Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 01.01.1915, Blaðsíða 1

Lögrétta - 01.01.1915, Blaðsíða 1
Rfcstjóri: ÞORST. GÍSLASON, Þirgholtsstræti 17. Talsími 178. Afgreiöslu- og innheimtum.: ÞÓR. B. ÞORLÁKSSON, Veltusundi 1. Talsími 359. Nr. 1. f Halldór Jónsson fyrv. bankagjaldkeri. Hann andaóist annan jóladag kl. g/ um morguninn, eftir langvarandi hjartasjúkdóm, og hafSi hann legi’S rúmfastur á annaS missiri; fór sjúk- dómurinn stööugt versnandi, svo aS fyrirsjáanlegt var fyrir löngu, aö sjúklingnum mundi ekki auSnast aS yfirstiga hann. SíSustu dagana hafSi hann oft verið rænulaus, en fjekk þó hægt og róle.gt andlát. Halldór Jónsson varð 57 ára gam- all, fæddur 12. nóv. 1857 á Bjarna- stöðum í Bárðardal, sonur Jóns Hall- dórssonar og HólmfríSar Hansdótt- ur, er þá bjuggu á Bjarnastöðum. En Jón Halldórsson druknaði í Fnjóská veturinn 1865, aö eins 32 ára gamall. Var hann þá orðinn hreppstjóri i sveit sinni og þar forgangsmaður i mörgu, þótt ekki væri eldri en þetta, enda hafði faðir hans, Halldór Þor- grímsson (d. 7. apr. 1860), er lengi bjó á Bjarnastöðum, veriS búsýslu- maSur mikill og í fremstu bænda röS. Jón Halldórsson ljet eftir sig fjög- ur börn, er hann druknaSi, og var Halldór elstur þeirra. En hin voru ValgerSur heitin biskupsfrú, kona Þórhalls biskups Bjarnarsonar, Páll bóndi á ÞórustöSum í EyjafirSi og GuSrún kona Alberts Jónssonar frá Stóruvöllum, og hefur hún síSustu árin veriS hjer í Reykjavík hjá Hall- dóri heitftum bróSur sínum. Halldór ólst upp á BjarnastöSum og bjó móSir hans þar eftir lát föSur hans, og giftist aftur, Sveini Krist- jánssyni, en andaSist 1874. Fór Sveinn, stjúpi Halldórs, síSar til Ameriku og lifir þar enn. Hann var á ferS hjer heima nýlega. 1881 útskrifaSist Halldór úr latínu- skólanum, gekk svo á prestaskólann og útskrifaSist þaSan 1883. SíSan varS hann skrifari hjá landfógeta og gjaldkeri SparisjóSs Reykjavíkur, og var hann þaS til 1886, er Landsbank- inn var stofnaSur, en þar varS hann þá gjaldkeri og gegndi því starfi þangaS til snemma á árinu 1912, en þá fjekk hann lausn frá því, eftir lækn- is ráSi, og var þá fariS aS bera mikiS á þeim sjúkdómi, sem nú hefur leitt hann til bana. Halldór kvæntist 16. júli 1886 Kristjönu GuSjohnsen, yngstu dóttur Pjeturs heitins GuSjohnsens organ- ista, og lifir hún mann sinn. Börn þeirra eru: Pjetur bóksali, Jón banka- ritari, HólmfríSur, Gunnar og Hall- dór, og eru tveir yngri bræSurnir í Mentaskólanum, Gunnar í 6. bekk, en Halldór í I. bekk. Halldór hefur margt starfaS í al- mennings þarfir. Hann var í fjölda fjelaga, er beittust fyrir framförum og framtakssemi á ýmsum sviSum, og hlóSust þannig á hann ýms auka- störf, því hann var starfsmaSur mik- ill og ósjerhlífinn. Má af þessum fje- lögum nefna t. d. IshúsfjelagiS, Faxa- flóabátsfjelagiS, UllarverksmiSjufje- lagiS, JarSræktarfjelagiS og síðast, en ekki síst, GóStemplarafjelagiS, en inn í þaS gekk Halldór haustiS 1901 og starfaSi mikiS fyrir þaS meSan honum entist heilsa til, var m. a. lengi í framkvæmdarnefnd Stór- stúku íslands. 