Vísir - 21.06.1963, Blaðsíða 2
V í S IR . Föstudagur 21. júní 1963.
MMMim'iftfifiyH' v- r. . -
y///4mi2:///'2MiZ7////'_
'^QpSljn ‘tj ir3 ^TT* T
Frá leik KR og Fram f gaer.
Gunnar Felixson spymir.
STAÐAN
OG
MÖRKIN
Fram 4 3 0 1 3—2
Valur 3 2 0 1 5—2
Akranes 4 2—0 2 7—6
Akureyri 3 1 0 2 5—6
Keflavík 3 1 0 2 4—6
K.R. 3 1 0 2 3—5
Markhæstu menn:
Bergsteinn Magnússon, Val
Gunnar Felixson, KR
Þórður Jónsson, Akranesi
Skúli Ágústsson, Akureyri
Steingr. Björnss., Akureyri
Skúli Hákonarson, Akranesi
4
2
2
2
2
2
NÆSTU LEIKIR:
Sunnudag 23. júní:
Akranesi: Fram — lA.
Reykjavík: Valur — Akuryrl.
Mánudag 24. júní:
Reykjavík: K.R. — Keflavík.
GóBur leikur KR færði
tvö gullfulleg mörk
— Sanngjarn sigur botnsins gegn
topplnum b 1.
Ekki tókst Fram að
skora gegn KR á íslands-
mótinu og eru nú búnir
að leika 10 leiki í
knattspyrnumótum meist-
araflokks í sumar og hafa
ekki skorað nema 2 ærleg
mörk. I gær unnu KR-ing-
ar á tveim ágætum mörk-
um verðskuldaðan sigur
yfir Fram. Framarar voru
lengi vel ekki síðri KR í
leik sínum, en í seinni hálf
leik og ekki sízt eftir að
Guðjóns Jónssonar naut
ekki við, en hann meiddist
illa í leiknum, fór að síga
á ógæfuhliðina.
Leikurinn var fyrri partinn slak-
ur og heldur litið spennandi og ó-
nákvæmnin alls ráðandi hjá flest-
um leikmönnum. Framarar áttu
gott færi snemma í leiknum, átti
Björn Helgason þá góðan skalla £
þverslána. Hættuleg var lfka sókn
2. deild:
Sigur Breiðabliks
/ SA NDGBRÐl
BREIÐABLIK vann REYNI i
Sandgerði í fyrrakvöld með
5:2, en nokkrum dögum áður
unnu Reynismenn DÍMON, hlð
nýja knattspyrnufélag úr Land-
eyjunum með 11:3.
Reynismenn reyndust ekki
menn til að standast hinum
vaxandi piltum úr Kópavogi
snúning. Strax í fyrri hálfleik
hófst skothríð þeirra undan
vindinum, sem var mjög sterk-
ur. Reynir Jónsson skoraði
fyrst með fallegu skoti og
framvörðurinn Guðmundur H.
Jónsson bætti öðru við fyrir
hálfleikslokin.
í síðari hálfleik skoraði Reyn-
ir enn og f jórða markið varð
sjálfsmark eftir þunga pressu
Breiðabliks. 5:0 skoraði svo
Grétar útherji er hann óð inn
með boltann og áttl gott skot.
Er 20 mín. voru eftir skoraði
miðherji Sandgerðinga fyrra
mark liðs síns og stuttu síðar
kom 5:2 af 30—35 metra færi
eftir vindinum. Létti þetta skap
áhorfenda að mun, en margir
þeirra voru orðnir allbrúna-
þungir, sem von var, er mörkin
voru orðin 5 og ekkert svar
heimamanna við þeim fyrir
hendi.
Fram upp hægri kantinn en Heimir
bjargaði laglega. KR var mjög
nærri að skora ,ár31, mín,, en þá
voru þeir Guðjón, Siguriðúf ‘Éinars-
son og Hrannar (fyrir á marklinu
og fengu varizt hinum marksækna
Gunnari Felixsyni.
KR-liðið varð fyrir skakkaföllum
f fyrri hálfieik, Gunnar Guðmanns-
son fór út af en Theódór Guð-
mundsson kom inn. Veikti þetta að
vonum liðið nokkuð, enda þótt
hinn ungi leikmaður hafi átt ágæt-
an leik.
• Fyrra mark leiksins skoraði
Jón Sigurðsson innherji KR á ein-
staklega glæsilegan hátt. Bolti kom
svífandi frá hægri kanti og Jón
notfærði sér örlitla von um að
skora þaðan sem hann var utar-
lega í vitateignum, skallaði fast og
örugglega niður í grasið. Geir
markvörður var ekki viðbúinn
slíkum viðtökum á boltanum og
áttaði sig varla fyrr en um seinan.
Nokkru eftir markið varð Guð-
jón að fara út af vegna meiðsla
sem hann hlaut í einni viðureign-
inni.
Framhald á bls. 5
„Louisville Loudmouth“.
„L 0UDM0UTH" SIGRAÐI
Henry Cooper og Cassius
Clay, hinn frægi banda-
ríski gortari, kallaður
Louisville Loudmouth af
blöðunum, leiddu saman
hesta sína á Wembley á
miðvikudagskvöldið.
Clay vann eins og hann hafði
sjálfur spáð fyrir keppnina í 5.
lotu, en þá varð að stöðva bar-
dagann vegna blóðrennslis úr
augabrún Coopers. Hafði Clay
lagt áherzlu á að ýfa upp sár
sem Cooper hafði og tókst að
lokum lað gera út af við hann
á þann hátt.
Kom mótstaða Coopers hinum
50000 áhorfendum á Wembley al-
gerlega á óvart og í 1. og 2. lotu
var Cooper allsráðandi með
skemmtilegar sóknarlotur. Þriðja
lota var að mestu eign Clay, en í
4. lotu gerðist undur. Er bjallan
glumdi og tilkynnt að lotunni væri
lokið, var Clay í gólfinu liggjandi
á sínu breiða baki. Cooper hafði
gert lítið úr orðháknum. Dómarinn
taldi áfram þrátt fyrir bjölluna,
enda gera nýjar hnefaleikareglur
ráð fyrir að það sé gert. Er hann
hafði talið upp að fjórum, reis
Clay upp og skjögraði til horns
síns.
Fimmta lotan var hins vegar
eign unga Bandaríkjamannsins og
í þessari lotu varð Cooper að fara
í gólfið og að lokum, er hann sá
vart út úr augunum fyrir blóði og
áhorfendur næst hringnum æptu á
dómarann að stöðva Ieikinn, sá
hann sér ekki fært að halda keppn-
inni áfram, enda vitfirring annað
en stöðva bardagann.