Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 23.10.1943, Blaðsíða 1

Verkamaðurinn - 23.10.1943, Blaðsíða 1
vEMUMinn IX VI ARG. Laugardaginn 23. október 1943. 42. tbl. 1 MIIJON MANNA ÞÝSKUR HER MIKILLI HÆTTU Á SUDURHLUTA AUSTURVÍGSTÖÐVANNA Rússar hafa rofið járnbrautina milli Dnepro- petrovsk og Krivoi Rog Þjóðverjar játa, að horfurnar séu mjög ískyggilegar Rauði herinn færist sífeit í auk- ana eins og fregnir síðustu daga irera vott um. F.r nú svo komið að Þjóðverjar hafa neyðst til að viður- kenna í fyrsta sinni að varnarlína þeirra sé nú rofin í Dnjeprbugð- unni. Hafa Rússar rofið varnarlín- una á breiðu svæði suðaustur af Kremenchug og hafa tekið borgina Þríveldaráðstefna í Moskva Fyrir fáum dögum hófst í Moskva ráðstefna Breta, Rússa og Banda- ríkjamanna. Litlar fregnir hafa enn borist af ráðstefnunni, en fundir eru daglega og fara viðræðurnar vinsamlega fram. Þjóðverjar eru mjög kvíðafullir út af þessari ráðstefnu, enda má telja víst að þar verði náð samkomu- lagi um aðgerðir, sem eru þýsku stjórninni síst að skapi. Annovka fyrir norðan Krivoi Rog og samkvæmt síðustu fréttum voru sovéthersveitir aðeins í 25 km. fjar- lægð frá þessari mikilvægu borg. Eru nú taldar horfur á að Rauða hernum muni takast að innikróa um 1 miljón manna þýskan her í Dnjeprbugðunni og á Krímskaga. í Melitopol eru enn háðir grimmilegir bardagar. Hafa Rúss ar miðhluta borgarinnar og öll út liverfin að undanskildum norður hverfunum á valdi sínu, og er bú ist við úrslitum í orustunni um Melitopol þá og þegar. Þjcrðverjar skýrðu í gær frá því að Rússar liefðu byrjað nýjar sókn ir á ýmsum hlutum hinnar löngu víglínu. M. a. sögðu Þjóðverjar frá því að Rússar hefðu sett lið á land á austanverðum Krímskaga. Fregnirnar í þýska útvarpinu bera það greinilega með sér að Þjóðverjar eru að búa þýsku þjóð- ina undir mjög slæm tíðindi frá austurvígstöðvunum. VERÐUPPBÆTUR Á ÚTFLUTTAR LAKD- BÚNAÐÁRVÖRUR NÁMU UM 15,5 MILJÓNIR KRÓNA ÁRIÐ 1942 Ríkissjóður hefir ekki handbært fé til að standa við skuldbindingar sínar borist eftirfarandi landbúnaðarráðu- Blaðinu hefir greinargerð frá neytinu: Atvinnúmálaráðherra u eftirfarandi á fundi í sameinuðu þingi 15. þ. m. Með þingsályktunartillögu samþ. Herðið söfnunina fyrir „Þjóðviljann44! Um næstu mánaðamót þarf söfn- unin fyrir Þjóðviljann að vera orð- in um 150 þús. kr. svo unt verði að stækka blaðið upp í 8 síður. Eng inn sósíalisti né afturhaldsandstæð ingur má liggja á liði sínu í þesari baráttu. Sósíalistar! Söfnunarlistar fást enn á afgreiðslu „Verkam.“ Herðum nú söfnunina næstu daga svo um munar! Atvinnumálaráðherra virðist andvígur því, að ríkissjóður taki kvittanir frá réttum við- takendum fyrir miljónagreiðslur. Finnur Jónsson kvaddi sér hljóðs, utan dagskrár, í neðri deild Alþing- is, s.l. mánudag og fór þess á leit við atvinnumálaráðherra, Vilhjálm Þór, að ríkisstjórnin gerði Aljringi grein fyrir því, hvernig uppbæt- urnar skiftust á hvert býli eða hvern bónda í landinu. Atvinnumálaráðherrann gaf þær upplýsingar, að ríkisstjórnin af- henti kaupfélögunum alt uppbót- arféð samkvæmt útflutningsskýrslu eða afhenti S. í. S. jrað í heilu lagi og tæki aðeins kvittanir frá kaup- félögunum eða S. í. S. Þegar ráðherrann hafði lokið máli sínu ítrekaði F"innur ósk sína um sundurliðaða skýrslu um hvern ig þessari miljónafúlgu væri skift. Áki Jakobsson kvaddi sér síðan hljóðs og tók undir málaleitun Finns, en auk þess fór hann fram á, að ríkisstjórnin tæki kvittun frá hverjum framleiðanda, fyrir það uppbótarfé, sem