Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 01.05.1943, Blaðsíða 2

Verkamaðurinn - 01.05.1943, Blaðsíða 2
2 VERKAM AÐURINN Það var Framsóknarflokkurinn — en ekki verldýðsflokkarnir — sem bjargaði skatta- hlunnindum stórgróðafyrirtækjanna Hér með tilkynnist vinum og vandamönnum, að elsku drengimir okkar, PÁLMI HELGI og JÓNAS EINAR SVANBERG, sem önduð- ust í Kristneshæli á páskadagskvöld, verða jarðsungnir þriðjudaginn 4. maí kl. 1 e. h. frá Akureyrarkirkju. Elín Einarsdóttir, Tryggvi Jónasson og systkini. ,,Dagur“, sem kom út s. 1. fimtu- dag, birtir tvær greinar með gleið- letruðum fyrirsögnum og gleið- gosalegum upphrópunum um það, að Sósíalistar á Alþingi hafi gengið í þjónustu stórgróðamanna og hjálpað þeim til að viðhalda skatta- hlunnindum sínum. Er blaðið, eins og vonlegt er, ákaflega hneykslað yfir slíku framferði — og gætu þeir, sem ekki þekkja málavöxtu, hæg- lega ímyndað sér, að „Dagur" væri gefinn út af flokki, sem aldrei hefði komið nálægt því að veita þessi /hneykslanlegu skattahlunnindi, sem honum fellur nú svo þungt, að ekki skyldu vera numin úr gildi. Þeir, sem hins vegar hafa svolítið fylgst með gangi þjóðmálanna, vita að skattalögin, sem nú gilda, þar á meðal umra?dd skattahlunnindi, eru eitt af ástfóstrum „Framsókn- arfl.“, frá þjóðstjórnartímanum sæla — svo sorgin er nú kannske ekki eins sár og látið er í veðri vaka. En hver er þá sannleikurinn í þessu efni? í stuttu máli sá, að það var Fram- sóknarflokkurinn — en ekki sósíal- istar — sem bjargaði skattahlunn- indum stórgróðafyrirtækjanna. ,,Dagur“ — með Bernharð Stef- ánsson alþingismann sem leiðar- ljós — ásakar sósíalista fyrir það að fella niður úr dýrtíðarfrumvarpi ríkisstjórnarinnar ákvæðið um af- nám skattahlunnindanna. Én hversvegna varð Sósíalista- fjokkurinn að gera þetta? í fyrsta lagi vegna þess, að hann gat ekki náð neinu samkomulagi við Framsóknarflokkinn um lausn dýrtíðarmálsins, nema gengið væri á rétt og hagsmuni launþeganna í landinu. En af því að Sósíalista- flokkurinn vildi ekki gera það, átti hann þess ekki heldur kost að njóta aðstoðar Framsóknarfl. til afnáms skattahlunnindanna, í sambandi við það mál. Hinsvegar bauðst Sósíalista- flokknum tækifæri til að leysa dýr- tíðarmálið, með samkomulagi við Sjálfstæðisflokkinn, á mjög hag- kvæman hátt fyrir alþýðu manna, gegn því, að skattamálin væru, að mestu, frá því skilin. Og Sósíalistaflokkurinn féllst á það — í trausti þess, að strax á eftir gæti hann leyst skattamálin, út af fyrir sig, með samkomulagi við „Framsóknar“- og Alþýðuflokkinn. En þá er það „Framsóknarfl.“ sem svíkur — eða öllu heldur: rennur blóðið til skyldunnar. Dýrtíðarfrúmvarpið var afgreitt á síðasta degi aukaþingsins. Næsta dag hófst nýtt þing, og strax var flutt, af fulltrúum allra „vinstri" flokkanna, nýtt frumvarp um eignaaukningaskatt. Jafnframt fóru orð á milli flokkanna um frekari skattafrumvörp, sem skyldu af- greidd áður en þingi yrði frestað, og hinn 20. apríl lagði Sósíalista- flokkurinn fram skattafrumvarp, þar sem m. a. voru ákvæði um af- nám skattahlunnindanna. En þá féll „Framsóknarfl.“ allur ketill í eld. Hann kærði sig sem sé ekkert um afnám skattahlunnindanna, sem hann sjálfur hafði með svo mikilli ánægju leitt í lög. — Hann háfði að- eins viljað nota málið sem svipu á Sósíalistaflokkinn. í sambandi við afgreiðslu dýr- tíðarfrumvarpsins hugðist hann að nota það til að sveigja Sósíalista- flokkinn gegn hagsmunum laun- þeganna. Það mistókst, og Sósíalistaflokk- urinn leysti dýrtíðarmálið með Sjálfstæðisfl. — komst sem sé af án náðar „Framsóknar". Þá kom berserksgangur á bless- aða framsóknarmennina.: Nú hafa sósialistarnir orðið að lofa Sjálf- stæðisfl. þvi, að láta skattamálin kyr liggja! hugsuðu þeir. — Nú skulum við, svei mér, píska þá með kröfunni um afnám skattahlunn- indanna, og öllu því!!! Og „Framsókn“ reirði upp skattasvipuna, og reyndi að sví- virða Sósíalistaflokkinn fyrir að hann vildi halda hlífiskildi yfir stríðsgróðamönnunum. Sósíalistaflokkurinn, sem auðvit- að hafði engum slíkum heitum bundist við Sjálfstæðisflokkinn, svaraði með því að leggja fram skattafrumvarp sitt — og skoraði á „Framsókn" að fylgja því gegnum þingið. Þá feldi „Framsóknarfl.