Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 30.03.1943, Blaðsíða 1

Verkamaðurinn - 30.03.1943, Blaðsíða 1
XJm sameininfl armélin \ Nýtt verkalýðsfélag í stofnun Verkalýðsfélag Akureyrar rekið úr Alþýðusambandi Islands. Verkamenn bæjarins streyma nú óðum úr því og skrá sig á stofnendalista hins nýja félags, sem mun ganga í Alþýðusambandið Stoínfundup að verkamannadeild þessa fé- lags verdur í Vepklýðsliúsinu kl. 8,30 í kvöld Inngangsorð. Eins og mörgum er kunnugt, höfum við undirritaðir fulltrúar Alþýðusambands íslands starfað hér í bænum undanfarnar 2 vikur að sameiningu verkamanna á Ak- ureyri í eitt stéttarfélag, sem byggt yrði á fullkomnu skoðanafrelsi, jafnrétti og lýðræði verkamanna. Þar sem vitað er að alþýða hér í bænum, án tillits til mismunandi stjómmála- og lífsskoðana, þráir fátt heitar en frið og einingu innan stéttarsamtaka sinna, og hún á kröfu til þess að fá vitneskju um, hvernig aðiljar halda á þessum málum, þá teljum við rétt að skýra henni frá málavöxtum og birtum þá til að byrja með samþykt mið- stjórnar Alþýðusambands íslands frá 10. mars sl, en hún er grund- völlurinn, sem við höfum byggt á sameiningartilraunir okkar. Fer þessi samþykkt hér á eftir: Samþykt miðstjórnar. „Með því að ekki hefir tekizt að sameina verkalýð Akureyrar í eitt verkalýðsfélag á grundvelli álykt- ana 17. þings Alþýðusambandsins, þrátt fyrir viðleitni miðstjórnar í þessa átt, og fyrirsjáanlegt er að verkalýðshreyfingu Akureyrar er hætta búin af núverandi ástandi þar í þessu efni, þá samþykkir mið- stjórnin hér með að taka þessi mál í eigin hendur og senda með fyrstu ferð, í þessu skyni, einn eða fleiri fulltrúa úr sínum hópi til að annast framkvæmd þessarar sameiningar. Fulltrúum sínum til leiðbeining- ar í þessu starfi, samþykkir mið- stjórnin eftirfarandi atriði, sem grundvöll að samkomulagi milli viðkomandi félagsaðila: 1. Verkalýðsfélag Akureyrar verði opnað fyrir öllum verka- mönnum, sem hafa samkvæmt lög- um Alþýðusambandsins og hvers löglegs sambandsfélags rétt til að vera þar. , Verkamannafélag Akureyrar verði lagt niður og eignir þess látn- ar ganga til Verkalýðsfélags Akur- eyrar. Verkakvennafélagið „Eining“ verði félag allra verkakvenna á Akureyri, á sama hátt og Verka- lýðsfélag Akureyrar félag allra verkamanna. 2. Verkalýðsfélag Akureyrar og Verkakvennafélagið ,Eining‘ verði eins og að framan er sagt, hin lög- formlegu sambandsfélög, hvert í sinni starfsgrein. Konur, sem til þessa hafa verið félagar í Verkalýðsfélagi Akureyr- ar (og vilja ekki fara í Einingu) hafi rétt til að vera þar áfram. Konur þessar hlíti þó töxtum og samningum „Einingar“ um kaup og kjör. 3. Verkalýðsfélag Akureyrar, Verkamannafélag Akureyrar og Verkakvennafélagið ,Eining‘ verði sameinuð í eitt félag, sem yfirtaki eignir allra hinna sameinuðu fé- laga, enda sé þetta félag opið öllum verkalýð í samræmi við lög A. S. í. og annara löglegra sambandsfé- laga. Félagi þessu verði skift í deildir. Náist ekki samkomulag á grund velli neinna ofangreindra atriða, samþykkir miðstjórnin með skír- skotun til ályktunar 17. þings Al- þýðusambandsins um þessi mál, að svifta sambandsréttindum þau félög, sem hafna samkomulagi þessu, og felur fulltrúum sínum að gangast þegar í stað fyrir stofnun verkalýðsfélags sem grundvallað yrði á fullkomnu lýðræði, og yrði það hið lögformlega sambandsfé- lag í stað hinna gömlu og ósættan- legu félaga.“ Samkomulagið strand- ar á Erlingi og Halldóri. Er þá frá því að segja, .hvemig aðiljar hér á Akureyri hafa brugð- ist við þessum samkomulagstillög- um Alþýðusambandsstjórnarinnar. Er það fljótsagt, að samkomu- lag um þessi mál er þegar strandað eftir hálfsmánaðar þóf, á einum aðilja þessa máls, meiri hluta stjómar Verkalýðsfélags Akureyr- ar og skal það nú skýrt nánar: 1. Fulltrúar Verkamannafélags Akureyrar og Verkakvennafélags- ins „Eining” hafa samþykkt fyrir sitt leyti að Verkamannafélag Ak- ureyrar verði lagt niður og eignir þess sjóðir og húseign, verði látnar ganga til Verkalýðsfélags Akureyr- ar, sem yrði þá hið löglega sambandsfélag hér í bænum, gegn því að þetta félag yrði opnað öll- um, sem þar eiga rétt til að vera samkv. lögum Alþýðusambandsins og að „Eining“ verði hið löglega sambandsfélag verkakve'ftna á Ak- tureyri. 