábletti, til ræktunar (hverri fjölskyldu um 500 ferálnir), og að þetta hafl geflst svo vel að styrkur hafl getað iækkað að mun til allra; til sumra horfið alveg. Ekki er ólíklegl; að líka aðferð hiætti hafa hér, og að ýmsir af Þeim fjölskyldumönnum sem þiggja af sveit, þyrftu á minna að halda, að minsta kosti hefðu betra, e£ þeim væri lánuð dálítil skák a£ iándi, og þeim hjálpað í fýrstu t'l þess að gera hana þannig, að fceir gætu ráðið við að rækta hana að mestu í frístundum, ásamt BLAÐ JAFNAÐARMANNA RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: ÓLAFUR FRIÐRIKSSON Reykjavlk, laugardaginn 10. ágúst. 1918. skylduliði sinu. Á slíkum blettum ættu menn að geta ræktað alt það sem fjölskyldan þyrfti af kartöflum, rófum o. þ. h. Auk þess ætti dá- lítið að vera fyrir gras (og ef til vill fóðurrófur), svo menn gætu haft 1 eða 2 geitur, eða part í kú (tveir eða fleiri kú saman). í sambandi við þetta má at- huga, hvort ekki væri ráð að bæta úr nokkri bráðustu húsnæðisekl- unni, með því að byggja nokkra góða torfbæi, utan við kaupstað- arlóðina. Mörgum kann að þykja það lítil framför að snúa aftur til torfbæjanna, og engin bæjarprýði að þeim, þó þeir séu ekki í sjálf- um bænum. En um það má nú deila, hvort fallegra er, timbur- kassarnir, eins og þeir nú líka eru margir húshjallarnir hér í Beykja- vík, eða íslenzkur bær. Aðallega virðist eiga að líta á hvort sé hollara, og getur þá lítill vafi leik- ið á því, að baðstofa, sem bygð er með hæfllegu tilliti til heilsu- fræðinnar, er ólíkt bæði hollari og skemtilegri en fjöldinn af þeim kjallara- og þakherbergja-íbúðum, er almenningur hér, verður að gera sér að góðu nú á tímum. Þó einstaka borinn og barn- fæddur kaupstaðarbúi kunni að hafa skömm á torfbæjum, þá er svo mikill hluti af bæjarmönnum alinn upp á sveitabæjum, að lík- indi eru til að eigi allfáir af þeim fjölskyldumönnum, sem fásveitar- styrk, vildu heldur taka þann kost- inn, sem hér er bent á, með þeim hlunnindum er því geta fylgt, heldur en búa við það er bærinn nú býður þeim. Og sjálfsagt gæti þetta orðið til þess, að margur, sem nú hefir orðið fótaskortur, fjárhagslega séð, vegna dýrtíðar annars vegar, og ómegðar hins- vegar, geti komið fyrir sig fótun- um aftur. i» * « En ef gott er fyrir þurfamaun- inn að geta átt heima fyrir utan sjálfan bæinn, og ræktað þar land í hjáverkum, þá er það engu síð- ur heppilegt fyrir aðra fjölskyldu- menn, einkum verkamenn með mikinn hóp barna. Spurningin verð- ur þá hvort ekki sé rétt að bær- inn hjálpaði öllum sem vildu (á einhvern þann hátt að það þyrfti ekki að valda neinum réttinda- missi) til þess að fá hæfilega stór- an blett, og ef til vill líka til þess að einhverju leyti að koma hon- um í rækt og byggja þar bæ. Ef'þelta verður framkvæmt — en hvort það verður, ætti aðallega að vera komið undir því hvort fjölskyldumenn og aðrir íbúar borgarinnar kæra sig um að fá svona bletti og bústaði — ætti það að íramkvæmast eftir fyrir- fram lögðu „plani“. Bæirnir ættu t. d. að standa í röð svo hægara verði að gera veg heim að þeim, og auðveldara að leggja þangað vatnsleiðslu, ef hverfl það, er þann- ig yrði bygt, væri svo nálægt ein- hverri aðalæð vatnsleiðslunnar, að tilrækilegt væri að það hefði vatns- leiðslu. « Líklegast mætti fá stað fyrir 50—100 býla hverfl, stundarfjórð- ungs til hálftíma gang frá mið- bænum. En nokkuð íer það auð- vitað eftir því hvað hver blettur yrði hafður stór. Ekki skal sagt neitt ákveðið um það hér, hver mundi heppilegust stærð blettanna. Þeir eiga ekki að vera stærri en það, að mennirnir geti sjálfir rækt- að þá með skylduliði sínu, og þó jafnframt stundað aðra atvinnu sína eftir sem áður. Hinsvegar mega þeir heldur ekki vera um of litlir; nokkur hluti þeirra á