Verkamaðurinn

Tölublað

Verkamaðurinn - 06.05.1933, Blaðsíða 4

Verkamaðurinn - 06.05.1933, Blaðsíða 4
4 VERKAMAÐURINN Krókur d móti bragSi. I »AJþýðum.« 25. apríl er á iL síðu greinarkom með yfir- akriftinni: xNorðmenn hlsegja«. IJpphaf greinarinnar hljóðar svo: »Síðan Alþingi framdi þá þjóð- arsvívirðingu að samþykkja norsku samningana, hefir verið lítið um hlátur*) hjá sjómönnum oe verkalýð norðanlands«. Er síðan haldið áfram þessum dapurlegu hugleiðingum um hríð (og það að vonum). En þegar blaðinu er flett við, hýrnar heldur en ekki yfír. — Á annari síðu blasir við mynd af »Reumert fslands«, »snillingnum« Jóni Norðfjörð, brosandi út undir eyru. Og undir myndinni er til- kynning um það, að Jón ætli að gera það »fyrir bæjarbúa« að hafa skemtikvöld »til að loklca hláturinn upp úr fólkimu*). Skyldi ekki Norðmönnum bregða í brún? — Sennilega læt- ur Alþýðusambandið þetta her- bragð nægja, í þeirri baráttu gegn framkvæmd norsku samn- inganna, sem það hefir verið að tala um. X. Kvennadeild »Drífanda«. Út af ummælum »Alþm.« 25. apríl s. 1., skulu gefnar þær upp- lýsingar, að kvennadeild þessi telur 120—130 félaga. Á s. 1. hausti, þegar Alþýðu- flokksbroddarnir í »Eyjum« á- réttuðu klofningsstarfsemi sína með því að stofna nýtt verka- kvennafélag, með ca. 30 konum, svöruðu verkakonurnar í Vest- mannaeyjum með því að flykkj- ast inn í kvennadeild »Drffanda«. [Bættust deildinni þá í einu 46 konur. Má af þessu sjá, að verkakonur í Vestmannaeyjum hafa samskon- ar kynni af verklýðsstarfsemi Jóns Rafnssonar, og samherja hans, og »menn hér norðurfrá«. X. *) Leturbr. hér. verður haldinn I verklýðshúsinu, sunnudaginn 7. maí, kl. 3xh e. h. FUNDAREFNI: 1. Fiskv^rkunarkaupið. 2. Rfkisiðgreglan. Verkamenn 6g verkakonur! Fjðlmennið! STJÓRNIR VERKI.ÝÐSFÉLAGANNA. f> - S k r á yfir niðurjðfnun aukaútsvara I Akureyrarkaupstað, fyrir árið 1933, liggur frammi — almenningi til sýnis — á skrifstofu bæjargjaldkerans dagana 30. april til 13. maí n. k., að báðum dðgum meðtðldum. Kærum yfir niðurjöfnuninni sé skilað til formanns niðurjðfnunarnefnd- ar innan loka framlagningarfrestsins. Bæjarstjórina á Akureyri, 26. apríl 1933. Jón Sveinsson. Nýlátinn er á Kristneshæli Erlendur Hinriksson frá Hornafirði, 21 árs að aldri. Erlendur heitinn var efnilegur œjðg, skarpgáfaður og hvers manns hugljúfi, er honum kyntust. Varð hvítidauðinn honum að bana sem fleirum æskumanninum. Erlendur heitinn var ákveðinn kommúnisti. Á fimtudaginn var hann jarðaður. Sókn- arpresturinn var beðinn að Iesa upp við gröfina kveðiuljóð þau, sem birt eru á öðrum stað hér í blaðinu. Fann sá göfugi!! guðsmaður hvöt hjá sér til þess að kríti- sera, yfir gröfinni, llfsskoðun þá, sem í ljóðinu birtist, jafnfrsmt sem hann réðist á óhæfilegan hátt á lífsskoðun hins dána manns. Ef svívirðilegt að yfirstéttarskrfllinn skuli ekki linna ofsóknum sínum á hendur ör- eigunum, þótt búið sé að hola þeim niður í jörðina, þar sem þeir eiga að rotna, þá jörð sem þeir í lifanda lífi voru hvergi ^riðhelgir á. Virðist svo sem nema ætti staðar við líkbörurnar, En hýenueðlið er ^ríkt^og það jafnvel hjá guðs útvöldu. Byrjað er á malbikun nýju bryggjunnar, annari er lítið unnið hér i bænum og atvinnuleyiið þvf afar tilfinnanlegt. Vald- hafar bæjarins rumskast ekki, þótt sól og blíðviðri sé á hverjum degi og alstaðar séu verkefni fyrir hendi — bænum til framfara og þrifnaðar. Allir verkamennl biðja verslun sína um Eskimo hinar ágætu, ódýru rússnesku eldspýtur. Hefi flutt skóverkstæði mitt í HAFNARSTRÆTI 103. Jón Bjarnason. sfofa, með geymslu. Guðrún Larsen Oddeyrargötu 34. Islenska vikan hefir staðið yfir nú und- anfarna daga. Hefir nokkuð verið gert til þess að vekja athygli fólks á innlenduna varningi með sýningum í búðargluggum, en þó ekki eins mikið og í fyrra, og virðist áhuginn ekki eins almennur. Fáar sýningarnar eru nokkuð eftirtektarverðar, þó hefir Ólafi Ágústssyni húsgagnasmið tekist, eins og í fyrra, að efna til bestn sýningarinnar. K. E. A. mun þar næst með sýningu á framleiðsluvörum sínum. —

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.