Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 09.12.1944, Blaðsíða 1

Verkamaðurinn - 09.12.1944, Blaðsíða 1
XXVII. ÁRG. Laugardaginn 9. desember 1944. 45. tbl. ELDHÚSUM RÆÐURNAR Eina bjargráS Framsóknar er kauplækkun Þeir segja, að fjárhagur ríkisins sé kominn í öngþveiti, en vildu þó hafa „uppbótastjórn" Björns Ólafssonar og Vilhjálms Þór áfram og þögðu með þeim yfir öllum ósómanum Eftir að almenningur hlustaði á útvarpsumræðurnar um fjárlögin í byrjun þessarar viku, gengur sú spurning tíðast manna á meðal: — "Hvað vill Framsókn? Það er ekki að furða þótt ýmsum verði á að spyrja þannig, eftir að hafa hlustað á Framsóknar-foringj- ana reyna með öllu móti að spyrn- ast gegn áformum nýju stjórnarinn- ar og sverta hana og tortryggja í augum almennings. En sakir þess hve þeim tókst óhönduglega allur málflutningur í umræðunum út í gegn ,er lítil hætta á að raus þeirra verði tekið alvarlega. Hermann og Eysteinn reyndu með sínu alkunna kerlingarnöldri að útmála það, að ekkert væri hægt að gera, sem til úrbóta væri á neinu sviði og ekkert þyrfti að gera,-- nema eitt: lækka kaupið! Þeir töldu tekjuhalla mundi verða á fjárlögunum, en þögðu hinsvegar um það, að Björn Ólafsson, fyrrv. fjármálaráðherra, samdi þessi fjár- lög með margra miljóna tekjuhalla. Þeir sögðu líka, að öngþveiti ríkti í fjármálum landsins, — en þeir þögðu um það, að fyrrv. stjórn Björns Ólafssonar og V. Þór er völd að öngþveitinu og þá stjórn og það ástand vildi Framsóknar- flokkurinn fyrir alla muni hafa — helzt að skilja, um alla eilífð, og Hermann og Eysteinn sýndu meira að segja þá óvenjulegu óeigingirni að neita að taka við störfum. þeirra í stjórninni nú í vetur. Eysteinn reyndi að gera sig digr- an og gorta af stjórnkænsku sinni frá þeim tíma er hann var ráðherra. Einar Olgeirsson sýndi hinsvegar með tölum í hverju sú „stjórn- kænska“ var fólgin: atvinnuvegirn- ir drógust saman, framleiðslan minkaði og skipastóllinn gekk í sig til stórra muna. Þessu varð Eysteinn að kyngja með þögninni. Kenslubók í flugi Næstu daga kemur á bókamark- aðinn fyrsta flugkennslubókin, sem gefin hefir verið út á íslenzku. Er hún þýdd af Helga Valtýssyni ,en búin undir prentun af Agnari Kofoed-Hansen, Sigurði Jónssyni, flugmanni, og dr. Birni Sigfússyni. Bókin heitir: Lærðu að fljúga, og er prýdd 40 myndum. Útgefandi er Árni Bjarnarson. Framsóknarmenn segja nú, að all- ir atvinnuvegir verði að bera sig. — Mikið rétt. Þeir hafa jró horft á það nú í mörg ár bæði í stjórn og utan, að framleiðslan hefir ekki borið sig og jreir voru upphafs- menn og síðan stuðningsmenn að því, að framleiðsluvörurnar væru verðbættar úr ríkissjóði um óá- kveðinn tíma, án þess að nokkuð Fjórða þingi Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins, — lauk 1. des. og gerði þingið merkar ályktanir um stefnu flokksins í ’andsmálum, verkefni hans og starfshætti, og mun Verkarn. skýra nánar frá þeim síðar. Á þinginu ríkti alger eining um starf miðstjórnar að myndun ríkis- stjórnarinnar, og hét flokksþingið stefnu stjórnarinnar fyllsta stuðn- ingi. í þinglok var kosin flokksstjórn, en hana skipa 33 menn, og mið- stjórn, sem kosin er úr hópi flokks- stjórnarmanna í Reykajvík og ná- grenni, og er hún þannig skipuð: Formaður flokksins: Einar ()1- geirsson. Varaformaður flokksins: Sigfús A. Sigurhjartarson. Formaður flokksstjórnar: Bryn- jólfur Bjarnason. Leikfélag Akureyrar hefir nú undanfarið unnið að því að koma hinum kunna gamanleik „Leyni- mel 13“ á svið hér og er fyrsta sýn- ing í kvöld kl. 9 í Samkomuhús- inu. Leikur þessi er saminn af þrem Reykvíkingum, senr nefna sig einu nafni „Þrídrang" og hefir hann verið