Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 28.12.1940, Blaðsíða 1

Verkamaðurinn - 28.12.1940, Blaðsíða 1
Allsherjaralkvæða* greiðslan * „Dagsbrún" Heimild til vinnustödvunar samþykt nœr einróma. Þfóðstjórnarliðið hamrar á gegn brottrekstur Jóns Rafnssonar, með 4 atkvæða melrihluta. Um síðustu helgi fór fram alls- herjaratkvæðagreiðsla í verka- mannafélaginu „Dagsbrún“, í Reykjavík, um eftirtalin þrjú at- riði: 1. Heimild handa stjórn félags- ins til að framkvæma vinnu- stöðvun um næstu áramót, ef at- vinnurekendur hefðu ekki gengið að samningum fyrir þann tíma, 2. Tillögu i'élagsstjórnarinnar um að „Dagsbrún“ gengi ekki í Alþýðusambandið fyr en kosið hefði verið til Alþýðusambands- þings samkvæmt hinum nýju lög- um Alþýðusambandsins. 3. Ákvörðun trúnaðarmanna- ráðs „Dagsbrúnar“ um að víkja Jóni Rafnssyni og Sveini Sveins- syni úr félaginu. Úrslit allsherjaratkvæðagreiðsl- unnar urðu þau, að heimildin til vinnustöðvunar var samþ. með 1099 atkvæðum gegn 66. Er því sjáanlegt, að verkamennirnir í „Dagsbrún“ eru svo að segja ein- huga um að halda fast fram kaupkröfum sínum, og kröfunni um 8 kl.st. vinnudag — og er þess að vænta, að stjórn félagsins hviki ekki frá þessum vilja verka- mannanna, í samningum við at- vinnurekendur. Tillaga stjórnarinnar um að halda „Dagsbrún“ utan Alþýðu- sambandsins var samþykt með rúml. 600 atkv. gegn rúml. 400; en 120 seðlar voru auðir. Liggur þarna að baki samspil Alþýðu- flokksbroddanna og íhaldsins um að halda samtökum verkalýðsins sem lengst sundruðum. Alþýðu- flokksbroddarnir byrjuðu á því að brjóta hin nýju lög Alþýðusam- bandsins með því að skipa sjálfa sig í stjórn þess, til tveggja ára. Þetta freklega lýðræðisbrot notar svo íhaldið í stjórn „Dagsbrúnar" sér til að halda stærsta Verklýðs- félagi landsins sem lengst utan Alþýðusambandsins. Ákvörðun trúnaðarmannaráðs- ins um brottrekstur Jóns Rafns- sonar og Sveins Sveinssonar marðist í gegn með 565 atkvæðum gegn 561, eða með aðeins 4 atkv. meirihluta, en 12 seðlar voru taldir ógildir og 60 voru auðir. Þar fengum blöðum um það að fletta, hvernig farið hefði um þetta mál á félagsfundi í „Dags- brún“, þar sem ráðið hefðu úr- slitunum þeir verkamenn, sem virkir eru í félaginu og vita því af eigin raun hvað gerist á fund- unum og í félagslífinu. Þá hefði Haraldur heiðurs-„stúdent“ og lið hans, fengið enn harðari dóm — þó telja megi þessa ráðningu sæmilega eftir atvikum. Tooarinn JlríBbiöni hersif verður fyrir loitárás. 4 skipverjar særðust. 22. þ. m. kl. 6 að morgni varð togarinn „Arinbjörn hersir“ fyrir loftárás. Særðust 4 skipverjar, en þó ekki hættulega, að því er út- varpsfregnir herma, þó er tal- ið að 2 þeirra muni þurfa að dvelja um þriggja vikna tíma á sjúkrahúsi. Togarinn var skamt undan Bret- landsströndum þegar árásin var gerð. Fóru allir skipverjar 1 bát- ana og héldu áleiðis til lands, en togarinn var síðar dreginn að landi. Ekkert hefir verið látið uppi enn hverrar þjóðar flugvélin var, er gerði árásina og yfirleitt eru fregnir af þessum atburði óljósar ennþá. Sem betur fór varð ekki líftjón af þessarí árás, en þessi atburður sýnir það svart á hvítu, að ís- lenska þjóðin hefir verið dregin út í styrjaldarsvæðið. Hættan sem nú vofir yfir okkur verður líka stöðugt meiri, sökum þess, að flestir trúnaðarmenn þjóðarinnar taka æ ákveðnari afstöðu með innrásarhernum, öðrum stríðsað- iljanum, en hinn stríðsaðilinn, hefir vitanlega njósnara sína hér eins og í Bretlandi, jafnvel í trún- aðarstöðum bretska hersins, Frcgnmiðt „Verhamannslns” 27. des. 1040. Foreldrar á Akureyri! Láiil ekki börn ykkar piggja >skemtiboð« innrasarhersins. Metnaður ykkar sem íslendingar liggur við, Fyrirliðar bretska innrásarhersins hér á Akur- eyri hafa látið bera út boðsbréf, þar sem þeir bjóða öllum börnum, á aldrinum 7—12 ára, til samkomu í Nýja-Bíó. Pað virðist svo, sem foringjar innrásarhers- r ins séu komnir á þá skoðun, að Islendingum megi alt bjóða — þeir taki hverri niðurlægingu með fögnuði. — Og vist munu þeir þegar hafa fengið of mikla átillu til slíkrar skoðunar. En nú fœrist skörin upp i bekkinn, ef innrásarherinn á að laka við UPP- ELDI skólabarna vorraj J t Pað er móðgun við Islendinga, og særandi fyrir heilbrigða þjóðerniskend þeirra, að inn- rásarher skuli yfirleitt bjóða þeim til samneytis við sig. Pað er tvöföld móðgun, og takmarkalaus Iít- ilsvirðing, þegar slíkur innrásarher býður til samíagnaðar við sig nemendum menntastofnun- ar, sem opinberlega hefir staðið að því að setja reglur, sem eiga að hindra samneyti æsku- lýðs landsins við setuliðið. Pað ber lærdómsríkan vott »riddaramennsku« að beina slíkum skeytum að börnum, sem ætla má, að ginkeyptust séu til »gleðskaparins« — en smekkvísin er fólgin í að sýna börnunum »sjónhverfingar« og »galdra«!!! ásjálfum jólunum! Petta boð innrásarhersins, til barnanna hér og foreldra þeirra, er því eitt reginhneyksli, hvernig sem á það er litið — og er ekki sæm- andi að svara því á nokkurn hátt annan en með því að banna hverju barni að sækja samkomuna. (Framh. á 3. síðu),

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.