Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 20.03.1943, Blaðsíða 1

Verkamaðurinn - 20.03.1943, Blaðsíða 1
ALÞÝÐUSAMBANDSSTJÓRNIN HEFIR AKVEDID AÐ SAMEINA VERKAMENN Á AKUREYRI í EINU SIERKU VERKA- RAUÐI HERINN SÆKIR ENN FRAM TIL SMOLENSK, EN MÓTSPYRNA ÞJÓÐ- VERJA FER VAXANDI. Allar tilraunir Þjóðverja til að brjótast yfir Donetzfljót MANNAFELAGI Framkvæmdastjóri og erindreki Alþýðusambandsins koma til bæjarins nú um helgina til að hrinda sameiningunni í framkvæmd hafa strandað fram að þessu. Eftir töku Vyazma hafa sovéther- sveitir haldið áfram sókn sinni í áttina til Smolensk. í fregnum í gærkveldi var sagt, að þær væru komnar rúmlega 60 km. vestur fyr- ir Vyazma, en mótspyrna Þjóðverja á þessum slóðum fer harðnandi. — Hersveitir Timosjenkos hafa unn- ið töluvert á í nánd við Staraja Russa og Kholm. Síðan Þjóðverjar tóku Kharkov hafa þeir gert árangurslausar til- raunir til að brjótast yfir Donetz- fljót .Hafa þeir þó haldið látlaust uppi geysilegum áhlaupum, en Rússar hafa hrundið þeim jafn- harðan. Er manntjón Þjóðverja og her- gagnatjón gífurlegt. í einu þessu áhlaupi í gær mistu þeir 500 menn og á öðrum stað mistu þeir 600. Fréttaritarar telja að næsta sólar- hring verði úr því skorið hvort Þjóðverjum tekst að komast yfir fljótið eða livort Rússum tekst að halda stöðvum sínum á vesturbakka þess. Þjóðverjar hafa tilkynt að þeir hafi tekið borgina Byelgorod við járnbrautina frá Kharkov til Kursk, en sú fregn hefir ekki verið stað- fest. Alþýðusambandið hefur útgáfu mánaðarrits Stjórn Alþýðusambands íslands hefir nú ákveðið að framkvæma samþykt síðasta Alþýðusambands- þings um sameiningu verkamanna hér á Akureyri, en eins og kunnugt er, fól þingið sambandsstjórninni að gera þær ráðstafanir er dygðu til að uppræta með öllu klofning- inn í samtökum verkamanna á Ak- ureyri. Sambandsstjórnin er ákveðin í því að framkvæma samþykt sam- bandsþingsins í þessu efni, og legg- ur svo mikla áherslu á að sundr- unginni hér verði eytt með öllu, að hún sendir hingað bæði fram- kvæmdastjóra sambandsins, Jón Sigurðsson og erindreka þess, Jón Rafnsson. Koma þeir hingað með „Esju“ nú í dag og raunu strax eftir komu sína gera nauðsyn- legar ráðstafanir til þess að hrinda sameiningunni í framkvæmd á einn eða annan hátt. Eins og lesendum er kunnugt, hefir sundrungunni í faglegum samtökum verkalýðsins alstaðar verið útrýmt á landinu — nema hér á Akureyri. Hér skal ekki farið út í deilur um það hverjum sé um að kenna, hverjir hafi átt sök á klofningnum. Það mál hefir verið margrætt áður. En um það verður ekki deilt að sundrungin er aðeins vatn á myllu andstæðinga verka- lýðssamtakanna. En kjör íslenskrar alþýðu eru sannarlega ekki svo glæsileg að hún hafi ráð á að ala andstæðinga sína á sundrungunni og því sem siglir í kjölfar hennar. Þeir tímar eru í nánd að alþýðunni mun ekki veita af öllum samtaka- mætti sínum. Þó atvinna hafi verið óvenjulega mikil s. 1. tvö ár og al- menningur hafi aldrei áður haft jafnmikið fé milli handa, þá er jafnvíst að vá er fyrir dyrum, ef al- þýðusamtökin reynast ekki því hlutverki sínu vaxin að mæta erf- iðleikum eftirstríðsáranna og ryðja úr vegi þeim hindrunum, er verða á vegi hins vinnandi fólks í baráttu þess fyrir fullkomnu atvinnulegu og pólitísku frelsi. Afturhaldsöflin munu sæta færi, hvenær og hvar sem þau finna veikan hlekk í sam- takakeðju alþýðunnar. Þessvegna ríður nú á að smíða að nýju þá hlekkina, sem eru veikastir, og þ£ fyrst og fremst hér á Akureyri, næstfjölmgnnasta kaupstað lands- ins. Ákvörðun sambandsstjómar að senda menn, sinn frá hvorum armi verklýðshreyfingarinnar, sýnir okkur glöggt að hún er staðráðin í að hrinda sameiningunni hér í framkvæmd, sameina alla verka- menn hér í einu öflugu verka- mannafélagi, hvað sem pólitískum skoðunum þeirra líður. Öllum verkamönnum og öðrum verklýðssinnum munu því þykja það góð tíðindi að Alþýðusam- bandið, er telur um 18 þús. með- limi innan sinna vébanda, skuli nú vera búið að gera þessar ráðstafan- ir, sem fyrr er getið, og sem hljóta að hafa í för með sér sameiningu verkamanna bæjarins innan fárra daga. Verkamenn á Akureyri munu fyllilega kunna að meta þessa mik- ilvægu aðstoð Alþýðusambandsins, (Framh. á \. síðu). 