1 bæjarstjórn Reykja- víkur átti hann sæti yfir 20 ár. Nokkur ritstörf liggja eftir Hall- dór, helst um fjárhagsmál. Þar á meS- al eru tvær ritgerSir i „Andvara“, önnur um stofnun veSdeildar viS Landsbankann, rituS, er þaS mál var í undirbúningi, en hin um hluta- bankastofnunina, er þaS mál var hjer fyrst á dagskrá. Hann hefur og rit- aS fjölda blaSagreina um bankamál og fjárhagsmál, á fyrri árum einkum í „Þjóðólf", en síSan í „Lögrjettu". Um bindindismál ritaSi hann einnig mikiS og var talinn einna fróSastur maSur hjer á landi um ástand bind- indismálsins meSal annara þjóSa. Halldór var fjörmaSur og gleSi- maður alla tíS meSan hann var heill heilsu, og söngmaSur var hann góS- ur. Hann var einn þeirra, sem stóSu fyrir útgáfu Söngbókar hins íslenska stúdentafjelags, sem út kom 1894, og líka einn þeirra, sem sáu um út- gáfu Söngbókar Templara, sem út kom fyrir nokkrum árum. Annars er hjer aðens fátt talið af þeirn mörgu og margvíslegu störf- um, sem Halldór Jónsson hefur gegnt þann 30 ára tíma, sem hann hefur starfað hjer í bænum. Hann var vin- sæll tnaSur meSal samborgara sinna og naut almenns trausts. Mótblástur- inn, sem hann átti viS aS stríSa tvö síSustu árin, mun hann hafa tekiS sjer nærri, þótt hann mætti honum meS fullum kjarki, því hann var stórlyndur maSur. En þá var líka heilsa hans á þrotum, og ekki sem drengilegast á hann sótt af sumum þeim, sem ljetu þau mál til sín taka. Sáttur við heiminn mun hann þó hafa fariS hjeSan og laus viS óvildarhug til nokkurs manns. Hann var sterk- trúaSur maSur, og á síSustu árun- um hneigSist hann mest aS lestri guS- fræSirita. Reykjavík, 1. jan. 1915. X. árg. jánbrautir á Islanili. Eftir Jón Þorláksson. IV. Hvað getum vjer? ÞaS liggur þá fyrir aS athuga hvort þessi þjóS sje fær um eSa muni verSa fær um aS standa straum af járn- brautum, sem kosta 20 miljónir króna. Vjer skulum þá hugsa oss aS braut- irnar verSi lagSar fyrir lánsfje, og aS ekki verSi búiS aS borga aS fullu fyrsta lániS, þegar seinasti spottinn verSur lagður. Þá liggur fyrir, aS minsta kosti um tíma, aS borga vexti og afborganir af 20 milj. kr. í einu. Vjer skulum nú gera ráS fyrir að svo stór lán fáist meS bærilegum — helst góSum — kjörum, svo aS vextir og afborgun til samans nemi 5 pct. Þá ei árgreiðslan 1 milj. kr. — eSa ef kjörin verSa lakleg, vextir og afborg- un til samans 6 pct., þá 1 miljón og 200 þús. kr. Ef landiS verSur ekki fyrir neinu sjerstöku áfalli, verSa landsmenn orðnir 100 þús. aS tölu eitthvaS um 1930. Ekki verður fyr lokiS viS aS leggja brautirnar, því má víst óhætt treysta. Þetta árgjald, vextir og af- borgun af verði allra brautanna, nem- ur þá 10 til 12 kr. á hvert manns- barn í landinu. Þessa upphæS þarf aS greiSa úr landsjóði árlega, ef land- ið á brautirnar, og landsjóSur þarf þá vitanlega aS fá tekjuauka sem þvi nemur. Á hvern hátt landsjóSur fær þann tekjuauka, hvort heldur sem arS af rekstri brautanna eSa á annan hátt, um þaS ætla jeg ekki aS ræSa aS svo stöddu, en líta á máliS frá almennu sjónarmiSi, og er þá spurningin þessi: Er nokkurt útlit fyrir aS landiS verði fært um aS bera framfarafyrir- tæki, sem hefur í för meS sjer árleg- an útgjaldaauka ú r 1 a n d s j óS i, er nemur 10 til 12 kr. fyrir hvert manns- barn ? Eða meS öSrum orSum: E r u nokkrar líkur til þess aS landsmenn verSi færir um að bæta á sig útgjöldúm til landsjóSs, sem nema 10 til 12 kr. fyrir hvern mann ár- 1 e ga? Til skýringar þessu mikilsverSa at- riSi, set jeg hjer töflu yfir tekjur og gjöld landsjóSs