Verkamaðurinn

Tölublað

Verkamaðurinn - 10.09.1932, Blaðsíða 1

Verkamaðurinn - 10.09.1932, Blaðsíða 1
VEBBBHBBOHIHH Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands. XV. áfg. t Akureyri, Laugardaginn 10. september 1932. t 40. tbl. Ófarir kratanna. Sá merkilegi viðburður skeði á |>riðjudagskvöldið, að kratarnir hér boðuðu til verklýðsfundar, sem þeir kölluðu Alþýðuflokks- fund. Ástæðan til þessa afreks var hvorki meiri eða minni en sú, að sjálfur Héðinn Valdimarsson varaforseti Alþýðusambandsins og Sigurður Einarsson fréttaprestur útvarpsins, sem eru taldir með hygnustu mönnum krataklíkunn- ar, voru staddir hér í bænum. Fundurinn var ágætlega sóttur, SVO að húsfyllir var. Talaði Héð- inn fyrstur um þrekvirki Alþýðu- sambandsins og nauðsyn verklýðs- samtakanna um að fylkja sér fast undir merki þeirra kratabrodd- anna. Sagði hann mönnum að nú geysaði kreppa yfir landið, en á Alþýðusambandsþinginu síðasta sögðu kratarnir að hún væri hvergi til og yrði hvergi, nema í hugum kommúnistanna, sem þá voru að vara við hinni yfirvofandi viðskiftakreppu. Einnig sagði hann, að atvinnuleysi væri mikið í landinu, en á leiðir fyrir atvinnu- leysingjana að fara, til þess að knýja fram atvinnubætur, benti hann ekki. Kvað hann nauðsyn fyrir verkalýðinn að vera rólegan og treysta forsjá þeirra krata- foroddanna. Var ræða hans þrótt- laus mjög, en átti að vera hvatn- ing til verkalýðsins um að varpa öllum kommúnisma á dyr úr verk- lýðsfélögunum, en hylla burgei'sa- vald kratabroddanna innan Al- þýðusambandsins. Enginn klapp- aði að ræðunni lokinni. Næstur talaði Sigurður Einars- son, um alt og ekkert, eins og svo heppilega var að orði komist. Tal- aði hann um að skipulagið væri að deyja, en þó sýndi hann sig sem eina stoð þess. Sýndi hann megn- an heigulshátt í orðavaðli sínum, þar sem hann þorði á engan hátt að taka afstöðu til ágreiningsmál- anna innan verklýðshreyfingar- innar. Samt lýsti hann því yfir í enda ræðu sinnar, en líklega óvilj- andi, að Alþýðuflokkurinn væri ekkert annað en pólitísk samtök og snoppungaði þar með Héðinn félaga sinn, sem var að reyna að koma fundarmönnum til að trúa því, að Alþýðuflokkurinn væri einskonar faglegt samband. Á eft- ir ræðu S. E. klappaði enginn frekar en á eftir ræðu H. V. Fékk þá orðið Jón Rafnsson úr Vestmannaeyjum, sem hér 'var staddui" og fletti' hann ofan af svikastarfsemi kratabroddanna innan Alþýðusambandsins svo rækilega, að þegar Héðinn stóð næst upp til að svara, var öllum fundarmönnum Ijóst að hann hafði illan málstað að verja. Var auðheyrt að J. R. þekti alla klæki og svik hinna ráðandi manna Al- þýðusambandsins og taldi hann upp ýms dæmi máli sínu til sönn- unar. Að ræðu hans lokinni dundi við lófaklapp fundarmanna. Talaði þá næstur Erl. Friðjóns- son, fundarstjórinn, að mestu um »verklýðssamband Einars Olgeirs- sonar«. Að öðru leyti man víst enginn fundarmanna eftir því hvað hann sagði og ekki gátu þær fáu hræður, sem hann á í »Akri« sínum verið að heiðra foringja sinn með því að klappa á eftir ræðu hans. Stytti hann ræðutím- ann niður í 10 mínútur. Komst nú talsverður hiti í um- ræðurnar og þar sem þær snerust að mestu um Alþýðusambandið og ofbeldi og útilokunarstefnu krata- broddanna, áttust aðkomumenn að mestu leyti við. Töluðu þar frá kommúnistum Jens Figved og Angantýr Guðmundsson. Af bæj- armönnum talaði aðeins Þorsteinn Þorsteinsson og lagði hann fyrir H. Valdimarsson nokkrar -spurn- ingar, þar á meðal hvort Alþýðu- flókkurinn gæfi út Alþýðumann- inn. Varð Héðni ógreitt um svör og ætlaði að hliðra sér hjá að svara, með því að segja að það stæði á öllum blöðum hverjir gæfu þau út. Þóttí þetta ekkert svar og var hart rekið á eftir af mörgum að fá hrein svör. í angist sinni stundi Héðinn því svo loks upp, að Alþýðumaðurinn vœri gefinn út af Erlingi Friðfónssyni en alls ekki af Alþýðuflokknum. Afneitaði hann með öllu aðí Alþýðuflokkurinn œtti nokkuð króanum og reif burtu þann eina siðferðislega grundvöll, er gat réttlœtt að blaðsnepillinn er kendur við verkalýðinn og samtök hans. Kendi margur í brjósti um aum- ingja Erling, sem var hinn státn- asti og gekst strax við króanum. Einnig stóð alllengi' í H. V. að svara fyrirspurn, sem áhrærði úti- lokunarákvæði það, sem krataklík- an kom inn í lög Alþýðusam- bandsins á síðasta þingi, til að tryggja völd sín, þar sem svo er

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.