2. Fulltrúar Verkamannafélags Akureyrar og Verkakvennafélags- ins „Eining“ hafa boðið samþykki sitt við því að bæði þessi félög gengju inn í Verkalýðsfélag Akur- eyrar, sem erfði svo eignir beggja fyrrnefndra félaga að því einu til- skyldu, að Verkalýðsfélagið yrði opnað öllum verkamönnum og verkakonum á Akureyri og lögum ! þess breytt til samræmis við lög vAlþýðusamb. íslands. 3. Fulltrúar Verkamannafélags íAkureyrar og Verkakvennafélags- ins „Eining“ hafa ennfremur boðið Isamkomulag á þeim grundvelli, að öll þessi þrjú umræddu félög yrðu leyst upp og stofnað yrði svo upp úr þeim nýtt verkalýðsfélag, sem eignir fyrrnefndra félaga rynnu til, og að það félag yrði hið viður- kenda sambandsfélag á Akureyri. 4. Loks hafa fulltrúar Verka- mannafélags Akureyrar og Verka- kvennafélagsins „Einingar" fallizt á, fyrir sitt leyti, eftirfarandi sam- einingartillögu frá okkur undirrit- uðum. Þessi tillaga er byggð á grundvelli 2. liðs framanritaðrar á- lyktunar miðstjórnar Alþýðusam- bandsins, og höfum við sent hana viðkomandi aðiljum í samnings- formi sem úrslitakosti 2. aprll s.k: Síðustu samkomulags- tillögur. Verkalýðsfélag Akureyrar, Verka- mannafélag Akureyrar og fulltrúar Alþýðusambands íslands, Jón Sig- urðsson og Jón Rafnsson fyrir hönd Verkakvennafélagsins ,,Eining“ Ak- ureyri og fyrir hönd Alþýðusam- bands íslands, hafa orðið ásátt um eftirfarandi skuldbindandi sam- komulag: 1. Verkalýðsfélag Akureyrar lofar því að þeir félagsmenn Verka- mannafélags Akureyrar og aðrir þeir, sem sækja um inngöngu í Verkalýðsfélag Akureyrar á næstu fundum þess og samkomulag verður um samkv. því sem ákveðið er í öðr- um lið þessa samkomulags, að inn- gönguskilyrði hafi, verði teknir í Verkalýðsfélag Akureyrar. Lögum Verkalýðsfélags Akureyr- ar verði breytt samkv. fylgiskjali nr. 2. Á meðan áðurnefndar tillögur um breytingar á lögum Verkalýðs- félags Akureyrar (á fylgiskj. nr. ) hafi ekki gengið formlega í gildi, komi ekki til framkvæmda ákvæði 3., 4. og 13. gr. laga Verkal.fél. Ak- ureyrar um inntökuskilyrði og brottvikningu, og um inntöku nýrra meðlima í félagið, verði fylgt eftirfarandi reglu: Fulltrúar Alþýðusambands ís- lands, Jón Sigurðsson og Jón Rafns- son ásamt tveim fulltrúum, sem til- nefndir eru af stjórnum Verkalýðs- félags Akureyrar og Verkamanna- félags Akureyrar, skulu athuga all- ar inntökubeiðnir, og hafi þeir sér til aðstoðar mann úr stjórn hvers sambandsfélags hér á staðnum, til að ganga úr skugga um að innsækj- endur séu eigi í öðrum stéttarfélög- um. Nú hefir orðið samkomulag milli þessara manna um hlutgengi og rétt innsækjenda til að vera í verka- mannafélagi samkvæmt lögum Al- þýðusambands Islands og sambands- félaga yfirleitt, og skulu þeir þá öðlast óskoruð félagsréttindi í Verkalýðsfélagi Akureyrar, enda hafi þeir greitt lögákveðið gjald til félagsins og skrifað undir skuld- bindingu samkvæmt lögum þess. Inntökubeiðnir skulu berast upp í einu lagi á fundum sé um fleiri en eina að ræða. í f jarveru þeirra Jóns Sigurðsson- ar og Jóns Rafnssonar, geta þeir sett menn í sinn stað til að gegna þessu starfi. 3. Eftir að inn hafa verið teknir í Verkalýðsfélag Akureyrar á næsta fundi þess, þeir innsækjendur, sem að framan greinir, skal stjórn Verkamannafélags Akureyrar gefa skriflega yfirlýsingu um, samkv. framlögðu umboði að Verkamanna- félag Akureyrar sé lagt niður og eignir þess, sjóðir og húseign, skuli ganga til Verkalýðsfélags Akureyr- ar. Þá skulu afhentir sjóðir Verka- mannafélags Akureyrar og gangi þeir til hliðstæðra sjóða Verkalýðs- félags Akureyrar. 4. Þrír menn úr Verkalýðsfélagi Akureyrar verði með samkomulagi milli aðilja tilnefndir í húsnefnd Verkalýðshússins. Hafi þeir með höndum, ásamt húsnefndarfulltrú- um Verkakvennafélagsins „Eining" rekstur hússins, þar til þessi tvö fé- lög hafa komið sér saman um að gera aðrar ráðstafanir í því efni. Jafnframt skal þessi húsnefnd gegna hlutverki venjulegrar skilanefndar. Þegar miðstjórn Alþýðusam- bands Islands hefir staðfest lög Verkalýðsfélags Akureyrar með áorðnum breytingum á fylgiskj. no. og staðfest samkomulagið milli Verkalýðsfélags Akureýrar og

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.