síðan landiS fjekk fullkomin fjárforráS og til síSastliS- inna áramóta, svo og skýrslu um mannfjöldann í landinu hvert ár, og í aftasta dálkinum 1 a n d s j ó S s- tekjur á mann hvert ár. Mann- fjöldinn árin 1880, 1890, 1901 og 1910 er tekinn eftir manntölunum þau ár, og er rjettur, og þess vegna eru töl- urnar þau árin feitletraSar. Mann- fjöldinn 3 síSustu árin er áætlaSur, miSaS viS ámóta árlega fjölgun (0.91 pct.) eins og var frá 1901 til 1910. En mannfjöldinn hin árin er tekinn eftir manntölum presta, og er yfirleitt of lágt talinn (viS síSasta manntal munaSi h. u. b. 200, viS næst- síSasta manntal um 1200, sem presta- skýrslurnar þau ár gerSu mannfjöld- ann minni en manntölin). Tekjur og gjöld landsjóSsins eru tekin eftir landsreikningunum, nema tvö síSustu árin, en þær tölurnar á jeg aS þakka fjármálaskrifstofu stjórnarráSsins, og upphæSir, sem teknar hafa veriS aS láni, ekki taldar meS tekjumegin Þessi tafla er býsna lærdómsrík, sje hún vel athuguS. Hún segir sögu þjóSarinnar í þessi 38 ár aS ýmsu leyti betur, en gert yrSi annars í löngu máli. En út í þaS skal jeg ekk- ert fara. ÞaS er aS eins aftasti dálk- urinn, sem getur skýrt dálítiS þaS mál, er hjer liggur fyrir. Fyrsta lög- gjafarþingiS endurreista kom saman 1875, og þaS samdi fjárlögin fyrir fjárhagstímabiliS 1876—77. Land- sjóSstekjurnar reyndust rúmar 4 kr. á mann, en sem betur fór voru þó gjöldin enn þá minni. Ef þeir þing- mennirnir 1875 hefSu veriS spurSir aS, hvort landiS væri fært um fyrir- tæki, sem kostaSi 10—12 kr. á mann árlega, þá hefSu þeir haft góSar og gildar ástæSur til aS svara nei. En svo fór nú samt, aS tæpum 30 árum síSar, eitthvaS 1904 til 1905, v o r u landsjóSstekjurnar orSnar 10 kr. hærri á mann, heldur en þeirra fjár- lög gerSu þær. Og viti menn, næst þar á eftir liSu ekki nema 8—9 ár — þá voru tekjurnar orSnar e n n þ á ö S r u m 10 kr. hærri á mann. Halda menn aS þær hætti nú aS vaxa? Nei, veriS þiS alveg rólegir. N æ s t u 10 krónurnar á mann ko m a 1 í k a, þær koma hvort sem nokkrar járnbrautir verSa bygSar eSa ekki. En þaS stendur ekki alveg á sama hvort næstu tíu krónurnar eru bútaS- ar sundur í allrahanda meflra eSa Tekjur og gjöld íslands 1876—1913. Tekjur Ár. Tekjur. Gjöld alls. Mannfjöldi. á mann. Kr. Kr. Kr. 1876 299.474-77 212,490.82 72,479 4-13 1877 3ILI50-57 250,303-63 73,308 4.24 1878 363,949.49 329,306.16 74,118 4.91 1879 466,997.27 386,801.53 74,568 6.27 1880 403838.10 359,022.91 72,445 5-57 1881 418,035.52 411,897.65 72,453 5-77 1882 500,106.11 381,512.75 7LI75 7-03 1883 518,908.06 410,680.70 69,772 7.42 1884 503,503-64 405,327.99 70,513 7-i4 1885 471,691.49 449,698.97 7L613 6-59 1886 392,980.28 481,763.61 7L52i 5-50 1887 363,473.40 478,140.64 69,641 5.22 1888 372,014.53 417,818.25 69,224 5-37 1889 396,294-30 465,261.63 69,574 5-70 1890 S85,I96-I5 482,941.63 70,927 8.25 1891 622,088.36 491,053.58 70,494 8.82 1892 577,30345 488,545.44 71,221 8.12 1893 633,711.66 506,343.78 71,685 8.84 1894 , 686,660.61 611,494.67 72,177 9-5i 1895 719,705.07 59l,953-78 73,499 9-79 1896 77L588.57 686,529.64 74,682 10.32 1897 768,267.45 716,033.61 75,663 10.15 1898 743,926.12 789,220.29 76,237 9.76 1899 752,907.87 748,687.05 76,383 9.86 19OO 808,931.72 790,190.38 76,308 10.60 1901 875,100.32 819,764.21 