Vísir - 29.05.1962, Blaðsíða 1

Vísir - 29.05.1962, Blaðsíða 1
ISISH * ... .T*'*"# il*L- ' ?$%& : : : ■ VISIR Þriðiudagur 29. maí 1962. — 121. tb. Þýðingarlaust að kæra vafaatkvæði Winter, skipstjóri, í brúnni. ^ í kurteisisheimsókn Franska herskipið Command ant Bordais er nú í kurteisis- heimsókn í Reykjavík og mun dvelja hér til morguns. Skipið er byggt í fyrra, hefur tvær aflvélar, 16.000 hestöfl að sfiærð og gengur 25 mflur. Á skipinu eru 14 yfirmenn og 155 aðrir. Skipið er 2500 tonn DPL, 100 metrar að lengd og 11.5 m að breidd. Vísir átti í morgun tal við Winter, skipstjóra skipsins, sem er 45 ára að aldri og hefur verið í flotanum í nærri 20 ár. — Hvaðan komið þið hing- að? — Við komum frá Holsteins borg á Grænlandi. Áður höfum við verið við Nýfundnaland og Canada. Við aðstoðum á þess- um svæðum frönsk fiskiskip. — Hverskonar fiskiskip senda frakkar þarna vestur? — Þar er aðallega um að ræða stóra togara, allt upp í 3Ö0Ö tonn. Hér við fsland’ höfum við þó enga togara. Við erum hér eingöngu í kurteisis- heimsókn og til að taka olíu og vatn. — Eru mörg slík eftirlitsskip í notkun? — Skip eins og þetta eru níu. Þau eru aðallega byggð til allskyns eftirlits- og fylgd- arstarfa. Þau eru sérstaklega byggð með það fyrir augum að geta verið úti um langan tíma, í hvers kyns veðurfari á úthöf- um. Þau eru einnig útbúin fuil komnum tækjum til leitar að: kafbátum ,auk arinarra hern- aðartækja. — Hvert farið þið héðan? — Við förum fyrst til Nor- egs. Síðan höldum við norður. til norður odda Noregs óg til Barentshafs. — Hvar er heimahöfn skips-, ins? — Hún er í Lorient á Bret) agrieskaga. i L " v' i . ., í, k Dauðadómur Frétt í morgun hermir, að hæsti- réttur Israels hafi staðfest lífláts- dóminn yfir Eichmann. Hvort llflátsdóminum verður fullnægt er svo annað mál, því að forsetanáðun gæti komið til greina, þannig að dóminum yrði breytt í ævilangt fangelsi. í bæjarstjórnarkosningunum í að þessi atkvæði hafi tilheyrt I- tveimur kaupstöðum stóðu úrslit. lista þeirra. Benda þeir á það að svo glöggt milli lista, að vafaat- í kosningahandbók, sem gefin var kvæði gátu skipt máli og eru nokkr j út í Reykjavík, hafi orðið prent- ar líkur fyrir því, að þeir aðiljar, villa og listi þeirra verið kallaður sem óánægðir eru með niðurstöð- A-listi. Eru þeir nú að tala um að urnar kæri úrskurði um þau. Þó | kæra þetta og heimta að A-at- verður að geta þess að í báðum ; kvæðin verði talin I-atkvæði. Slík tilfellum eru ákaflega litlar líkur kæra er þó allsendis vonlaus enda til að kæra komi að nokkru gagni, væri slíkt brot á öllum kosninga- því að málin liggja beint fyrir. reglum. Hinir einu, sem þeir gætu kært, væru útgefendur kosninga- handbókarinnar í Reykjavík. Tveir flokkar jafnir. Á Seyðisfirði voru tvö atkvæði j talin vafaatkvæði. Stafaði það af: ógreinilegum merkingum á lista Al-1 þýðuflokks og Framsóknar. Báðir listarnir höfðu sömu atkvæðatölu! og síðan kom hvort vafaatkvæðið á hvorn þeirra. Bæði þessi vafa- atkvæði voru úrskurðuð gild og þar fylgt gamalli venju. Alþýðu- flokkurinn gerði fyrirvara um mál- ið, en