leikinn í Reykjavík við feikna aðsókn og vinsældir. Þar er tekið til meðferðar ýmislegt af því kát- væri gert til að bæta úr ástandinu. Og nú fyrst, þegar „uppbóta“- stjórnin þeirra er farin frá völdum, sjá þeir að fjárhagtir ríkisins er konrinn í öngþveiti. En þeir eru samt á móti öllu, sem kynni að bæta núverandi ástand. Er furða þótt spurt sé: — Hvað vill Framsókn? Varaformaður flokksstjórnar Steinþór Guðmundsson. Aðrir meðstjórnendur: Áki Jak- obsson, Áræll Sigurðsson, Eggert Þorbjarnarson, Jón Rafnsson, Kat- rín Pálsdóttir, Kristinn E. Andrés- son, Stefán Ögmundsson. Herforingi Vishy- stjórnarinnar dauða- dæmdur Parísar-útvarpið tilkynnir að Ge- orge Lelong, fyrrum herstjóri Vichystjórnarinnar í Haute Savoie, hafi verið dæmdur til dauða fyrir samvinnu við óvinina. Dóminn' dæmdi franskur her- réttur. legasta, sem gerst hefir og gerist með þjóðinni á síðustu árum, og. er víða komið við. Er ekki að efa, að leikurinn verður vinsæll hér, ekki síður en syðra, enda er flutn- ingur slíkra gamanleikja óvenju- legt fyrirbrigði hér í bæ. Leikstjóri er Guðmundur Gunn- arsson og ýmsir vinsælustu leikarar bæjarins fara þarna með aðalhlut- verkin. Erlendar frétfir Miklar viðsjár eru nú í Grikk- landi milli herja grískra frelsisvina annarsvegar og Breta hinsvegar. — Stjórn Bretlánds hefir heimtað að skæruliðarnir legðu niður vopn, en þeir hafa ekki hlýtt því boði. Mest kveður að ósamkomulaginu í höf- uðhorginni Aþenu og hefir þar komið til bardaga. Bretar hafa tek- ið um 900 fanga úr hópi skæruliða, en þeim var flestum sleppt lausum aftur eftir að þeir höfðu verið yfir- heyrðir. Alls er talið að frelsisvin- ir hafi um 10.000 manna her í Grikklandi. Neðrimálstofa brezka þingsins hafði Grikklandsmálin til umræðu í gær. Urðu miklar og heitar umræð- ur um málið. Churchill flutti 1Y2 klst. ræðu og mælti fast með afvopnun skæru- liðanna. Andnrælendur í deildinni voru þingmenn Verkamannaflokks- ins. Var loks samþykkt m.eð-279 at- kv. gegn 30 (aðallega atkv. þingm. Verkamannafl.) tillaga um stuðn- ing við stefnu ríkisstjórnarinnar í rnálinu — afvopnunarleiðina. — Churchill liélt því fram, að skæru- liðar vildu ekki viðurkenna hina „lögmætu" stjórn Grikklands, sem setið hefir í Englandi síðan Þjóð- verjar hertóku landið, en vildu sjálfir koma á stjórn ofstækisflokks (þ. e. kommúnista). — Talsmaður Verkamannafl. taldi hinsvegar eðlilegt, að sá hluti grísku þjóðar- innar, frelsisvinirnir, sem mest hafa á sig lagt við að hrekja Þjóð- verja á brott, vildu ráða einhverju um stjórnarhættina innanlands að því loknu. Á austurvígstöðvunum hafa litl- ar breytingar orðið nú undanfarið, aðrar en þær, að Rauði herinn hefir sótt fram beggja vegna Búdapest og þrengir þar mjög að Þjóðverjum. í fregnum frá Moskva í gær, var talið líklegt, að Þjóðverjar neyddust til að yfirgefa Búdapest innan fárra daga, annars ættu þeir á hættu að verða króaðir inni. Þjóðverjar hafa geysimikinn herafla í borginni. Achen-vígstöðvunum er alltaf barist af mikilli grimmd, en Banda- mönnum sækist hægt fram. Fyrir norðan Saarbrúkcen hefir þeim orðið talsvert ágengt undanfarið og Þjóðverjar tala um harða sókn þeirra þar. , Þá hófu Banadamenn einnig nýja sókn í Vogesafjöllum í gær og varð talsvert ágengt. Nazistar halda stöðugt áfram hefndarskothríðinni á London og fleiri staði í Suður-Englandi. Þing Sósíalistafl. einhuga um fyllsta stuðning við stefnu ríksstjórnarinnar 4. þingi Sameimngarflokks alþýðu - Sósíal- istaflokksins lokið. Einar Ogeirsson endur- kosinn formaður flokksins Leikfélag Akureyrar hefur frumsýningu á gamanleiknum „Leynimel 13" í kvöld

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.