Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 30.11.1940, Blaðsíða 1

Verkamaðurinn - 30.11.1940, Blaðsíða 1
Hvar er komið sjálfstæði íslensku pjoðarinuar? Slðan íslensku broddborgararnir hœttu við að minnast fullveldis- dags íslensku þjóðarinnar, 1. des. s. 1., hefir margt á dagana drifið í sjálfstœðismálunum. Með hernámi Danmerkur 9. apríl s. 1. voru, í einni svipan, höggvin sundur þau stjórnarfars- legu tengsl, sem verið höfðu með henni og íslandi. Konungsvaldið og œðsta stjórn utanríkismála var flutt inn í landið. Fyrir óvænta og utanaðkomandi atburði fékk íslenska ríkið — að formi til — fullt og óskorað sjálfstæði. En sú „dýrð“ stóð ekki lengi. Mánuði síðar óð bretskur her inn í land vort — virti að vettugi hlutleysi okkar og það sjálfstæði, Hin nýja stjórn Alþýðusambands íslands er skipuð þessum mönn- um: Forseti: Sigurjón A. Ólafsson, varaforseti: Jón Axel Pétursson, ritari: Guðgeir Jónsson. Með- stjórnendur: Jóhanna Egilsdóttir, Magnús H. Jónsson, Sigurður Ól- afsson, Runólfur Pétursson, Sig- urrós Sveinsdóttir, Jón Sigurðs- son, Guðmundur Kr. Sigurðsson, Hálfdan Sveinsson, Hannibal Valdimarsson, Finnur Jónsson, Erlingur Friðjónsson, Ingólfur Hrólfsson, Sveinn Kr. Guðmunds- son. Varamenn: Bjarni Stefánsson, Þorgils Guðmundsson, Jóna Guð- jónsdóttir, Þórarinn Kr. Guð- mundsson, Ragnar Guðleifsson, Kristján Guðmundsson, Guðjón Bjarnason, Friðrik Hafberg, Jón Einarsson, Guðmundur Þ. Sigur- geirsson, Ólafur Magnússon, Ólaf- ur Jóhannsson. Allt þetta fólk er flokksbundið í Alþýðuflokknum eða fylgir brodduklíku hans. Má því vænta þess, að hin nýja stjórn verði treg þess að þræða götur lýðræðis- ins og jafnréttisins, enda þótt hún sé skyldug til þess samkvæmt hin- um nýju ákvæðum þar að lútandi sem Bretland hafði, í orði kveðnu, viðurkent. Og þá kom ennfremur í ljós, að okkar eigin valdhafar — menn- irnir, sem um mánaðar skeið löfðu farið með óskorað fullveldi hins íslenska ríkis — höfðu allan þann tíma verið í vitorði með stjórn innrásarþjóðarinnar, um á- form hennar, en leynt því fyrir sinni eigin þjóð! Síðan hefir bretska hervaldið sagt hér fyrir verkum, svo sem því hefir þótt þurfa. íslenska þegna hefir það flutt, nauðuga, af landi burt. Líftjón hefir það lagt við, ef menn svipast að búfé sínu, á eigin landareignum, á svæðum er það sjálft afmarkar, og tíma er það tilgreinir. Sömu viðurlög veit- ir það sjómönnum, ef þeir fara til fiskjar, á svæðum, er það tilgrein- ir. Hina dýru — og sjófarendum dýrmætu — vita við strendur landsins leyfir það ekki að notað- ir séu, nema að litlu leyti. Og loft- skeytatæki íslenska skipaflotans lætur það innsigla. í staðinn gefur það „frændum" sínum — stórútgerðarmönnunum — hátt verð fyrir ísfiskinn, svo þeir græða tugi miljóna — og fleygja í íslensku ríkisstjórnina, sem var í vitorði með þeim um hernám landsins, „verðjöfnunar- sjóði“, sem verða mætti henni að einhverju liði við að jafna ágrein- inginn við háttvirta kjósendur, í næstu þingkosninguni. Þannig er komið sjálfstæði ís- lensku þjóðarinnar: það er fótum troðið af erlendu hervaldi. Það er — af þeim, sem gæta skyldu — selt fyrir vænan baunaskerf. En hver ráð eru til úrbóta? Um stjórnarfarslegt samband við Danmörk þarf ekki lengur að (Framhald á 4. síðu). Bátur ferst með 7 mönnum. Það er nú talið fullvíst að vél- báturinn „Eggert“ frá Keflavík, sem hefir verið saknað síðan fyrra föstudag, hafi farist ásamt allri á- höfn, en á bátnum voru 7 menn. Er nú skamt á milli slysanna á sjórjum. S ó $ í a 1 i § t a- flokkurinn leggur áherslu á að öll verklýðsfélög sameinisl ínnan Alþýðusambandsins. 