“ ekki að- eins svipuna úr höndum sér — heldur lagði einnig niður rófuna, og labbaði heim!!! Með ástúðlegu samkomulagi við stríðsgróðamennina samþykti „Framsóknarflokkurinn“ að fresta þinginu tafarlaust, svo ekki ynnist tími til af afnema skattahlunnindi þeirra, áður en lagt yrði á tekjur síðastliðins ár. Það er því ekki aðeins, að „Framsóknarfl." hafi á sínum tíma leitt í lög skattaundanþágu stór- gróðafyrirtækjanna, heldur er það hann, og enginn annar, sem nú stóð í vegi fyrir því, að stríðsgróðamenn- irnir væru sviftir þessum hlunnind- um. Steingr. Aðalsteinsson. Góð tíðindi Jón Eyþórsson hefir tilkynt, að hann muni ekki starfa í útvarpsráði, a. m. k. fyrst um sinn, hefir Jón tekið upp á þessu í tilefni af því, að hann var ekki endurskipaður formaður útvarpsráðs. Jón hefir skrifað langt mál í Tímann út af þessu máli og kemst m. a. svo að orði: „Eg hefi átt sæti í útvarpsráði í 10 ár, nær óslitið, þar af verið formaður í 4 ár. Þekking mín á þróun og högum stofn- unarinnar er því töluverð“. — Ekki vant- ar aumingja veðurfræðinginn vindinn! Hátíðahöld verklýðsfélaganna 1. maí Tilhögun þeirra verður sem hér segir: ÚTISAMKOMA við Verklýðshúsið kl. 1.15 e. h. Ræður: Jón Rafnsson, erindreki Alþýðu- sambands íslands. Marteinn Sigurðsson, formaður Verkamannafélags Akureyrar- kaupstaðar. Tryggvi Helgason, formaður Sjó- mannafélags Akureyrar. KRÖFUGANGA, að loknum ræð- um. Gengið verður Skipagötu, upp Kaupvangsstræti, norður Hafnar- stræti og Brekkugötu, niður Gránufélagsgötu, suður Glerárgötu að Nýja-Bíó. SAMKOMA í Nýja-Bíó, kl. 3 e. h. 1. Samkoman sett (Hafsteinn Hall- dórsson, fulltrúi Alþýðusam- bands íslands). 2. Ræða (Steingrímur Aðalsteins- son, alþm.). 3. Kórsöngur. 4. Ræða (Guðm. Snorrason, vara- form. Bílstjórafél. Akureyrar). 5. Upplestur (Jón Ingimarsson, rit- ari ,,Iðju“). 6. Ræða (Elísabet Eiríksdóttir, for- maður „Einingar"). 7. Söngur (Smárakvartettinn). Aðgöngumiðar seldir í Nýja-Bíó frá kl. 2.30 og kosta kr. 3.00 og kr. 1.00. Hljómsveit leikur áður en sam- komumar hefjast. Lúdrasveitin Hin nýstofnaða lúðrasveit lék nokkur sálmalög hjá kirkjunni á páskadaginn. Veður var eigi hag- stætt, fremur kaít. Þrátt fyrir það var auðheyrt, áð byrjuni'n er mjög efnileg og gefur vonir um mikinn og góðan árangur síðar, ef bæjar- búar og forráðamenn bæjarins veita lúðrasveitinni þann stuðn- ing, fjárhagslega og á annan hátt, sem er nauðsynlegur allri slíkri menningarviðleitni. Ef sveitinni er gert fært að fá ný og góð hljóð- færi, launa kennara o. s. frv., er mikið fengið, en þó er hitt engu síður mikilvægt, að þeir áhuga- menn, sem leggja fram mikinn tíma og erfiði til að setja svolíuð meira menningarsnið á bæinn, finni það, að þeir eigi að baki sér skilning og samúð allra bæjarbúa. Á. S. Kaupið 1. maí-merki Alþýðusambandsfélaganna! DAN SSKEMTANIR verða í Skjaldborg og Verklýðshús- inu kl. 10 e. h. — Blastakkahljóm- sveitin spilar í Skjaldborg, en Stefán og Ottó í Verklýðshúsinu. Aðgöngumiðar seldir við inngahg- inn og kosta kr. 5.Ó0 að Skjaldborg, en kr. 3.00 að Verklýðshúsinu. MERKI Alþýðusambands íslands verða seld á götunum. TILKYNNING Samkvæmt fyrirskipun Sauðfjársjúkdómanefndar ríkisins ber öllum fjáreigendum í Öngulstaða- og Hrafnagilshreppum, norðan varnargirðingar hjá Grund og Rútsstöðum svo og fjáreig- endum á Akureyri og í Glæsibæjarhreppi sunnan varnargirðingar hjá Lónsbrú, að mála fé sitt greinilega á hægra liorn, með rauðum lit eða í hægri vanga ef kollótt er, á.ður en jwí er sleppt í vor. Þar sem mæðiveiki hefir fundizt á heimili, bey að mála féð með rauð- um lit á bæði horn. Málning fæst hjá K, E>;Á.. Hreppstjórum ber að sjá um að fyrirmælum þessum verði framfylgt. Brot gegn þessu varða •þungurn sektum. : ^ Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu 28. apríl 1942. Sig. Eggerz. AÐALFUNDUR Flugfélags Islands h.f., verður haldinn í Oddfellow- / húsinu í Reykjavilí, miðvikud. 5. maí nk., kl. 2 e. h. D a g s k r á: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 3 2. Lagabreytingar. Stjórnin.

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.