11.400.00 krónur í gærkvöldi var söfnunin hér í bænum handa Rauða Krossi Ráðstjórnarríkjanna orðin yfir 11.400.00 kr. og enn eru fjöl- rrtargir söfnunarlistar í gangi. Söfnunin hér á Akureyri hefir gengið mjög vel og hefir í engum kaupstað landsins safnast tiltölu- lega jafnmikið og hér. En þrátt fyrir það er engin ástæða til að leggja árar í bát heldur halda söfnuninni áfram og herða á henni, því þótt þátttakan sé orð- in mjög mikil og almenn, þá eru þó enn fjölmargir einstaklingar, sem munu vilja fram sinn skerf til að sýna í verki, að þeir láti sig „ekki einu gilda þá hluti, sem eru að gerast í heiminum.“ Sýna það í verki með því að láta nokk- urt fé af hendi rakna „til kaupa á nokkru af hjúkrunarvörum handa þeirri þjóð, sem hefir tek- ið við einna þyngstum höggum í þessu stríði:“ Alþýðusambandið hefir nú eign- ast sitt eigið málgagn. Er það mán- aðarrit, er nefnist „Vinnan“, og er 1. tölublað þess nýkomið út. í formálsorðum sambandsstjórn- arinnar segir m. a. svo: „Eftir að skipulagi Alþýðusam- bands íslands var breytt á þingi þess árið 1940, á þann hátt, að það var aðskilið frá Alþýðuflokknum, hefir það ekki haft umráð yfir neinu sérstöku málgagni. Á Alþýðusambandsþinginu síð- astliðið haust sameinuðust svo að segja öll verklýðsfélög landsins í Alþýðusambartdinu, og þykir stjórn þess því ekki vansalaust, að svo fjölmennt félagasamband, sem Alþýðusambandið, er nú orðið, ' hafi ekki málgagn, sem það ræður yfir. Sambandsstjórnin samþykti þvf fyrir nokkru síðan að hefja útgáfu á mánaðarriti. Þetta mánaðarrit hefir nú göngu „Frá draumum til dáða“ nefnist nýútkomið rit eftir hinn vinsæla rithöfund Gunnar Bene- diktsson. Útgefandi er Fræðslu- nefnd Sósxalistaflokksins, og er þetta fyista ritið í bókaflokki, sem Fræðslunefnd Sósíalistaflokksxns gefur út, en gert er ráð fyrir að minsta kosti þrjú rit í þessum flokki komi út á ári. Eiga ritin að fjalla um íslensk þjóðfélagsmál, sósíalisma og alþjóðastjórnmál, og verða bæði þýdd og frumsamin. Þetta fyrsta rit, „Frá draumum til dáða“ fjallar um vandamál ís- lensks landbúnaðar. — Eins og vænta mátti er bókin prýðilega rit- uð og allur frágangur að öðru leyti hinn ákjósanlegasti. sína, og það er von sambandsstjórn- arinnar, að félögum innan sam- bandsins sé ljós nauðsyn þess, að íáðist hefir verið í útgáfu þess, og sýni þann skilning sinn í verki, með því að taka blaðinu vel og stuðla að útbreiðslu þess eftir (Framhald á 4. siðu). Landsmóti skíðamanna er nú lokið Landsmóti skíðamanna lauk 15. þ. m. Urðu úrslitin þau, í svigi, að sveit Iþróttaráðs Akureyrar vann í A-flokki. Varð þar fyrstur Ásgrím- ur Stefánssoh frá Siglufirði, en ann- ar Júlíus B. Magnússon, í. R. A. í B-flokki sigraði sveit íþrótta- félags Reykjavíkur. En fyrstur varð Gunnar Karlsson í. R. A„ en næstur Haraldur Árnason í. R. í C-flokki urðu fyrstir Sigurður Þórðarson og Hreinn Ölafsson frá í. R. A. I stökki urðu úrslitin þau í A- flokki, að Jónas Ásgeirsson frá Sigluf. bar sigur úr bítum, en í B- flokki varð Erlendur Stefánsson hlutskarpastur. í stökki pilta frá 17—19 ára sigr- uðu þeir Gunnar Karlsson og Sig. Þórðarson frá í. R. A. 1 bruni varð hlutskarpastur Gísli Ólafsson frá íþróttafél. Háskólans, en næstur honum varð Júlíus B. Magnússon frá í. R. A. Var frammistaða Akureyringanna hin prýðilegasta, eins og úrslitin bera með sér og ætti að verða skíða- mönnum bæjarins til uppörfunar og skapa þeirn skilyrði til enn meiri fullkomnunar og leikni í þessari ágætu íþrótt.

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.