hann fengi greitt. greitt. Krafa Áka um kvittanir frá hverjum þeim - framleiðanda, er fengi uppbótarfé, virðist hafa kom- ið \ ið auman hlett á atvinnumála- ráðherranum, því hann sti'tð nú upp og lýsti því yfir, að ríkisstjórn (Framhald á 3. síðu). Verkamannafélag tofnað í Rangár- vallasýslu Erindreki Alþýðusambandsins, Jón Rafnsson, stofnaði 13. þ. m. verkamannafélag í Rangárvalla sýslu. Hlaut það nafnið Þríhyrning ur. Nær starfssvið þess yfir Hvol- hrepp, Rangárvallahrepp og Vest ur-Landeyjar. Stofnendur voru 22 í stjórn félagsins voru kosnir: Guð j(')n Olafsson, Syðstu Mörk, for maður. Hermann Sveinsson, Kal- velli, ritari og Guðjón Helgason, Forsæti ,gjaldkeri. Félagið samþykti á stofnfundin um að sækja um inngöngu í Al- þýðusambandið. Bókarfregn Blaðinu hefir nýlega borist skýrsla Menntaskólans á Akureyri fyrir árin 1940—1941 og 1941 — 1942. Hinni þurru greinargerð um starfsemi skólans á þessum vetrum, fylgja tvær ræður eftir skólameist- ara, Sigurð Gtiðmundsson. ÞJÓDVILJINN ÁTTA SÍÐUR „VIN N A N“ 8. tbl. „Vinnunnar" nýkomið út. Blaðið er að vanda prýðilega úr garði gert, og ómissandi fyrir hvern þann alþýðumann, sem vill fylgj- ast með rás viðburðanna og efla hag stéttar sinnar og samtaka. F.fni þessa tölubl. er m. Bandalag alþýðustéttanna, grein eftir Jón Rafnsson, Ment er mátt ur, grein eftir Jón Sigurðsson Styrjöldin og átökin um |>að sem koma skal, grein eftir Sigurð Guð- mundsson, Menn, smásaga eftir a.: 31. ágúst 1942 samþykti Alþingi ,,að fela ríkisstjórninni að greiða úr ríkissjóði verðuppbót á útflutt dilkakjöt af framleiðslu ársins 1942, eftir því sem þörf gerist til þess að útflytjendtir fái sama verð fyrir það kjöt, komið í skip á útflutnings- höfn, eins og heildsölmerðið er á kjöti á innanlandsmarkaði á sama tíma.“ Samkvæmt þessu hefir Jxinn 21. ágúst s.l. verið afgreitt frá atvinnu málaráðuneytinu fyrirmæli um greiðslu þessarar uppbótar á útflutt dilkakjöt af framleiðslu ársins 1942 og nam upphæðin kr. 2.212.810.34. Með sömu þingsályktunartillögu ályktaði Alþingi að fela að greiða úr ríkissjóði „verðuppbætur á ull og gærur, sem framleiddar eru til útflutnings 1942 og miðist verð- uppbæturnar við það að framleið- endur fái ekki lægra verð hlutfalls- lega fyrir þessar afurðir en þeir fengu fyrir þær árið 1940, miðað við verðlagsvísitölu beggja áranna, að viðbættri uppbót, er svarar til Jreirrar almennu grunnkaupshækk- unar, sem orðið hefir og \ erða kann hjá launafólki í’landinu á árinu 1942. Samkvæmt þessu fyrirlagi Al- jiingis hefir ríkisstjórnin ákveðið verðuppbætur þessar með vísitölu- hækkun 60,61% og grunnkaups- hækkun 22Vz%. Atvinnumálaráðuneytið til- kynnti útflytjendum í gær, að ull- aruppbót gæti orðið greidd strax og fyrir lagi fullnægjandi skilríki frá þeim um magn vörunnar. Gæruuppbótin verður greidd áð- ur en mjög langt líður, en sem stendur er eigi nægilegur sjóður fyrir hendi í ríkissjóði til að standa straum þessarar greiðslu um fram venjuleg dagleg útgjöld. Þar sem ráðuneytinu hefir enn eigi borist skilríki frá útflytjend- um, nægileg til þess að gera upp samtals upphæð verðuppbótanna, verður eigi upplýst nú nákvæmlega upphæðin en eftir því. sem næst verður komist má áætla ullaruppbótina 41/2 milj. kr. og gæruuppbótina 8.850.000 kr. Guðmund Daníelsson, Rúðarstúlk- an, grein eftir Pálínu Eggertsdótt- ur, Verkamannafélagið Báran á Eyrarbakka, grein eftir \7ilh jálm S. Vilhjálmsson, Fagra stúlkan, kvæði eftir Jón Jóhannesson.

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.