78,470 11.15 1902 1,051,560.93 896,334.89 77,403 I3-58 1903 1,011,981.72 936,903.74 78,539 12.88 1904 1,053,124.88 1,156,143.57 78,802 I3-36 1905 1,212,848.14 1,109,299.05 79,462 15.26, 1906 L355455-I4 1,379,211.52 80,789 16.78 1907 1,644,949.43 1,733,025.54 81,760 20.12 1908 1,602,091.25 1,738,541.65 82,777 19-35 1909 1,539479,96 1,604,788.56 83,833 18.36 I91O 1,692,185.94 1,777,901.08 85,183 19.87 1911 1,827,918.66 1,822,166.43 86,000 21.25 1912 2,088,430.00 2,014,682.00 86,700 24.09 i9J3 2,247,341.87 2,007,298.54 87,400 25,7i minna skemtilegan óþarfa, eSa þeim er variS til þess aS búa svo um aSal- atvinnuveg þjóSarinnar, aS íramtíS hans sje jafn-örugg, eins og framtíS annara atvinnuvega meSal siSaSra þjóSa. ÞaS verSur munur á gjald- þolinu, eftir því til hvers landsjóSs- tekjunum er variS. ÞaS af landsjóSs- tekjunum, sem variS er í gagnslaus- an óþarfa, hvort sem þaS er nú til þtss aS látast kenna grísku, eSa til þess aS leggja gagnslausan vegar- spotta, eSa eitthvaS annaS — þaS fje er tekiS út úr veltunni hjá gjald- endunum, tekiS frá þeim, gert þeim arSlaust. En þaS fje, sem variS er til annara eins nytsemdarfyrirtækja og járnbrauta, til þess aS losa landsmenn viS samgönguteppu, horfellishættu, eldsneytisskort og áburSarskort — þaS er ekki tekiS frá gjaldendunum. ÞaS er sett á vöxtu fyrir þá sjálfa. ÞaS er lagt í fyrirtæki, sem gefur þeim, gjaldendunum sjálfum, miklu meiri tekjur, miklu hærri vexti, held- ur en þeir gætu fengiS af því í nokkr- um sparisjóSi eSa í veltunni hjá sjer sjálfum. Mjer fyrir mitt leyti finst þaS ekki vera nokkurt efamál, aS landssjóSs- tekjurnar á mann muni halda áfram aS vaxa, muni vaxa enn um 10—12 kr. á mann — og meira til. Og mjer finst jeg ekki geta veriS neitt hrædd- ur um aS landiS „fari á hausinn“ fyrir því. En eflandiSerfærtumaS leggja sjer til þessu hækk- u n á landsjóSstekjun u‘m, þá er þaSlxkafærtumaS leggja járnbr a'u t i r f y r i r 20 miljónir króna. LandsjóSstekjur annara ríkja eru taldar fram á mjög mismunandi hátt, og því erfitt aS gera samanburS milli landanna. Samt má ráSa ofurlítiS í þaS, hvort vjer sjeum búnir aS ná hámarkinu aS því er landsjóSstekjur á mann snertir, af samanburSi viS önnur lönd, og set jeg hjer 1 a n d- sjóSstekjur á mann nokkurra ríkja eftir „Fánabókinni“, bls. 78-79: Bretland................... 73-8o Ástralia .................. 72.00 Danmörk.................... 61.20 Noregur.................... 54-00 SvíþjóS ................... 45-9° Þýskaland.................. 43-20 Frakkland.................. 85.50 Bandaríki N. Am........... 40.50 Kanada .................... 59-4° Newfoundland .............. 54-00 Þetta getur veriS gott og blessaS, kann einhver aS segja, en er nú ekki samt veriS aS gera ósanngjarnar kröf- ur til okkar, þessara fátæku íbúa í þessu fámenna og strjálbygSa landi, aS heimta af okkur aS viS leggjum járnbrautir um landiS — eins og aSr- ir ? Þá er aS athuga þaS dálítiS nánar. Athuga hvaS aSrir hafa get- aS, og hvaS vjer ættum aS g e t a í samanburSi viS þá. RRÓF. FR. RAUSENBERGER, sem hjer er sýndur á myndinni, er sá maSur, sem sagt hefur fyrir um smíSi á hinum frægu 42 cm. stórskotavjel- um ÞjóSverja, sem engir kastalar hafa staSist nú i stríSinu.

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.