2. þing Sameiningarflokks al- jýðu — Sósíalistaflokksins, var sett í Reykjavík 17. þ. m. Forseti þingsins var kosinn Steinþór Guðmundsson, kennari, en varaforsetar Einar Olgeirsson og Áki Jakobsson, bæjarstjóri. Ritarar þingsins vrou kosnir: Gunnar Benediktsson, Arnfinnur Jónsson, Steingrímur Aðalsteins- son og Dýrleif Árnadóttir. Eftir að kosningum var lokið í nefndir þingsins var samþykt að fresta þingfundum þar til þriðjud. 19. þ. m. sökum þess að komu fulltrúa af Norðurlandi hafði seinkað. Þingfundir á þriðjudaginn hófust með því að Brynjólfur Bjarnason, formaður miðstjórnar og flokksstjórnar flutti skýrslu um störf flokksins síðan hann var stofnaður og um verkefni flokks- ins á næstunni. Ennfremur flutti Einar Olgeirsson framsöguræðu um hernám landsins og ástandið í alþjóðamálunum. Þá hafði Jón Rafnsson framsögu um starfið í verklýðsfélögunum. Að lokum flutti Sigfús Sigurhjartarson ræðu um undirbúning flokksins fyrir væntanlegar alþingiskosningar og afstöðu flokksins til þeirra. Miðvikud. 20. þ. m. hófust þing- fundir með umræðum um póli- tísku ályktunina (sem birt er hér í blaðinu í dag). Ennfremur voru lagðar fyrir þingið ályktanir um verklýðsmálin, bændamálin og tll- lögur um alþjóðleg mál. Voru all- ar þessar ályktanir ræddar ítar- lega á þinginu, en áður höfðu nefndir þingsins fjallað um þær. Þingfundir fimtud. 21. þ. m. hófust með umræðum um verk- lýðsmálin. Er lögð áhersla á það í ályktun þeirri, er þingið sam- þykti um verklýðsmálin, að öll verklýðsfélög sameinist innan hins endurskipulagða Alþýðusambands. Að loknum umræðum fór fram kosning á 11 mönnum í miðstjóm (Framh. á 3. síðu). OgDaröId í Rúmenin. Andstæðingar nasista myrtir h^pum saman. S.l. miðvikudagsmorgun myrtu nazistar í Rúmeníu 64 anddstæð- inga sína sem sátu í fangelsum. Síðan hafa stöðugt borist fregnir um áframhaldandi morð og af- tökur. Stjórnin neitar því að hún eigi sök á þessum aftökum en seg- ir að æstir Járnvarðliðsmenn, en svo eru rúmensku nazistarnir kallaðir, séu valdir að þeim. Her- lög eru gengin í gildi í Rúmeníu. Benda fregnir til þess að ástandið fari versnandi með degi hverjum og fullkomið stjórnleysisástand ríki í landinu. M. a. herma fregnir að nazistarnir séu farnir að berj- ast innbyrðis. Goga fyrverandi forsætisráðherra, er einn af þeim, sem hefir verið myrtur. Einn af leiðtogum bændaflokksins fanst myrtur í fyrradag. Sterkur lífvörður er haldinn um heimili Maniu aðalforingja bænda- flokksins og fleiri manna. Fregnir herma að þýskir nazist- ar standi að baki þessum hryðju- verkum og að þeir muni ætla að gera Rúmeníu að leppríki Þýska- lands, Fregnir frá London í dag herma að Antonescu forsætisráðherra geri árangurslausar tilraunir til að friða almenning og fari ó- ánægjan sívaxandi gegn nazistun- um. Hörmulegt slys. í morgun vildi það hörmulega slys til hér í bænum að Svein- björn Sigurðsson, ráðsm. hjá Guð- mundi Péturssyni útgerðarmanni, varð fyrir rafmagnsstraum úr ljósaleiðslu þar sem hann var að vinnu í „Kristjáni“, sem liggur í Slyppnum. Læknar gerðu lífgunartilraunir en þær báru engan árangur. Sveinbjörn var kvæntur og átti tvö ung börn. Var hann prýðilega látinn maður.

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.