svo fór að hann vann hlut- kesti móti Framsóknarflokknum. A-atkvæði á Sauðárkrók. Á Sauðárkróki komu fram tvö utankjörstaðaratkvæði merkt A- listi, en enginn A-listi var í kjöri þar, svo að kjörstjórn úrskurðaði þau tafarlaust ógild. Krafðist eng- inn þess að þau væru tekin gild, enda væri það þvert á móti öllum reglum. Nú vildi þó svo til, að það gat munað þessum atkvæðum hvort Sjálfstæðisflokkurinn héldi meiri- hluta sínum og því hafa vinstri menn síðan farið að halda því fram Þ|ófar eltir I gærkveldi, um klukkan 11 fyr- ir miðnætti var brotizt inn 1 sum- arbústað við Helluvatn, en það er hluti af Eiliðavatni, Rauðhólameg- in. Þjófarnir höfðu á brott með sér bát sem þeir tóku úr bátaskýli sumarbústaðarins og fóru á bátn- um út á vatn. Eigandinn kom skömmu síðar á staðinn, sá þrjá stráka á btnum, á að gizka 15 — 16 ára, og veitti þeim eftirför eftir að í land var komið, en náði þeim ekki. Missti hann af þeim bak við Trippanef hjá Rauðhólavegi. Sagði hann að einn strákanna hafi verið nokkru stærri en hinir tveir. Rannsóknarlögreglan biður þá sem hefðu orðið varir við peyja þessa, t d. tekið þá upp , bfl, eða á annan hátt gætu gefið upplýsing- ar um ferðir þeirrá, að láta hána vita hið skjótasta. Þríðji futtdur um ••• • Sfldveiðik/or/n Sáttasemjari heldur nýjan fund í dag með fulltrúum Landssamb. íslenzkra útvegsmanna og fulltrú- um sjómannasamtakanna innan Al- þýðusambands fslands, um kjör sjó manna á sfldveiðibátunum í sumar. Fyrsti fundur samninganefnd- anna var haldinn 17. maí. Er tveir fundir höfðu verið haldnir þótti sýnt, að þyrfti aðstoðar sáttasemj- ara, og var deilunni vísað til hans iaugardaginn 19. maí. Síðan hafa verið haldnir tveir fundir hjá sáttasemjara og er það því hinn þriðji, sem haldinn verður i dag. Undirnefndir hafa starfað milli funda. Á þessu stigi er ekki unnt að segja frekara frá samkomulagsum- leitunum. Síldveiðar byrja vanalega um miðbik júnímánaðar svo að aug- ljóst er mikilvægi þess, að sam- komulag náist hið fyrsta. SÍLDARVERÐIÐ. Verðlagsráð sjávarútvegsins fjail- ar um þessar mundir um síldar- verðið í sumar, bæði bræðslusíld- ar- og saltsíldarverðið. Sfldarverksmiðjan á Seyðis- firði tilbúin á réttum tíma Smíði hinnar nýju síldarverk- smiðju á Seyðisfirði hefur gengið betur en á horfðist, þegar járn- smiðaverkfallið skail á og hinir reykvísku járnsmiðir sem austur- frá voru lögðu niður vinnu. Járn- smiðirnir á Seyðisfirði hafa þá ekki legið á liði sínu og er nú talið víst, ef engin óhöpp koma t'yrir að verksmið,an verði tilbúin um mánaðamótin júní-júlí. Nú er búið að reisa stálgrindurn- ar, sem síldarverksmiðjan er reist úr og verið að klæða þær. Jafn- framt hefur vélum verið komið fyr ir og enn unnið að því að bæta við vélum. 40 til 50 manns vinna við smíði verksmijunnar. Þannig er allt útlit fyrir að síldarverksmiðjan á Seyðisfirði geti farið að taka við sfld til bræðslu strax og síldarvertíð hefst. Hefur verkið þá gengið furðu vel og mun tíminn sem fer til að ljúka bygg- ingunni vera um tveir mánuðir.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.