að vera fyrir garðrækt, og nokkur hluti fyrir túnblett. Ef til vill væri hálf önnur dagslátta hæfileg stærð (sama stærð og Austurvöllur). Yera má og, að betra væri að hafa blett- ina misstóra, þar eð það mun nokkuð misjafnt hvað hver fjöl- skylda getur komist yfir með góðu móti. Yfirleitt virðist sem að bærinn hafl haft stórskaða af því hvernig hann hefir látið af hendi lönd á erfðafestu; þau hafa orðið gróða- brallsefni einstakra manna í stað þess að bærinn hefði einn átt að græða alt það sem löndin stigu í verði við það að breytast í bygg- ingarlóðir. Og það sem óviðkunn- anlegra er, er að það eru aðallega menn sem efni höfðu fyrir, sem grætt hafa á því hvernig Kvík hefir svo að segja gefið lönd sín. Sé nokkurntíma vit í því að láta lönd á erfðafestu, þá er það þegar um slíka bletti er að ræða, sem hór hefir verið minst á. Enda mætti með því að ákveða fyrirfram, fyrir hvaða verð bærinn ætti forkaups- rétt að þeim, koma í veg fyrir alla „spekulation“. Aðalatriðið í þessu máli er auð- vitað ekki að menn byggi torfbæi; þeir sem vilja og geta, gætu auð- vitað bygt úr steini eða timbri, en líkindi eru til þess að það væru fáir eða engir er það gætu nú. Hinsvegar eru torfbæirnir vel fær leið. Eftir áætlun sem gerð heflr verið af manni, sem áhuga hefir á því að verkamenn byggi sór torfbæi, til þess á þann hátt að bæta úr húsaskortinum (Pótur Guðmundsson) mundi baðstoía, sem væri 6X31/* metrar (9 álnir á annan veginn en 51/* al. á hinn), innanmáls, og öll þiljuð innan, kosta uppkomin 2000 kr. Væri bygt annað húa til, lítið eitt stærra, með rúmgóðu eldhúsi, anddyri og geymslu, mundi slíkur bær kosta tæpar fjögur þúsund krónur. Skósmíðaverkstæði bæjarins. Fátækranefndin hefir tekið á- kvörðun um að bærinn setji upp skósmíðaverkstæði nú bráðlega. Bærinn hefir í mörg ár haft veð fyrir fátækrastyrk í ýmsum vélum fyrir slíkt verkstæði, þar á meðal vél til þess að trénegla sóla undir stível, og önnur til þess að sauma þá undir. Yélar þessar hafa í nokk- ur ár legið gleymdar og í hirðu- leysi. En nú er búið að safna þeim öllum á einn stað, og búið að þrífa þær til. Ýmislegt smávegis sem vantað hefir til þeirra, er sumpart búið að fá, en sumpart húið að fá loforð fyrir, svo nokk- urnveginn má telja víst að verk- stæðið geti fljótlega tekið til starfa. Ætlast er til að það taki skó til viðgerðar fyrir almenning, og er vonandi að þetta verði til þess að skóviðgerðir hækki ekki úr því sem er, enda er verðið komið langt upp fyrir það, sem almenningur hefir ráð á að borga. Yerkstæðið verður á Laugavegi 17, og verður forstjóri þess Jón Stefánsson skósmiður. „Atvinna og orðheldni11. í Morgunblaðinu er í dag grein með þessari fyrirsögn, og er hún einkennileg að ýmsu leyti. Greinarhöfundurinn, sem nefnir sig S. og líklegast er einhver efna- maður hér í bænum, kemur með hina margupptugðu fjarstæðu Jóns Þorlákssonar um að ekki sé um neina sórstaka þröng að ræða hjá verkalýð bæjarins, og að hann hafi miklu meira fó með höndum nú fram yfir óhjákvæmileg útgjöld, heldur en átti sér stað fyrir stríð- ið. í’etta er svo mikil fjarstæða og jafnframt svo illgirnislegt 1 garð verkamanna, að furðu sætir, ekki sízt þar sem greinarhöfundur jafn- framt talar um að verkamönnum hafi „tekist að skrúfa kaupgjaldið upp fyllilega á móts við það, sem lífsnauðsynjar hafa stigið í verði", sem hlýtur að vera skrifað móti betri vitund, þar sem fjöldi blaða er nýbúinn að birta skýrslur Hag- stofunnar um það að meðaltal af hækkun 63 tegunda af nauðsynja- vörum, er Hagstofan hefir rann- sakað, só yfir 300°/,. Það er því ekki nokkur vafi á því að kaupið sem verkamenn fá er alt of lágt, miðað við að verkamenn eigi ekki t

x

Dagsbrún

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.