Alþýðublaðið - 19.06.1965, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 19.06.1965, Blaðsíða 3
Saigon, 18. júní. (ntb-reuter). I Bandaríkjamenn beittu í fyrsta I sinn í dag hinum risastóru sprengjuþotnm sínum gegn Viet- cnng hermönnum kommúnista i Suður-Vietnam. Stríðið er því komið á nýtt stig, að því er sagt var í Saigon í kvöld. AIls var 30 B — 52 sprengjuþot- um beitt gegn Vietcong í skóg- Dregið í happdrætti Krabbameinsfélagsins 17. JÚNÍ var dregið í sumarhapp- drætti Krabbameinsfélags Reykja- víkur um tvo vinninga, Consul Cortina bíl og hjólhýsi. Happ- drættið gekk óvenju vel að þessu sinni og seldust miðar, nær aiveg upp. Vinningarnir komu á eftir- talin númer: Consul Cortina: 32381. Hjólhýsi: 26201. V'inninganna má vitja í skrif- stofu félagsins að Suðurgötu 22. lendi 40 km. vestan við Saigon. : Þoturnar komu frá herstöð á Gu- am á Kyrrahafi og snéru þangað | aftur eftir að hafa fengið elds- ! neyti í lofti yfir Okinawa. | Ekki hafði verið skýrt frá ár- angri árásarinnar í kvöld. En AFP hermir, að flestir hermenn Viet- ! cong á árásarsvæðinu hafi verið farnir er árásin var gerð og sam- kvæmt því hefur árásin mistek- izt. í dag lýsti kínverska stjórnin yfir því, að öllum nauðsynlegum undirbúningi að sendingu sjálf- boðaliða til Vietnam væri lokið og færu þeir þangað jafnskjótt og þess væri farið á leit. Góðar heim ildir í Saigon herma, að stjórn Suður—Kóreu hafi ákveðið að senda heilt herfylki, um 12 þús. menn, til Suður—Vietnam, ef þess verður farið á leit. Bandarískar flugvélar héldu á- fram loftárásum á Norður—Viet- nam í dag. Tjón var unnið á nokkr Framh. á bls. 5. Klemmdist milli veggs og palls Reykjavík. — ÓTJ. ELLEFU ára drengur slasaðist á höfði um tíu leytið í gær er hann klemmdist milli veggs og Slasaðisf í strætisvagni Reykjavík. — ÓTJ. SAUTJÁN ára stúlka, sem var farþegi í strætisvagni í gær, slas- aðist er hann lenti í árekstri við leigubifreið á Ægissíðu. Aðrir meiddust ekki. EÐVARÐ Á SJÚKRAHÚSI Reykjavík — EG. Eðvarð Sigurðsson, formaður Verkamannafélag ins Dagsbrúnar var lagður inn á Landakotsspítala síðastliðinn miðvikudag, en hann hafði fengið kransæðastíflu. Eðvarð hefur undanfarið verið einn helzti talsmaður verkalýðs félaganna Jhér syðra í samninga umleitnnnm við atvinnurekendur, en Guðmundur J. Guðmundsson | varafo”maður Dj>g brúnar tekur ' nú við samningas^örfum af Eðvarð sem verður f-rá um óákveðinn tíma. palls á vörubifreið. Vörubifreiðin stóð í porti við Frakkastíg 12, en portið er opið út að Grettis- götu. Hún var mannlaus og fór drengurinn upp í, og hefur rjál- að við eitthvað í bifreiðinni með þeim afleiðingum að bifreiðin rann af stað, því hún stóð í nokkr um halla. Drengurinn varð hræddur og hljóp út, og þrýsti sér upp að veggnum til að sleppa við bifreið- ina. En áður en hann stökk út, hafði hann komið við stýrið og lagt á það, svo að bifreiðin fór alveg upp við vegginn. Lenti höf- uð drengsins milli pallsins og veggsins og skarst hann við • það allmikið. Torfi Jónsson hjá rann- sóknarlögreglunni, sem hafði rannsókn málsins með höndum, sagði þó að meiðsli hans væru ekki alvarleg, og fékk hann að fara heim til sín eftir að gert hafði verið að þeim. / / ÞJOÐHATIÐ ÍSVEIT 17. JÚNI var minnzt í Mos- fellssveti með hátíðahöldun, og voru þau fjölsótt og vel heppnuð í alla staði. íbúar í Mosfellssveit héldu þjóð- hátíðardaginn fyrst hátíðleg- an í fyrra, er ný sundlaug var vígð að Varmá. — Við birtum hér tvær myndir af hátíöahöldunum. Neöri mynd in er tekin er skrúðganga fer framhjá gamla skólahús- inu að Brúarlandi, en sú neðri er sóknarpresturinn, séra Bjarni Sigurðsson, pré- dikar. — Til hliðar stendur kirkjukórinn og lengst t. v. er Hjalti Þórðarson, stjórn- andi hans. — (Myndir: R.L.). SKÓGAFOSS KOM Á ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGINN Reykjavík, GO- í GÆR, á þjóðhátíðardaginn, Iagð ist Skógafoss að bryggju í Reykja- vík í fyrsta skiptj. Skipið kom á ytri höfnina upp úr hádeginu og kom uppað um hálfsjö leytið. Skip inu var hleypt af stokkunum 13 febr. sl. og aflient eigendum þann | 20. maí. Samið var um smíði þess | í ágúst 1963. Skipasmíðastöðin er 1 Aalborg verft í Álaborg. Skipið er annað tveggja systur skipa sem samið var um smí$i á samtímis. Hitt er Reykjafoss, sem verður afhentur félaginu í haust Skógafoss er rúmir 95 metrar á lengd, breiddin er 13,42 m- og djúprisia 6,6 metrar. Hann er 2614 tonn brúttó- Ýmsar nýjungar er að finna í skipinu. T.d. ganga allir lesta rammar niður fyrir þilfarið. Lest ar eru tvær og báðar miðaðar við í’.utning elmennrar stykkjaþöru og stórflutninga, en eru jafnframt sérstaklega hentugar til flutninga á ópakkaðri vöru. Aðalvél skipsins er 5 strokka Skógafoss, hið nýja skip Eimskipafélagsins, á ytri liöfninni í Reykjavik. (Mynd: Alþbl.). dieselhreyfill smíðaður af Bur meister og Wain. Hann er 2500 hestöfl. Ganghraði skipsins var 15 sjómílur en gera má ráð fyr ir að ganghraði skipsins fullhlað ins verði um 14 mílur- Hjálparvél ar eru 3, einnig af Burmeister og Wain gerð. Þær eru 285 hestöfl hver- Áhöfn skipsins er 23 menn og búa þeir allir í eins manns her bergjum. Þá er sjúkraherbergi og herbergi fyrir tvo farþega auk eins herbergis, sem nota má til hvers sem vera skal. Siglingatæki eru öll af nýjustu og fullkomnustu gerð og í skininu er fullkomið eldvarnarkerfi. Und irluinirg cmífíi cVfr»cir,s og effirlit með henni, hafði Viggó E. Maack skinaverkfræðingur á hendi. Honum til aðstoðar hafa verið Jónns Böðvarsson skinetjóri og Oei- Geirsson yfirvéi'-fþkri. Skin-tjóri í bessari fyrstu ferð var Jónas Röðvarsson. en siðan mun Magnús Þors*einsson taka við skininu. Yfirvélstióri f .Tóm frúferðinni var Geir Geirsson l'Vímiliqlrl 6 **. ALÞÝÐUBLAÐ10 - 19. júní 1965 3 >

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.